Morgunblaðið - 13.03.1988, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MARZ 1988
t
Ástkær sonur okkar, bróðir, sonarsonur, mágur og frændi,
SÆVAR BERG HERMANNSSON,
Ljósheimum 6,
Reykjavik,
sem andaðist á heimili sínu að morgni 6. mars veröur jarðsung-
inn frá Langholtskirkju mánudaginn 14. mars kl. 13.30.
Hermann Sæberg Ágústsson,
Sólveig Inga Gunnlaugsdóttir,
Svava Marfa Hermannsdóttir, Gufimundur Þ. Ragnarsson,
Sverrir Örn Hermannson, Anna Marfa Agnarsdóttir,
Svava Lúthersdóttir,
og systkinasynir.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HELGA EINARSDÓTTIR,
Barónsstfg 30, Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 15. mars kl.
15.00.
Elsa E. Drageiðe, Halldór Ö. Svansson,
Sigrún Gufimundsdóttir,
Stefán Aðalbjörnsson,
Ingimundur Guðmundsson, Kristrún Danfelsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
t
Útför eiginmanns míns og föður okkar,
ÓSKARS KJARTANSSONAR
gullsmiðs,
er lést 3. mars sl. fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 14.
mars kl. 15.00.
Þeim er vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Fyrir hönd aðstandenda.
Herdís Þórðardóttir,
Hilmar Þór Óskarsson,
Sólveig Liija Óskarsdóttir,
Davfð Þór Óskarsson.
t
Móðir mín,
GUÐMUNDA GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Bassastöðum,
til heimilis f Eyjaholti 13,
Garði,
sem lést í sjúkrahúsi Keflavíkur laugardaginn 5. mars, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 15. mars kl. 15.00.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Fanney Jóhannsdóttir.
t
Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginmanns mfns, föður, stjúpföður, son-
ar og bróður,
ÁRNA ÞÓRÐARSONAR
verkstjóra,
Austurbergi 6,
Reykjavfk.
Ásgerður Óskars.,
Guðrún Jðnsdóttir, Þórður Ingþórsson,
Árný Björk Árnadóttir, Guðrún Árnadóttir,
Linda Björk Árnadóttir, Kristjana Ægisdóttir,
Jón Þórðarson, Gfsli Þórðarson,
Björk Þórðardóttir.
t
Þökkum innilega þeim, sem sýndu okkur samúö við andlát og útför
KRISTÍNAR SAMÚELSDÓTTUR
frá Súðavfk,
til heimilis á Sléttahrauni 23,
Hafnarfirði.
Daðfna R. Friðriksdóttir, Magnús Aspelund,
Guðrún Frlðriksdóttir, Guðjón Samúelsson.
Selma A. Friðriksdóttir, Guðbjörn Kristjánsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og systkini hinnar látnu.
Sævar Berg Her-
mannsson - Minning
Fæddur 7. aprU 1966
Dáinn 6. mars 1988
Á morgun, mánudaginn 14.
mars, verður félagi okkar og vinur
Sævar Berg Hermannsson til mold-
ar borinn.
Er við fréttum af skyndilegu og
ótímabæru fráfalli hans urðum við
harmi lostnir. Erfitt er að sætta sig
við þessa váfrétt. í huganum kvikn-
ar sú spuming, hví svo ungur mað-
ur sé hrifinn á brott. En þegar stórt
er spurt er gjaman fátt um svör.
Sævar fæddist þann 7. apríl
1966. Sonur þeirra yndislegu hjóna
Sólveigar Ingu Gunnlaugsdóttur og
Hermanns Sæbergs Ágústssonar.
Ólst hann upp við ástríki þeirra
ásamt systkinum sínum Svövu
Maríu og Sverri.
Strax á unga aldri geislaði af
Sævani lífsþrótturinn hvar sem
hann lagði leið sína. Alltaf var hann
reiðubúinn að hvetja fólk og upp-
örva ef eitthvað bjátaði á. Hressi-
leikinn var ætíð í fyrirrúmi þrátt
fyrir þrálát veikindi.
Sævar stundaði hin margvísleg-
ustu störf á sinni stuttu lífsleið en
síðast starfaði hann sem starfsmað-
ur hjá Reykjavíkurborg. Ávallt
sinnti hann störfum sínum af ein-
stakri trúmennsku og heiðarleika.
Áhugi Sævars beindist snemma
að tónlist og þá sérstaklega
klassískri tónlist. Sat hann löngum
við hljómborðið heima hjá sér og
lét hugann reika um leyndustu kima
tónlistarinnar.
Vaxtarræktin átti samt hug Sæv-
ars allan og æfði hann af mikilli
elju og atorkusemi flesta ef ekki
alla daga. Síðustu mánuðina hafði
hann æft af mikilli kostgæfni fyrir
íslandsmótið í va,xtarrækt en æðri
máttarvöld komu í veg fyrir þátt-
töku hans þar.
Eftirminnilegast í fari Sævars
var heiðarleiki hans og mannleiks-
kærleiki. Eitt er víst að ef fleiri
væru gæddir þessum kostum þá
væri veröldin betri.
Minning - fegurð mannsins sorga,
mánaljómi auðra borga,
ylur fomra ástarglóða,
angan bleikra þymirósa,
geislum slærðu á gengnar urðir,
grætur bak við læstar hurðir,
bræðir þela þankans hljóða,.
þegar allar lindir frjósa.
Gott er ungri ást að deyja,
árin munu ei hana beygja.
Endurgjalds hún ei mun krefja
einlægustu gjafa sinna.
Oft er spillt í löngu ljóði
listaverki, stundaróði,
svo að fegurð fyrstu steQa
fölnar inni í skugga hinna.
— Vorið beð þinn vökvar támm,
vakir sól á ystu bámm,
greiðir hinzta geislalokkinn,
grúfir sig að bijóstum hranna. -
Moldin að þér mjúk skal hlúa,
móðurlega um þig búa,
rétta þér á rekkjustokkinn
rós úr lundum minninganna.
(M.Á.)
Elsku Solla, Hermann, Svava
María og fjölskylda, Sverrir og fjöl-
skylda, Svava. Við vottum ykkur
innilegustu samúðarkveðjur. Megi
algóður Guð styrkja ykkur í sorg-
inni.
Minningin um góðan dreng mun
ætíð lifa í hjörtum okkar.
Guðjón Guðjónsson
Hörður Eyjólfsson
Mánudaginn 14. mars kveðjum
við hinstu kveðju vin okkar, Sævar
Berg Hermannsson, er lést í skjóli
sinna ástríku foreldra í Ljósheimum
6, sunnudaginn 6. mars sl., aðeins
22ja ára að aldri.
Það er erfítt að sætta sig við
þegar kallið kemur svo skyndilega
og ungt fólk í blóma lífsins er kall-
t
Okkar bestu þakkir til allra þeirra sem hafa sýnt okkur samúð
og rétt okkur hlýja hönd viö andlát
JÓHANNS BJÖRGVINS JÓNSSONAR
frá Arnarhóli, Dalvík.
Friðrikka Óskarsdóttir,
Valgerður María Jóhannsdóttir,
Þuríður Jóna Jóhannsdóttir, Þórólfur H. Hafstað,
Margrét Vallý Jóhannsdóttir, Pá(l Magnússon,
Hlynur, Elísabet, Bjarki,
Asdfs og Hrafnhildur.
t
Þökkum auðsúnda samúð við andlát og útför bróður okkar,
MARINÓS TRYGGVA ERLENDSSONAR
sfmvirkja,
Unnarbraut 5.
Unnur Erlendsdóttir, Lúther Eriendsson,
Erlenda Erlendsdóttir, Guðrún R. Erlendsdóttir.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöföa 4 — Sími 681960
+ Þökkum innilega sýnda samúð við fráfall og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, GUÐRÚNAR S. GÍSLADÓTTUR, Þórufelli 8. Þórður Þorkelsson, Jakobfna Ingadóttir, Erlingur Lúðvfksson, Sveinn Ingason, Hugrún Þórðardóttir, Gylfi Ingason, Björn Ingason og barnabörn. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
K S.HELGASON HF K| STEINSMIÐJA ■ M SKÉMWVEGI 48 SIMI 76677
að yfir móðuna miklu, en þeir sem
guðirnir elska deyja ungir.
Það er margs að minnast frá
æskuárum okkar bræðranna. Sæv-
ar var besti vinur allra í húsinu og
sýndi öllum jafnt ungum sem öldn-
um kærleika og einlægni sem hann
átti í ríkum mæli. Alltaf var Sævar
tilbúinn að rétta hjálparhönd ef með
þurfti. Hann var alltaf hress og
glaður og hvers manns hugljúfi og
söknum við sárt vinar í stað.
Solla, Hermann, Mæja, Sverrir
og fjölskyldur. Við vottum ykkur
öllum okkar dýpstu samúð og biðj-
um guð að gefa ykkur styrk í ykk-
ar miklu sorg.
Guð blessi minningu góðs drengs
sem öllum vildi gott gera.
Par þú í friði,
friður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Guðmundur, Kristján
og Sigmundur.
„Þeir deyja ungir sem guðimir
elska.“
Sævar var í blóma lífsins þegar
kalið kom. Bráðmyndarlegur og
elskulegur drengur í alla staði. Mjög
sárt er fyrir aðstandendur að sjá á
bak honum á þennan hátt.
Þott hann hafí í raun aldrei geng-
ið fullkomlega heill til skógar, og
oft átt erfitt af heilsufarsástæðum,
þá var hann ætíð hress og glaður
í umgengni, duglegur að vinna að
sínum hugðarefnum, einbeittur,
kannski þrár á stundum. Sævar var
myndarlegur á velli, stæltur og
hnarrreistur, bjartur yfirlitum og á
margan hátt fyrirmynd ungra
manna.
Lyftingar og vaxtarrækt áttu
hug hans allan hin síðari ári, og
fékk hann óskipta ánægju af því
starfi, hvort heldur hann stundaði
það í einrúmi eða með góðum félög-
um, sem margir reyndust honum
afar vel; þurftu stundum að halda
aftur af honum, í miklu ofurkappi
hans. Hann sýndi við þjálfunina í
hvívetna þá ögun og einurð, sem
er aðalsmerki góðra íþróttamanna.
Til vinnu gekk Sævar sem hver
annar, sem fékkst við margvísleg
Wömmtofa
FnÖfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.