Morgunblaðið - 15.06.1988, Page 16

Morgunblaðið - 15.06.1988, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 LISTAHÁT í Ð í REYKJAVÍK H Listapopp í Laugardalshöll The Chrístíans, Blow Monkeys og fimm íslenskar hljómsveitír BRESKU popphljómsveitirnar The Christians og The BIow Monkeys halda tónleika í Laug- ardalshöll á fimmtudags- og föstudagskvöld. Auk þeirra koma fram íslensku hljómsveit- irnar Strax, Síðan skein sól, Kátir piltar, Hunangstungl og Bjarni Ara & Búningarnir. Það eru The Christians sem leika á tónleikunum á fimmtudags- kvöldið, ásamt Strax, Síðan skein sól og Kátum piltum. The Christ- ians koma frá bítlabænum Li- verpool og er tónlist þeirra undir sterkum áhrifum frá soul-tónlist. Hljómsveitina skipa bræðumir Garry og Russel Christian, sem sjá um söng og saxófónleik og Henry Priestman, sem leikur á The Christians hljómborð og gítar auk þess að syngja. Þeim til aðstoðar verða síðan nokkrir valinkunnir hljóð- færaleikarar. Á föstudagskvöldið verða The Blow Monkeys í sviðsljósinu í Laugardalshöll. Forsprakki þeirrar hljómsveitar er piltur að nafni Dr. Robert. Hann semur allt efni sem hljómsveitin flytur, en það flokk- ast undir létta dægurtónlist. The Blow Monkeys munu m.a. leika lög af væntanlegri breiðskífu sinni. Auk The Blow Monkeys koma fram á tónleikunum á föstudags- kvöldið hljómsveitimar Strax, Bjami Ara & Búningarnir og Hun- angstungl. Miðar á báða tónleik- ana em seldir í Gimli og í Skífunni. ódel 42713, 2,5 tonn. __________________ Lyftan sem lækkar Nú hafa Istobal bílalyfturnar stórlækkað í veröi vegna tollabreytinga. Þær kosta nú með söluskatti: 2ja pósta lyftur-frá kr. 164.945; 4ra pósta lyftur-frá kr. 197.000. Istobal lyfturnar eru öruggar, fyrirferðarlitlar en mjög öflugar - lyfta allt að átta tonnum. Þær eru söluhæstu bílalyftur í Evrópu og hafa hlotið viðurkenningu 12 öryggiseftirlita. Eru til betri meðmæli? Olíuf élagið hf Söludeild, Suöurlandsbraut 18, Sími 681100. The Blow Monkeys Uppselt á píanótón- leika Ashkenazys UPPSELT er á píanótónleika Vladimirs Ashkenazys í Há- skólabíói, laugardaginn 18. júní. Sala miða á aðra dagskrárliði Listahátíðar gengur einnig vel og eru fáir miðar eftir á sýning- ar Black Ballet Jazz hópsins og tónleika Leonards Cohens. Að sögn Rutar Magnússon, framkvæmdastjóra Listahátíðar, hefur aðsókn að dagskrárliðum hátíðarinnar verið góð og allt gengið samkvæmt áætlun. Enginn hinna erlendu gesta hefur forfall- ast, en það er, að sögn Rutar, mesta áhyggjuefni þeirra sem að slíkum hátíðum standa. Sala miða á þá dagskrárliði sem eftir eru gengur vel. Allir miðar á tónleika Ashkenasys em seldir og fáir miðar óseldir á sýningar Black Ballet Jazz hópsins og tónleika Leonards Cohens. Rut vildi hvetja þá sem ættu ósóttar pantanir á þessi atriði til að sækja þær hið fyrsta. Byijað verður að selja ósóttar pantanir á tónleika Cohens nk. mánudag. Rut sagði að miðar á popptón- leika The Christians og The Blow Monkeys í Laugardagshöll á fímmtudag og föstudag væm að byija að seljast og einnig væri töluverð hreyfing komin á sölu miða á lokatónleika Listahátíðar í Háskólabíói, þar sem Debra Vand- erlinde sópransöngkona syngur með Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjóm Gilberts Levine. Síðustu ingar á lensku kvik- myndunum SIÐUSTU sýningar á íslensku kvikmyndunum þremur, sem gerðar eru eftir verðlaunahand- ritum Listahátíðar, verða í dag. Myndirnar eru sýndar í Regn- boganum á klukkustundarfresti frá kl. 17.00-23.00. Myndimar em „Símon Pétur fullu nafni“ eftir handriti Erlings Gíslasonar, „Kona ein“ eftir hand- riti Lámsar Ýmis Óskarssonar og „Ferðalag Fríðu“ eftir handriti Steinunnar Jóhannesdóttur. í lok Listahátíðar verða veitt verðlaun fyrir bestu myndina að mati dóm- nefndar og sýningargesta og gild- ir hver aðgöngumiði jafnframt sem atkvæðaseðill. í anddyri Regn- bogans hefur verið komið fyrir kassa sem sýningargestir geta lagt miðana í, eftir að hafa greitt myndunum atkvæði. (Úr fréttatilkynningu) Sl OPEL KRDETT BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687BOO Umboðsmenn: Akureyri, Véladeild KEA—Reyðarfirði, Lyk Njarðvíkum, Bílabragginn —Borgarnesi, Bílasala Vesturlam Vestmannaeyjum, Garðar Arason Þegar Opel Kadett kom fyrst á markaðinn í núverandi mynd árið 1985, þótti hönnun hans og búnaður ekki aðeins nýtískulegur heldur framúrstefnulegur, enda samstundis kjörinn bíll ársins það árið. Það er svo til marks um dirfsku hönnuða Opel Kadett, að fjölmargir framleiðendur hafa ætíð síðan hannað smábíla eftir þessari frægu Kadett forskrift. En skemmst er af því að segja að Opel Kadett hefur reynst framúrskarandi fjölskyldubíll á viðráðanlegu verði. GÓÐ GREIÐSLUKJÖR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.