Morgunblaðið - 26.04.1988, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
37
Dorgveiðikeppni:
Lítið veiddist í sól og
blankalogni við Mývatn
Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson
Á myndinni má sjá verðlaunahafana Baldvin Björnsson, Steinunni
Ósk Stefánsdóttur og- Helga Vatnar Helgason. Fyrir aftan standa
þau Sævar Kristjánsson og Herdís Steingrimsdóttir.
Flest brotanna
eru rakin til
misskilnings
— segir Guðmundur Björnsson
formaður verkfallsnefndar
HELGIN VAR fremur róleg hjá
verkfallsnefnd á Akureyri, en
að staðaldri eru á milli 50 og
60 manns á vakt. Þeir byija
klukkan 8 á morgnana og starfa
fram á kvöld eftir efnum og
ástæðum. Upp komu nokkur
minniháttar brot um helgina og
í gær, en að sögn Guðmundar
Björnssonar var hægt að rekja
þau flest til misskilnings og
ágreinings um túlkunaratriði og
leystust þau yfirleitt fljótt og
vel.
„Við höfum allt aðra túlkun á
verkfallslögunum heldur en at-
vinnurekendur, sem leggja mjög
svo víðtækan skilning í þau. Við
viljum meina að eigendur, eigin-
konur og böm þeirra innan 16 ára
aldurs geti starfað í verkfalli sem
þessu á meðan atvinnurekendur
vilja jafnframt gefa grænt ljós á
verslunarstjóra og aðra ábyrgðar-
menn. Við höfum ekkert hlustað á
þetta og hafa þeir eigendur versl-
ana, sem borið hafa þessum hug-
myndum atvinnurekenda við, bakk-
að með þær,“ sagði Guðmundur.
Verkfallsverðir á Akureyri og
framkvæmdastjóri Nestis við Hörg-
árbraut sömdu um að sambýliskona
framkvæmdastjórans mætti starfa
í versluninni með honum gegn því
að verkfallsverðir fengju að líta inn
við og við til að fullvissa sig um
að samningurinn væri haldinn, en
eins og fram hefur komið, kom til
handalögmála þar þegar systir
hans var við störf sl. föstudag.
Þá gengu verkfallsverðir jafn-
framt að því að báðir eigendur
Matvörumarkaðarins í Kaupangi
fengju að starfa í versluninni ásamt
eiginkonum og bömum sínum inn-
an 16 ára þrátt fyrir að annar eig-
andinn hefði annað og óskylt aðal-
starf. Verkfallsverðir neituðu að
fallast á starf hans á fyrsta degi
verkfallsins sl. föstudag og hótuðu
jafnframt að loka versluninni sæist
hann við störf, en nú eru aðilar
sammála um túlkun hvað þessu
tilviki viðvíkur.
ARLEG dorgveiðikeppni í Mý-
vatni fór fram sl. laugardag í
blíðskaparverði og mættu 39
keppendur til leiks. „Ég held
bókstaflega að flestir keppend-
urnir séu að skipta um skinn
þessa dagana. Það var alveg
blankalogn og sólin skein eins
og hún best gerir í fjallaloftinu
tæra hér norðanlands og hitastig
var rétt um frostmarkið," sagði
Björn Björnsson, skipuleggjandi
mótsins og starfsmaður Ferða-
málafélags Mývatnssveitar, í
samtali við Morgunblaðið.
Keppnin hófst klukkan 11.00 á
laugardag og henni lauk kl. 16.00.
Það var ekki fyrr en um kl. 13.00
að Steinunn Ósk Stefánsdóttir dró
fyrsta fisk dagsins úr vatninu. Hún
hafði aldrei dorgað áður, en var
mætt í keppnina ásamt syni sínum,
Amþóri Hauki Birgissyni. Steinunn
hlaut ísbor í verðlaun. Helgi Vatnar
Helgason fékk tvenn verðlaun, bæði
fyrir stærsta fiskinn og besta gæða-
matið, en hann átti einmitt stóran
þátt í sigri íslendinga gegn Norð-
mönnum í landskeppninni, sem
fram fór fyrir skömmu á Mývatni.
Baldvin Bjömsson hlaut verðlaun
fyrir Qölda fiska í keppninni þó
veiði hafi verið heldur dræm allan
tímann. Alls vom þrír veiðimenn
með einn fisk og homsíli svo að
kasta varð hlutkesti um sigurvegar-
ann og komu verðlaunin þannig í
hendur Baldvini.
Ferðamálafélag Mývatnssveitar
vill nota tækifærið og þakka öllum
keppendum fyrir komuna og um
leið vilja þeir þakka þeim aðilum,
sem gefið hafa verðlaun, og aðra
fyrirgreiðslu til að halda keppnina.
Sérstaklega vill félagið þakka Ey-
fjörð heildverslun, I. Guðmunds-
syni, Kaupfélagi Þingeyinga, Hótel
Reynihlíð, Sportvömgerðinni,
Veiðimanninum, Veiðivon, Vestur-
röst og Veiðifélagi Laxár og Krák-
ár.
Steinunn Ósk Stefánsdóttir var að dorga i fyrsta sinn og er hér
með son sinn, Arnþór Hauk. Hér eru þau með fyrsta fiskinn sem
veiddist í keppninni.
Skákþing Norðlendinga:
Aðeins hálfur vinningur skildi
að efstu menn í opnum flokki
Dalvík.
Skákþing Norðlendinga fór
fram á Dalvík dagana 21.-24.
apríl og var keppt í þremur
flokkum, bamaflokki, unglinga-
flokki og opnum flokki. Það var
Taflfélag Dalvíkur sem annaðist
mótið og var þátttaka góð og
keppni jöfn og spennandi. Teflt
var eftir Monrad-kerfi og skildi
aðeins hálfur vinningur efstu
menn i eldri flokkunum. Úrslit
réðust ekki fyrr en í síðustu
skákum. Úrslit urðu sem hér seg-
ir.
Bamaflokkur, 12 ára og yngri:
1. Þorleifur Karlsson Akureyri 8,5
vinningar af 9 mögulegum
2. Ásmundur Stefánsson Svalbarðs-
strönd 7,5 vinningar
3. Páll Þórsson Akureyri 7,5 vinn-
ingar
Unglingaflokkur, 13-16 ára:
1. Magnús Teitsson Akureyri 8,5
vinningar af 9 mögulegum
2. Rúnar Sigurpálsson Akureyri 8,0
vinningar
3. Sigurður Gunnarsson Blönduósi
6 vinningar
Opinn flokkur, fullorðnir:
1. Amar Þorsteinsson Akureyri 6
vinningar af 7 mögulegum
2. Gylfi Þórhallsson Akureyri 5,5
vinningar
3. Smári Ólafsson UMSE 5 vinning-
Amar Þorsteinsson, Gylfi Þórhallsson og Smári Gunnarsson, þrir
efstu menn í opnum flokki karla á Skákþingi Norðurlands.
4.-6. Rúnar Búason Dalvík, Ingimar
Jónsson Dalvík og Jón Ámi Jónsson
Akureyri, með 4,5 vinninga hver.
Að skákþinginu loknu var haldið
hraðskákmót og teflt í þremur
flokkum, yngri flokki, opnum flokki
og kvennaflokki. Úrslit í hraðskák:
inni urðu sem hér segir:
Yngri flokkur, 16 ára og yngri:
1. Örvar Amgrímsson Akureyri 17
vinningar
2. Sigurður Gunnarsson Blönduósi
16 vinningar
3. Páll Þórsson Akureyri 15,5 vinn-
ingar
Opinn flokkur, karlar:
1. Rúnar Sigurpálsson Akureyri
12,5 vinningar
2. Ingimar Jónsson Dalvík 12 vinn-
ingar
3. Þór Valtýsson Akureyri 12 vinn-
ingar
Kvennaflokkur:
1. Amfríður Friðriksdóttir 7 vinn-
ingar
2. Sveinfríður Halldórsdóttir UMSE
7 vinningar_
3. Ásrún Ámadóttir UMSE 6,5
vinningar.
Við mótsslit voru sigurvegurum
Arafríður Friðriksdóttir sigraði
i kvennaflokki.
afhent verðlaun og þá heiðraði Tafl-
félag Ungmennasambands Eyja-
fjarðar Jón Stefánsson fyrrverandi
formann Taflfélags Dalvíkur fyrir
mikil störf að skák á Dalvík og inn-
an UMSE. UMSE á nú í fyrsta
skipti lið í fyrstu deild í skák og í
tilefni þess afhenti Jón Stefánsson
Taflfélagi UMSE tvær skákklukkur
að gjöf. Á skákþinginu var Albert
Sigurðsson skákstjóri, en hann hef-
ur um árabil sinnt skákstjóm á
Skákþingi Norðurlands og vom
honum fluttar þakkir fyrir vel unn-
in störf.