Morgunblaðið - 26.04.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988
51
miðlar vita líklega að böm og ungl-
ingar eru ekki bara poppóðir kján-
ar, heldur harðhugsandi fólk og
margir þeirra á kafí í tónlistar-
námi, sér til yndis og ánægju.
Tónlistarskólarnir hluti
f ræðslukerf isins
Að lokum ályktun til að minna á
að það skall hurð nærri hælum,
þegar uppi voru hugmyndir og
áætlanir um að rekstur tónlistar-
skólanna yrði tekinn af ríkinu og
þeir færðir á framfæri sveitarfélag-
anna. Ályktunin er um að áfram-
haldandi aðild ríkisins að rekstri
tónlistarskólanna verði tryggð, eins
og nú er, varað við hugmyndum
um breytingar á rekstrarformi tón-
listarskólanna, eins og þeim, sem
komu fram á síðastliðnu ári í tengsl-
um við áform um breytt verka-
skipti ríkis og sveitarfélaga. Tón-
listarmenn líta svo á að tónlistar-
skólamir séu hluti af fræðslukerf-
inu og eðlilegt að tónlistarkennarar
þiggi laun sín af ríkinu, rétt eins
og aðrir kennarar.
Eins og sjá má í þessari stuttu
rakningu af þingi Félags tónlistar-
skólakennara bar margt forvitnilegt
á góma þingheims, forvitnilegt
þeim, sem á stundum hugleiða tón-
listarmál hér og þeir em ekki svo
fáir, ef glöggt er að gáð.
Ályktanir ráðstefnu
Félags tónlistarkennara
1. Nú þegar verði að nýju ráðinn námsstjóri tónlistarskóla í fullt
starf til að sinna þeim fjölmörgu verkefnum á sviði tónlistar-
fræðslu sem nú bíða úrlausnar.
2. Gerð verði tilraun með samstarf nokkurra tónlistarskóla og
gnmnskóla á Reykjavíkursvæðinu, til að reyna breytt fyrirkomulag
tónlistarfræðslu, í þeim tilgangi að fleiri nemendur fái tækifæri til
tónlistamáms. Tilraunin miðist einkum við nemendur á forskóla-
aldri og í fyrstu bekkjum gmnnskóla og nái til almennrar tónlistar-
kennslu og hópkennslu á hljóðfæri.
3. Lokið verði hið fyrsta við námsskrárgerð í öllum hljóðfæra-
greinum og í tónfræðagreinum. Jafnframt verði hafin endurskoðun
dg endurútgáfa á þeim námsskrám, sem þegar hafa verið gefnar út.
4. Vemlegt átak verði gert á sviði grunnmenntunar, endurmennt-
unar og framhaldsmennunar fyrir tónlistarkennara, einkum í tengsl-
um við væntanlegan Tónlistarháskóla íslands.
5. Aukið verði tónleikahald starfandi listamanna í tónlistarskólum
og unnið að því að nemendur tónlistarskóla taki meiri þátt í al-
mennu tónleikahaldi, ekki eingöngu sem flytjendur, heldur einnig
sem hlustendur.
6. Tryggð verði áframhaldandi aðild ríkisins að rekstri tónlistar-
skólanna, eins og nú et. Tónlistarskólar em hluti fræðslukerfísins
og eiga því að starfa undir yfíramsjón menntamálaráðuneytisins.
Varað er alvarlega við hugmyndum um breytingar á rekstrarformi
tónlistarskólanna eins og þeim, sem komu fram á síðastliðnu ári
í tengslum við áform um breytt verkaskipti ríkis og sveitarfélaga.
Umferðarkönmin Neytendasamtakanna:
Meirihlutinn andvígur
því að Austurstræti
verði opnað bílaumferð
Áfram verði leyfð bílaumferð niður Laugaveg
Yfirgnæfandi meirihluti íbúa
á höfuðborgarsvæðinu er mót-
fallinn því að Austurstræti verði
opnað fyrir bílaumferð en aðeins
vilja rúm 40% að Laugavegur
verði lokaður fyrir bilaumferð
neðan Snorrabrautar. Þá telja
aðeins rúm 20% rétt að leggja
hraðbraut um Fossvogsdalinn.
Þessar upplýsingar er að finna
í könnun sem Neytendasamtökin
stóðu fyrir í nóvember siðastliðn-
um og var birt í siðasta tölublaði
Neytendablaðsins.
Álls urðu 1005 manns fyrir svör-
um, 59% konur og 41% karlar.
72,2% aðspurðra vom búsettir í
Vortónleíkar
í Mosfellsbæ
Karlakórinn Stefnir í Mosfells-
bæ heldur sína árlegu vortón-
leika á næstunni. Einnig er fyrir-
huguð söngför kórsins um Áust-
urland.
Vortónleikamir verða haldnir
miðvikudaginn 27. apríl kl. 21 í
Hlégarði, föstudaginn 29. apríl kl.
21 í Fólkvangi á Kjalamesi og laug-
ardaginn 30. apríl kl. 17 í Hlégarði.
Ráðgert er að kórinn fari söngför
um Austurland og syngi á Neskaup-
stað föstudaginn 6. maí kl. 20:30
og á Egilsstöðum laugardaginn 7.
maí kl. 17.
56 söngmenn syngja í karlakóm-'
um Stefni. Stjómandi kórsins er
Láras Sveinsson og undirleikari er
Jónína Gísladóttir. Formaður
Stefnis er Bjöm Ó. Björgvinsson.
Reykjavík og Seltjamamesi, aðrir,
27%, í Kópavogi, Hafnarfirði,
Garðábæ og Mosfellsbæ.
Spurt var hvort ætti að loka
Laugaveginum neðan Snorrabraut-
ar fyrir bflaumferð og sögðu 41,3%
já en 46,7% nei og vom konur
hlynntari lokuninni en karlar.
Langflestir aðspurðra töldu að
ekki ætti að opna Áusturstræti fyr-
ir bflaumferð eða 84,1% en aðeins
vom um 21,1% fylgjandi því. Ein-
ungis 3,8% aðspurðra tóku ekki
afstöðu.
Mikill meirihluti, eða 78,4%, telja
að hraðahindranir fækki slysum en
mun færri vilja flölga þeim, eða
53,9%. Mun fleiri konur, eða 87,6%,
telja að hraðahindranir fækki slys-
um en 71% karla telja að svo sé.
Eykst munurinn lítillega milli kynja
er spurt er hvort fjölga eigi hraða-
hindmnum.
42,7% vilja að fleiri götum fyrir
gegnumumferð sé lokað en 36,1%
em andvígir. Þá telja um 70,3% að
mengun af völdum umferðar sé
skaðleg, um 75% kvenna og 65%
karla. 23,2% telja rétt að leggja
hraðbraut um Fossvogsdalinn en
57% em því andvígir.
Að síðustu var kannað hvort við-
mælendur ferðuðust með strætis-
vögnum og hvað þeim fyndist um
þá þjónustu sem þeir veita. 19,7%
svömðu ekki fyrri spumingunni en
45,3% segjast aldrei ferðast með
strætisvögnum og 35,8% stundum.
Aðeins 18,9% nota þá reglulega.
70,8% karla utan Reykjavíkur ferð-
ast aldrei með vögnunum en 26,5%
kvenna nota þá reglubundið. Þá
telja tæp 60% aðspurðra þjónustuna
góða en tæp 10% slæma.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir WILLIAM SCOBIE
Páfinn vill fara
til Sovétríkjanna
TALIÐ er nú fullvist að Jóhannes Páll páfi II muni síðar á þessu ári
- hugsanlega í júní - krjúpa til að kyssa sovézka grund í tilefni þess
að liðin eru 1000 ár frá kristnitöku i Rússlandi. Til skamms tima
var það tabð nálgast trúvillu þjá páfa að vilja fara i vináttuheim-
sókn til höfuðbyggðar óguðleika trúleysisins. En nú hefur breytt
stefna Mikhails Gorbatsjovs Sovétleiðtoga leitt til þess að heimsókn-
in þykir fyllilega viðeigandi, og ekkert skortir á að úr henni geti
orðið annað en að þessir tveir menn eigi fund um málið i Vatíkaninu.
UUr þeim fundi gæti orðið fljót-
lega nú eftir myndun nýrrar
ríkisstjómar á Ítalíu þegar Gor-
batsjov gefst loks tækifæri til að
fara í opinbera heimsókn til Róm-
ar, sem lengi hefur staðið til. Ljóst
er að báðir leiðtogamir taka vem-
lega áhættu með heimsókninni, og
að hún veldur samstarfsmönnum
Gorbatsjovs ekki síður áhyggjum
en ýmsum nánum ráðgjöfum páfa.
Hver verða viðbrögðin hjá millj-
ónum undirokaðra kristinna manna
í_ Sovétríkjunum við komu páfa?
Árið 1945 fyrirskipaði Stalín út-
fymingu kaþólsku kirkjunnar f
Ukraínu. Fimm milljónum fylgj-
enda hennar vom gefnir þrír kost-
ir lýsið yfír trúleysi, gangið f söfn-
uð keppinautanna, ríkisreknu rétt-
trúnaðar-kirlqunnar, eða horfízt f
augu við vist f Gúlaginu.
Yfírmaður kirkjunnar, Slipyi
erkibiskup af Lvov, var fangelsað-
ur, pyndaður og sveltur. Það var
ekki fyrr en árið 1963, þegar
Khrústsjov vildi koma á sínum eig-
in „glasnost"-tengslum við Jóhann-
es páfa XXIII að erkibiskupinn var
sendur í útlegð til Rómar þar sem
hann andaðist 1984. Arftaki hans
í Róm, Luvatsjivskíj kardináli, full-
trúi „óopinbem" kaþólsku kirkj-
unnar, er eindregið á móti þvi að
páfi heimsæki Sovétríkin f ár.
Betra að bíða
innar", sek um að arðræna fátæk-
ar þjóðir Þriðja heimsins. Þar er
enginn greinarmunur gerður á
skoðanafrelsinu í vestri og áfram-
haldandi kúgun um 100 milljóna
kristinna í Sovétríkjunum.
Páfi og „perestrojka“
Gagnrýnendur páfa halda því
reyndar fram að til að koma sér
í mjúkinn hjá yfírvöldum í Moskvu
bergmáli hann setningar úr nýút-
kominni bók Gorbatsjovs, „Per-
tryggði honum frægðarsess í sögu
Rússa.
Örlagadagurinn 13. maí
Auk þess sem páfí fínnur hjá
sér þörf fyrir að bæta ástandið í
austri, liggja aðrar og duldari
ástæður að baki áhuga hans á
skjótri. lausn. Hann helgaði yfí-
standandi ár minningu Maríu
meyjar um allan heim, og hami
er mjög handgenginn boðskap
hennar. Oftar en einu sinni hefur
hann vitnað til þess þegar Maria
mey birtist í Fatima, þorpinu
helga f Portúgal, þar sem hún
varaði við því - á ári rússnesku
byltingarinnar - að ef nýju ráða-
mennimir í Sovétríkjunum gengju
kristninni ekki á hönd hlytj heim-
urinn að farast. Þetta gerðist 13.
Þessi mynd er tekin í Vatikaninu i júnimánuði í fyrra, er Jóhann-
es Páll páfi n tók á móti hópi stúlkna frá Litháen í tilefni af því,
að 600 ár voru þá liðin frá kristnitöku í landi þeirra.
„Vissulega yrði þjóð okkar yfir
sig ánægð," sagði hann. „En yrði
það til bóta - eða mundu yfirvöld
notfæra sér heimsóknina í eigin
tilgangi? Mun betra er að bfða þar
til kristnum mönnum allsstaðar í
Sovétríkjunum hefur verið tryggt
trúfrelsi." En Jóhannes Páll - sem
átt hefur f útistöðum við kommún-
ista allt frá því hann var vígður
til prests í Póllandi árið 1946 -
er alls ekki á því að bíða, og
Rússar virðast hafa komið til
móts við óskir hans, því að patrí-
arki rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unnar bauð sendinefnd frá Róm
að koma og vera viðstödd hátf-
ðahöld í Moskvu og Kíev f fyrra
mánuði í tilefni þúsund ára af-
mælisins.
Boðið barst um svipað leyti og
páfí birti áskoran um „nýjar að-
gerðir er miði að fullri samein-
ingu“ við rússnesku rétttrúnað-
ar-kirkjuna og gætu læknað sár
liðinna tíma. „Eg ber hlýhug til
Rússa,“ sagði hann við Lu-
vatsjivkíj kardfnála. „Dettur þér
í hug að ég geti nokkumtíma
snúið baki við austrænum bræð-
mm okkar?" Það má að sjálfsögðu
líta tvennum augum skoðanir
þessa berorða en jafnframt dula
páfa. Hann sendi nýlega frá sér
20.000 orða handskrifað umburð-
arbréf, sem augljóslega var ætlað
að greiða honum leiðina til
Moskvu. Það vakti ánægju í
Kreml en reiði í Hvíta húsinu.
Undir fyrirsögninni „Þjóðfé-
lagsleg verkefni kirkjunnar" er
600 milljónum kaþólikka í heimin-
um sagt að ríkjasambönd austurs
og vesturs séu bæði „hús syndar-
estrojka". Til dæmis segir Gor-
batsjov á einum stað: „Fái ekki
allir notið öryggis, er það ekkert
öryggi." Og páfí staðhæfir: „Frið-
ur er órofa heild. Annaðhvort er
hann fyrir alla, eða hann er ekki
fyrir neinn." Hvorki í áskomn
páfa um sameiningu kirkjunnar í
Sovétríkjunum né í umburðarbréf-
inu umdeilda minnist Jóhannes
Páll II einu orði á grimmilega
kúgun kristninnar á 70 ára vald-
atíma kommúnismans.
Leiðtogar úkraínskra og baltn-
eskra kaþólikka í Róm andmæla
harðlega mati páfa á þessu við-
kvæma máli. „Við getum ekki
horft framhjá áframhaldandi
píslarvætti kirkjunnar í Sovétríkj-
unurn," segir einn aðstoðarmanna
Luvatsjivskíjs kardínála, sem setið
hefur í mörg ár í ýmsum fangels-
um og vinnubúðum. „Tugir þús-
unda kirkna em enn lokaðar, ák-
aft er unnið gegn skím, og það
er saknæmt afbrot að kenna trú-
fræði. Biblíum verður að smygla
inn til landsins, og því fylgir mik-
il áhætta. Sá sem uppvís verður
að því að vera kristinn, hvað þá
kaþólskur, er samstundis látinn
gjalda þess.“
' í áskomnarbréfí sínu fer Jó-
hannes Páll páfi þó mörgum lofs-
orðum um Vladimir mikla prins,
sem seint á tíundu öld stofnaði
fyrsta slavneska stórveldið í Aust-
ur Evrópu. Þegar hann tók kristna
trú bauð hann yfírbiskupnum í
Konstantínópel (síðar Istanbul) að
koma og stofna biskupsdæmi (
landinu. Þar með hófst þar gull-
öld býsanskrar menningar sem
maí 1917. 13. maí 1981 særði
tyrkneskur launmorðingi páfa
skotsári á PéturstoYginu, og sama
dag réttu ári síðar tókst að koma
í veg fyrir aðra tilraun til að ráða
hann af dögum. í maí í fyrra -
enn einu sinni á 13. degi mánaðar-
ins - birtist María mey svo við
kapellu, sem ekki er lengur not-
uð, við Gmshev í Úkraínu, vöggu
kristninnar í Rússlandi, þar sem
áætlað er að fjórar milljónir íbú-
anna tilheyri ólöglegum söfnuði
kirkjunnar.
Að sögn Pravda heimsækja
80.000 pflagrímar staðinn dag-
lega þrátt fyrir aðvaranir yfir-
valda og háðsglósur. Getur Jó-
hannes Páll II, sem verður 68 ára
18. maí, virt þessa köllun sína að
vettugi? Og hvað gerist ef hann
fer?
Gorbatsjov er það mjög í mun
að auka vinsældir sínar á Vestur-
löndum og áhrif sln í heimshlutum
eins og Mið- og Suður Ameríku
með því að koma á friði í einu
stofnuninni sem enn berst fyrir
sjálfstæði sínu. Síðustu hindran-
imar í veginum em að sögn gagn-
rýnendumir í Kreml, sem óttast
að upp úr ’sjóði ef páfí kemur til
Úkraínu - hvað svo sem gerist í
Lettlandi og Litháen, hinum höf-
uðvígjum kaþólskunnar, þar sem
söfnuðurinn telur þijár milljónir
manna, sem StaKn innlimaði (
Sovétríkin árið 1939. En Páfarík-
ið hefur aldrei viðurkennt þá innli-
mun.
Höfundur er blaðamaður þjá
brezka blaðinu The Qbaerver.