Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 51 Á hvaða leið er íslenska þjóðin? eftir Árna Helgason Aldan er hnigin. Brimalda bjórs- ins með öllum sínum hrikalegu afleiðingum skellur í senn á æsku landsins, ef byggja má á reynsl- unni. Nú geta bruggarar og bjórinn- flytjendur dregið andann léttara, enda mikið búið að leggja að veði í þeirri baráttu. Gróðasjónarmiðin hafa sigrað og veikleiki hins mann- lega beðið hnekki. Menn hafa gert grein fyrir at- kvæði sínu á þingi og eitthvað verður að friða samviskuna. Guðmundur H. Garðarsson lýsti því yfir að hann væri á móti öllum boðum og bönnum, sem þýðir það að hann hugsar sér ekki lengri setu á Alþingi, og er það vel, því þá getur hann ásamt fleiri snúið sér að „forvarnarstarfi", þótt for- vamarstarf það sem talað er um í dag sé mjög þokukennt. En vel um það og er Guðmundur boðinn velkominn í hópinn sem vill algáða þjóð. Ekki veitir af því ekki eru þeir of margir nú. Fólk talar um frelsi í dag og er hinn venjulegi maður hættur að skilja hvað frelsi er í raun og veru? Það er talað um gróandi þjóðlíf, en hvar er það og hver vill beita sér fyrir því? En bjórinn flæðir yfir með öllu sínu frelsi og afsökunum eins og með aðra vímu. Já, menn afsaka svo margft að of langt er upp að telja. En sorglegast fannst mér og mörgum fleiri að sjá hversu marg- ar kvenmannshendur voru á lofti á Alþingi til að veita öldunni yfir landið. Einhvemtímann hefði það þótt saga til næsta bæjar, þegar í æsku minni var alltaf horft til kvenþjóðarinnar þegar heilbrigt mannlíf var í hættu. Hið kvenlega var ímynd alls hins besta, enda man ég ekki til þess að kvenfólkið stundaði grugguga forarpolla mannlífsins. Kannski eru það frel- sið og mannréttindin sem breyta þessari fögru ímynd og er það kvíðvænlegt. En ég á bágt með að sjá þessa breytingu niður á við. Arni Helgason „Gaman verður að sjá þá sem mest hafa talað og tala um forvamir, vinna þessi verk að alúð og kærleika til náung- ans, eða má ekki vænta þess?“ En forvarnarstarfið er byijað, það er ekki nóg að byrgja brunninn þegar bamið er dottið ofan í. Og gaman verður að sjá þá sem mest hafa talað og tala um forvamir, vinna þessi verk af alúð og kær- leika til náungans, eða má ekki vænta þess? Þjóðin fylgist með. Vonandi verður forvarnarstarfi dagsins í dag snúið við. í dag er keppst við að fjölga vínútsölustöð- um og vínveitingahúsum. Má mað- ur vænta þess að farið verði eftir Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna og dregið úr allri sölu vímu, eða lagt allt kapp á að fjölga afvötnunarstöðvum? Þetta hlýtur allt að koma í ljós. En nú má enginn þjóðhollur maður skerast úr leik. KongofíOQS Framúrskarandi og frábærir! Útsölustaðin Otilíf, Glæsibæ Steinar Waage, Kringlunni Sportbær, Hraunbæ 102 Kaupstaður, Mjódd Skóverslun Kópavogs Boltamaðurinn, Laugavegi 27 Sporthúsið, Akureyri Sportbúð Óskars, Keflavík Sporthlaðan, ísafirði Hverasport, Hveragerði Axel Ó., Vestmannaeyjum Óskaland, Blönduósi Bókaverslun Þórarins, Húsavík Skótískan, Akureyri Krummafótur, Egilsstöðum Skókompan, Ólafsvik Hagsmuna- samtök sam- vinnuversl- ana stofnuð U ndirbúningsstof nfundur Samtaka samvinnuverslana fór fram á Bifröst þann 8. júní síðast- liðinn og er gert ráð fyrir að formlegur stofnfundur verði haldinn í haust. Sigurður Kristj- ánsson, kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Arnesinga, sem kos- inn var formaður undirbúnings- stjórnar, sagði i samtali við Morgunblaðið að eitt brýnasta verkefni samtakanna væri aukin samræming á innkaupum og vöruflutningi kaupfélaganna. Sigurður sagði að starf samtak- anna væri í mótun, en ljóst væri að heildsöludreifingin hefði ekki gengið nógu vel og athuga þyrfti hvort kaupfélögin gætu beint við- skiptum sínum meira til Verslunar- deildar Sambandsins, sem væri þeirra heildsala. í undirbúningsstjórn samtakanna voru kosnir, auk Sigurðar Kristj- ánssonar, þeir Bjöm Baldursson, Akureyri, Jörundur Ragnarsson, Vopnafirði, Örn Ingólfsson, Reykjavík, og Snævar Guðmunds- son, Reykjavík. Ólafur Friðriksson, framkvæmdastjóri Verslunardeild- ar, mun starfa með stjóminni og sitja fundi hennar. ! Heild$ö!udreifing 3 - 91 /689737 Rocky - Ólafsvík Sportbúö Öskars - Keflavík Sportbœr - Selfossi Kaupf. V/ Húnv. - Hvammstanga Versl. fél. Austurlands - Egilsst. Sport - Laugavegi R. Kaupf. Þingeyinga - Húsavík Bragasport - Suöurlandsbraut R. Músík og sport - Hafnarfirði Amaró - Akureyri Sportbúö Kópavogs - Kópavogi Sportgallerí - Hafnarfirði Borgarsport - Borgarnesi Kaupf. Höfn - Hornafirði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.