Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 26
•26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16: JANÚAR 1988 "H Söluskattur á matvæli: MICROSOFT HUGBÚNAÐUR Er beinn skattur á WORD V 4,0 MULTIPLAN V 3,03 CHART V 3,0 PROJECT V 4,0 COBOL V 2,2 C COMPILER V 5,0 FORTRAN V 4,01 PASCAL V 3,32 i'Æmí's SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37 Akureyri: Tölvutæki - Bókval Kaupvangsstræti 4, sími: 26100 matvöruviðskiptanna eru opnar sem hér segir Laugalæk, sími 686511 Virka daga kl. 8-19 Föstudaga kl. 8-20 Laugardaga kl. 8-16 Hamraborg, Kópavogi, sími 41640 Alla daga frá kl. 8-20 Garðatorgi, Garðabæ, sími 656400 Virka daga kl. 8-19 Föstudaga kl. 8-20 Laugardaga kl. 8-18 Verið ávallt velkomin veitinga- og gistíhús - segir Wilhelm Wessman, formaður Sambands veitinga- og gistihúsa „Söluskattur, sem lagður hefur verið á matvæli, er beinn skattur á veitinga- og gistihús, því þau eiga afar erfitt um vik að velta þess- um hækkunum út í verðlagið,“ sagði Wilhelm Wessman, formaður Sambands veitinga- og gistihúsa. Á fimmtudagskvöld héldu samtök- in fund ásamt Birni Björnssyni, aðstoðarmanni fjármálaráðherra, vegna söluskatts á matvæli. „Á fundi þessum leituðum við skýringa á því hvernig ætti að reikna þennan skatt, því það hefur ekki verið nógu ljóst til þessa, frem- ur en margt annað í því sambandi," sagði Wilhelm. „Þessi hækkun, það er í október og aftur nú, er sam- tals um 10-11% af brúttóverði. Áður gátum við dregið innkaup frá, en vorum bara með söluskatt á álagninguna. Þetta veldur okkur erfíðleikum, því við gefum upp verð þjá okkur langt fram í tímann og öll hækkun er því ákaflega nei- kvæð. Þar vil ég sérstaklega nefna markaðinn í Bandaríkjunum, sem er afar viðkvæmur fyrir öllum slíkum breytingum." Varðandi innanlandsmarkað- inn sagði Wilhelm, að sér sýndist sem veitinga- og gistihús yrðu að taka þessa hækkun á sig, en gætu ekki velt henni út í verðlagið. „Ég get til dæmis nefnt að á Hótel Sögu, þar sem ég er framkvæmdastjóri, er ekki unnt að hækka verð á árs- hátíðum, því sá markaður er mjög viðkvæmur. Þetta er beinn skattur á okkur, alla vega í vetur, hvað sem síðar verður. Það er mikil spenna í skemmtanamarkaði, mikið fram- boð og því verða menn að fara sér hægt í öllum hækkunum." Wilhelm sagði að erlendir ferða- menn hefðu ekki enn staðfest pantanir sínar fyrir næsta sumar og því ætti eftir að koma í ljós hversu mikil áhrif þessi hækkun hefði. „Þá höfum við einnig við annan vanda að glíma, sem er lækk- un á gengi dollarans,“ sagði hann. „Við höfum gefið ferðaskrifstofum upplýsingar um verð á gistirými næsta sumar og því verður ekki breytt, þótt þessi þróun þýði í raun að það verður jafnvel lækkun í krónutölu milli ára,“ sagði Wilhelm Wessman, formaður Samband veit- inga- og gistihúsa. Y F I R L I T um skráóa atvinnuleysisdaga á ðllu landinu árin 1978 - 1987. Ar 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 Höfuóborgarsv. 25.934 38.713 26.342' 33.823 59.893 120.694 135.231 80.798 65.421 301480 Vesturland 4.401 ‘3.002 3.400 3.401 16.152 21.970 28.976 26.087 16.435 17.197 Vestfiróir1) 1.927 920 1.844 239 11.238 3.843 5.871 5.490 2.118 6.934 Noróurl. vest.*' 12.662 13.157 10.386 11.285 24.909 32.943 28.615 21.075 19.602 15.099 Noróurl. eyst. 16.107 21.061 20.71V 30.239 39.407 57.129 84.822 64.519 43.904 30.896 Austurland 8.207 8-133 7.517 7.188 15.661 19.576 31.048 23.309 15.202 15.155 Suóurland 10.131 8.752 10.007 12.044 16.541 27.697 37.086 27.138 27.865 25.393 Suóurnes 9.392 5.032 5.928 7.420 16.130 24.882 33.468 39.321 23.051 11.632 Allt landió samtalc: 88.761 98.543 86.143 105.639 199.934 308.754 385.117 287.737 213.961 152.786 Meðalt.atv.l. 341 379 331 406 770 1.187 1.481 1.108 823 588 Hlutf.af maftnafla 0,3 0,3 0,3 0,4 0,7 1 ,0 1 ,3 0,9 0,7 0,5 Heildar- mannaflinn 2) 101.845 102.920 105.900 111.405 114.200 117.000 119.300 121.700 122.000 123.500 1) Drangsnes og Hólmavík 2) Tölur fyrir árin 1986 eru talin meó Norðurlandi vestra. og 1987 eru áætlaóar af Þjóöhagsstofnun. Mikil atvinna árið 1987: Atvinnuleysisdagar í des- ember ekki færri í áratug FÆRRI atvinnuleysisdagar voru skráðir í desembermánuði 1987 en í nokkrum öðrum desembermánuði á þessum áratug. Skráðir atvinnu- leysisdagar voru rösklega 14 þúsund á landinu öllu, sem jafngildir því að 650 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá allan mánuðinn en það svarar til 0,5% af áætluðum mannafla á vinnumark- aði í mánuðinum samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. Samkvæmt yfirliti um atvinnu- ástandið, sem gefíð er út af Vinnumálaskrifstofu félagsmála- ráðuneytisins, voru á árinu 1987 alls skráðir 153 þúsund atvinnu- leysisdagar á landinu öllu. Þetta jafngildir því að 600 manns hafí að meðaltali verið á atvinnuleysis- skrá allt árið eða sem svarar 0,5% af áætluðum mannafla á vinnu- markaði miðað við ársmeðaltal. Þetta er minnsti fjöldi atvinnuleys- isdaga sem skráð hefuyr verið hér á landi síðan árið 1981, en þá voru skráðir 106 þúsund atvinnuleysis- dagar. Til samanburðar má geta þess, að ársmeðaltal skráðra atvinnuleys- isdaga næstu 5 ár á undan, 1982 til 1986, var 281 þúsund dagar en mesta skráða atvinnuleysi á einu ári síðastliðin 10 ár var á árinu 1984. Þá reyndust þeir 385 þús- und, sem svarar til að hlutfall atvinnulausra af mannafla hafi ver- ið 1,3%. Jafnframt því sem skráðum at- vinnuleysisdögum hefur farið fækkandi síðustu árin hefur dreif- ing á skráðu atvinnuleysi tekið verulegum breytingum. Þannig var hlutdeild höfuðborgarsvæðisins og Suðumesja í skráðu atvinnuleysi árið 1983 rösklega 47% af heildar- Qölda en á síðasta ári 27,5%. Eftirspurnarþenslu á vinnumarkaði virðist því fyrst og fremst mega rekja til þessara svæða. Þegar litið er til landsins í heild verður árið 1987 að teljast gott ár í atvinnulegu tilliti. Eigi að síður hafa ýmsir stáðir og einstakar at- vinnugreinar átt í erfíðleikum, sem leitt hafa til stöðvunar atvinnu- reksturs og uppsagnar starfs- manna. Á síðastliðnu ári bárust Vinnumálaskrifstofunni tilkynning- ar frá fyrirtækjum um uppsagnir allt að 800 starfsmanna þar af. um helmingur frá prjóna- og sauma- stofum. Kippur komínn í loðnuveiðina KIPPUR er nú kominn í loðnu- veiðina eftir magra daga vegna brælu. Síðdegis i gær höfðu 14 skip tilkynnt um afla, flest með fullfermi. Nær öll skipin voru á miðunum í gær og mörg kom- in með góða slatta. Því var búizt við góðri veiði í nótt enda veður ákjósanlegt. Veiðisvæðið er nú austsuðaust- ur af Langanesi, en norsku skipin hafa verið víðar. Þar er minna iagt upp úr magni en hjá íslenzku skipunum, þar sem þau norsku frysta mikið af loðnunni um borð og frystigeta takmarkar mögu- lega afla. Eftirtalin skip höfðu tilkynnt um afla síðdegis í gær: Harpa RE 630 til Seyðisfjarðar, Galti ÞH 550 til Þórshafnar, Gísli Ámi RE 650 til Seyðisfjarðar, Jón Kjartansson SU 1.100 til Eski- fjarðar, Guðmundur VE 500 til Neskaupstaðar, Fífíll GK 640 til Seyðisfjarðar, Dagfari ÞH 500 til Seyðisfjarðar, Skarðsvík SH 650, löndunarstaður óákveðinn, Jón Finnsson RE 600 til Seyðisfjarð- ar, Sjávarborg GK 750 til Seyðis- flarðar, Guðrún Þorkelsdóttir SU 720 til EskiQarðar, Hilmir II SU 580 til Seyðisfjarðar, Erling KE 670 til Seyðisfjarðar og Kap II VE 710 til Vestmannaeyja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.