Morgunblaðið - 26.04.1988, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
Sumargj öf til
landsins okkar
eftir Hjörleif
Guttormsson
Fyrir Alþingi liggnr nú tillaga
flutt af þingmönnum úr öllum
þingflokkum þess efnis, að gerð
verði úttekt á akstri torfæru-
tækja og annarra vélknúinna
tækja utan vega og merktra
slóða og leitað verði úrræða til
að koma í veg fyrir náttúru-
spjöll af þessum sökum.
Til að vinna að þessu verði
kosin nefnd skipuð fulltrúum frá
öllum þingflokkum og vinni hún
milli þinga. Tillögur nefndarinn-
ar eiga m.a. að fela í sér æskileg-
ar breytingar og samræmingu á
lögum um akstur utan vega, svo
og drög að reglum um sama efni.
Mikið vandamál hérlendis
Akstur vélknúinna tækja utan
vega er orðinn mikið vandamál hér-
lendis. Þar er um að ræðs fjórhjóla-
drifna bíla, vélsleða, fjórhjól og
þríhjól, svo og mótorhjól. Stöóugt
bætast við á markaði nýjar gerðir
ökutækja, sem ekki síst eru ætluð
til aksturs á vegleysum.
Island er óvenju opið og vamar-
laust gagnvart slíkum tækjum.
Skóglendi hindrar óvíða umferð
þeirra. Landið er strjálbýlt og því
erfitt um eftirlit. Víðáttur á hálendi
eru miklar og auðvelt að komast
þar út fyrir slóðir og aka um sanda
og gróðurteygingar. Víða í grennd
við þéttbýli er einnig unnt að kom-
ast á þessum tækjum um úthaga
og útivistarlönd. Þessar aðstæður
kalla á sérstök viðbrögð, ef við vilj-
um koma í veg fyrir að landið verði
úttraðkað af ökutækjum og tryggja
að sæmileg friðsæld haldist í nátt-
úrunni.
1.250 fjórhjól á 2 árum
Löggjöf okkar er rnjög gloppótt
og mótsagnakennd. Á það m.a. við
um nýsett umferðarlög, sem gera
ráð fýrir sérstökum „torfærutækj-
um“, sem ekki má aka á vegum á
sama tíma og akstur utan vega og
merktra slóða er bannaður að nauð-
synjalausu samkvæmt náttúru-
vemdarlögum.
Inn í landið em þannig flutt og
skráð tæki, sem ekki má nota lögum
samkvæmt nema í sérstökum und-
antekningatilvikum. Þetta á m.a.
við um fjórhjól, en um 1250 slík
vom flutt inn og seld á ámnum
1986 og 1987. Þau hafa ekki að-
eins valdið miklum náttúmspjöllum,
heldur hafa orðið á þeim mörg og
alvarleg slys þann stutta tíma sem
þau hafa verið hér í notkun.
Álit Náttúrverndarþings
Á 6. Náttúruvemdarþingi haust-
ið 1987 vom samþykktar svohljóð-
andi ályktanir varðandi fjórhjól og
akstur utan vega:
„Sjötta Náttúravemdarþing
1987 skorar á stjómvöld og Alþingi
að banna sölu og dreifingu torfæm-
tækja svo sem fjórhjóla og fram-
fylgja ákvæðum laga varðandi akst-
ur þeirra torfæmtæiq'a, sem þegar
hafa verið flutt til landsins."
„Sjötta Náttúmvemdarþing
1987 vekur athygli stjómvalda á
þeim stórfelldu og stundum óbæt-
anlegu spjöllum sem umferð fjór-
hjóla getur valdið á gróðri, jarð-
myndunum og dýralífi. Ennfremur
telur þingið að ekki megi dragast
lengur að setja reglugerð um akstur
utan vega og herða verði eftirlit
með umferð vélknúinna ökutækja í
óbyggðum árið um kring. Um leið
hvetur þingið til að bættar verði
merkingar fjallvega og umferð um
viðkvæm svæði skipulögð."
Verkefni nefndarinnar sem
þingsályktunartillagan gerir ráð
fyrir verður m.a. að móta tillögur
um sölu og notkun fjórhjóla.
Stækkandi herfylki
Jeppar komu til landsins með
herliði í síðustu heimsstyrjöld og
hafa verið notaðar í vaxandi mæli,
framan af einkum af bændum, en
hin síðari ár einnig mikið af þétt-
býlisbúum. Á 6. áratugnum fór að
bera á að menn ækju á jeppum
utan vega, m..a á hálendinu. Þar
áttu hlut að máli ferðamenn, bænd-
ur og rannsóknarleiðangrar af
ýmsu tagi. Slóðir vofu lagðar, flest-
ar ófullkomnar og ómerktar og
hver og einn taldi sig geta ekið um
vegleysur eins og tæki og áhugi
leyfði.
Með náttúmvemdarlögum sem
sett vom 1956 var reynt að spoma
við óþörfum akstri utan vega og
slóða. Eftirlit hefur lengst af verið
mjög ófullkomið með slíkum akstri,
en áróður fyrir bættri umgengni
við landið hefur.fengið nokkm áork-
að, svo og aðhald fólks í náttúm-
vemdarfélögum og ferðafélögum.
Jeppar og stórir fjallabílar verða
stöðugt betur búnir tij aksturs um
torfæmr og talsvert er um það að
ísland sé auglýst erlendis sem kjör-
ið land fyrir „safari“-leiðangra. Með
bílfeijum kemur árlega fjöldi öku-
manna með það fyrir augum að
spreyta sig og bíla sína við erfíðar
aðstæður og auðvitað festa at-
burðina á filmu.
Þáttur fjölmiðla
Fjölmiðlar hérlendis hafa iðulega
fallið í þá gryíju að varpa hetju-
ljóma á fólk, sem leggur upp í leið-
angra með vélaherfylki um landið
þvert, þar á meðal um viðkvæmar
gróðurvinjar hálendisins. Það er
eins og enginn muni eftir því, að
verið er að bijóta lög og reglur með
slíkum akstri og rista spor í landið,
sem tekið getur áratugi og jafnvel
aldir að bæta.
Vélsleðar em mikið notaðir, bæði
til gagns og gamans. Sé þeim ein-
göngu ekið á snjó eiga þeir ekki
að valda náttúmspjöllum, og í snjó-
þungum sveitum em þeir mikilsverð
samgöngubót. Vélsleðar valda hins
vegar miklum hávaða og em óhaf-
andi m.a. af þeim sökum á útivistar-
svæðum og í grennd við byggð.
Ökumenn fylgi
merktum slóðum
Brýn nauðsyn er á að marka
skýra stefnu um akstur utan þjóð-
vega og um eftirlit með settum regl-
um. Meginmarkmiðið hlýtur að
vera að vélknúin ökutæki, sem
ætluð eru til aksturs á auðu
Hjörleifur Guttormsson
„Fjölmiðlar hérlendis
hafa iðulega fallið í þá
gryfju að varpa hetju-
ljóma á fólk, sem legg-
ur upp í leiðangra með
vélaherfylki um landið
þvert, þar á meðal um
viðkvæmar gróðurvinj-
ar hálendisins. Það er
eins og enginn muni
eftir því, að verið er að
bijóta lög og reglur
með slíkum akstri og
rista spor í landið, sem
tekið getur áratugi og
jafnvel aldir að bæta.“
landi, fylgi eingöngu viður-
kenndum og merktum slóðum,
hvort sem um er að ræða fjalla-
bíla, jeppa eða léttari tæki eins
og fjórhjól, þrihjól og bifhjól.
Ákveðin svæði á landinu ætti að
friða algjörlega fyrir umferð
vélknúinna ökutækja og banna
að leggja þar akslóðir.
Athuga þarf sérstaklega um
heimildir til innflutnings og sölu
ökutækja, sem stefnt er gegn viður-
kenndum náttúravemdarsjónar-
miðum. Sama gildir um skráningu
tækja og aldursmörk fyrir ökumenn
þeirra.
Vönduð úttekt —
viðtækt samráð
Hér er um það margþætt mál
að ræða, að nauðsynlegt er að vönd-
uð úttekt fari fram og samráðs sé
leitað við hlutaðeigandi við mótun
tillagna. Hér verða ekki taldir upp
þeir mörgu aðilar, sem rétt er að
hafa samráð við vegna slíkrar út-
tektar. Fyrir utan opinbera aðila,
ráðuneyti, sveitarstjómir og stofn-
anir, svo sem Vegagerð rikisins,
Náttúravemdarráð, Ferðamálaráð
og Umferðarráð, er eðlilegt að leita
m.a. álits samtaka bænda og fé-
lagasamtaka tækjaeigenda, sem
stofnað hafa með sér samtök og
klúbba.
Það er áreiðanlega ekki í huga
manna að spilla landinu að yfírlögðu
ráði. Landspjöll verða flest fyrir
vangá og vegna þess að mehn telja
að eigið atferli sé meinlaust. Menn
gæta heldur ekki þeirra gömlu
sanninda að margt smátt gerir eitt
stórt: Farið eftir jeppann minn eða
fyórhjólið bætist við þau örkuml sem
fyrir vom á landinu og fyrr en var-
ir er það alþakið sámm eftir leik-
föng nútímans. Til að koma í veg
fyrir það þurfum við skynsamlegar
reglur, upplýsingu og eftirlit. Það
væri verðug sumargjöf til landsins
okkar að Alþingi tæki á þessum
málum af víðsýni.
Höfundur er alþingismaður Al-
þýðubandídags fyrir Austurlands■
kjördæmi.
Kosningabaráttan í Danmörku:
„Þriðji kosturinn“ og nýr þátttak-
andi 1 forsætisráðherraslagnum
Radikale Venstre, sem hefur lykilstöðu í dönskum stjórnmálum, vill fá forsæt-
isráðherraembættið í sinn hlut og er spáð fylgisaukningu í kosningunum
EftirJens
Erik Rasmussen
SLAGURINN um það hver
verður forsætisráðherra í Díin-
mörku að kósningum loknum
stendur ekki lengur aðeins á
milli tveggja manna, oddvita
borgaraflokkanna annars veg-
ar og vinstriflokkanna hins
vegar. Radikale Venstre, sem
fékk 6% atkvæða og 11 þing-
menn í síðustu kosningum, vek-
ur nú athygli á sjálfum sér sem
„þriðja kostinum" og vill, að
formaður flokksins, Niels Hel-
veg Petersen, verði forsætis-
ráðherra.
„Þegar allt er jám í jám og
flokkablokkimar geta ekki komið
sér saman er eðlilegt, að við minn-
um á okkur sjálfa. Takmarkið er,
að hér sitji stjóm, sem er þess
umkomin að gera ábyrgar
langtímaáætlanir," segir Niels
Helveg Petersen.
Þetta útspil Radikale Venstre
hefur flækt málin og gefið kosn-
ingabaráttunni nokkuð annan
svip. Meiri óvissa ríkir nú en oft
áður um niðurstöður kosninganna
og um það hver verður í farar-
broddi fyrir næstu stjóm.
Lykilstaða
Þótt Radikale Venstre sé smá-
flokkur er þessi draumur hans um
forsætisráðherraembættið tekinn
alvarlega vegna þeirrar lykilstöðu,
sem hann hefur í dönskum stjóm-
málum. í langan tíma hefur engin
ríkisstjóm getað starfað án stuðn-
ings flokksins og stefnumála
hans, að halda niðri launakostn-
aði, neyslu og opinbemm útgjöld-
um, gætir því miklu meir en svar-
ar til fylgisins.
Radikale Venstre hefur lengst-
um verið nokkuð sammála borg-
araflokkunum í efnahagsmálum
en í utanríkis- og öryggismálum
hefur allt annað verið uppi á ten-
ingnum. í þeim hefur hann fylgt
stjómarandstöðunni og átti þátt
í að fella stjómina með því að
styðja þingsályktunartillögu jafn-
aðarmanna um kjamorkuvopnin.
Eftir kosningamar í september
á síðastliðnu hausti dró flokkurinn
raunar nokkuð í land með stuðn-
inginn við stjómina og var því þá
lýst yfir, að ekki væri hægt að
líta á hann sem stuðningsflokk.
Vildu radikalar, að stjómin yrðu
mynduð á breiðari gmndvelli en
Niels Helveg Petersen var ekki
spurður ráða.
Breið stjórn
Með því að benda á Niels Hel-
veg Petersen sem sáttasemjara
og forsætisráðherraefni hafa rad-
ikalar skilið enn betur á milli sín
og stjómarinnar og hugsanlega
em þeir að leggja drög að minni-
hlutastjóm jafnaðarmanna. Svend
Auken, leiðtogi jafnaðarmanna,
getur nokkuð treyst því, að vinst-
riflokkamir styðji hann sem for-
sætisráðherra og því stendur hann
betur að vígi en Poul Schliiter,
forsætisráðherra borgaraflokk-
Niels Helveg Petersen, leiðtogi
Radikale Venstre
anna, eftir að hann hefur misst
atkvæði radikala.
Margir vísa þó þessum vanga-
veltum á bug og benda á, að radi-
kalar hafi lítið álit á forystuhæfi-
leikum Svends Aukens og Niels
Helveg Petersen hefur sjálfur
þvertekið fyrir þær.
Radikale Venstre vill mynda
breiða stjóm og vill, að flokkamir
gefi sér góðan tíma til þess eftir
kosningar að ræða um efnahags-
vandann og leiðir út úr honum.
Skuli viðræðunum annaðhvort
ljúka með myndun meirihluta-
stjómar eða bindandi samningum
, um helstu markmið og leiðir í
þjóðmálunum. Yrði það til, að
stjómin gæti setið út kjörtímabilið
og einnig til að koma í veg fyrir
ítalskt ástand í Danmörku með
kosningum í tíma og ótíma.
Spáð fylgisaukningu
Stjómmálaskýrendur og kosn-
ingakönnuðir spá Radikale Vens-
tre allnokkurri fylgisaukningu. í
síðustu könnun kom fram, að
flokkurinn fengi 8% atkvæða í
stað 6% í síðustu kosningum en
hún var gerð áður en hartn hleypti
Niels Helveg Petersen af stokkun-
um sem forsætisráðherraefni.
Ef vel tekst til með þann áróð-
ur, að Radikale Venstre sé þriðji
kosturinn, gæti hann náð til sín
mörgum kjósendum, sem em
orðnir leiðir á átökum blokkanna
og persónulegu einvígi þeirra
Schlúters og Aukens. Petersen
legði þá áherslu á, að hann hefði
hreinan skjöld í þessum hjaðn-
ingavígum, hann væri maðurinn,
sem gæti sameinað blokkimar og
komið á stöðugleika í danskri
pólitík. Sumir hallast jafnvel að
því, að þessi áróður geti aukið
fylgi flokksins í líkingu við það,
sem gerðist fyrir 20 ámm, en þá
tvöfaldaðist þingmannatala hans
og Hilmar Baunsgárd, formaður
Radikale Venstre, varð forsætis-
ráðherra.
Höfundur er blaðamaður hjá
ReportageGruppen í
Árósum