Morgunblaðið - 16.01.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988
25
Áfengisútsala í Mjóddina
Útsala við Snorrabraut eða Laugarás lögð niður í framtíðinni
AFENGIS- og tóbaksverslun
ríkisins hefur fest kaup á hús-
næði að Álfabakka 14 i Mjóddinni
í Breiðhoiti og er fyrirhugað að
opna þar áfengisútsölu i sumar,
að sögn Höskuldar Jónssonar
forstjóra ÁTVR. Höskuldur segir
að í náinni framtíð verði einni
áfengisútsölu í Reykjavík lokað,
annaðhvort útsölunni við Snorra-
braut eða Laugarás.
Álfabakki 14 er við göngugötuna
í Mjóddinni og er í eigu nokkurra
aðila, meðal annars Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis og Jóns
Asmundarnes
Aðalsteins Jónssonar. Kaupverðið
er 18,2 milljónir kr. Húsnæði ÁTVR
er 185 fermetrar að stærð og því
fylgir jafn stór geymslukjallari.
Húsnæðið verður afhent í byijun
maí og Höskuldur telur að hægt
verði að opna þar útsölu í ágúst.
Hann sagði að ekki væri ákveðið
hverskonar verslun yrði sett upp
þama.
ÁTVR ætlaði að taka þátt í bygg-
ingu húss í Mjóddinni en hætti við
það í árslok 1986 en keypt hús-
næði fyrir útibú í Kringlunni.
Höskuldur sagði að horfíð hefði
verið frá því á sínum tíma að byggja
stóra verslun í Mjóddinni, hún hefði
orðið 700 fermetrar, en í þess stað
afráðið að setja upp minni verslun.
Höskuldur Jónsson sagði að á
næstu mánuðum yrði opnuð áfeng-
isútsala í Neskaupstað. Hann sagði
að ekki hefði verið gengið frá leigu-'
samningi þar, en stefnt að sam-
vinnu við verslun, með svipuðu
fyrirkomulagi og í Ólafsvík. Hann
sagði að ekki hefði verið ákveðið
með fleiri útsölur, t.d. á Hafnar-
fjarðarsvæðinu. Þá sagði Höskuldur
að eftir því sem áfengisútsölum
yrði dreift meira um höfuðborgar-
svæðið kæmi fyrr að því að einhver
af útsölunum næst miðbænum yrði
lögð niður. Bjóst hann við að valið
stæði á milli útsölunnar við Snorra-
braut og Laugarás.
Frá og með janúar 1988
AUSTRiAAf AÍRL/iMES
Austurríska flugfélagið
Umboðsaðilar okkar á íslandi eru Flugleiðir,
Lækjargötu 2, 101 Reykjavík. Sími 690100.
Farseðlapantanir og nánari upplýsingar á
skrifstofu Flugleiða og á ferðaskrifstofunum.
í Bjarnarfirði:
12—15 sek-
úndulítrar af
heitu vatni
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
BORINN Ýmir frá Jarðborunum
hf. kom niður á um 12 til 15 sek-
úndulitra af um það bil 35 stiga
heitu vatni að Ásmundarnesi í
Kaldrananeshreppi siðdegis á
fimmtudag. Vatnið hyggst bónd-
inn í Ásmundarnesi, Guðmundur
Halldórsson, nota við fiskeldi
sitt.
Byijað var að bora í Bjamarfirði
í desember og síðastliðinn mánudag
kom þriggja manna áhöfn jarð-
borsins aftur til vinnu eftir jól.
Boraðir höfðu verið um 180 metrar
í Ásmundamesi í desember. Veður
hér um slóðir hefur verið afleitt
þessa viku og urðu þeir frá að
hverfa þar til á fímmtudagsmorgun
að þeim tókst að koma öllum tækj-
um í gang og hófu bomn. Er þeir
höfðu borað um 14 metra kom allt
í einu upp það magn af 35 stiga
heitu vatni að pressan sem þeir
höfðu hamlaði ekki á móti. Var hér
um 12—15 sek. lítra að ræða.
Þó að segja megi að með þessu
sé fengið það magn af heitu vatni
sem til þarf og kannski gott getur,
vatnsmagnið myndi duga fyrir litla
þorpshitaveitu, munu þeir enn
dýpka holuna nokkuð og ganga svo
frá henni. Síðan heldur borinn með
áhöfn suður á ný til borana í
Keflavík. SHÞ
Nefnd fjallar
um kennslu í
húsagerðarlist
Menntamálaráðherra hefur
að tillögu sljómar Arkitektafél-
ags íslands skipað nefnd til að
kanna forsendur þess að hefja
kennslu í húsagerðarlist hér á
landi. Nefndinni er ætlað að láta
uppi rökstutt álit á hvort rétt
sé að taka upp slíka kennslu hér
og hvar best færi á að vista
hana ef til kæmi.
í nefndinni eiga sæti Guðrún
Jónsdóttir arkitekt og Vilhjálmur
Hjálmarsson arkitekt, bæði til-
nefnd af Arkitektafélagi íslands,
Hörður Ágústsson listmálari, til-
nefndur af Myndlista- og handíða-
skóla íslands, Þorsteinn Helgason
prófessor, tilnefndur af Háskóla
Islands, og Stefán Stefánsson
deildarsérfræðingur í menntamála-
ráðuneytinu sem jafnframt er
formaður nefndarinnar.
^BROWNINR
veggjatennisvörur
21kaupstaður
>ívr
MAZDA 626
Sedan GLX
Coupe GTi
Frá því aö MAZDA 626 kom fyrst á
markaöinn hefur hann verið
langvinsælasti bíllinn í sínum flokki
hérlendis.
Nú er 3. kynslóð af þessum
geysivinsæla bíl komin á markaöinn
nýr frá grunni, stærri, aflmeiri og
glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Hatchback 4WS L
MAZDA 626 kostar nú fráaöeins
658 þúsund krónum.
(1.8L Sedan 5 gíra m/vökvastýri)
Sýningarbílar á staðnum.
Opiö laugardaga frá kl. 1—5.
(stgr. - gengisskr. 8.1 B8)
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99
S,don <te Mec/Uiou _
1
v.v“ H