Morgunblaðið - 26.04.1988, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
Finnland:
Lýsa yfir áhuga á inn-
göngu í Evrópuráðið
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara
FINNSKA ríkisstjórnin hefur
tekið ákvörðun um að hefja við-
ræður um aðild Finnlands að
Evrópuráðinu í Strassborg. Finn-
land er eina rikið í Vestur-
Evrópu, auk dvergríkjanna And-
orru, Mónakós, Páfagarðs og San
Marínós, sem ekki á sæti í ráð-
inu. Formlega er ekki hægt að
sækja um aðild að Evrópuráðinu,
en ráðamenn í Helsinki reikna
með að Finnum verði boðin þátt-
taka um leið og rikisstjórnin hef-
ur iýst yfir áhuga sínum á inn-
göngu.
Evrópuráðið hefur starfað á sviði
mannréttinda- og menningarmála í
Evrópu frá 1949. í upphafi var
mikil áhersla lögð á vörslu lýðræðis
í álfunni og beindust sjónir manna
þá fyrst og fremst að útþenslu-
stefnu Sovétmanna. Finnar hafa til
þessa tekið þátt í flestri starfsemi
ráðsins á sérsviðum þess, t.d. í
menningar- og vísindamálum. Upp-
haflega vildu Finnar ekki vera full-
gildir meðlimir í ráðinu þar sem
þeim þótti starfsemi þess bera
fullmikinn keim af Kalda stríðinu.
Núverandi stefna, að gerast full-
ir aðilar að Evrópuráðinu, komst í
hámæli í vetur í hita forsetakosn-
ingabaráttunnar, en Mauno Koi-
visto forseti lýsti yfír því að sér
þætti ekkert mæla gegn því að
Finnland gengi í ráðið.
Sem næst allir flokkar á þjóð-
þingi Finna hafa fagnað ákvörðun
ríkisstjómarinnar. Kommúnistar
eru þessu þó mótfallnir og telja
eðlilegra að Finnar efli samskiptin
við Sovétríkin. Mat kommúnista er
að koma þurfí á jafnvægi f þróun
Morgunblaðsins.
utanríkismála Finna.
Aðild Finna að Evrópuráðinu
hefur verið áhugamál einstakra
stjómmálamanna og forystumanna
í viðskiptalífinu. Maðal þeirra má
nefna Kai Kairamo, forstjóra Nok-
ia-samsteypunnar. Á íslandi er
Nokia þekktust fyrir stígvélafram-
leiðslu sína, en umsvif fyrirtækisins
em mun víðtækari — sérstaklega á
sviði svonefndrar hátækni. Ymis
konar tölvubúnaður, fjarskiptatæki
og rafeindatól frá Nokia hafa þegar
mtt sér braut inn á Evrópumarkað-
inn. í þessu viðfangi hefur mönnum
þótt það óhagstætt að vera ekki í
Evrópuráðinu og benda á að slíkt
sé nokkuð á skjön við þá ímynd,
sem Finnar hafa lagt rækt við að
undanfömu, að ríkið sé án nokk-
urra tvímæla í hópi vestur-evróp-
skra lýðræðisþjóða.
Mannréttindamál valda
áhyggjmn Finna
Margir hafa haldið því fram að
aðild Finna að Evrópuráðinu ráðist
að miklu leyti af tengslum þess við
Sovétríkin. Svo virðist þó ekki vera,
að minnsta kosti hafa Sovétmenn
ekkert sagt um ráðið að undan-
fömu. Ennfremur má minna á að
hlutleysisstefna. Finna er vart í
bráðri hættu vegna hugsanlegrar
aðildar, því að önnur hlutlaus ríki
á borð við Austurríki, Svíþjóð og
Sviss hafa verið aðilar að ráðinu
um árabil.
Helstu áhyggjur fínnskra stjórn-
valda em á sviði mannréttinda, en
fínnsk lög em mjög ströng að því
er varðar gæsluvarðhald gmnaðra
afbrotamanna. Heimilt er að setja
mann í vikulangt varðhald án þess
málið komi fyrir rétt. Ákvæði þessi
brjóta í bága við mannréttindasátt-
mála Evrópuráðsríkjanna. Þá em í
Finnlandi lög um útlendinga, sem
veita þeim nánast engin réttindi.
Hefur löggjöf þessi verið meginá-
stæða þess að sá flóttamanna-
straumur, sem verið hefur í Dan-
mörku og Skandinavíu, hefur næsta
lítið snert Finnland. Pólitískum
flóttamönnum hefur einfaldlega
verið stungið inn og þeir síðan send-
ir aftur til síðasta viðkomustaðar.
Matti Louekoski dómsmálaráð-
herra segist vera tilbúinn til rót-
tækra aðgerða á næstu ámm, sem
miði að úrbótum í mannréttinda-
málum, fari viðræður Finna við
Evrópuráðið á annað borð af stað.
Hann bætir þó við, að öllu verði
þó vart breyt í einni svipan.
Afganistan:
Reuter
Sovéskur skriðdrekastjóri slakar á í Kabúl eftir að hafa fylgt lest
flutningabíla þangað í gær. Brottflutningur sovéska innrásarliðsins
frá Afganistan hefst 15. maí næstkomandi en talið er að um 115.000
sovéskir hermenn séu í landinu.
Varnir stjórnar-
hersins treystar
Islamabad, Reuter.
Panama:
Gæti dregið mig 1
hlé hvenær sem er
- segir Noriega hershöfðingi
Panamaborg, Reuter.
MANUEL Antonio Noriega sagði
í viðtali sem birt var f panamísku
dagblaði á laugardag að hann
gæti dregið sig f hlé sem yfirmað-
ur Panamahers hvenær sem væri
en það þyrfti ekki endilega að
gerast á næstunni. Hann staðfesti
einnig f öðru viðtali að hann hefði
rætt við háttsettan embættismann
Bandaríkjastjómar nýlega.
„Noriega hershöfðingi gæti farið
í dag, á morgun, 12. ágúst, 3. nóv-
ember, 16. desember eða 1. janúar
árið 1989. Dagatalið býður upp á
marga daga,“ sagði Noriega í viðtali
sem birtist í panamíska dagblaðinu
Estrella de Panama á laugardag.
Noriega staðfesti ennfremur í við-
tali við opinberu fréttastofuna í Pa-
nama, Prensa Latina, að hann hefði
AÐ MINNSTA kosti 60 manns
hafa látist vegna bflsprengingar-
innar sem varð f borginni Trfpólí
í Líbanon á laugardag. í gær fóru
borgarbúar f verkfall til að minn-
ast hinna látnu.
52 létust strax og rúmlega 100
manns slösuðust þegar sprengingin
varð við ijölfarin gatnamót í Trípólí
á laugardag. Lögregluyfirvöld sögðu
rætt við háttsettan embættismann
Bandaríkjastjómar en sagði ekki
hver það hefði verið. Haft er eftir
panamiskum heimildarmönnum að
Noriega hafi rætt við Michael Kozak,
sendimann bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins.
Noriega sagði einnig að tilraunir
Bandaríkjastjómar til að bola honum
frá völdum væm liður í áformum
hennar um að undiroka Suður-
Ameríkumenn. „Bandaríkjamenn em
hér að framkvæma tilraun, eins og
í Víetnam, sem þeir hyggjast beita
síðar í Argentínu, Umguay, Brasilíu
eða hvaða landi sem er á þessu
svæði. Ef þessi kúgunaraðferð ber
árangur verður henni beitt gegn öðr-
um þjóðum Suður-Ameríku," sagði
hann meðal annars.
í gær að í það minnsta 60 manns
hefðu nú látist af völdum sprenging-
arinnar.
í bifreiðinni sem sprakk vom 150
kíló af sprengiefni og flestir þeirra
sem létust vom í verslanamiðstöð í
grenndinni að kaupa matvæli fyrir
„iftar," sem er hefðbundin máltíð
múslima í hinum helga ramadan-
mánuði.
AFGANSKI stjórnarherinn hef-
ur látið frelsissveitum afg-
anskra skæruliða eftir nokkrar
varðstöðvar við landamæri Píik-
istans. Að sögn vestrænna hern-
aðarsérfræðinga er þetta gert
til að treysta varnir hernaðar-
lega mikilvægra svæða áður en
brottflutningur sovéska innrás-
arliðsins frá Afganistan hefst
15. mai næstkomandi. Najib-
ullah, leiðtogi afganska komm-
únistaflokksins, lýsti á sunnu-
dag yfir stuðningi við þá hug-
mynd að risaveldin dragi úr
stuðningi sínum við stríðandi
fylkingar í Afganistan.
Að sögn vestrænna embættis-
manna hefur afganski stjómar-
herinn yfírgefíð nokkrar einangr-
aðar varðstöðvar við landamæri
Pakistans. Brottflutningurinn fór
fram á föstudag og laugardag og
tóku skæmliðar stöðvamar á sitt
vald fáeinum klukkustundum
síðar. Heimildarmenn Reuters-
fréttastofunnar sögðu þetta skyn-
samlega ákvörðun í hemaðarlegu
tilliti. Ekki væri unnt að veija
stöðvar þessar gegn árásum
skæruliða eftir að s'ovéska herliðið
hefði haft sig á brott. Stöðvamar
hefðu veikt framvamir stjómar-
hersins á þessum slóðum og hefði
því verið skynsamlegt að þétta þær
með þessum hætti.
í gær lagði Najibullah, leiðtogi
afganska kommúnistaflokksins og
forseti landsins, til að komið yrði
á fót „friðarsvæðum" við landa-
mæri Áfganistans og Pakistans til
að greiða fyrir því að afganskir
útlagar gætu snúið aftur heim.
Vestrænir embættismenn sögðu
tillögu þessa sýna að stjómarher-
inn og sovéska innrásarliðið hefðu
glatað yfirráðum yfir svæðum
þessum. Najibullah sagði tillögu
þessa geta stuðlað að „þjóðarsátt"
eftir heimkvaðningu sovéska her-
liðsins. Vestrænir embættismenn
töldu líklegt að skæruliðar höfnuðu
tillögu forsetans þar sem hún þjón-
aði fyrst og fremst öryggishags-
munum stjómvalda í Kabúl.
Á sunnudag lýsti Najibullah yfir
því að hann væri hlynntur þeirri
hugmynd að Bandaríkjamenn og
Sovétmenn drægju jafnhliða úr
stuðningi sínum við hinar stríðandi
fylkingar í Afganistan. Najibullah
viðurkenndi einnig að skæruliðar
ættu rétt á aðstoð frá Bandaríkja-
PETER Levi, prófessor í ensk-
um bókmenntum við háskólann
í Oxford, segist hafa uppgötvað
nýtt kvæði eftir Shakespeare.
Aðrir sérfræðingar í þessu höf-
uðskáldi enskrar tungu eru
ekki sammála og enginn sann-
færður.
Síðastliðinn laugardag, 23.
apríl, var fæðingardagur Sha-
kespeares. Þann dag ætlaði dag-
blaðið The Independent að birta
kvæði, sem Peter Levi prófessor,
ritdómari blaðsins, taldi sig hafa
uppgötvað, að væri eftir Sha-
kespeare. Hann hafði verið að
undirbúa nýja ævisögu skáldsins
og rekist á þetta kvæði í hand-
riti,, sem nú er á safni í Kali-
fomíu. Hann ætlaði að birta
kvæðið sem viðbót við bókina, en
útgefandinn, MacMillan, taldi
hann á að gefa það út í sérstöku
hefti með rökstuðningi fyrir því,
að kvæðið væri eftir Shakespeare.
Einnig var The Independent&eldur
útgáfuréttur að kvæðinu og hlut-
um úr ævisögunni.
En annað dagblað komst á
snoðir um þetta og birti frétt um
uppgötvunina á fímmtudag í
síðastliðinni viku. Kvæðið var því
birt á föstudag, degi fyrr en áætl-
að var, og á laugardag var bækl-
ingurinn settur í verslanir.
mönnum héldi Sovétstjómin áfram
stuðningi við marxistastjómina í
Kabúl. Samkvæmt sáttmálanum
um brottflutning sovéska innrásar-
liðsins er gert ráð fyrir Jafnri
gagnkvæmri" hemaðaraðstoð risa-
veldanna við bandamenn sína í
landinu.
Sue Hudson við Huntington-
bóksafnið í San Marino í Kali-
fomíu segir, að safnið hafi eign-
ast þetta handrit 1929 og síðan
þá hafí 79 menn skoðað það sam-
kvæmt bókum safnsins. En eng-
um hafí dottið í hug áður að eigna
kvæðið Shakespeare.
Gary Taylor, bandarískur bók-
menntafræðingur og annar af rit-
stjómm nýrrar útgáfu á verkum
Shakespeares frá Oxford-forlag-
inu, segir, að rökin fyrir því að
eigna Shakespeare kvæðið stand-
ist engan veginn. Hann fellst á,
að Peter Levi hafí uppgötvað
ýmislegt nýstárlegt við þetta
kvæði, en ekkert af því geri mögu-
legt að álykta, að Shakespeare
hafí samið það.
Sterkustu rök Levis em þau,
að undir kvæðinu séu stafir Johns
Marstons, samtímamanns Shake-
speares, og einnig stafímir WS,
og við eigum að trúa því, að hann
sé að eigna Shakespeare kvæðið.
En vandinn er, að engar upplýs-
ingar liggja fyrir um sambandið
milli þessara tveggja manna.
Kvæðið, sem The Independent
birti síðastliðinn föstudag, hefur
áður birst í tveimur bókum á
síðstu öld og hefur því verið mönn-
um kunnugt lengi. Og sem skáld-
skapur virðist það ekki hafa neina
sérstaka verðleika.
Bílsprengingin í Líbanon:
I það minnsta 60
manns hafa látist
Beirut, Reuter.
Bretland:
Ys ogþys út af engu
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðarí Frímannssyni, fréttaritara Morgfunblaðsins.