Morgunblaðið - 16.01.1988, Qupperneq 11
Laxness sundurklofínn og í molum,
samanber ummæli danska gagn-
rýnandans Torbens Broströms
„sundurtætt meistaraverk frá
tímum hinnar miklu menningar-
kreppu" sem Halldór Guðmundsson
vitnar til.
Halldóri Guðmundssyni tekst vel
að sýna viðfangsefni og aðferðir
íslenskra rithöfunda á fyrstu ára-
tugum aldarinnar, er ófeiminn við
að brjóta verk þeirra til mergjar.
Sama er að segja um þau evrópsku
menningaráhrif sem höfundur Vef-
arans mikla varð fyrir, orkuðu á
skáldskap hans og lífsskoðanir. Þar
koma m. a. við sögu Strindberg,
Weininger og Papini.
Bókum um Halldór Laxness
fjölgar sífellt og það eru fleiri en
útlendingar sem setjast niður og
skyggna verk skáldsins og líf. Yfír-
leitt er kögunarhóllinn marxískur.
Oft er eins og verið sé að hræra í
sama pottinum, sömu viðfangsefn-
in, sami tími fá líka meðferð. Það
er bráðum búið að tæma pottinn
og ef áfram verður haldið með
líkum hætti er ekkert eftir annað
en betja hann utan með sleifínni
svo að alþjóð megi heyra. En verk
skáldsins eru engu að síður lífseig,
ekki síst Vefarinn mikli sem er
auðug bók, í senn upphaf og endir
viss tímabils „nútíma" í íslenskri
skáldsagnagerð.
þess að tekist hefði að ráða í stöður
hjúkrunarfræðinga en á þeim væri
mikill skortur. Sömu sögu væri að
segja um sjúkraliða en betur hefði
gengið að fá ófaglært starfsfólk til
starfa.
I Sunnuhlíð í Kópavogi er ástand-
ið með verra móti að sögn Rann-
veigar Þórólfsdóttur, hjúkrunarfor-
stjóra. Fastir sjúklingar nú eru 39
auk þess rúm er fýrir 2 skammtíma-
vistanir. Rannveig sagði ekki hægt
að taka sjúklinga í þau rúm fyrr
en úr rætist með starfsfólk, en hin
39 væru fullnýtt. Leyfi er fyrir sex
og hálfri stöðu hjúkrunarfræðinga,
en aðeins eru til staðar 4,8. „Okkur
vantar ekki síður sjúkraliða og
ófaglært starfsfólk, við höfum reynt
að manna stöðumar með aukavökt-
um, þrátt fýrir skort á starfsfólki,“
sagði hún.
Sigurlín Gunnarsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri á Borgarspítalanum
sagði ástandið þar slæmt en ekki
verra en annars staðar. Á hjúkrun-
ardeildum spítalans er rúm fyrir
99 sjúklinga og eru þau öll nýtt.
Stöðugildi hjúkrunarfræðinga eru
19, en ættu að vera 25. Þó er eng-
in deild lokuð. Að sögn Sigurlínar
er mikill skortur á hjúkrunarliði,
að jafnaði um 15 %.
Á elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund er mestur skortur á ófag-
lærðu starfsfólki og hefur verið
gripið til þess að ráða danskar
stúlkur. Helga Gísladóttir, starfs-
mannastjóri, sagði að öll stöðugildi
hjúkrunarfræðinga, 10 talsins væru
mönnuð í augnablikinu. Á hjúkr-
unardeildinni eru rúm fyrir 90
sjúklinga og eru þau fullnýtt.
Ástandið á Hrafnistu versnar ár
frá ári að sögn hjúkrunarfram-
kvæmdastjórans, Jónínu Nielsen.
Þar eru 130 rúm á 5 deildum, en
tölur yfír stöðugildi hjúkrunarfræð-
inga voru ekki handbærar. Stór
hluti ófaglærðs starfsfólks eru út-
lendingar, sjúkraliðar eru sárafáir
og hjúkrunarfræðingar einnig. „Við
getum sinnt öllu, þetta er rekið á
aukavöktum," sagði Jónína.
Mjög mikill skortur er á hjúk-
runarfræðingum á Droplaugarstöð-
um, af 9 stöðugildum voru 6 setin
1987 og hefur ástandið versnað það
sem af er árinu. Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, forstöðumaður sagði
að ekki hefði komið til þess að þurft
hefði að senda sjúklinga heim. „Við
getum það ekki, hér eiga flestir
sitt lögheimili og aðstandendur hafa
enga möguleika á að hafa fólkið
heima hjá sér. Þegar starfsfólk
hefur vantað, höfum við þurft að
kalla til aukafólk," sagði hún.
í Hafnarbúðum hamlar skortur
á starfsfólki ekki starfseminni en
fullmannað er í allar stöður eins
og er, þar á meðal 6 stöður hjúk-
runarfræðinga. Rúm eru fyrir 24
sjúklinga og eru öll rúm nýtt.
SÓL í ÚRVALI
FLORIDA''
Sólin á Florida styttir okkur
veturinn. Flogið er beint til
Orlando sem er skemmtileg
borg með litskrúðugu mannlífi.
Þar eru góðar verslanir og
lokkandi steikhús í úrvali.
Disneyuiorld og Seaworld
skemmtigarðarnir eru skammt
undan.
Þeir sem kjósa strandlíf
velja um St. Petersburgh við
Mexíkóflóa eða Coco Beach
sem er Atlantshafsmegin.
KANARÍ
EYJARy^
Kanaríeyjar undan strönd-
um Afríku bjóða vetrarlúnum
íslendingum sumarsœlu um
miðjan vetur. Úrval býðurgist-
ingu þar í smáhýsum,
íbúðahótelum og hefðbundn-
um hótelum.
Sólskin, strendur, hlýr sjór
og afslappað andrúmsloft eru
meðal ástœðna fyrir vinsœld-
um vetrarferða til Kanaríeyja.
Úrvalsfararstjóri: Auður
Sœmundsdóttir
1988
Og á komandi sumri skín
víða sól á Úrvalsfarþega.
Meðal áfangastaða í sumar-
áætlun Úrvals:
MJUORÍÚt
Sa Coma er Úrvalsstaður á
austurströndinni. Þar er
ströndin breið og hrein og haf-
ið tœrt. Öll aðstaða fyrir ferða-
menn er til fyrirmyndar og
staðurinn einn sá albesti sem
íslendingum er boðinn á
Majorku. Og þar er margt fleira
fyrirgesti að gera en að sleikja
sólskinið.
KÝPlllt*'
Vikulegar Kýpurferðir eru
meðal spennandi nýjunga
sumarsins. Kýpur er á mörkum
þriggja heimsálfa; Afríku, Asíu
og Evrópu og þaðan er stutt til
Grikklands, ísraels og Egypta-
lands.
Kýpur á sér œvalanga sögu
og merkilega menningu.
Urvalsfarþegar á Kýpur dvelja
á sólarströnd en stutt er á sögu-
frœgar slóðir.
IBIZÁ
Skemmtana- og nœturlífið
gerist varla fjörugra og fjöl-
breyttara en á Ibiza.
Flogið er til Ibiza um
Luxemborg eða London.
. ijá
ítaiíaW^
Hópferðir tilSorrento á ítal-
íu, í nœsta nágrenni við
Napólí, Kaprí, Vesúvíus og
Pompei. Þaðan er líka stutt til
Rómar, þangað sem allar leiðir
liSSÍ.a-
Á Italíu finna allir eitthvað
við sitt hœfi; söfn, strendur,
fornminjar, sólskin, götulíf, list-
viðburði o.s.frv.
IÚHI&£
Túnis á norðurströndAfríku
er framandi sólarstaður. Úrval
býður ferðir þangað um
Luxemborg. Þótt margt sé þar
frumstœtt að okkar mati er
ferðamannaþjónusta og að-
staða öll góð og verðlagið
mjög lágt.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRYAL
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13.Sími 26900