Morgunblaðið - 27.05.1988, Síða 48
48
félk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988
VERSLUNARSKÓLI ÍSLANDS
Færðu skólanum
málverk að gjöf
Nýlega færðu nokkrir gamlir
nemendur Verslunarskóla
íslands að gjöf málverk eftir Jó-
hannes Geir. Tilefnið var að nú í
vor eru 40 ár liðin frá því að þess-
ir nemendur útskrifuðust frá skó-
lanum, en sú hefð hefur skapast
að afmælisárgangar hittast í
tengslum við nemendamót Versl-
unarskólans á hveiju vori.
Nokkrir nemendur úr IV bekk Verslunarskóla íslands á peysufata-
deginum vorið 1948. Talið frá vinstri til hægri eru: Kristján Georgs-
son, Herdís Helgadóttir, Vera Ásgrímsdóttir, Jón Páll Halldórsson,
Guðmundur Guðmundsson, Bogi Melsteð, Vilborg Kristjánsdóttir,
Aðalsteinn Guðlaugsson, Svala Thorarensen, Ragnheiður G. Ásgeirs- ,
dóttir og Guðmundur H. Garðarsson.
Þorvarður Elíasson skólastjóri Verslunarskóla íslands sést hér veita
viðtöku málverkagjöf frá fyrrverandi nemendum skólans, sem í vor
eiga 40 ára útskriftarafmæli. Viðstaddur var hluti hópsins sem að
gjöfinni stóð.
Morjtunblaðið/Ól.K.M.
HOLLYWOOD
Burt Lancaster
í málaferlum
Bandaríski kvikmyndaleikarinn
burt Lancaster hefur krafið
Columbia kvikmyndaverið um
skaðabætur, þar sem hann telur að
sér hafí á ólögmætan hátt verið
vikið úr starfí þegar hann var látinn
víkja fyrir Gregory Peck sem leik-
ari í kvikmyndinni „Old Gringo".
Lancaster hefur nú höfðað mál fyr-
ir dómstól í Los Angeles, og heldur
hann því fram að kvikmyndaverið
hafí verið búið að ganga frá samn-
ingum við Gregory Peck áður en
hann sjálfur var látinn fjúka.
Burt Lancaster, sem nú er 74
ára og fékk á sínum tíma óskars-
verðlaun fyrir leik sinn í kvikmynd-
inni Elmer Gantiy,segir að honum
hafí aldrei verið tilkynnt um þá
fyrirætlun kvikmyndaversins að
reka hann á þeim forsendum að það
sæi sér ekki fært að kaupa trygg-
ingu fyrir hann. Heldur hann því
fram að samkvæmt munnlegum
samningi þá hafí átt að greiða hon-
um jafnvirði 60 milljóna króna fyrir
að leika í kvikmyndinni, og enn-
fremur hafí Columbia fyrirtækið
ætlað að tryggja hann með tilliti
til andláts eða örkumlunar á meðan
á kvikmyndatökunni stæði. Lan-
caster hefur verið veill fyrir hjarta,
en segist vera með læknisvottorð
upp á að hann sé nú í góðu líkams-
ástandi. Hann fer fram á fulla
Bandariski kvikmyndaleikarinn
Burt Lancaster illa svikinn í
Hollywood
greiðslu fyrir samningssvikin, en
Columbia hefur sent honum ávísun
sem hljóðar upp á tæpar tíu milljón-
ir króna fyrir að lesa handritið að
kvikmyndinni og fara á námskeið
í reiðmennsku, en hann hefur end-
ursent hana.
ELTON JOHN
Ætlar að selja
minjagripina
Poppsöngvarinn El-
ton John situr hér
innan um ýmsa minja-
gripi sem hann hefur
sankað að sér í gegnum
tíðina, en ætlar nú að
selja á uppboði hjá Sot-
heby’s í London. Söngv-
arinn sést hér sitja við
hliðina á fótabúnaði
miklum sem hann bar í
kvikmyndinni
„Tommy" , en skór
þessir eru á meðal
þeirra muna sem seldir
verða á uppboðinu, sem
fyrirhugað er að halda
í september.
Reutcr