Morgunblaðið - 15.06.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988
55
16. Júní Fimmtud. 22-03 Bastá baliiO I bænUm
17. júnJ Föstud, 15-19 FJölskylduháúö. Diskótek ineftöUu.
Mamma og pabbl fá ókaypis irm.
17. Júní Föstud. 22-03 Melrlháttar hátlöarball.
18. Júní Laugard. 22-03 STRAX frá kí. 22.30-00.30 Blg Toot sér um
Tónllst Tunglslns tll kl.03
19. júnl Sunnud. 22-01 Tónleikar STRAX.
imm
Oplo öll kvöld
_____________
SPIP
WILLIAM HURT
Kraftmikill, áræð-
inn og dularfullur
Skoðanir fólks á bandaríska
kvikmyndaleikaranum William
Hurt eru æði misjafnar. Annað hvort
er honum lýst sem afburðasnjöllum
og ástríðufullum leikara, eða þá sem
fádæma dyntóttum og erfiðum
manni í allri umgengni. Þegar hon-
um er hrósað, þá á hann það til
dæmis til að verða mjög árásar-
gjarn, og þegar hann er vingjarnleg-
ur í viðmóti, þá þykir hann alveg
hreint óútreiknanlegur. Jafningjar
hans bera þó mikla virðingu fyrir
honum, aðdáendumir tilbiðja hann
og blaðamönnum stendur stuggur
af honum, vegna þess hve erfiður
hann er í samskiptum.
Enginn mótmælir því samt að
William Hurt er einn fremsti leikari
samtímans. Hann er sannkallaður
fagmaður, og getur tekist á við fjöld-
ann allan af mjög svo ólíkum hlut-
verkum. Hann hefur þrisvar sinnum
verið tilnefndur sem besti leikarinn,
og hann fékk Óskarsverðlaunin fyrir
frábæra túlkun sína á kynvillingi í
kvikmyndinni Kiss of the Spider
Woman.
Sögur um tilfinningahita Hurts á
meðan á kvikmyndatökum stendur
eru hluti af munnmælasögunum í
Hollywood. Þegar verið var að kvik-
mynda Children of a Lesser God,
þá lenti hann til dæmis í slagsmálum
við einn af hinum ungu heymarlausu
leikurum. Lee Marvin, sem lék eitt
aðalhlutverkið ásamt Hurt í kvik-
myndinni Gorky Park, sagði við einn
aukaleikarann, sem mun hafa slegið
Hurt:„Gott hjá þér vinur, þú sparað-
ir mér ómakið."
Vinir Hurts halda því samt fram,
að eftir að hann fór í meðferð á
Betty Ford stofnuninni vegna áfeng-
isneyslu í desember 1986, þá sé
hann mun rólegri og betri í allri
umgengni. Jafnvel viðurkennir hinn
38 ára gamli leikari sjálfur þessa
breytingu. „Það gleður mig að ég
er núna loksins orðinn sáttur við
sjálfan mig,“ segir hann.
íhygli þykir einkennandi fyrir
William Hurt, og stundum hefur
hann verið kallaður „leikari hins
hugsandi manns“. Hann hefur bæði
hrifið viðmælendur sína og ruglað
þá í ríminu með yfirlýsingum varð-
andi leiklist, rómantík og lífið í heild.
En þrátt fyrir sýndarmennsku ein-
staka sinnum, þá þykir andlegt at-
gervi hans vera mjög traust. Áður
en hann hóf nám í hinum fræga
Juillard skóla í New York, þá útskrif-
aðist hann með bestu ágætiseinkunn
frá Tufts háskólanum í Massac-
husetts. Þar var hann fyrstu þrjú
árin við nám í guðfræði, en ekki
leiklist. „Ég var með því að reyna
að öðlast væntumþykju stjúpföður
míns. Hann var mjög trúaður."
Stjúpfaðir hans, Henry Luce III, var
jafnframt mjög ríkur og valdamikill,
en hann var sonur stofnanda tíma-
ritsins Time.
Faðir Hurts var embættismaður í
utanríkisráðuneytinu, og ferðaðist
víða um heiminn með fjölskyldu sína.
Foreldrar Hurt skildu þegar hann
var sex ára gamall. Hann bjó síðan
með móður sinni og tveimur bræð-
rum við nokkra fátækt í New York.
Þegar móðir hans síðan giftist Luce,
þá var Hurt tíu ára gamall, og varð
skyndilega ríkur og jafnframt því
ruglaður. Hann bjó í gríðarstóru
húsnæði, gekk í einkaskóla og óttað-
ist stjúpföður sinn. Aðeins í leiklist-
inni fann hann einhvetja huggun.
„Ég átti mjög erfiða æsku,“ segir
Hurt. „Ég er rétt núna að greiða
úr henni að hluta til. Meðferð hefur
hjálpað mér, og lífið sjálft hefur
hjálpað mér. En leiklistin var mér
aldrei nóg, því hún gat aldrei komið
í staðinn fyrir væntumþykju."
Eina hjónaband Hurts endaði með
skilnaði. Eiginkona hans var leik-
konan Mary Beth Hurt, og ríkir
ágætis vinátta þeirra á milli. Sömu
sögu er að segja varðandi ballett-
dansmærina Söndru Jennings, en
með henni eignaðist hann soninn
Alexander árið 1983. Ekki hefur
samband Hurts við síðustu lagskonu
William Hurt í hlutverki kynvillingsins í kvikmyndinni Kiss
of the Spider Woman.
William Hurt.
hans verið jafn gott. Það er hin
heyrnarlausa leikkona Marlee Matl-
in, en henni kynntist hann þegar
verið var að kvikmynda Children of
a Lesser God, og stóð samband
þeirra í tvö ár. „Ég myndi alls ekki
segja að við værum vinir," hefur
Matlin látið hafa eftir sér. „Ég held
að velgengni mín hafi gert hann
hræddan. Það var mikið áfall fyrir
hann þegar ég fékk Óskarsverðlaun-
in, en ekki hann.“ Og Hurt viður-
kennir þetta að nokkru leyti. „Ég
er á vissan hátt afbrýðisamur út í
Marlee. Ég þarf alltaf að ganga í
gegnum ákveðið tímabil þunglyndis
og sálarflækju, þegar ég er að vinna
að einhveiju hlutverki, en hún gerir
þetta án allrar áreynslu." Það
þykir skiljanlegt að Hurt hafi svo
William Hurt ásamt Ian Bannen
í Gorky Park.
tilfinningaþrungnar skoðanir varð-
andi starf, sem hann tekur svo alvar-
lega sem raun ber vitni. Hann velur
öll hlutverk vegna listræns gildis,
en alls ekki vegna líklegra vinsælda
þeirra. Hinn pólitíski boðskapur
kvikmyndarinnar Kiss of the Spider
Woman var honum til dæmis svo
hugstæður, að hann þáði í laun litlu
William Hurt, Holly Hunter og
Albert Brooks í Broadeast News.
meira en nam útgjöldum hans á
meðan á kvikmyndatökunni stóð.
Það þykir lítill vafí leika á því að
William Hurt eigi eftir að verða til-
nefndur til Óskarsverðlauna oftar í
framtíðinni, og það út af fyrir sig
þykir alls ekki svo slæmt fyrir mann,
sem segist rétt í þann mund vera
að komast á skrið sem leikari.
ROKKTÓNLEIKAR
ÍDUUSHÚSI
í KVÖLD KL.22.00
EINNIG KOMA FRAM:
LEIKSVIÐ
FÁRÁNLEIKANS
&GEIRSBÚÐ-
ING ARIMIR
MIÐAVER KR. 400,-