Morgunblaðið - 16.01.1988, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANUAR 1988
43
Söluskattsheimsmet Jóns Baldvins
sannað af hans eigin starfsmanni
eftir Steingrím J.
Sigfússon
Einn af önnum köfnum starfs-
mönnum fjármálaráðuneytisins
hefur gefið sér tíma til þes að setja
niður á blað allmikla varnarræðu
um matarskattinn. Starfsmaður
þessi, hagfræðingur að mennt, Bolli
Þór Bollason, birtir í Morgunblaðinu
laugardaginn 9. janúar grein undir
heitinu „Uppstokkun á skattkerfínu
og framfærslukostnaður heimil-
anna“ og tíundar þar öll helstu rökin
sem flest hafa heyrst áður fyrir
þeim skattkerfísbreytingum sem
gengu í gildi nú um eða uppúr ára-
mótum. Reynt er að veija matar-
skattana með þeirri nauðsyn að
einfalda skattkerfíð og bæta skatt-
skil.
Uppúr öllum þeim varnaróði
stendur þó sú staðreynd að lífsnauð-
synjar á íslandi eru nú dýrari en
víðast hvar annars staðar í heimin-
um ef ekki þær dýrustu, og þurfti
ekki 25% söluskatt til í mörgum
tilfellum. Hagfræðingurinn kvartar
undan því að umræðan undanfama
daga og vikur hafa oft á tíðum
verið villandi, talar jafnvel um rang-
færslur og útúrsnúninga. Ekki ætla
ég að elta ólar við þá hluti né svara
því, en stilli mig þó ekki um að
víkja að fáeinum atriðum í grein-
inni, enda er mér e.t.v. málið skylt
og sumt af því sem verður Bolla
titefni skrifanna ættað úr mínum
húsum.
Meðaltalið
hugsanlega í lagi
Bolli íjallar nokkuð um áhrif
þessara breytinga á framfærslu-
kostnað heimilanna og þykist geta
sýnt fram á að hin fræga meðaltals-
fjölskylda eigi ekki að skaðast út
af þessum breytingum í heild sinni.
Ég stilli mig ekki um að taka
orðrétt upp það orðalag sem hag-
fræðingurinn velur vangaveltum
sínum í 4. kafla greinar sinnar, þar
sem hann fjallar um áhrifín á fram-
færslukostnað heimilanna. Þar er
sagt: „Þessu (þ.e.a.s. þessu með
framfærslukostnaðinn) er auðvitað
erfítt að svara í smáatriðum því að
breytingamar em svo miklar og
koma vafalaust misjafnlega við
heimilishald hvers og eins. Til þess
að nálgast svar við spurningnnni
er þó hægt að skoða það hvemig
meðalfjölskylda í landinu kemur
hugsanlega út úr þessu, m.ö.o.
hvemig dæmið lítur út á mæli-
kvarða vísitölufjölskyldunnar (let-
urbreyting, SJS).“
Broadway:
Aukasýning-
ar á „ Allt
vitlaust“
NOKKRAR aukasýningar verða
á rokk- og danssýningunni „Alit
vitlaust" í veitingahúsinu Broad-
way í janúar og febrúar. Fyrsta
sýning á nýju ári verður laugar-
daginn 23. janúar.
Úr þvi' þetta er sá inngangur sem
Bolli kýs í umfjöllun sinni um þessi
áhrif þarf ég í raun engu við að
bæta. Lýsing á þeirri óvissu sem
fólkið í landinu stendur nú frammi
fyrir er fullkomin. Rétt er þó að
vekja athygli á þeirri staðreynd að
fullyrðingar um 7% hækkun mat-
vælaliðarins hjá vísitölufjölskyld-
unni byggja að sjálfsögðu á þeirri
gömlu framfærsluviðmiðun sem
stuðst er við og næsta víst má telja
að neyslusamsetningin sé nú tals-
vert breytt frá því sem var fýrir
einum 8 ámm eða þar um bil. Menn
geta spurt sig að því sjálfir hvort
t.d. neysla ferskra ávaxta og græn-
metis sé ekki líkleg til þess að hafa
aukist, en þar er jú á ferðinni all-
stór matvælaflokkur sem hækkar
um 25%.
Sú staðreynd verður ekki hrakin
og út af fyrir sig reynir Bolli það
ekki, að þeim mun stærri og tekju-
lægri sem fjölskyldur eru þeim mun
verr koma þessar breytingar niður.
Pyrst og fremst vegna þess að þá
hækkar hlutur matvælanna' í út-
gjöldum heimilanna og er auðvelt
að taka dæmi um stærri fjölskyldur
en hina frægu vísitölufjölskyldu
með eitthvað umtalsvert lægri tekj-
ur og sýna þannig fram á að útgjöld
til matarkaupa séu ekki nálægt 20
eða 25% heldur 30 eða 40%. Þar
fer allt eftir þv'hvemig menn vilja
leika sér með tölur en sú staðreynd
er óhrekjanleg að þessar breytingar
ívilna frekar minni fjölskyldum og
tekjuhærri fjölskyldum sem eyða
hlutfallslega meira af launum
sínum til kaupa á ýmiskonar lúxus-
vamingi sem nú lækkar í verði en
minna til matarkaupa og svo öfugt.
Heimsmet eða
ekki heimsmet
Hagfræðingurinn Bolli Þór Bolla-
son kvartar yfír því að undanfamar
vikur hafí ekkert atriði verið jafn
oft rangfært og það að með þessum
söluskatti á matvæli upp á 25% sé
verið að setja heimsmet. Undirritað-
ur getur fúslega viðurkennt það að
hafa haldið því fram úr ræðustóli
á Alþingi að 25% söluskattur á
matvæli væri heimsmet. Ég hef les-
ið skýrslur yfír öll aðildarlönd
Efnahags- og framfarastofnunar-
innar þar sem fram kemur að hvergi
innan vébanda stofnunarinnar, en
henni tilheyra þróuðustu ríki verald-
ar, sé um jafnháa skattprósentu á
matvæli að ræða. Það vill svo vel
til að í sinni eigin grein sannar
Bolli það sem hann er þó að reyna
að hrekja, sem sagt með því að
birta töflu yfir álagningu söluskatts
eða v irðisaukaskatts í aðildarríkjum
OECD og í 5. dálki þeirrar töflu
em skattar á brýnustu matvæli.
Þar er ísland í efsta sæti með 25%.
Næst okkur komast Svíþjóð, Dan-
mörk og Noregur, en flestöll önnur
lönd em ýmist með enga eða mun
lægri skatta á matvæli. Ég þarf því
ekki annarra vitna við en þeirrar
töflu er Bolli Þór Bollason birtir
með sinni eigin grein til þess að
rökstyðja þá fullyrðingu mína, sem
ég hef áður haldið fram, að 25%
söluskattur á matvæli sé heimsmet.
En hins vegar væri fróðlegt ef
farið væri út í samanburð við önnur
lönd að halda þá áfram og skoða
hvemig tvær aðrar stærðir, sem
hér skipta miklu máli,. snúa við
okkur íslendingum borið saman við
m
Steingrímur J. Sigfússon
aðrar þjóðir. I fýrsta lagi verð á
matvömm og í öðm lagi kaup-
máttur tímakaups. Verð á matvöm
á íslandi var fyrir þessar breytingar
með því hæsta sem þekkist, en
kaupmáttur greidds tímakaups mun
lægri en hann er í mörgum af þeim
löndum sem við bemm okkur helst
saman við. Þessum staðreyndum
heldur Bolli Þór Bollason ekki til
haga í grein sinni.
Það má vel vera að rétt reynist,
þegar menn geta um það fullyrt
að vísitölufjölskyldan upp á 3,9
heimilismenn, sem hefur 110 þús.
kr. í kaup á máriuði og kaupir ná-
kvæmlega nógu mikið af lúxusvör-
um og borðar nógu mikið af varalit,
komi til með að sleppa án skakka-
falla í gegnum allar þessar breyt-
ingar. Óðm hefur heldur aldrei
verið haldið fram, a.m.k. ekki af
minni hálfu. Það sem ég hef fullyrt
og tel mig geta sannað, er að lág-
tekjufólk, einkum stórar fjölskyld-
ur, mun líða fyrir þessar breytingar,
að mikill meirihluti þjóða sem búa
við eitthvað sambærileg lífskjör og
við íslendingar leggi annaðhvort
engan eða þá mjög lágan skatt á
matvæli, gjarnan með sérstöku
mjög lágu skattþrepi en noti svo
önnur hærri fyrir lúxusvömr, og
að 25% söluskattur á brýnustu
lífsnauðsynjar sé heimsmet.
Ég tel út af fyrir sig viðleitni
þessa starfsmanns fjármálaráð-
herra virðingarverða vegna þess að
húsbóndahollusta er ekki ómerki-
legri hvöt en hver önnur. En hér
mun reynslan verða besti dómarinn
eins og þegar er farið að koma í
ljós. Fyrst og fremst vara ég menn
við þeirri tilhneigingu sem ég get
ekki neitað að ég þykist fínna oftar
hjá ýmsum hagfræðilega sinnuðum
eða menntuðum mönnum heldur en
öðmm, að falla endanlega flatir
fyrir hinum köldu rökum tölfræð-
innar eða hagfræðinnar. Það er
vissulega eðlilegt markmið að reyna
að einfalda skattkerfi og gera það
skilvirkara, en slík einföldun, slík
þrá til að einfalda hlutina, má ekki
bera kröfuna um réttlæti og sann-
gimi ofurliði. Fari svo er aldrei að
vita hvar það endar. Sú saga gekk
einu sinni í einni af stofnunum
Sameinuðu þjóðanna, í árdaga
tölvualdar, að þar hefði, þá, ein
öflugasta tölva heimsins verið möt-
uð á öllum upplýsingum um fólks-
fjölda og fólksfjölgun, heilbrigði,
dánartölur, fæðuþörf, matvæla-
framleiðslu og aðrar tilheyrandi
upplýsingar og hún síðan látin
malla á þessu og beðin um svör,
um ráð við fólksfjölgunarvandamál-
unum. Eftir að hafa urrað á þessu
nokkra stund prentaði tölvan út
stutt og laggott svar: „Minnkið
matvælaframleiðsluna.“ Þannig
getur farið.
Höfundur er alþingismnður Al-
þýðubandaiagsins fyrir Norður-
landskjördæmi eystra.
Skutlan er eins og sniðin fyrir nútímafólk. Hún er
sparneytin, 5 manna og sérlega léttog lipurfum-
ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það
tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum
sem til þekkja.
* LANCIA SKUTLA kostar kr. 312 þús.kr. stgr.
Útborgun kr. 78.000, eftirstöðvar greiðast á 30
mánuðum, kr. 9.860 pr. mánuð að viðbættum
verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu
er ekki innifalinn. _________________<Gengisskr. mm
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99
Opið laugardaga frá kl. 1 - 5.
Mátt þú sjá af
324 krónum
á dag?*
Ef svo er þá getur þú eignast
splunkunýja LANCIA SKUTLU!
I frétt frá veitingahúsinu segir,
að ástæða aukasýninga séu Qöl-
margar áskoranir gesta í Broad-
way. Um hljóðfæraleik á skemmtan
þessari sér hljómsveitin The Birds,
sem skipuð er 10 þekktum hljóm-
listarmönnum undir stjóm Gunnars
Þórðarsonar. Um sönginn sér hópur
sem kallast The Bees, en hann skipa
þau Björgvin Halldórsson, Eiríkur
Hauksson, Eyjólfur Kristjánsson og
Sigríður Beinteinsdóttir. Dans-
flokkurinn Rokk í viðlögum er
skipaður 17 dönsurum, sem túlka
söguna „með trukki og dýfu“ eins
og segir í fréttinni.