Morgunblaðið - 16.01.1988, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988
Frakkland:
Utlægir Iranar og
kúrdar snúa aftur
Stjórnvöld láta undan alþjóðlegum þrýstingi
Paría, Reuter.
FRÖNSK stjórnvöld tilkynntu á fimmtudag að þau hefðu
ákveðið að taka aftur við sjö írönum og kúrdum sem vísað
hafði verið úr landi til Gabons til að fá franska gísla í Líban-
on lausa að því er talið er. Atta aðrir fá hæli á Spáni og
tveir höfðu þegar fengið hæli í Bretlandi og í Svíþjqð. Talið
er að stjórnin hafi látið undan þrýstingi frá mönnum í hungur-
verkfalli víðsvegar um heim auk þess sem brottvísun
mannanna hafði verið fordæmd víða í vestrænum löndum.
Franska innanríkisráðuneytið
tilkynnti á fimmtudag að sjö íran-
skir félagar í Ayatollah Mujahide-
en samtökunum sem berjast gegn
klerkastjóminni í Iran og vísað var
úr Frakklandi þann 8. desember á
þeim forsendum að þeir ógnuðu
öryggi landsins fengju nú aftur
að snúa til heimila sinna í Frakkl-
andi. Stuðningsmenn mannanna
sem vísað var úr landi fögnuðu
þessari ákvörðun ákaflega: „Við
höfum unnið. Þeir koma heim og
hungurverkföllum verður hætt
samstundis."
Fimmtán andstæðingar stjóm-
arinnar í Teheran sem vísað var
úr Frakklandi og stuðningsmenn
þeirra þar, í Bretlandi og Banda-
ríkjunum hafa verið í hungurverk-
falli síðan Frakkar vísuðu þeim á
brott. Hundruð þingmanna úr
Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum
höfðu sent Francois Mitterand for-
seta landsins skeyti til að mótmæla
brottvísun mannanna. Forsetinn
hefur vísað ábyrgð í málinu á
hendur ríkisstjóminni. Er ákvörð-
un ríkisstjómarinnar túlkuð
þannig að Jacques Chirac forsæt-
isáðherra hafi látið undan alþjóð-
legum þrýstingi og fundist málið
skaða möguleika sína í komandi
forsetakosningum.
Tveggja álda afmælis minnst
Á þessu ári er þess minnst að tvær aldir eru síðan hviti maður-
inn nam land í Ástralíu. Á myndinni sést ein skútan í skipaflota
sem er nú á leið frá Englandi til Ástralíu til að minnast sigling-
ar fyrstu flotadeildarinnar bresku þessa sömu leið fyrir réttum
tveimur öldum.
:
Svíþjóð:
Gleypti 82
smokka fulla
af heróíni
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSKUM eiturlyfjasmyglara
tókst að halda í sér í 30 daga
áður en hann skilaði af sér heró-
ínpökkum sem hann hafði gleypt.
Maðurinn vakti grunsemdir toll-
varða er hann kom heim úr ferð til
Thailands. Við röntgen-myndatöku
sáust torkennilegir smáhlutir í
þörmum hans sem talið var að
gætu verið smápakkar sem inni-
héldu eiturlyf.
Maðurinn var fluttur í fanga-
geymslur í Stokkhólmi þar sem
sérhönnuð salemi gera lögreglunni
kleift að fylgast með þvi sem geng-
ur niður af föngum sem grunaðir
eru um að hafa gleypt smyglvarn-
ing. Hófst nú biðin eftir því að hinn
grunaði skilaði því sem lögreglan
taldi vera eiturlyú'apakka.
Það var ekki fyrr en eftir 30
daga að komu loks niður af mannin-
um 82 smokkar sem innihéldu
heróín. „Þetta er með ólíkindum,“
er haft eftir Bertil Salin rannsókn-
arlögreglumanni. Þetta er mesta
magn af eiturlyfjum sem vitað er
að maður hafi smyglað í líkama
sínum til Svíþjóðar.
Persaflói:
auskonar
krakkar
og allskoriar úr
Vertu með í skemmtilegri keppni allra krakka, 6-11 og
12-16 ára. Teiknaðu eða búðu til líkan af úri eins og þér
dettur í hug og þú getur unnið ferð til Sviss eða nýtt
armbandsúr. Aðalverðlaunin verða ekki kynnt fyrr en í
lokakeppninni í Sviss, þegar keppt er til úrslita milli allra
Norðurlandanna. Hjá úrsmiðnum þínum færðu bækling með
nánari upplýsingum um keppnina.
Best er að byrja strax - því ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Tillögur þurfa að vera komnar til úrsmiðsins eða í næsta-
Iðnaðarbanka fyrir 6. febrúar 1988. Mundu að merkja tillöguna vel.
ÚRSMIÖAFÉLAG ÍSLANDS
© Iðnaðarbankínn
Skotið á norskt
olíuflutningaskip
Ósló, Reuter.
ÍRANAR skutu á norskt olíu-
flutningaskip á Persaflóa í
gær. Skipið er illa farið eftir
árásina og tveir af áhöfn
skipsins særðust lítillega.
Árásin á norska skipið var gerð
í mynni Persaflóa um klukkan níu
í gærmorgun. Tveir íranskir bátar
hófu skothríð úr vélbyssum og
skutu eldflaugum að skipinu. Igloo
Espoo var á leið frá Dubai til
Suður-Kóreu með afar eldfiman
farm. Olav Olufsen, talsmaður
útgerðarfélagsins Havtor sem ger-
ir Igloo Espoo út, sagði í viðtali
við Reuter að eldur hefði komið
upp um borð í skipinu en fljótlega
hefði tekist að slökkva hann.
Olufsen sagði eftir að hann hafði
talað við skipstjórann á Igloo
Espoo að meiðsli mannanna sem
særðust í árásinni væru ekki alvar-
leg, en skipið væri vélarvana og
yrði að draga það til hafnar í
Dubai.
írakar sögðu að herflugvélar
hefðu gert árás á íran f gær. Er
Íietta í annað sinn á þessu ári sem
ranar tilkynna um árás á írak, í
Grænland:
A
Aætlað að hefja sigl-
ingar til Kanada í vor
hvorugt skiptið hefur árásin verið
staðfest.
Danmörk:
Sumarstrýt-
an hrundi
í sjóinn
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen
Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
SUMARSTRÝTAN (Som-
merspiret) á Manarklifi, sem
dregið hefur að sér mikinn
fjölda ferðamanna ár hvert,
hrundi nýlega í sjóinn. Graf-
ist hafði undan strýtunni í
vætutíðinni undanfarið ár.
Um 320.000 ferðamenn
koma á Klifíð á Mön á hverju
ári. Það er um það bil 100
metra hátt og hefur oft hrunið
úr því áður vegna ágangs frá
hafi. Síðasta stórhrun úr því
varð 1952, þegar einn af aðal-
útsýnisstöðunum þar, Drottn-
ingarstóllinn, hrundi í sjó fram.
Nuuk. Frá Nils Jergen Bruun, fréttarítara
Grænlandsverslunin hefur
ákveðið að hefja vöruflutninga
með skipum milli St. John á Ný-
fundnalandi í Kanada og Nuuk.
Áætlað er að fara fyrstu ferð
seinni hluta aprílmánaðar.
Ákveðið hefur verið að heíja sigl-
ingar til St. John vegna þess að
þaðan eru góðar samgöngur til
helstu iðnaðarborga í Kanada og
Bandaríkjunum. Grænlandsversl-
unin vonast til að geta síðar meir
Morgunblaðsins.
komið grænlenskri framleiðslu á
markað vestra, þangað til mun
varningur verða fluttur inn til
Grænlands frá Kanada og Banda-
ríkjunum.
Þijár milljónir danskra króna
hafa verið lagðar í fyrirtækið, en
gert er ráð fyrir að flutningsgjöld
verði sambærileg við flutningsgjöld
á milli Grænlands og íslands. Nú
eru aðeins flugsamgöngur á milli
Nuuk og Frobisher í Kanada.