Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 16.01.1988, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1988 fclk í fréttum 0 EDDIE SKOLLER „Eg er kominn til að sækja handritin!“ Danski háðfuglinn Eddie Skoller kom til landsins sl. miðviku- dag. Skoller er sennilega best þekktur hér á landi fyrir lagið „What did you ieam in school today ?“, sem á íslensku útleggst „Hvað lærðirðu í skólanum í dag ?“, en lagið kom út á plötu árið 1976. Síðan þá hefur hann starfað í hei- malandi sínu og ferðast til margra landa í tengslum við tónleikahald. Skoller kom fram á skemmtikvöldi sem Lionsklúbburinn Njörður hélt sl. fimmtudagskvöld og í þætti á Stöð 2. á föstudag. I samtali við blaðamann Morgunblaðsins sagði hann að tilgangur heimsóknarinnar nú væri eki síst að undirbúa tón- leika sem hann ætlar að halda hérlendis í byrjun mars. Aðspurður sagði Skoller að textar sínir væru flestir um hið broslega í hversdagsleikanum. „Ég syng um símsvara, bifreiðaverksmiðjur og háttarlag fólks almennt ! Annars er mjög erfitt að segja að þeir fjalli um eitthvað sérstakt. Ég sem einn- ig texta sem eru pólitískir og eiga ekki að vera fyndnir. Þetta fer líka eftir því fyrir hvað ég er að semja. Ef ég er að semja eitthvað sem ég ætla að flytja fyrir Dani þá sem ég texta sem þæfa dönskum hugsunar- hætti, eru kannski frekar um dönsk hugðarefni, en textamir sem ég flyt á tónleikaferðalögum erlendis eru miðaðir við að fólk botni eitthvað í því sem ég er að segja." Skoller hefur ekki komið hingað til lands áður. Hann sagðist þó vita ýmislegt um land og þjóð því hann ætti íslenska vini { Kaupmannahöfn sem hefðu leiðrétt þann misskilning sinn að Islendingar byggju í hellum og að ísbimir væru hér vappandi um §ömmar. „Ég veit lka að þið eigið fallegasta forseta í heiminum. Eg kann vel við Islendinga, þeir hafa góðan húmor og em miklu afslappaðari en Danir. Svo er síldin ykkar góð.“ Hvað olli því að þú ákvaðst að koma hingað núna ? „Ég er kominn til að sækja handrit- in !“ svarar Skoller og hlær. „Nei, í alvöru talað þá fmnst mér gaman að koma til landa sem ég hef ekki komið til áður og þegar Lionsmenn- imir buðu mér að koma ákvað ég að slá til.“ Eddie Skoller mun koma aft- ur hingað til lands í byijun mars og halda tónleika. Morgunblaðið/ BAR. Unnið að viðhaldi við erfiðar aðstæður. Þorsteinn Hjaltason, fólkvangsvörður í Bláfjöllum, í eftirlitsferð. ræðisaldurinn. Áhuginn hjá öldungunum er ekkert minni en hjá þeim sem yngri em, t.d. var Pétur Símonarson frá Vatnskoti í Þingvallasveit búinn að prófa færið hér f Bláfjöllum í október, - hann skíðar ennþá eins og her- foringi." Er algengara að slys verði á fólki, eða að það týnist ? „Slysum hefur sem betur fer fækkað mikið. Bæði hefur út- búnaðurinn batnað, eins og ég sagði áðan, fólk er betur klætt, og lýsingin á svæðinu kemur í veg fyrir að fólk týnist. Það kom fyr- ir að göngufólkið leitaði undan vindáttinni og færi yfír í Selvogs- dal,“ sagði Þorsteinn. Mikið átak hefur verið gert í að lýsa upp skíðasváeðið í Bláfjöllum og sagði Þorsteinn að það væri að færast í aukana að fólk færi á skíði á kvöldin. Skíðaaðstaðan er opin til kl. 18 um helgar og á mánudögum og föstudögum, en aðra daga til kl. 22. Vel vakandi á vaktinni. Morgunblaðið/Bjami. BIÁFJÖLL „Aðstaðan hefur batnað mikið“ „Það hefur verið sorglega lítið um snjó það sem af er vetrar," sagði Þorsteinn Hjaltason, fólkvangs- vörður á skíðasvæðinu í Bláfyöll- um, er hann var spurður um aðstæður til skíðaiðkana í Bláfyöll- um fyrir helgi. „Annars verðum við að sætta okkur við að svona er þetta á íslandi og hér er alltaf allra veðra von jafnt á þessum árstíma sem öðmm. í fyrra var hér nóg af snjó á þessum tíma, en þá komu þoka og suddi í veg fyrir að fólk kæmist á skíði," sagði Þorsteinn. Hann sagðist þó vona að úr þessu rættist nú um helgina, spáin væri hagstæð og allt væri tilbúið til að taka á móti fólki. Þorsteinn hefur gegnt starfí fólk- vangsvarðar í tíu ár og sagði að margt hefði breyst á þeim tíma, aðstöðu og útbúnaði fólks til skíðaiðkana hefði farið stórkost- lega fram. „Búnaðurinn er allt annar nú en þá, svo ekki sé minnst á hvemig hann var þegar ég var sjálfur að byija að renna mér á skíðum. Þá vom notaðar gormabindingar, eða að menn reyrðu sig niður með ólum, og ef maður datt þá gat ekkert gefíð eftir nema fóturinn eða skíðið. Maður þakkaði fyrir ef að skíðið brotnaði !“ Aðspurður sagði Þorsteinn að er- fítt væri að giska nákvæmlega á hve margir kæmu á svæðið þegar mest væri. Göngufólki hefði fjölg- að mikið undanfarin ár og erfítt væri að slá tölu á það. Þó sagði hann að um helgar kæmu senni- lega allt upp í fímm þúsund manns á dag ef veður væri gott. „Fólkið sem kemur er á öllum aldri, en það er greinilegt að það er komin meiri breidd í þennan hóp en áður var. Maður sér orðið smáböm renna sér á skíðum, sum ekki nema tveggja ára. Sömuleiðis eru margir fastagestir komnir á átt-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.