Morgunblaðið - 23.04.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1988
7
Morgunblaðið/Þorkell
Æfingar hafnar fyrir lokakeppnina
ELLLEFU fegurðardísir eru
staddar í Reykjavík um þessa
helgi til að æfa sig fyrir keppnina
um titilinn Fegurðardrottning ís-
lands 1988. Keppni er lokið í öllum
landshlutum og sigurvegaramir
og flórar stúlkur til viðbótar verða
þátttakendur í lokakeppninni, sem
fram fer á Hótel íslandi 23. maí
n.k. Næsta mánuðinn munu þær
stunda þjálfun og æfingar af fuil-
um krafti.
Stúlkumar vom við æfíngar í
veitingahúsinu Broadway á sum-
ardaginn fyrsta og var þessi mynd
tekin við það tækifæri. Stúlkumar
eru, talið frá vinstri: Guðbjörg
Fríða Guðmundsdóttir Suðumesj-
um, Guðbjörg Gissurardóttir
Reylq'avik, Marta Jörundsdóttir
Vestfjörðum, Halldís Höskulds-
dóttir Vesturlandi, Sigrún Eyfjörð
Garðabæ, Kamilla Rún Jóhanns-
dóttir Norðurlandi, Karen Kristj-
ánsdóttir Suðurlandi, Guðný El-
isabet Óladóttir Reykjavík, Linda
Pétursdóttir Austurlandi, Guðrún
Margrét Hannesdóttir Reylqavík
og Kristín B. Gunnarsdóttir
Reykjavík.
Opinber heimsókn
forsætisráðherra
til Bandaríkjanna:
Dagskráin í
undirbúningi
EKKI hefur enn verið gengið frá
dagskrá opinberrar heimsóknar
Þorsteins Pálssonar forsætisráð-
herra til Washington, að öðru
leyti en þvf að hann ræðir við
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seta 16. maí.
Að sögn Jónínu Michaelsdóttur
aðstoðarmanns forsætisráðherra er
enn verið að undirbúa dagskrá
heimsóknarinnar en hún mun liggja
fyrir á næstu dögum.
Að sögn Jóninu mun þetta vera
í fyrsta skipti sem Bandaríkjafor-
seti býður íslenskum forsætisráð-
herra í opinbera heimsókn.
Ekiðástúlku
á Laugavegi
EKIÐ var á 18 ára stúlku á
Laugavegi aðfaranótt fimmtu-
dagsins. Stúlkan skaddaðist
nokkuð á baki.
Slysið varð um kl. 2.20 um nótt-
ina. Bifreið var ekið eftir Snorra-
braut til suðurs og beygt inn á
Laugaveg. Svo virðist sem önnur
bifreið hafí byrgt ökumanni sýn og
varð hann því .ekki var við stúlkuna
fyrr en hann ók yfír hana. Stúlkan
slasaðist nokkuð, meðal annars á
baki er hún brenndist á hljóðkút
bifreiðarinnar. Hún var flutt á
slysadeild en er ekki í lífshættu.
Fyrirtæki
sýna áhuga
á álveri
NOKKUR fyrirtæki hafa undan-
farið Ieitað eftir upplýsingum um
fyrirhugaða byggingu nýs álvers
í Straumsvík. Jóhannes Nordal,
formaður starfshóps um bygg-
ingu álversins, segir að væntan-
lega verði rætt við einhver þeirra
í næsta mánuði.
Starfshópurinn ræddi formlega
við fulltrúa tveggja fyrirtækja í
mars sl. og að sögn Jóhannesar
Nordals hafa nokkur fyrirtæki und-
anfarið leitað eftir upplýsingum
sem þau væru nú að meta. Hann
vildi ekki skýra frá því hvaða fyrir-
tæki um væri að ræða, þar sem
ekki lægi fyrir hvort raunverulegur
áhugi væri fyrir viðræðum um þátt-
töku í að byggja álver hér á landi.
Dansað í
Reiðhöllinni í
fyrsta skipti
ÞÚSUND manna hestamanna-
dansleikur verður haldinn í Reið-
höllinni i Víðidal í kvöld. Þetta
er fyrsti dansleikurinn, sem hald-
inn er í Reiðhöllinni, en áður
hafa verið haldnir þar tónleikar
og sýningar.
Að sögn Gylfa Geirssonar, fram-
kvæmdastjóra Reiðhallarinnar, er
dansleikurinn fyrir félaga í hest-
mannafélögunum. Búist er við að
600-700 manns setjist að snæðingi
í Reiðhöllinni í kvöld, en alls sagð-
ist Gylfi eiga von á um 1000 hesta-
mönnum í höllina.
Bjartmar Guðlaugsson mun
skemmta á dansieiknum. Einnig
kemur fram hljómsveit skipuð
hestamönnum og hljómsveitin
Kaktus leikur fyrir dansi.
Goldstar myndbandstœki GHV-1245P
Framhlaðið - HQ (High Quality)
14 daga upptökuminni á 4 mismunandi tímum
32 stöðva minni - Þráðlaus fjarstýring - Kyrrmynd
Hraðspólun með mynd - Sjálfvirk endurspólun
■Hs
kr./stgr.
Greiðslumáti Utborgun Verð
Staðgreiðsluverð 30.166,- ■ ...
Almennt verð 10.000,- 31.754,-
Eurokredit 11 mán. 0,- 31.754,-
Visaraðar. 12 mán. ■■■■.3.1, Z5.4,-
GoldStcir
-gutttryggðyœ.ðatczki !
i