Morgunblaðið - 16.01.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988
Stokkhólmur:
Garðar Cortes
í Rigoletto
GARÐAR Cortes óperusöngvari
hefur verið ráðinn til að syngja
hlutverk hertogans f óperunni
Rigoletto eftir Verdi í Konung-
legu óperunni í Stokkhólmi.
Fyrsta sýningin með Garðari í
þessu hlutverki verður 23. febrú-
ar næstkomandi.
Garðar er nú staddur í Bretlandi
þar sem hann vinnur að undirbún-
ingi þessa verkefnis, en auk þess
hafa honum borist fleiri tilboð frá
óperum víða um heim. Engar
ákvarðanir hafa verið teknar í þeim
efnum að því undanskildu að Garð-
Garðar Cortes óperusöngvari
ar hefur verið ráðinn til að syngja
hlutverk Menrico í óperunni „II
Travatore" í Seattle í Bandaríkjun-
um haustið 1989.
Fundur sambandsstjórnar VSÍ um kjarasamninga:
Kaupmáttur lægstu
launa verði varinn
FUNDUR sambandsstjórnar
Vinnuveitendasambands íslands,
sem haldinn var í gær, telur óum-
flyjanlegt að kaupmáttur tekna
rými á árinu 1988 vegna fyrirsjá-
anlegra lakari viðskiptakjara og
rýmunar þjóðartekna um 4% á
mann. Fól fundurinn fram-
kvæmdastjórn og samningaráði að
miða undirbúning samninga við
horfur í efnahagsmálum með það
Tollalækkanir minnka verðbólgu
- segir Þorsteinn Pálsson
ÞORSTEINN Pálsson forsætisráð-
herra segir að þótt verðbólgan
mælist há nú f kjölfar söluskatts-
breytinganna muni draga vem-
lega úr henni þegar áhrif
tollalækkana fara að koma í ljós
í vömverði.
Framfærsluvísitalan mældi 41,9%
verðbólgu síðustu þijá mánuði ársins
en ef tekin var hækkun vísitölunnar
frá desember til janúar samsvaraði
hún 54,8% árshækkun.
Þorsteinn Pálsson sagði að í næsta
mánuði væri ekki ástæða til að ætla
annað en hækkun framfærsluvísi-
tölunnar yrði meiri en 1%, vegna
áhrifa tollalækkana. Það þýddi að á
eins mánaðar grundvelli lækki verð-
bólgan niður í 15% og á þriggja
mánaða grundvelli ætti hún að lækka
úr 40% niður í 30%.
VEÐUR
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
VEÐURHORFUR / DAG, 16.01.88
YFIRLIT kl. 15.00 í g»r: Hægviðri eða suöaustan gola á landinu,
skýjað og þokuloft við austurströndina en léttskýjaö annars stað-
ar. 1 —4 stiga hiti á Suöaustur- og Austurlandi en 0—7 stiga frost
víöast annars staöar.
SPÁ: Þykknar smám saman upp með vaxandi suðaustanátt, víða
hvasst og slydda eða rigning vestanlands undir miðnætti en suð-
austan stinningskaldi eða allhvasst og sums staöar rigning austan-
lands á morgun. Gengur í suðvestan ,stinningskalda með skúrum
eða slydduóljum vestanlands síðdegis. Hiti.0—5 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG og MÁNUDAG: Suðvestanátt um allt land
og fremur kalt. Él á Suður- og Vesturlandi en annars þurrt. Víðast
léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi.
að markmiði, að verðbólga verði
sem minnst og kaupmáttur lægstu
launa verði varinn eins og efna-
hagslegar forsendur framast
leyfa.
í sámþykkt sambandsstjómarinnar
kemur fram að laun hafa hækkað
um 73% á síðustu tveimur árum á
sama tíma og verðlag hafi hækkað
um 34%. Kaupmáttur launa hafi því
aukist um 30%, en þjóðartekjur um
14%. Útflutningsfyrirtæki séu nú rek-
in með tapi og mikill og vaxandi
halli sé á viðskiptum við útlönd. Þetta
gerist þrátt fyrir að viðskiptakjör
hafi batnað ár frá ári og þjóðartekjur
hafi vaxið meira en í nokkru nálægu
landi.
Síðan segir: „Við þessar aðstæður
er ljóst, að úr kaupmætti launa hlýt-
ur að draga. Valið stendur um það,
'hvort samdrætti verður mætt strax
með skipulegum hætti eða hvort verð-
bólga verður látin um verkið. Verk-
fallsátök breyta hér engu um, en
hindra á hinn bóginn möguleika á
skynsamlegri lausn, því að kaup-
máttur ræðst ekki af verkföllum.
Takist samstaða um að halda
launakostnaði fyrirtækja í skefjum
er von til þess, að verðbólgan verði
hófleg og unnt reynist að viðhalda
hærri kaupmætti en ella. Fari á hinn
bóginn svo, að miklar almennar
launahækkanir verði knúnar fram
hljóta gengisbreytingar að verða enn
stórfelldari og verðbólga að sama
skapi meiri. Við þær aðstæður myndi
kaupmáttur lýrna meira en nauðsyn
ber til og mest hjá þeim, sem lakast
standa fyrir. Reynslan sýnir, að þá
leikur verðbólgan verst, lágtekjufólk
og ungt fólk með verðtryggðar skuld-
ir. Við þær aðstæður verður afkoma
fyrirtækja jafnframt erfiðari. Hags-
munir fyrirtækja og starfsfólks fara
því algerlega saman.
Miklir hagsmunir launþega og at-
vinnurekstrar eru við það bundnir,
að í komandi kjarasamningum takist
víðtæk samstaða um að leysa mál á
grundvelli efnahagslegra staðreynda
og forðast þannig óðaverðbólgu. Að-
eins með þeim hætti er von til þess,
að stærsti hlutinn af ávinningi síðustu
tveggja ára verði varinn í bráð og
lengd. í hnotskurn snýr spumingin
þannig við almenningi að gefa þarf
eftir hluta af þeim 30%, sem kaup-
' máttur hefur að meðaltali aukist um
síðustu 2 ár til að veija afganginn."
Vísitala framfærslukostnaðar:
3,71% hækkun frá
byrjun desember
VÍSITALA framfærslukostnaðar var 3,71% hærrl í byrjun janúar en
hún var í byrjun desembermánaðar, sem svarar til 54,8% árshækkunar
vísitölunnar. Undanfarna þijá mánuði hefur vísitalan hækkað um 9,1%
og jafngildir sú hækkun 41,9% verðbólgu á heilu ári, en síðastliðna 12
mánuði hefur hún hækkað um 26,1%. Frá upphafi til Ioka ársins 1987
hækkaði framfærsluvísitalan um 24,3% samanborið við 13,0% árið 1986
og 33,7% árið 1985. Árið 1987 var vísitalan að meðaltali 18,8% hærri
en árið áður, en sambærileg meðalhækkun 1985-1986 var 21,3% og
32,4% 1984-1985.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri +3 lóttskýjað Reykjavík +3 léttskýjað
Bergen 6 rignlng
Helsinki 2 þokumóða
lan Mayen +S alskýjaö
Kaupmannah. 3 i 1 2.
Narssarssuaq 0 snjókoma
Nuuk 4 snjók. ó s. klst.
Osió S léttskýjað
Stokkhólmur 4 þokumóða
Þórshöfn 7 hálfskýjað
Algarve 14 alskýjað
Amsterdam 6 þokumóða
Aþena 10 skýjað
Barcelona 10 þokumóða
Berlln 0 þokumóða
Chicago +6 alskýjað
Feneyjar 8 rigning
Frankfurt 4 skýjað
Glasgow 7 skúr
Hamborg 3 þokumóða
Las Palmas 18 skýjað
London 4 þoka
LosAngeles 11 elskýjað
Lúxemborg 2 rignlng v
Madríd 8 rign. é s. klst.
Malaga 13 súld
Mallorca 18 skýjað
Montreal +19 léttskýjað
New York +12 alskýjað
París 6 þokumóða
Róm 18 skýjað
Vín +2 þokumóða
Washington +9 alskýjað
Winnipeg +17 heiðskfrt
Valencla 12 mlstur
I fréttatilkynningu frá Hagstof-
unni segir að af þessari 3,71%
hækkun stafí um 2,5% af hækkun á
verði matvöru, en matvöruliður vísi-
tölunnar hafi hækkað alls um 10,7%.
Þar vegi þyngst verðhækkun vegna
álagningar söluskatts, en að hluta til
sé jafnframt um að ræða verðhækk-
anir af öðrum og eldri tilefnum.
Þannig megi nefna að kjöt og kjötvör-
ur hafi hækkað um 13,6% milli
desember og janúar og eigi hluti
þeirrar hækkunar rætur að rekja til
hækkunar á verðlagsgrundvelli bú-
vöru 1. desember síðastliðinn.
Þá kemur fram að hækkanir á
gjaldskrám opinberrar þjónustu hafi
alls í för með sér 0,5% hækkun vTsi-
tölunnar. 0,2% stafi af hækkun á
rafmagni og húshitunarkostnaði 0,2%
af hækkun lyfjakostnaðr og læknis-
hjálpar og 0,1% af hækkun afnota-
gjalda útvarps og sjónvarps.
Hækkun ýmissa annarra þjónustu-
liða olli einnig 0,5% hækkun vísi-
tölunnar í heild. Þar af stafaði 0,2%
af verðhækkun happdrættismiða,
0,1% af verðhækkun tannlæknaþjón-
ustu, 0,1% af hækkun á þjónustu
veitinga- og kaffihúsa og 0,1% af
verðhækkun ýmissa annarra þjón-
ustuliða. Þá hækkaði húsnæðisliður
vísitölunnar um 0,1%, sem og kostn-
aður vegna reksturs eigins bíls.
Ennfremur segir í fréttatilkynning-
unni að verðlagsáhrif af söluskatts-
breytingunum séu að mestu komin
fram í vísitölunni, en hins vegar séu
verðlækkunaráhrif af breytingum á
tollalögum og lögum um vörugjald,
sem tóku gjldi um áramót, að mjög
litlu leyti komin fram.
Hrafn Jónsson
forstfóri látinn
HRAFN Jónsson forsljóri lést í
Reykjavík miðvikudaginn 14. jan-
úar á sjötugasta aldursári.
Hrafn Jónsson fæddist í Reykjavík
23. febrúar 1918. Foreldrar hans
voru Ólöf Gunnarsdóttir og Jón
Sveinsson bæjarstjóri á Akureyri.
Hann ólst upp í Reykjavík hjá móður
sinni og Sveini Gunnarssyni lækni.
Hrafn lærði bifvélavirkjun á bif-
reiðaverkstæði Geirs og Mumma í
gömlu Mjólkurstöðinni.
Árið 1942 hóf hann sjálfstæðan
atvinnurekstur er hann setti á stofn
bifreiðaverkstæði og varahlutaversl-
un undir nafninu H. Jónsson og Co.
Hann hætti rekstri verkstæðisins og
rak eingöngu verslunina hin síðari ár.
Hrafn var þekktur hnefaleikamað-
ur á yngri árum.
Hann var einnig þekktur fyrir að
hafa bjargað bandarískri skíðaflugvél
af Vatnajökli ásamt þeim Alfreð
Elíassyni og Kristni Olsen. Leiðang-
Hrafn Jónsson forstjóri.
urinn tók nærri mánuð og lentu þeir
flugvélinni, sem þeir nefndu Jökul, á
Reykjavíkurflugvelli 5. maí 1951.
Eftirlifandi kona Hrafns er Erla
Höskuldsdóttir.