Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988 17 Á vit frj álshyggj unnar Átakasaga Alþýðubandalagsins eftir Vilhjálm Egilsson Bók Óskars Guðmundssonar Al- þýðubandalagið — átakasaga, sem kom út fyrir jól, er fróðlegur vitnis- burður um hvernig hann og aðrir fylgismenn Ólafs Ragnars Grímssonar skynja veruleikann. Ennfremur má ráða af lestri bókar- innar ýmislegt um hvert Alþýðu- bandalagið mun stefna í framtíðinni undir forystu Ólafs. Bókin er því hin fróðlegasta og ástæða til þess að henni sé gaumur gefmn. Sú saga sem Óskar segir okkur af hreyfingunni allt frá öðrum ára- tug aldarinnar til hins níunda er af átökum um menn og stefnur. Þar sem Óskar stillir upp tveimur meginpólum í þessum átökum og. er sjálfur í slagnum á síðasta skeiði sögunnar má draga þá ályktun að saga hans sé ekki sú eina sem segja megi af þessum atburðum. Andstæðingar fá útreið Sterkustu hliðar bókarinnar fel- ast í umfangsmiklum lýsingum á átakafundum í Alþýðubandalaginu þar sem höfundurinn hefur viðað að sér miklu efni og leggur mikið upp úr því að skipa fólki í fylkingar og segja frá deilunum. Eins er svo þekking höfundar á Ólafi Ragnari mikilvæg og þeim hluta Alþýðu- bandalagsins sem þeir tilheyra. Veikustu hliðar bókarinnar tengjast skorti á skilningi á mark- miðum og sjónarmiðum þeirra manna sem höfundur hefur sjálfur att kappi við á undanförnum árum. Óvenjuleg óvild kemur fram í garð Ásmundar Stefánssonar, forseta ASÍ. Ekki nóg með að Óskar hafi lítið álit á Asmundi málefnalega heldur er. mikið reynt til að sýna fram á óheiðarleika hans. Fyrir þá sem þekkja til sögu er ljóst að höf- undi bregst bogalistin í sagnfræð- inni en bókin verður á köflum fyrst og fremst heimild um viðhorf fýlk- ingar hans til málanna. Þjóðarsátt á viðreisnarárum Ásmundur Stefánsson fær miklar skammir vegna kjarasamninga á árunum 1984—1987. Að sumu leyti lendir höfundur þar í vanda því að samúð hans virðist vera með „þjóð- arsáttaröflunum" fyrir tuttugu árum þegar Tónabíósfundurinn frægi var haldinn en nú er blaðinu snúið við. Höfundur velur því þann kost að fjalla fátæklega um kjara- deilurnar í tíð Viðreisnarstjórnar- innar og afstöðu Hannibals Valdemarssonar og annarra for- ystumanna verkalýðshreyfingar- innar og áhrif hennar á Alþýðu- bandalagið. Óskar reynir ekki heldur að draga fram þau viðhorf Ásmundar Stefánssonar og annarra verkalýðs- foringja á síðustu árum sem fólust í því að mæla árangur verka sinna í batnandi hag fólksins en ekki í fjölda verkfallsdaga. Þá virðist af hálfu Óskars meginskýringin á mis- munandi viðhorfum Ásmundar Akranes: Eldur í Stefánssonar og Þrastar Ólafssonar vera sú að Þröstur sé heiðursmaður en Ásmundur skúrkur. Ekkert er reynt að lýsa núverandi stöðu Dags- brúnar innan verkalýðshreyfingar- innar en auðvelt er þó að sýna fram á að af mörgum vinnumarkaðsleg- um ástæðum hljóti alltaf að vera viss togstreita milli Dagsbrúnar og ASÍ, óháð því hvaða einstaklingar eiga í hlut. Kjarabaráttan ekki um kjaramál Það er dregið mjög sterkt fram í bókinni að markmið Óskars og félaga hans í BSRB-verkfallinu var fyrst og fremst að koma ríkisstjórn- inni frá en ekki að ná árangri fyrir fólkið. Það má líka sjá að línan fyrir kjarasamningana á þessu ári er sú sama og ljóst að árangur Ólafs Ragnars í formennskustarfi hans í Alþýðubandalaginu verður mældur í því hversu hátt verðbólgan kemst á árinu. Þetta var svo reynd- ar staðfest í áramótaviðtali Þjóðvilj- ans við Ólaf. Komandi kjarasamningar eru því „Má þegar sjá ýmis merki þess t.d. að Al- þýðuf lokkurinn taki mál fijálshyggjumanna upp á sína arma og reyni að stilla Sjálf- stæðisf lokknum upp sem íhaldssömum kerf- isflokki. Það sama liggur í raun fyrir Al- þýðubandalaginu að gera éftir að búið er að hreinsa út sósíal- ismann.“ prófsteinn á getu Ólafs Ragnars til að koma verðbólgunni upp. Fijálshyggja að smeygja sér inn Einna merkilegast við bók Óskars er sú staðfesting sem er á undanhaldi sósíalismans innan Al- þýðubandalagsins. Þetta er í Vilhjálmur Egilsson samræmi við þróun erlendis hjá vinstri öflum og má m.a. rekja upp- haf hennar til ýmissa hugmynda- fræðinga bandarískra demókrata. Alþýðuflokkurinn hefur breytt um svip á undanfömum árum í anda þessarar nýju hugmyndafræði. Alþýðubandalagið mun á næstu árum væntanlega leggja meiri áherslu á svigrúm fyrir uppbygg- ingu smáfyrirtækja sem vaxtar- brodds í hagkerfinu og tala mikið um einstaklingsréttlæti. Þetta þýðir í raun að fijálshyggjan mun smeygja sér inn fyrir dyr hjá Al- þýðubandalaginu og flokkurinn mun án efa reyna að höfða til sjálf- stæðra smáatvinnurekenda sem þurfa að hafa mikið fyrir lífínu og eru í sífelldum slag við kerfið. Má þegar sjá ýmis merki þess t.d. að Alþýðuflokkurinn taki mál frjálshyggjumanna upp á sína arma og reyni að stilla Sjálfstæðisflokkn- um upp sem íhaldssömum kerfis- flokki. Það sama liggur í raun fyrir Alþýðubandalaginu að gera eftir að búið er að hreinsa út sósíal- Bókin þakkarvert framtak Það er fagnaðarefni fyrir alla sem fylgjast með stjómmálum á Islandi þegar bók eins og þessi kem- ur út. Hún varpar alltaf vissu ljósi á stjómmálasöguna og gefur færi á að skilja betur hvað framtíðin ber í skauti sér. Því er það þakkarvert framtak hjá Óskari að koma bók- inni frá sér og hún er prýðileg aflestrar þrátt fyrir að hún sé ekki hafin yfir gagnrýni. Bókin er tvímælalaust þess virði að hún sé lesin, ekki síður fyrir andstæðinga Alþýðubandalagsins en fylgismenn. Höfundur er hagfrœðingur og framkvæmdastjóri Vers/unarráðs íslands. geymsluskúr ELDUR kom upp í geymsluskúr hjá skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi um klukkan 19:20 á fiinmtudagskvöld. Geysimikinn reyk lagði úr skúm- um, og menn náðu ekki að slökkva eldinn með handslökkvitækjum. Slökkviliðið var kallað út og brá það skjótt við og réði niðurlögum eldsins á skömmum tíma. í skúm- um voru geymd rafsuðutæki og fleira. SBUKICUSUB HnURDISIUA tískifcmlunin Sértilkynnir: Útsölu á glæsilegum fatnaði. Sér býður þér aðeins tígulegan og eftirtektarverðan fatnað frá þekktum tískuhúsum. Á útsölunni eru flíkur frá Comma, San Lorenzo, Jean Poul, Yell og Barajupa. Þetta eru merki sem þú sérð ekki á hverju götuhorni enda ertu sérstæð í fötum frá Sér. Útsalan stendur yfir í fáa daga og verslunin er opin frá kl. 10 til .18 virka daga, 10 til 16 á laugardögum. i iw.msGOir iu siMiraio
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.