Morgunblaðið - 26.04.1988, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
43
„Mannrétt-
indi strax“
Þessi tvö orð, sem mig langar
til að minna hér á „við gluggann"
í dag, eru yfirskrift þess starfs,
sem hin frábæru friðarsamtök
Amnesty Intemational nefna her-
ferð sína á þessu ári — 1988.
En vegna þess hve oft ég er
spurður um hvað þessi orð þýði,
sem nú mega heita á margra vör-
um, er rétt að minna á það hér
enn einu sinni.
Amnesty þýðir miskunn eða
miskunnsemi og international
þýðir alþjóðlegur. Sem sagt, hér
er um starfsemi að ræða, sem er
ein æðsta og fegursta grein hins
sanna kristinsdóms í verki. Hlið-
stæð hugsjón Rauða krossins, sem
allir kannast við — nú orðið.
Alþjóðleg miskunnsemi
mætti gjarnan teljast ein göfug-
asta hugsjón mannkynsins um
leið og hún er upphaf og farvegur
hinnar miklu mannréttindayfírlýs-
ingar Sameinuðu þjóðanna, sem
gjörð var og samþykkt á á alls-
heijarþingi þeirra í París í Frakk-
landi 10. desember 1948. Sem
sagt, þegar loks fór að ljóma af
árroða friðar og einingar eftir
síðustu heimsstyijöld, sem telja
má hina myrkustu vetramótt ver-
aldarsögunnar.
En því er einmitt ástæða til að
allir hafí þetta í huga og allir
stefni nú að hátíðlegri og áhrifa-
mikilli afmælishátíð þessarar
björtu dagstjömu jarðarbama,
sem boðar frið, bræðralag og
mannréttindi, en um það biðjum
við daglega í orðunum fögm:
komi ríki þitt og ræðum þar við
Guð — kærleikshugsjón kristin-
dómsins.
Mannréttindayfírlýsingin, sem
hér er minnzt á, er samin í skugg-
um þeirra ólýsanlegu hörmunga,
sem áttu hámark sitt í milljóna
morðum, þar sem útrýma skyldi
sjálfri þjóð stofnenda kristindóms-
ins, meistara friðar og kærleika
Jesú frá Nazaret, sem minnzt er
hér á íslandi með sálmalestri
síðari hluta hvers vetrar. Og nú
síðast með næturlöngum flutningi
þess listaverks íslenzku þjóðarinn-
ar í Hallgrímskirkju heila nótt.
Þetta ætti að vera sönnun þess,
að hér sé vakað og beðið í landi
friðar frelsis og mannréttinda.
En þótt það sé sannarlega fag-
urt tákn um að þjóðin litla á sker-
inu úti við heimskaut sé á réttri
leið, þá eru lifandi störf og hug-
sjónir Amnesty, sjálfrar misk-
unnar Guðs öllu mannkyni til
handa bæði í nútíð og framtíð,
ekki minna virði fyrir „gróandi
þjóðlíf á guðsríkisbraut", sem er
aeðsta takmark hvers íslendings.
Því er sjálfsagt á þessu afmælis-
ári mannréttinda í veröldinni að
helga þessu verkefni hvem dag
eftir föngum og muna vel áminn-
ingu eins af góðskáldum okkar:
„Hvað sem þú vinnur í verki eða
íeik, þá verðu þér öllum til.“ Þar
má enginn skerast úr leik, heldur
æfa saman krafta huga, hjarta
og handar hvem dag einmitt við
hversdagsstörfín, sem öll geta
orðið guðsþjónusta undir góðri
stjóm, sé ekki eingöngu miðað
við augnablikslaun og stundar-
hagnað heldur unnið af alúð og
fómarlund. En til þess þarf bæði
frelsi og mannréttindi án allra
vopna og hertækni. Þar verður
fyrst og fremst að miða við það,
sem minnst er á í mannréttinda-
yfírlýsingu þessa afmælis, sem
hér skal í huga höfð og hefst á
þessa leið:
„Það ber að viðurkenna, að hver
maður sé jafnborinn til virðing-
ar og réttinda, er eigi verða af
honum tekin. Og er þetta undir-
staða — eða grannur — frelsis,
réttlætis og friðar í heiminum."
En þama birtist vandi hins
sanna hugarfars afmælisársins:
Enginn munur á réttindum karls
og konu né hins svarta og hvíta
manns. Enginn munur á háum
og lágum, tignum og smáum,
heiðnum og kristnum. Þar skal
fyrst og fremst gilda að vera
maður, sem kann að elska og
þjást. Og allt skal unnið undir
merki manngöfginnar, sem er
hinn æðsti auður hverrar ein-
stakrar persónu, hverrar einstakr-
ar þjóðar, og framkvæmd skal
undir hinni miklu fyrirskipun frá
eigin hjarta: „Allt, sem þú óskar,
að aðrir menn gjöri þér, skalt þú
sjálfur þeim gjöra."
Með þessari starfsaðferð í smáu
og stóra hvetur þessi einfalda
regla, sem alltaf er til fram-
kvæmda á hinn viturlegasta hátt,
ef vel er að gætt, og verður þann-
ig yfírlýsingin, sem mótar allt
mannlegt samfélag bæði karla og
kvenna til að efla og útbreiða virð-
ingu fyrir mannréttindum í þess
orðs dýpstu merkingu og verður
um leið æðsta boðorð mannlegrar
heilla.
Þannig verður hugsjón Am-
nesty, þessara framandi samtaka
með fomgrisku nafni, einn æðsti
gimsteinn menningar í lófa mann-
kynsins, sem enginn má gleyma
að láta lýsa í öllum litum regn-
bogans við árblik nýrrar aldar,
nýrra tíma bræðralags og mann-
réttinda. Og hér er sannarlega
búið að bíða nógu lengi. Þess
vegna skal ekki lengur sofið und-
ir yfírskriftinni, sem segir að hér
skuli kunna hin þöglu svik að
þegja við öllu röngu.
Sagt er, að nú gangi samtök
lögfræðinga, lækna, trúarleið-
toga, rithöfunda og fleiri til liðs
við Amnesty Intemational í 150
löndum og beijast fyrir því að
mannréttindi verði virt strax.
Það er mikill fagnaðarboðskapur.
En að síðustu vil ég ekki gleyma
að minna á afrek hér í næsta húsi
í fyrra — 1987 — í Menntaskólan-
um við Sund þar sem böm og
kennarar unnu saman að hátíð-
legri kynningu á þessari friðar-
hugsjón nær heila viku. Og gaf
út á sínum vegum fræðslurit um
Amnesty. Þess mætti vænta, ef
ekki verða verkföll og vandræði
í skólum okkar fögra borgar í
haust, að þá gerðu margir skólar
eitthvað svipað. Kennum bömun-
um að beijast án vopna undir
merkjum sannra mannréttinda.
Göngum öll fram í fylkingu friðar-
ins fyrir „mannréttindum strax".
Reykjavík, 7. april 1988
,Í8Öthfi6i:j| 6s fi'hid .fjbndlijRisIfiufii oíiiiipjfvd öem
ARISTON
Þvottavél kr. 33.805,-
með söluskatti
Hverfisgötu 37, simar 21490 og
21846.
Vikurbraut 13, Keflavík, sími 12121,
l.<‘]if[^lUBIX
UÓSRITUNARVÉLAR
iúlluh m mmm
mmmm i mim
Réttir á matseðli vikunnar eru m&:
Rjómalöguð spergilkálssúpa
Pastaréttir...........frákr. 500,-
Salatskál með kotasælu....kr. 560,-
Eggjakaka með osti........kr. 480,-
Rjómasoðin ýsuflök með
kavíar, rækjum og blaðlauk.. kr. 650,-
Blandaðir sjávarréttir með
humar, hörpuskel, rækjum
og karrýsósu..............kr. 690,-
Steiktar lambasneiðar með
ananas, papriku og fersku
grænmeti..................kr. 840,-
Nautahryggsneiðar með
bacon, sveppum og
fersku grænmeti..........kr. 1050,-
Súpa og kaffi fylgja rétti dagsins
Takið fjölskylduna með!
mmmBm
£ M'fVw
j/y JJy
RAUÐARÁRSTlG 18 - SlMI 6233S0
FAGMENNSKA í FYRIRRÚMI
Fjöldi reyndra og faglærðra verktaka á skrá.
Láttu fagmanninn vinna verkið - það borgar sig!
Skrifstofan eropin frá kl. 09:00 til kl. 17-00 virka daga.
sJtStt U t-fc9d liJ nuióiifiiL'Ci í , i i;;ciiOó vfci t •>ríJi i ;löfl i > ióis ;ri ld;ii> 11 Hi iyií
121 - Úlfar Om| Almenna aLQlýslngast7SÍA