Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 u minna þig á Ijúffenga PRINCE súkkulaðikexið. PRINCE f'uríum Chocolat sOioio|()ft. ftavored , IEGGERT KRISTJÁNSSON H/F SÍMI 6-85-300 Einhverra að- gerða er þörf - segirBúi Vífilsson loðdýra- bóndi á Hval- fjarðarströnd „ÞAÐ ER ekkert réttlæti í því ef ekkert verður gert til aðstoðar refabændutn, því þeim var hálf- partinn ýtt út í þessa búgrein," sagði Búi Vífilsson loðdýrabóndi á Krókum, þegar hann var inntur álits á þeim vanda sem nú steðjar að refaræktinni. A Hvalfjarðar- ströndinni eru.tvö loðdýrabú, en auk búsins á Krókum er loð- dýrabú á Oddsmýri, sem Eyþór Arnórsson rekur. Búi hóf refarækt haustið 1985, en ári seinna stækkaði hann refa- skálann og hóf minkarækt í hluta hans. Síðastliðið sumar reisti hann síðan nýtt hús fyrir minkinn. „Gotið hjá minkunum gekk ágæt- lega nú í vor, en í vetur var ég með 230 minkalæður ásettar og útkoman er þetta 4,4 hvolpar á læðu. Gotið hefur líka komið þokka- lega út hjá refnum, en af 105 ásett- um læðum paraði ég 85, en fargaði síðan afganginum, sem ekki hafði parast þann 6. apríl. Eitthvað hefur verið um það að refalæðumar hafí gotið fyrir tímann, þannig að ein- hver afföll hafa orðið. Ætli þetta nái því samt ekki að vera eitthvað nálægt sex hvolpum á ásetta læðu,“ sagði Búi. Þeir Búi og Eyþór komu sér upp aðstöðu til refasæðinga nú í vetur, og aðspurðir sögðu þeir sæðingam- ar hafa tekist vel. Þeir hefðu keypt sæði úr pólarref og safírref, og væm því búnir að koma sér upp möguleikum á fjölbreyttari skinna- framleiðslu. Eyþór hóf refarækt á síðastliðnu ári, og var einnig með 105 læður ásettar í vetur. Sagði hann gotið hafa gengið nokkuð vel, en eitthvað hefði þó verið um afföll. Hann hyggst reisa minkaskála á þessu sumri, og byija á minkarækt í haust. „Framtíðin stendur þó og fellur með því hvaða aðgerða stjómvöld hyggjast grípa til varðandi þann vanda sem þessi búgrein á nú í,“ sagði hann. „Það er alveg ljóst að einhverra Eyþór Arnórsson loðdýrabóndi á Oddsmýri. aðgerða er þörf,“ samsinnti Búi. „Mér finnst ekki réttlæti í því ef ekkert verður að gert, því það er hálfpartinn búið að ýta fólki út í þessa búgrein. Það verður eitthvað að gerast núna strax ef mögulegt á að vera að halda þessu áfram. Ég vil helst ekki þurfa að hætta með refaræktina núna, þegar ég er búinn að koma mér upp góðum lífdýrastofni og leggja grunninn að aukinni fjölbreytni í framleiðslunni. Ég verð þó að fækka lífdýmnum eitthvað, en eyk þá við minkafjöld- ann á móti.“ Joan Nesser, kennari á nám- skeiðinu. Búi Vífilsson og Jenný Sigurðardóttir kona hans eru hér að vinna við fráfærur á minkabúinu með aðstoð Vífils sonar þeirra. Búi er í fullu starfi hjá Olíufélag- inu í Hvalfírði auk búrekstrarins, og ennfremur lagar hann allt fóður handa dýmnum sjálfur, auk þess sem Eyþór fær fóður hjá honum fyrir sín dýr. Hann þarf að sækja hráefnið í fóðrið til Akraness, og stundum jafnvel til Reykjavíkur. „Það má segja að vinnan við fóður- gerðina sé það eina sem situr eftir hjá mér, og borga ég tapið af rekstr- inum að einhveiju leyti með því. En það er alveg ljóst að þetta getur ekki gengið svona til lengdar," sagði Búi Vífilsson að lokum. Ungt fólk með hlutverk: Námskeið í Skálholti NÁMSKEIÐ fyrir leiðtoga í kristilegu starfi verður haldið í Skálholti 16.—21. júní. Nám- skeiðið er á vegum Ungs fólks með hlutverk sem eru leik- mannasamtök innan þjóðkirkj- unnar. Aðalkennari verður Joan Nesser frá Bandaríkjunum en auk hennar kenna Friðrik Sehram og Eirný Ásgeirsdóttir. Nesser er stofnandi og fram- kvæmdastjóri leikmannahreyfing af lútherskum uppmna og hefur áður haldið námskeið um trúarlíf. Hún starfar einnig sem safnaðar- systir í Lútersku kirkjunni í Minne- sota og á vegum Evangelísk-lút- ersku kirkjunnar í Bandaríkjunum. Joan Nesser talar á samkomu í Grensáskirkju 16. júní kl. 20.30 og er öllum heimill aðgangur. (Úr fréttatilkynningu) Málverka- sýning í Stykk- ishólmi ALDA Björnsdóttir heldur mál- verkasýningu í Stykkishólmi dagana 16.-19. júní næstkom- andi. Alda er fædd í Vestmannaeyjum árið 1928. Hún hafði ekki tækifæri til að stunda myndlistarskóla, en naut tilsagnar hjá Bjarna Jónssyni og Veturliða Gunnarssyni. Þetta er fimmta einkasýning Öldu. Hún hef- ur einnig tekið þátt í tveimur sam- sýningum. Síðustu fimmtán árin hefur Alda málað mikið á flauel og em 16 slíkar myndir á sýningunni nú. 53 myndir verða á sýningu Öldu, 37 olíumálverk og 16 myndir mál- aðar á flauel. Sýningin, sem er sölu- Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Alda Björnsdóttir sýning, verður haldin í Hótel Stykk- ishólmi. Metsölublað á hverjum degi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.