Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.06.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst IngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakið. Frakkar án meirihluta Stækkun álversins: Virkj anakoshmður er 11 milljarðar ef bæði þyrfti stækkun Búrfells o g Sultartanga LJÓST er að ef af áformum um álver verður hefur það í för með sér auknar virkjanir hérlendis, en í gær var haldinn i London við- ræðufundur íslendinga og fulltrúa erlendra stórfyrirtækja. Einkum er horft til stækkunar Búrfellsvirkjunar og Sultartanga i þessu sambandi en kostnaðar við þessarar virkjanir er um 11 milljarðar króna á verðlagi um síðustu áramót. Boðað var til þingkosninga í Frakklandi með fárra vikna fyrirvara eftir að Fran- cois Mitterrand hlaut glæsi- legt endurkjör sem forseti landsins. Ætlun Mitterrands var að á þing veldust menn, sem gætu myndað ríkisstjóm honum að skapi í stað stjómar hægrimanna undir forystu helsta keppinautar hans um forsetaembættið Jacques Chiracs. í þingkosningunum sem lauk á sunnudag jók hinn gamli flokkur Mitterrands, Sósíalistaflokkurinn, fylgi sitt. Á hinn bóginn náði hann ekki að fá nógu marga menn á þing til að geta myndað meirihlutastjóm. í fyrsta sinn frá því að stjómarskrá fimmta franska lýðveldisins var sam- þykkt undir forystu Charles de Gaulles fyrir réttum þrjátíu ámm hafa kjósendur ekki tek- ið af skarið á kjördag um það, hvort sósíalistar eða hægrimenn hafí þingmeiri- hluta og þar með afl til að mynda ríkisstjóm. Fimmta lýðveldið í Frakk- landi varð til á rústum hins fjórða, þar sem hver höndin var uppi á móti annarri í stjóramálalífínu. Pólitísk hrossakaup vom stunduð með þeim hætti, að öllum ofbauð að lokum og krafan um „sterka" stjóm endurspeglað- ist í stjómlagabreytingunum, sem de Gaulle beitti sér fyrir, þegar kallað var á hann úr einverunni. Hægrimenn töp- uðu forsetakosningum 1981, þegar Mitterrand var fyrst kjörinn. Þeir töpuðu aftur í þingkosningum ári síðar þeg- ar sósíalistar komust til valda og mynduðu í fyrstu stjóm með kommúnistum en sátu síðan einir í ríkisstjóm. Stefna þeirrar stjómar var að ýmsu leyti tímaskekkja miðað við það sem var að gerast undir forystu Thatcher í Bretlandi og Reagans í Bandaríkjunum. Franskir sósialistar misreikn- uðu sig herfílega, þegar þeir fóru að framfylgja því sem þeir höfðu prédikað um íhlut- un ríkisvaldsins í efnahags- og atvinnulífíð. Hægrimenn fengu meirihluta á þingi í kosningum 1986 og þá hófst það, sem Frakkar kalla „sam- búð“ forseta sósíalista og ríkisstjómar hægrimanna. Þótti mörgum þá, sem hið hæfílega jafnvægi væri í frönskum stjómmálum. „Sambúðinni“ lauk með for- setakosningunum, þegar þeir börðust forsetinn og forsætisr ráðherrann. Hvaða skoðanir sem menn hafa á stjórnmálastefnu Mitt- errands er ekki annað unnt að segja en honum hafi tekist bærilega vel að laga stjóm- málaþróunina að eigin höfði. Þegar því var spáð á grund- velli skoðanakannana fyrir þingkosningamar, að sósíal- istar myndu sigra glæsilega, hafði Mitterrand uppi vamað- arorð. Hann lét í það skína, að fyrir framtíð sósíalista og að sjálfsögðu Frakklands væri best, að kosningamar leiddu til þess að mynduð yrði vinstrisinnuð miðjustjórn. Sósíalistar fengju ekki hrein- an meirihluta og færu með öðmm orðum nokkur skref til hægri. Kjósendur gáfu það einmitt til kynna með atkvæð- um sínum, að þeim er eitthvað slíkt ekki á móti skapi. Nú er bara að bíða og sjá, hvem- ig til tekst, þegar á reynir. í Frakklandi er gmnnt á óttanum við upplausnina á tímum fjórða lýðveldisins. Franska blaðið Le Monde var- ar við því að úrslit þingkosn- inganna geti breytt Frakk- landi í skútu sem reki stjóm- Iaust. Enginn vafí er á því, að Mitterrand mun nota þenn- an ótta nú næstu daga í til- raunum sínum til að beija saman nýjan þingmeirihluta. Franskir sóísalistar munu ekki gefa eftir forystuna í ríkisstjórninni fyrr en í fulla hnefa. Þeir kæra sig ekki um samstarf við kommúnista heldur munu þeir leita nýrra liðsmanna á hægri vængnum. Stjómarkreppa í Frakk- landi eftir þijátíu ára hlé á slíkum pólitískum átökum getur orðið langvinn og haft víðtækar afleiðingar út fyrir landamæri Frakklands og þá ekki síst í Evrópubandalaginu. Það verður því knúið á um það víðar en innan frönsku landamæranna, að Frakkar verði ekki lengi án meirihluta í stjómmálunum. Jóhann Már Maríusson aðstoð- arforstjóri Landsvirkjunnar sagði í samtali við Morgunblaðið að er- fítt sé að segja til um þennan kostnað þar sem ekki er vitað með hvaða hætti stækkun álversins verður ef hún verður á annað borð. „Rætt hefur verið um að stækka álverið fyrst um 90.000 tonna af- kastagetu og ef það verður raunin þyrfti ekki að koma til nema stækkun Búrfells og Kvíslárveitur auk Nesjavalla og Kröflu í byrjun en Sultartangi kæmi síðan inn í í fréttabréfi Samlagsins segir að engin breyting hafi orðið á aðalstjórn þess og aðeins ein á varastjórninni. Adolf Guðmunds- son frá Seyðisfirði kom inn í stað Guðmundar Bjömssonar, sem hætt hefur störfum hjá Hraðfrysti- húsi Ólafsvíkur. Formaður stjóm- arinnar er Ólafur Bjömsson, vara- formaður Gísli Konráðsson, Akur- eyri og ritari er Ólafur B. Ólafsson í Sandgerði. „Allir, sem í sér létu heyra, vom á einu máli um að skreiðar- framleiðendur þyrftu að hafa með sér sem víðtækust samtök og að núverandi ástand væri með öllu dæmið ef fyrirhuguð áform um 90.000 tonn í viðbót yrðu stað- reynd. Þessar tímasetningar gera dæmið flókið hvað kostnað við þessar virkjanir varðar," segir Jó- hann. Blönduvirkjun, sem nú er í smíðum mun kosta um 7,7 millj- arða króna og myndi hún nýtast strax sem orkugjafi ef af stækkun álversins verður en annars er hún hugsuð fyrir almennan markað og sem slík dugir hún fram yfir næstu aldamót ef ekkert annað kemur til. óviðunandi. Sundrungin væri þeg- ar búin að valda gífurlegu tjóni,“ segir í fréttabréfinu. Þar segir ennfremur. „Almennt álit er að nú horfi heldur betur um skreiðar- framleiðslu fyrir Nígeríu. Á Ítalíu er verð og söluhorfur mjög góðar. Verð á hausum er orðið vel viðun- andi og allt bendir til að verð á skreið komi til með að hækka. Verð á söltuðum ufsa er mjög lágt og mikið offramboð. Til að draga úr því er líklegt að talsvert verði hengt upp af ufsa. Verði skynsam- lega staðið að sölu á því takmark- aða magni, sem vænta má að verði framleitt, er fullvíst að tryggja Hvað Kröflu varðar segir Jó- hann að afkastagetu hennar megi auðveldlega auka um 30 MW á stuttum tíma þar sem önnur véla- samstæða hennar sé til staðar, óuppsett. „Við þyrftum að fá úr því skorið hvort Kröflusvæðið sé ekki að ná jafnvægi en í fram- haldi af gosvirkninni þar komu upp gas og gufur sem hafa tærandi áhrif á málma.“ segir Jóhann. Og eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu er einnig verið að skoða stórvirkjanir á Nesjavöllum, það er nýtingu jarðgufu til ra- forkuframleiðslu, en holurnar eru þar þegar til staðar. Ennfremur eru Eldvörp á Reykjanesi inn í myndinni en báðir þessir staðir hafa þann kost að litlu þarf að kosta til byggingar flutningslína frá þeim til Straumsvíkur. megi greiðslur. Framtíð félagsins var rædd á fundinum og niðurstaða varð í stórum dráttum sú, að tæpast sé rekstrargrundvöllur fyrir Samlag- ið þótt menn tækju sig á og stæðu saman um það. Á síðasta aðal- fundi var samþykkt að leita til SÍF um yfírtöku á starfsemi Samlags- ins, en þá gekk það ekki upp. Nú er ástæða til að ætla að viðhorf hafi breyst, meðal annars eru líkur á að Sambandið yrði með í slíku samstarfi. Niðurstaða umræðn- anna varð því að eftirfarandi til- laga var samþykkt: „Aðalfundur SSF haldinn að Hótel Sögu 8. júní 1988 sam- þykkir að fela stjórninni að taka upp á ný viðræður við stjórn SÍF og skreiðardeildar SÍS um sam- starf í skreiðarsölumálum, til dæmis með stofnun sérstakrar deildar innan SÍF.“ Bömin endurspegla þjóð félagið sem þau búa í ÞING norrænna barnalækna stendur nú yfir í Reykjavík. Um 250 læknar sækja þingið, sem stendur fram á fimmtudag. Fyrsta erindi þingsins flutti breskur læknir sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á heilsufari barna, J.M. Tanner, og fjallaði erindi hans um hvernig börnin endurspegla þjóðfélagið sem þau búa í. í stuttu spjalli við Morgunblaðið sagði Tanner að áhugi og áhersla bamalækna á vexti og þroska bama virtist færast í aukana. Taldi hann það mjög jákvætt, þar sem áhugi barnalækna beindist gjaman að sjaldgæfum sjúkdómum og því sjaldgæfari sem þeir væru, því lengri tíma væri eytt í umijöllun um þá. I erindi sínu ræddi Tanner um hvemig vöxtur og þroski barna gæfí til kynna úr hvers konar um- hverfi þau kæmu. Einnig ræddi hann um hversu mikil áhrif allur aðbúnaður bama hefði á þroska þeirra. Tók hann sem dæmi fyrstu rannsóknina sem til er á vexti bama, frá árinu 1833. Hún sýndi að bresk börn sem flest unnu í verk- smiðjum og bjuggu við slæman kost, voru að meðaltali minni en lágvöxnustu jafnaldrar þeirra í þriðja heiminum eru nú. „Enn er mikill munur á börnum eftir stétt- um, t.d. em böm lægra settra í Bretlandi og Bandaríkjunum minni en böm af hærri stéttum og lífslíkur hinna fyrrnefndu eru þar af leið- andi minni. Því það eru ekki ein- göngu erfðir sem ráða stærð Aðalfundur Samlags skreiðarframleiðenda: Víðtæk samtök skreiðar- framleiðenda nauðsynleg Þess óskað að SÍF taki yfir skreiðarviðskiptin SAMLAG skreiðarframJeiðenda hélt aðalfund sinn í síðustu viku og samþykkti meðal annars ályktun þess efnis að á ný verði rætt við stjórnendur Sölusambands Islenzkra fiskframleiðenda um stofn- un sérstakrar skreiðardeildar innan SÍF. Engar breytingar urðu á stjórn Samlagsins og var Ólafur Björnsson i Keflavík endurkjörinn formaður hennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.