Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JUNI 1988
Lómagnúpur. Innaf honum austanmegin eru Núpsstaðarskógar.
Mikíl ferðahelgi
hiá Útivist
Farfuglar íslensks jass
hreiðra um sig á Borginm
Morgunblaðið/Sverrir
Pétur Ostlund ásamt félögum á Hotel Borg á mánudagskvöld.
Þeir verða með aðra tónleika í kvöld.
HELGINA 16.-19. júní efnir ferða-
félagið Útivist til fjölbreytts úr-
vals ferða um landið, bæði á
þekkta og lítt þekkta ferðamanna-
staði.
Fimmtudaginn 16. júní kl. 18 verð-
ur lagt af stað í ferðir í Núpsstaðar-
skóga og Skaftafell. Núpsstaðar-
skógar eru innaf Lómagnúp, vestan
Skeiðarátjökuls og hafa ekki margir
sótt þann stað heim fram að þessu,
enda erfiðleikum bundið að komast
þangað nema á vel búnum fjallabíl-
um. Staðurinn gefur þó okkar þekkt-
ustu ferðamannastöðum ekkert eftir
hvað fegurð og fjölbreytni náttúru-
fars snertir. Dvalið verður í tjöldum
og farið í gönguferðir um nágrennið
m.a. að fossum í svonefndum Tvílita-
hyl og á Súlutinda.
Skaftafellsferðin er einnig tjald-
ferð og verður þar boðjð upp á mis-
munandi möguleika. I fyrsta lagi
göngu á Öræfajökul, hæsta fjall
landsins, 2.119 m.y.s. Gengin verður
auðveldasta leiðin á jökulinh, svoköll-
uð Sandfellsleið. Þeir sem ekki vilja
á jökulinn eiga kost á skemmtilegum
möguleikum, bæði gönguferðum í
Skaftafellsþjóðgarðinum og forvitni-
legri ferð út í Ingólfshöfða. í Ingólfs-
höfða er ríkt fuglalíf.
Þórsmerkurferðir eru um hveija
helgi hjá Útivist og er þessa helgi
boðið upp á brottför bæði á fímmtu-
dagskvöldið kl. 20 og föstudags-
morguninn kl. 8. Gist er í Útivistar-
skálunum í Básum. Á föstudaginn
17. júní og sunnudaginn 19. júní eru
einsdagsferðir í Þórsmörk með brott-
för kl. 8. Útivist býður einnig upp á
sumardvöl í Þórsmörk þar sem gist
er milli ferða í heila eða hálfa viku.
Gist er í tveimur skálum Útivistar í
Básum. Bæði á 17. og 19. júní verða
dagsferðir sem tilheyra ferðasyrpu
Útivistar er nefnist „Fjallahringur-
inn“. Á 17. júní kl. 13 er gengið á
Skálafell hjá Esju og sunnudaginn
19. júní kl. 10.30 er gengið á Heng-
il. Kl. 13 á sunnudeginum verður
Iétt ganga í Innstadal við Hengil.
Brottför er frá BSÍ, bensínsölu. Auk
helgar- og dagsferðanna verður
fyrsta sumarleyfisferð Útivistar farin
17. júní. Hún nefnist Sólstöðuferð
fyrir norðan. Farið verður í Hrísey,
Svarfaðardal, Skagafjörð, Málmey,
Drangey og jafnvel Grímsey.
(Fréttatilkynning)
ÞAÐ er árviss viðburður að jass-
landar vorir sem úti í hinum
stóra heimi búa, fljúgi heim til
ísalandsins stranda þegar þar
er allt í blóma.
Ánægjuleg viðbót við Lista-
hátíð, sem afgreiddi jassinn að
þessu sinni með Grappelli, er
koma þeirra Péturs Östlund og
Jons Páls Bjarnasonar, tveggja
á heimsmælikvarða sem búa að
jafnaði sitt hvorum megin Atl-
antsála. Pétiir í Stokkhólmi og
Jon Páll í Los Angeles. Þeir leika
á Borginni þrjá daga í þessari
viku ásamt úrvalsliði íslenskra
jassleikara: Birni Thoroddsen,
Kjartani Valdimarssyni, Rúnari
Georgssyni og Birgi Bragasyni.
Jón Páll, páfi íslenskra jassgítar-
ista, og Björn Thoroddsen hófu
giggið á mánudaginn á frumsömd-
um dúett eftir Jón Pál. Frá því að
veðurmælingar hófust á Hótel Borg
hefur ekki heyrst jafn vandaður
gítarleikur. Þeir eru ólíkir gítarleik-
arar. Jon Páll eins og vel taminn
góðhestur og Bjöm eins og viljugur
fákur sem treystir á kraftinn og
lífsþróttinn. Dúettinn lék líka Oleo
en svo bættust hinir í hópinn. Jón
Páll dró sig þó í hlé en hann hafði
samt langt í frá sagt leikið sitt
síðasta. Fyrir hlé léku þeir meðal
annars Imitation eftir Grover Was-
hington. Pétur Östlund hefur ekki
leikið á íslandi síðan 1985 að hann
spilaði hér með Niels H.Ö. Peders-
en. Hann er einn af betri jass-
trommurum heims, það sýndi hann
og sannaði. Hann er einn þeirra
sem getur glætt hvaða band sem
er lífí. Hann nýtir sér alla eigin-
leika trommanna og simbalamir
em dijúgur þáttur í leik hans og
blæbrigðin mörg og breikin sem
hann fyllti út í kitluðu hláturtaugar
áheyranda og var jafn gott að
Múlinn var ekki viðstaddur þetta
kvöld. Eins og jassvirtúós sæmir
yfírgnæfír hann aldrei aðra og
samvinna hans og Birgis var með
ólíkindum góð. Það var greinilegt
að þeir peppuðu hvorn annan upp.
Birgir Bragason er blíþéttur undir,
með samblöndu af Pastorios og
Alphonso Johnson og neglir bass-
ann oft af óviðráðanlegum ástæð-
um.
Pétur þýðir sem kunnugt er,
klettur og það er skoðun undirrit-
aðs að þvílíkur trommari hafí ekki
komið hingað síðan 1985 að hann
kom sjálfur. Hann er í klassa út
af fyrir sig. Pétur hefur leikið með
mönnum eins og Art Farmer og
Red Mitchell. Fyrsta lag eftir hlé
var Blús í Bes eftir Bjöm Thorodds-
en. Þar fór sveitin á kostum og
greinilegt að viðstaddir kunnu vel
að meta. Einhver vandræðagangur
var á ljósamönnum og léku menn
ýmist í niðamyrkri eða í skerandi
flóðlýsingu. En það lagaðist þegar
á tónleikana leið. Annars verður
að segjast eins og er að Hótel Borg
er skásti staðurinn fyrir jasstón-
leika hér í bæ og er gleðilegt að
sá kostur standi mönnum opinn.
Softly as in the Moming Sunrise
hófst á glæsilegu intrói Rúnars
Georgssonar. Að því loknu léku
þeir My old Flame og Kjartan
Valdimarsson fór á kostum í sínu
sólói. Þrátt fyrir ungan aldur kann
hann listina að kveikja eld. Hann
er eitt mesta efni sem fram hefur
komið á íslandi í seinni tíð.
Tónleikar verða í kvöld á Hótel
Borg og hefjast þeir um tíuleytið.
Þessi viðburður gerir það að verk-
um að íslenskir jassáhugmenn
komast nokkum veginn klakklaust
í gegnum listahátíðarsumrið en án
komu Östlunds og Jóns Páls hefðu
þeir orðið súrir f broti. Þá er bara
að hvetja alla sem unna fögmm
hljómum að fjölmenna á Borgina í
kvöld því eitt er víst að enginn
verður svikinn af því sem þar fer
fram.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
| ferðir - ferðalög |
Nýferðaáætlun S.B.K.
gildir frá og með 15. júní
Mánudagar til föstudags
Frá Reykjavík til Keflavíkur, Garðs og Sand-
gerðis:
Kl. 8.30, 13.30, 17.30, 19.00, 22.15.
Frá Keflavík til Reykjavíkur:
Kl. 6.45, 10.30, 13.30, 17.30, 21.00.
Frá Sandgerði og Garði til Reykjavíkur:
Kl. 10.00, 13.00, 17.00, 20.40.
Laugardagar
Frá Reykjavík til Keflavíkur, Garðs og Sand-
gerðis:
Kl. 11.45, 13.30, 15.30, 19.00, 22.15.
Frá Keflavík til Reykjavíkur:
Kl. 9.00, 11.00, 13.30, 17.30, 19.00, 21.00.
Frá Sandgerði og Garði til Reykjavíkur:
Kl. 10.30, 13.00, 17.00, 20.40.
Sunnudagar og aðrir helgidagar
Frá Reykjavík til Keflavíkur, Garðs og Sand-
gerðis:
Kl. 13.30, 17.30, 19.00, 22.15.
Frá Keflavík til Reykjavíkur:
Kl. 11.00, 13.30, 17.30, 21.00.
Frá Sandgerði og Garði til Reykjavíkur:
Kl. 13.00, 17.00, 20.40.
húsnæði óskast
Myndlistarskóli Kópavogs
óskar eftir að taka á leigu ca 100 fm hús-
næði, helst miðsvæðis í Kópavogi.
Upplýsingar í síma 44593.
Einbýlishús
Óskum eftir að leigja stórt einbýlishús á
Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu. Gott leiguverð í
boði fyrir stórt og rúmgott hús.
Upplýsingar í síma 652221.
S.H. VERKTAKAR HF.
STAPAHRAUN 4 - 220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI 652221
2ja-3ja herb. íbúð óskast
Undirrituð óskar eftir 2ja-3ja herb. íbúð til
leigu fyrir hafnfirsk hjón með tvö börn. Reglu-
semi og góðri umgengni heitið.
Upplýsingar í síma 53444 hjá Kolbrúnu
Oddbergsdóttur.
húsnæði í boði
Til leigu
frá 1. júlí til tveggja ára einbýli (parhús) í
gamla Vesturbænum, ca 170 fm. 4 svefnh.,
borðst., stofa, þvottah., geymsla. Fyrir-
framgr.’A leigutímans.
Svar, með uppl. um fjölskyldustærð og
greiðslugetu sendist auglýsingadeild Mbl.
merkt: „XYZÞ - 2778" fyrir 20. júní.
| tiíboð — útböð
ID ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir
hönd skólaskrifstofu Reykjavíkur óskar eftir
tilboðum í tölvubúnað til nota í.skólum borg-
arinnar. Um er að ræða 26 einmenningstölv-
ur ásamt prenturum.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri á
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku-
daginn 6. júlí kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
19. júní
Sjalfstœðiskonur! Mætið á Austurvöll sunnudaginn 19. júní kl. 10.00.
Fjölmennið.
Stjórn Landssambands sjátfstæðiskvenna.