Morgunblaðið - 26.04.1988, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
Stjórnmálaályktun miðstjórnar Framsóknarflokksins:
Róttækar aðgerðir þarf
til að skapa atviimugrein-
unum rekstrargrundvöll
MIÐSTJÓRN Framsóknar-
flokksins - samþykkti eftirfar-
andi stjórnmálaáíyktun á fundi
sínum 23.-24. apríl:
Miðstjórn Framsóknarflokksins
hefur á fundi sínum 23.-24. apríl
1988 ijallað um þjóðmálin og
stjómarsamstarfíð. Miðstjómin
ályktar:
Framsóknarflokkurinn gekk til
stjómarsamstarfsins með því skil-
yrði að efnahagsmál þjóðarinnar
yrðu tekin föstum tökum með enn
hjaðnandi verðbólgu, traustan
rekstrargrundvöll atvinnuveganna
og viðskiptajöfnuð að markmiði.
Um þetta náðist samstaða, eins
og fram kemur í stefnuyfirlýsingu
og starfsáætlun ríkisstjómarinnar.
Á því tæpa ári, sem ríkisstjóm-
in hefur starfað, hefur ýmislegt
mikilvægt áunnist.
í sjávarútvegi hefur verið lög-
fest ákveðin og markviss stjómun,
sem stuðla mu'n að skynsamlegri
nýtingu fiskstofnanna og koma í
veg fyrir ofveiði.
I landbúnaði hefur náðst mikil-
vægur árangur. Jafnvægi er að
nást í mjólkurframleiðslu og að
því stefnir einnig í framleiðslu
sauðíjárafurða. Fiskeldi, sem
grundvöllur var lagður að á síðasta
kjörtímabili, er jafnframt mjög
vaxandi.
í heilbrigðis- og tryggingarmál-
um er unnið að íjölmörgum endur-
bótum og heildarúttekt, með
aukna hagkvæmni í huga án þess
að úr þjónustu verði dregið.
í utanríkismálum hefur verið
mótuð og framkvæmd sjálfstæð
stefna, í samræmi við stefnuyfir-
lýsingu ríkisstjómarinnar. Á
grundvelli samþykktar Alþingis
hafa íslendingar beitt sér á al-
þjóðavettvangi fyrir fækkun
kjamorkuvopna og gegn hvers
konar mannréttindabrotum. Er
vafalaust að sjálfstæð utanríkis-
stefna og virk þátttaka íslendinga
í starfi alþjóðastofnana hefur auk-
ið álit á landi og þjóð.
Full samstaða er um að ríkis-
sjóður verði rekinn hallalaus og
dregið úr erlendri lántöku opin-
berra aðila. Staðgreiðslukerfi
skatta, sem ákveðið var af síðustu
ríkisstjóm, er komið til fram-
kvæmda og virðisaukaskattur
verður væntanlega tekinn upp á
næsta ári.
Heildarathugun húsnæðiskerf-
isins er hafin. Brýna nauðsyn ber
til að draga úr þensluáhrifum hús-
næðislánanna án þess að skerða
aðstoð við þá sem eignast íbúðar-
húsnæði í fyrsta sinn.
Á ýmsum öðrum sviðum hefur
tekist miður.
Um efnahags-, atvinnu og
byggðamál segir m.a. í stefnuyfir-
lýsingu ríkisstjómarinnar að hún
muni vinna að eftirfarandi:
„að búa atvinnulífinu sem best
starf sskilyrði,“
„að tryggja jafnvægi í viðskipt-
um við útlönd,“
„að jákvæðum en hóflegum
raunvöxtum," — „og lækkun
vaxta,“
„að eðlilegri byggðaþróun."
Því miður hallar mjög undan
fæti á ofangreindum sviðum. Er
nú svo komið, að fjölmörg fram-
Jeiðslufyrirtæki riða til falls, við-
skiptahalli eykst og byggðaþróun
er ógnvekjandi. Ein fárra atvinnu-
greina, sem skilar miklum arði er
lánastarfsemi ýmiss konar, sem
byggir á óeðlilegum vaxtamun og
því, að erlent íjármagn, á föstu
gengi, er endurlánað með háum
vöxtum og lánskjaravísitölu, sem
mælir dyggilega þensluna og verð-
bólguna innanlands. Það eru hins-
vegar grundvallaratvinnuvegimir
sem fyrst og fremst þurfa að hafa
góða afkomu.
Hallalaus ríkisbúskapur, spam-
aður og minni erlendar lántökur
em að sjálfsögðu afar mikilvæg
atriði eins og ástatt er í efnahags-
málum, enda hafa framsóknar-
menn staðið heilshugar að þeim
ákvörðunum sem að því miða. Slíkt
hrekkur hins vegar skammt, ef
framleiðsluatvinnuvegir þjóðar-
innar em reknir með stórfelldum
halla um lengri tíma. Því hafa
framsóknarmenn jafnframt lagt
áherslu á aðgerðir, sem stuðla að
bættum rekstrargmndvelli. Má í
því sambandi nefna að uppsafnað-
ur söluskattur í sjávarútvegi var
endurgreiddur og horfið frá fyrir-
ætlun um að leggja launaskatt á
útflutningsatvinnuvegina.
Framsóknarmenn hafa staðið
að þeirri stefnu í efnahagsmálum
að byggja á sem stöðugustu gengi
íslensku krónunnar. Talsmenn
flokksins hafa hins vegar lagt
áherslu á, að fast gengi fær ekki
staðist, ef annað leikur lausum
hala, fjármagnsmarkaðurinn nán-
ast stjórnlaus, fjármagnskostnað-
ur óheftur og kostnaðarhækkun-
um velt út í verðlagið innanlands.
En það geta útflutningsatvinnu-
vegirnir ekki.
Því miður hafa tillögur og
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt á ráðstefnu alþýðu-
flokksfélaganna í Reykjavík um
efnahagsmál, sem haldin var á
Höliday Inn á sunnudag:
Ályktun
Efnahagsráðstefnu fulltrúaráðs
alþýðuflokksféíaganna í Reykjavík
24. apríl 1988:
Landið, þjóðin, lífskjörin
Fulltrúaráð alþýðuflokksfélag-
anna í Reykjavík
★ Varar við áróðri um gengis-
fellingu sem allsheijarlausn á
aðsteðjandi vanda í efnahags-
málum og bendir á að gengis-
lækkun ein sér er ávísun á
verðbólgu, kaupmáttarskerð-
ingu og þyngri greiðslubyrði
af lánum.
★ Minnir á, að nýlega gerðir
kjarasamningar verkalýðsfé-
laganna vom undirritaðir í
trausti þess að við verðhjöðn-
unarstefnu yrði staðið af ríkis-
stjóminni.
★ Varar við hugmyndum um
höft í utanríkisviðskiptum,
ábendingar framsóknarmanna í
þessum efnum borið takmarkaðan
árangur. Virðist talað fyrir dauf-
um eyrum þeirra, sem peninga-
málum stjóma.
Mjög erfið staða undirstöðuat-
vinnuveganna og þensla á höfuð-
borgarsvæðinu leiðir til byggða-
röskunar, sem mun verða til tjóns
fyrir þjóðina alla.
Á árinu 1986 náðist jöfnuður í
erlendum viðskiptum. Á árinu
1987 varð viðskiptahalli 7 milljarð-
ar króna. I ár stefnir í 10 til 12
milljarða viðskiptahalla.
Við slíkt ástand verður ekki
búið. Það mun leiða til hmns hins
íslenska efnahagslífs.
Framsóknarflokkurinn telur að
ráðast eigi í róttækar aðgerðir,
sem duga til þess að skapa fram-
leiðsluatvinnuvegunum rekstrar-
gmndvöll, draga vemlega úr við-
skiptahalla, stöðva byggðaröskun
og draga úr verðbólgu, en standa
vörð um kjör þeirra sem lægstu
launin hafa.
Miðstjórn Framsóknarflokksins
felur ráðhermm flokksins og þing-
flokki að hefja nú þegar viðræður
við samstarfsflokkana um leiðir,
sem ná þeim markmiðum, sem um
var samið við myndun ríkisstjórn-
arinnar.
Miðstjóm bendir á eftirgreind
atriði:
1. Í því skyni að draga úr þenslu
sem er ein höfuðorsök van-
dans í efnahagsmálum verði:
1.1 Aflað heimildatil að leggja
tímabundið gjald á öll ný
mannvirki önnur en íbúða-
byggingar og dregið úr er-
hvort sem þeim er beint gegn
innflutningi eða útflutningi og
minnir á þörfina fyrir aukið
útflutningsfrelsi og raunhæfa
löggjöf gegn hringamyndun í
viðskiptalífínu.
★ Leggur ríka áherslu á að fmm-
vörp um:
a) kaupleiguíbúðir
b) virðisaukaskatt
c) banka og sparisjóði
d) bifreiðaeftirlit
verði samþykkt sem lög frá
Alþingi fyrir þinglok í vor.
★ Telur að hraða verði endur-
skoðun banka og sjóðakerfis
til að minnka kostnað af
banka- og fjármálastarfsemi
og draga úr þeim mun sem er
á milli innláns- og útlánsvaxta.
★ Leggur ríka áherslu á, að
fmmvarp um fullkominn að-
skilnað dómsvalds og fram-
kvæmdavalds verði samþykkt
sem lög á þessu ári.
★ Telur nauðsynlegt, að fram-
hald verði á samanburðarat-
hugunum á verði, vöm og þjón-
ustu og rækilegri kynningu á
niðurstöðum til þess að bæta
lendum lántökum til fjárfest-
inga.
1.2 Dregið úr niðurgreiðslu vaxta
af húsnæðislánum, en hús-
byggjendum veitt aðstoð
gegnum skattakerfið.
2. 011 stjóm peningamála verði
tekin til endurskoðunar.
Jafnframtverði:
2.1 lög sett án tafar sem tryggi
að fjármagnsmarkaðurinn
allur lúti samræmdri stjórn
og reglum.
2.2 lánskjaravísitala á nýjum
fjárskuldbindingum verði af-
numin en stuðlað að hófleg-
um raunvöxtum með hliðsjón
af þeirri stefnu í gengismál-
um sem á er byggt.
2.3 vaxtamunur og hámarks-
vextir fyrst um sinn ákveðnir
af Seðlabanka íslands.
3. Hvers konar vísitöluviðmiðun
og sjálfvirk tengsl við verðlag
eða gengi verði afnumin sem
fyrst.
4. Sköttum fyrirtækja verði að
verulegu leyti breytt úr veltu-
■ tengdum sköttum í tekju-
tengda skatta. Tekjuskattur
verði lagður á fjármögnunar-
fyrirtæki, m.a. veðdeildir og
lánasjóði.
5. Raforkuverð verði lækkað
með lengingu erlendra lána
Landsvirkjunar til samræmis
við afskriftatíma mannvirkja
og með yfirtöku ríkissjóðs á
lánum Rafmagnsveitna ríkis-
ins og Orkubús Vestfjarða
eins og lofað var þegar jöfn-
unargjald raforku var fellt
niður. Sjálfvirk viðmiðun ra-
markaðsstöðu heimilanna og
drýgja kjör þeirra.
★ Leggur ríka áherslu á að áfram
verði ötullega unnið að umbót-
um í skattkerfinu og uppræt-
ingu skattsvika.
★ Fagnar skipan nefndar til þess
að endurskoða fyrirkomulag
verðtryggingar fjárskuldbind-
inga og lánskjaravísitölu.
★ Leggur áherslu á, að hafist
verði handa um endurskoðun
ríkjandi landbúnaðarstefnu og
án tafar verði hafin fram-
kvæmd á einföldun milliliða-
og sjóðakerfis landbúnaðarins,
endurskoðun skipulags á
vinnslustöðvum landbúnaðar-
ins og verðmyndunarkerfi bú-
vöru.
★ Leggur áherslu á, að hlut
landsbyggðarinnar ber að efla
með framkvæmd á tillögum
um verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, auknum hlut
byggðarlaga landsbyggðarinn-
ar í Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga, með bættri fjármagns-
þjónustu á landsbyggðinni,
með byggingu kaupleiguíbúða.
forkuverðs frá Landsvirkjun
við gengi og verðlag verði
óheimil. Unnið verði mark-
visst að jöfnun orkuverðs í
landinu.
6. Til að ná markmiði ríkis-
stjómarinnar í byggðamálum
er mikilvægast að skapa at-
vinnulífi á landsbyggðinni
traustan rekstrargrundvöll.
Jafnframt verði:
6.1 Byggðastofnun stórefld og
gera kleift að skuldbreyta
skuldum fyrirtækja á lands-
byggðinni til samræmis við
afskriftatíma eigna.
6.2 Hraðað úttekt og tillögum
Byggðastofnunar um aðgerð-
ir til að stöðva þá byggðar-
öskun sem við blasir. Þær til-
lögur sem samþykktar verða,
verði framkæmdar án tafar.
6.3 Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
í auknum mæli nýttur til að
jafna aðstöðumun.
6.4 Aðstöðumunurjafnaðurm.a,
með verðlagningu á opinberri
þjónustu.
Ofangreindum ábendingum eru
ekki ætlað að vera tæmandi.
Framsóknarflokkurinn er
reiðubúinn til þess að ræða allar
leiðir til að skapa framleiðsluat-
vinnuvegunum rekstrargrund-
völl og draga úr viðskiptahalla
og byggðaröskun. Hins vegar
er það ófrávíkjanleg krafa mið-
stjórnarinnar að slíkt verði
gert.
Ef ekki tekst með markvissum
aðgerðum að ná þeim árangri, sem
er að stefnt, verður óhjákvæmilegt
að aðlaga gengi íslensku krónunn-
ar þeim aðstæðum, sem ríkja í
íslensku efnahagslífi. Það eitt mun
hins vegar leiða til vaxandi verð-
bólgu og aukins efnahagsvanda,
ef ekki fylgja margþættar nauð-
synlegar aðgerðir, sem, m.a.,
vemda kjör þeirra, sem lægst hafa
launin.
Ríkisstjórnin hefur mikinn
meirihluta á Alþingi og á að vera
fær um að rétta á ný við efna-
hagslíf þjóðarinnar. Áð því vill
Framsóknarflokkurinn vinna
heilshugar.
Fundurinn felur framkvæmda-
stjóm Framsóknarflokksins að
fylgjast með framvindu þessara
mála og boða miðstjórnina til
fundar að nýju svo fljótt sem
ástæða þykir til.
★ ítrekar stefnumörkun ríkis-
stjómarinnar í jafnréttis- og
íjölskyldumálum og bendir á,
að endurskipulagning og raun-
hæfar umbætur í húsnæðis-
kerfinu em undirstöður far-
sællar fjölskyldustefnu.
★ Lýsir yfir eindregnum stuðn-
ingi við þá stefnu ríkisstjómar-
innar að efla fjárhag ríkissjóðs
sem undirstöðu velferðarríkis
á íslandi með endurbættu
skattkerfí, hertu skatteftirliti
og endurskipulagningu ríkisút-
gjalda með sparnað og ráð-
deild fyrir augum.
★ Leggur ríka áherslu á það, að
jafna verður aðstöðu þjóðfé-
lagsþegnanna m.a með sam-
ræmdu lífeyriskerfi fyrir alla
landsmenn. Á íslandi má aldr-
ei skapast það ástand að segja
megi að íbúarnir skiptist í tvær
þjóðir — aðra sem býr við auð-
sæld og hina sem býr við kröpp
kjör. Hér skal búa ein þjóð í
einu landi um ókomna tíð og
þáð hlýtur ríkisstjórn með
þátttöku Alþýðuflokksins að
hafa að leiðarljósi.
Fulltrúaráð alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík:
Gengislækkun er ávísun á verð-
bólgu og kaupmáttarskerðingu