Morgunblaðið - 15.06.1988, Síða 7

Morgunblaðið - 15.06.1988, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 7 Ársfundur Laxaverndunarstofnunar Norður Atlantshafsríkjanna: Erfðaskemmdir á villtum laxastofnum áhyggjuefni Svipmynd frá setningu fimmta ársfundar NASCO. FIMMTI ársfundur Laxaverndun- arstofnunar Norður Atlantshafsr- íkjanna, NASCO, er nú haldinn i Reykjavík. Meðal helstu mála sem fyrir fundinum liggja er ákvörðun á kvóta á laxveiðum í sjó við strendur Vestur Grænlands, sam- ræming á veiðitölum landanna sem fulltrúa eiga i stofnuninni og áhrif eldislax á villta laxastofna en erfðaskemmdir eða erfðam- engun sökum þessa er áhyggju- efni innan NASCO einkum með tillit til reynslu Norðmanna í þess- um efnum. Villtir laxastofnar hafa spillst á stórum svæðum í Noregi vegna blöndunar við eldislax sem sloppið hefur úr sjávarkvijum. Aðild að NASCO eiga öll Norðurl- öndin, Evrópubandalagið, Banda- ríkin, Kanada og Sovétríkin en NAS- CO var stofnað að tilstuðlan íslend- inga fyrir fimm árum og hefur Guð- mundur Eiríkssson verið forseti þess frá upphafi. Við setningu fundarins þökkuðu allir fulltrúar fyrrgreindra ríkja Guðmundi fyrir gott og gift- uríkt starf á undanfömum árum en hann lætur nú af störfum sem for- seti stofnunarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem ársfundur þessi er haldinn utan höfuðstöðva NASCO í Edinborg í Skotlandi en eins og kanadíski full- trúinn sagði í opnunarávarpi sínu þá er Reykjavík að verða miðstöð mikil- vægra funda og ráðstefna á alþjóð- legum vettvangi. Jón Helgason landbúnaðarráð- herra setti fundinn í gærmorgun og bauð fulltrúa velkomna til Islands. Hann sagði starfsemi NASCO mjög mikilvæga þar sem hún stuðlaði að samstarfí aðildarríkjanna á nýtingu þessarar verðmætu afurðar, Norð- ur-Atlantshafslaxsins. Vonaði Jón að fundurinn yrði afkastamikill og ár- angursríkur. Að loknu ávarpi landbúnaðarráð- herra fluttu allir fíilltrúar aðildarríkj- anna opnunarávörp sín og komu þeir víða við en mengunar- og umhverfis- mál voru ofarlega á baugi. Pulltrúi dana sló á léttari strengi, brá á loft mynd af Davíð Oddsyni borgarstjóra með feng fyrsta dagsins úr Elliðaán- um og sagði að þessi ágæta veiði borgarstjórans benti til að sumarið hér á landi yrði gott laxveiðisumar. Helgi Agústsson sendiherra hjá utanríkisráðuneytinu flutti opnun- arávarpið fyrir hönd íslendinga og sagði hann m.a. að laxeldi hér á landi væri nú á krossgötum sökum þess hve það hefði aukist gífurlega á und- anförnum árum. Sem dæmi um um- fang þess nefndi hann að í ár yrðu framleidd 12 milljón seiði og að allar líkur væru á að eldisfiskur yrði nú meiri að magni en sá villti. Kvótínn við Vestur Grænland A blaðamannafundi sem haldinn var að lokinni setningu fundarins kom fram að helstu mál fundarins yrðu að ákveða kvóta á laxveiði úr sjó við strendur Vestur Grænlands en það svæði og lögsagan við Færeyj- ar eru einu svæðin á Norður Atlants- hafi þar sem leyfð er laxveiði úr sjó. Búið er að ákveða kvóta færeyjinga. Einnig verður stefnt að því að sam- ræma veiðitölur landanna sem aðild eiga að stofnuninni, samræma á og þróa betur lög og reglugerðir land- anna um mengun og umhverfismál og rætt verður um áhrif eldislax á villta laxastofna. Hvað varðar áhrif eldislax á villta stofna ,og þær erfðaskemmdir sem af hljótast kom fram á fundinum að allt að 15% eldislaxa í sjávarkvíjum sleppa úr þeim, ganga í ár og spilla þeim stofni sem þar er fyrir. Norð- menn hafa orðið áþreifanlega fyrir barðinu á þessu og þar hafa villtir laxastofnar eyðilagst á stórum svæð- um. Til eru tölur um að flökkufiskar í ám í Noregi séu allt að 60% hvað hænga varðar. Nú er verið að vinna að reglugerð hérlendis sem draga á úr þessu vandamáli þar sem meðal annars verður reynt að takmarka þá fjarlægð sem sjávarkvíjar mega vera í frá ám og minnka þannig áhættuna en varaforseti NASCO Allen Peter- son frá Bandaríkjunum sagði í stuttu spjalli við Morgunblaðið að einnig mætti reyna að koma í veg fyrir þetta vandamál með því að nota að- eins lax í kvíjaeldið sem væri úr næstu á við það. Annað mál sem rætt verður á fundi stofnunarinnar eru bættar merkingar á laxi enda nauð’synlegt að vita sem best um ferðir laxsins um Norður Atlantshafið. Fundur NASCO mun standa næstu þijá daga eða fram að 17. júní. Verð án fylgihluta: Stgr. kr. 6.830 (Kr. 7.190.) ROK OG RIGNING - EKKERT MÁL MECO útigrillin em alveg einstök. Með því að loka grillinu myndast yfirhiti sem gefur matnum hið eina sanna grill-bragð. Þú sparar tíma og kol og nærð betri árangri í glóðarsteikingu með MECO útigrilli. Að lokinni steikingu er grillinu einfaldlega lokað og þú slekkur þannig á kolunum, sem hægt er síðan að nota við næstu glóðarsteikingu. |VIeð MECO-grillunum má fá ýmsa þægi- lega fylgihluti, svo sem teina, borð hita- skúffu og snúningsmótor. ÞÚNÆRÐ GÓÐUM ÁRANGRIMEÐ MECO-ÚTIGRILLL Heimilistæki hf SÆTÚNI8, REYKJAVÍK - SÍMI691515. HAFNARSTRÆTI 3, REYKJAVÍK - SÍMI 691525. KRINGLUNNI, REYKJAVÍK - SÍMI 691520.' Sumar- bústaða- eigendur í VÖRUHÚSIVESTUR- LANDS fáið þið allt sem þarf til að lagfæra og dytta að bústaðnum, auk matvöru, fatnaðar og til dægrastytting- ar: spil, bækur, blöð og videospólur. Komið við hjá okkur í sumar. VÖRUHÚS VESTUR- LANDS Birgðamiðstöð sumarbústaða- eigenda VöruhúsMiS Vesturlands Borgarnesi sími 93-71 200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.