Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
Einvígi Jóhanns og Karpovs:
Teflt í Seattle í
byijun næsta árs
SKÁKEINVÍGI stórmeistaranna
Jóhanns Hjartarsonar og Ana-
tólijs Karpovs verður haldið i
borginni Seattle í Bandaríkjun-
um í janúar á næsta ári. Verð-
launafé verður 80.000 Banda-
ríkjadalir, sem jafngildir um
þremur milljónum islenskra
króna. Alþjóðaskáksambandið
tilkynnti þetta í Luzern i Sviss f
gær.
Jóhann Hjartarson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að sér
litist vel á að tefla í Seattle. „Úr
Frestun
framkvæmda
vafasamt
fordæmi
- segir borgar-
stjóri í bréfi til fé-
lagsmálaráðherra
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri
hefur sent Jóhönnu Sigurðar-
dóttur félagsmálaráðherra
bréf þar sem segir að ekki
hafi áður verið farið fram á
frestun framkvæmda vegna
kæru eins og þeirrar, sem íbú-
ar við Tjarnargötu hafa lagt
fram vegna ákvörðunar bygg-
ingarnefndar Reykjavíkur um
að veita graftrarleyfi við fyr-
irhugað ráðhús við Ijörnina.
í bréfi borgarstjóra segir að
þessi kæra hafí fengið sömu
meðferð og allar aðrar kærur
hafa fengið sem félagsmálaráðu-
neytið hefur sent byggingar-
nefnd til umsóknar. Sagt er að
frestun framkvæmda, vegna
kæru af þessu tagi, sé vafasamt
fordæmi, þar sem kæruaðilar
hafí á öllum stigum málsins sent
athugasemdir og kærur í allar
áttir, og krafíst þess að fram-
kvæmdir séu stöðvaðar á meðan
hin ýmsu bréf þeirra séu til með-
ferðar. Auk þess segir að afar
erfítt sé að fresta framkvæmdum
á þessum viðkvæma stað.
í lok bréfsins er beðið um
upplýsingar um hve langan frest
sé verið að ræða um og einnig
hvemig fara skuli með greiðslu
á þeim kostnaði sem hljótist áf
frestun framkvæmda.
Sjá bréf borgarstjóra bls. 67.
því að Akureyri varð ekki fyrir val-
inu, líst mér prýðisvel á Seattle.
Þetta er skemmtileg borg og ég
treysti Seattle-búum til þess að
hafa allar aðstæður í góðu lagi,“
sagði Jóhann.
Jóhann hefur lagt mikla áherslu
á að einvígið fari fram á þessu ári,
en því varð ekki við komið vegna
þess að Karpov þarf að tefla á sov-
éska meistaramótinu og fær sig
ekki lausan að eigin sögn. „Ég hefði
kannski kosið frekar að tefla á
þessu ári, en þetta er í sjálfu sér
ekkert mál,“ sagði Jóhann. Hann
sagði að mótstíminn gæti þó raskað
eitthvað undirbúningi hans fyrir
Ólympíumótið í skák, en það hefst
í nóvember á þessu ári. „Það er
náttúrulega gjörólíkt að búa sig
undir Ólympíumót eða einvígi, í
fyrra tilvikinu þarf maður að skoða
byijahir almennt, en í hinu þarf
maður að liggja yfír afbrigðum eins
manns," sagði Jóhann.
Jóhann sagði að hann hefði ekki
hafíð undirbúning fyrir einvígið,
hann hefði beðip eftir ákvörðun um
tímasetningu. í næstu viku teflir
hann á skákmóti í Þýskalandi.
Vorílofti
Morgunblaðið/Árni Sœberg
Þrenn göng
gerð und-
ir umferð-
argötur
Á NÆSTU tveimur árum verða
gerð þrenn göng undir umferð-
argötur í Reykjavík og hefur
Innkaupastofnun Reykjavíkur-
borgar óskað eftir tilboðum í
gerð þeirra. Áætlaður kostnaður
við verkið í heild er um 30 millj-
ónir króna.
Að sögn Inga Ú. Magnússonar
gatnamálastjóra verða gerð göng
undir nýjum Bústaðavegi, til móts
við íþróttasvæði Vals að Hlíðar-
enda, og eiga þau göng að vera
tilbúin á næsta ári. í sumar verður
hafíst handa við lagningu Bústaða-
vegar í Öskjuhlíð, ofan við slökkvi-
stöðina, og verður varið um 40
milljónum króna til verksins í ár.
Undir Gullinbrú í Grafarvogi, á
gatnamótunum við Fjallkonuveg,
verða gerð undirgöng og önnur
undir Fjallkonuveg við Logafold til
móts við Foldaskóla. Eiga þau göng
að vera tilbúin í september þegar
skólar taka til starfa.
Þungt hljóð hjá vestfirskum fiskvinnslustöðvum:
Stefnir i þjóðargjaldþrot
ef ekkert verður að gert
- segir Einar Oddur Krisljánsson, framkvæmdastjóri á Flateyri
„VIÐ ERUM sannfærðir um að ef ekki verður strax gripið til rót-
tækra ráðstafana hvað varðar stöðu fiskvinnslunnar þá stefnir í
hreint þjóðargjaldþrot,“ sagði Einar Oddur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Hjálms hf. á Flateyri, að loknum sex klukkustunda
löngum fundi f Félagi vestfirskra fiskvinnslustöðva sem haldinn var
á ísafúði í gær. Á fundinum var rætt um afkomu fiskvinnslunnar
og sagði Einar að þungt hljóð hefði verið í mönnum enda væri þolin-
mæði margra á þrotum.
„Við vildum bera saman bækur
okkar um afkomuna, til að sann-
reyna okkar eigin tölur og bera
okkur saman við aðra landshluta.
Niðurstaðan varð sú að við fengum
staðfest, sem við reyndar vissum
fyrir, að staða fískvinnslunnar er
vægast sagt skelfileg," sagði Einar
ennfremur. „Við vorum sammála
um að fískvinnslan stæði nú verr
en hún hefur staðið um árabil, jafn-
vel þótt farið sé tvo áratugi aftur
f tímann. Núna, þegar dynja yfir
okkur verðlækkanir á erlendum
mörkuðum samfara því að verð-
bólgan þeytist áfram hér innan-
lands, þá gerist þetta svo leiftur-
hratt að allar forsendur r|úka út í
veður og vind.“
Aðspurður um hvort gengisfell-
ing væri óumflýjanleg sagði Einar
Oddur: „Við erum sannfærðir um
að það náist aldrei jafnvægi til
handa fslenskri útflutningsfram-
leiðslu nema að verðmyndun á er-
lendum gjaldeyri verði gefín fijáls.
Við getum bara séð viðskiptahall-
ann sem var. í fyrra og þann við-
skiptahalla sem stefnir í nú í ár.
Ef svo heldur fram sem horfír þá
erum við sannfærðir um að það
stefni í hreint þjóðargjaldþrot. Það
er út í hött og í rauninni hrein geð-
veiki að halda svona áfram.
Við höfum áður bent núverandi
ríkisstjóm á, að ef ekki verði stöðv-
að þetta gegndarlausa innstreymi
erlendra lána og reynt að hafa hem-
Sannfærður um þátttöku Framsókn-
arflokksins í verkefnum framundan
- segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra segist sannfærður um
það eftir miðstjómarfund Framsóknarflokksins um helgina, eins
og hann hafi raunar verið fyrir þann fund, að flokkurinn muni
taka fullan þátt í þeim verkum sem framundan era. Það hafi
verið mjög mikilvægt, og raunar óhjákvæmilegt fyrir stjórnar-
flokkana, að fá sannfæringu fyrir þvf að Framsóknarflokkurinn
væri tilbúinn til þess að taka á þeim mikla vanda sem blasir við
höfuðatvinnugreinum landsmanna.
Þorsteinn sagði það aðalatriðið
að gera sér grein fyrir því að
mikill vandi steðpar að fslending-
um, fyrst og fremst í útflutnings-
og samkeppnisgreinum og að
ríkisstjórnin hefði verið að und-
irbúa það hvemig ætti að taka á
þeim málum. „Það er augljóst
hveijum manni að útflutnings-
framleiðslan og samkeppnisiðnað-
urinn verður ekki rekinn með þeim
gífurlega halla sem við blasir. Við
setjum okkur það markmið að
rétta við rekstrarskilyrði fram-
leiðslugreinanna og halda áfram
baráttunni fyrir því að ná niður
verðbólgu.
Það hefur orðið mjög mikill
árangur f baráttu gegn verðbólgu
sem er nú mun minni en í lok
síðasta árs. Það hefur slegið á
þensluna og árangur aðgerða
stjómarinnar á þessu stigi er því
að koma í ljós. Síðan mætum við
þessum nýju áföllum vegna verð-
falls á mörkuðum okkar og á því
þarf að taka með mikilli festu á
næstu vikum og að því hefur ver-
ið unnið á vegum ríkisstiómarinn-
ar og verður áfram. Eg þykist
vita að þessi fundur Framsóknar-
flokksins staðfesti vilja framsókn-
armanna til að taka fullan þátt í
þessum störfum og fulla ábyrgð
á þeim ákvörðunum sem þarf að
taka,“ sagði Þorsteinn.
Um tillögur þær sem miðstjóm-
arfundur Framsóknarflokksins
lagði fram sagði Þorsteinn að
stjómmálaályktun fundarins tæki
ekki á grundvallarvandanum sem
við væri að etja heldur væri því
lýst yfir að ráðherramir væm til-
búnir til að ræða aðgerðir innan
ríkisstjómarinnar, og það væri í
samræmi við það sem formenn
stjómarflokkanna hefðu talað um
að undanfömu. Tillögumar ljrtu
meira að hliðaratriðum, sumt
hefði verið til umræðu en einhver
ágreiningur gæti verið um önnur
atriði. „Við emm þó sammála um
það að vera ekki með neitt pex
eða karp um þau atriði sem ekki
skipta höfuðmáli. Við ætlum okk-
ur að taka á meginvandanum en
ekki eyða tímanum í að þrefa um
hliðaratriði," sagði Þorsteinn.
Aðspurður um umræður um
gengismál á fundum Alþýðuflokks
og FVamsóknarflokks um helgina
sagði Þorsteinn að sér fyndist að
menn ættu að tala af meiri ábyrgð
og meiri gætni um gengismál en
þeir gjaman gera. Hann vildi ekki
tímasetja þær efnahagsaðgerðir
sem framundan væru. „Mönnum
ber að afla gagna og kortleggja
ástandið og sjá flöt á því að ná
þessu tvíþætta markmiði, að
treysta undirstöður atvinnugrein-
anna og stöðva kostnaðarhækk-
animar innanlands sem hafa kom-
ið sjávarútvegi og samkeppnis-
iðnaði í koll undanfarið. Aðgerðir
8em hleypa kostnaðarskriðunni
af stað væm skammtfmaráðstöf-
un og það þarf að horfa lengra
fram á veginn við það, sem núna
er verið að gera,“ sagði Þorsteinn
Pálsson.
Sjá ályktanir stjórnmála-
flokka, frásagnir og viðtöl á
miðopnu og bls. 42 og 64.
il á verðbólgunni þá endi þetta með
skelfíngu. En að halda því fram,
að gengi eins gjaldmiðils geti verið
stöðugt þegar verðbólga í landinu
er kannski fjórföld eða fímmföld á
við það sem er í viðskiptalöndunum
er gjörsamlega út í hött, Þetta er
bara mgl sem ekki er umræðu-
hæft. Það á enginn meira undir því
komið að varðveita verðgildi gjald-
miðils heldur en einmitt útflutnings-
framleiðslan, en eina leiðin til þess
er að halda niðri verðlagi innan-
lands og kveða niður verðbólguna,
en það virðist ekki vera hægt. Við
emm að drekkja okkur í skuldum
og við verðum að hætta því. Það
verður að segja þessari þjóð að
kaupmáttur á Islandi er miklu meiri
en verðmæti framleiðslunnar. Það
er staðreynd sem menn verða að
horfast í augu við,“ sagði Einar
Oddur Kristjánsson.
Alvarlegur
vatnsskortur
á Eskifirði
Eskifirði.
Alvarlegt ástand hefur rfkt
undanfarið hjá Vatnsveitu Eski-
fjarðar og hefur oft komið til
vatnsleysis í stórum hluta kaup-
staðarins f vetur. Vatnsleysis
hefur einkum gætt f þeim götum
bæjarins, sem hæst liggja yfir
sjávarmáli, svo sem Fögruhlíð,
Hátúni og Bleiksárhlfð. Þó hefur
vatnsleysis einnig gætt f öðrum
hlutum bæjarins, þegar verst
hefur látið f vetur.
Nú nýlega bættist við stór not-
andi hjá Vatnsveitunni, þegar Hrað-
frystihús EskiQarðar hf. hóf starf-
rækslu rækjuvinnslu, og hefur það
enn aukið á vatnsöflunarvanda
Vatnsveitunnar. Þannig að þörf
mun nú orðin að skjótum úrlausn-
um.
— Ingólfur