Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 28

Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 Stríðsmyndir í Vestur-Beirút Kona g'cngur fram hjá kvikmyndaauglýsingn í Vestur-Beirút. Meðan á stríðinu þar hefur staðið hafa ofbeldis-, klám- og stríðsmyndir orðið mjög vinsælar. Armenía og Azerbajdzhan: Gálgafrestur í deílunni um Nagomo-Karabakh Moskvu. Reuter. Allsherjarverkfalli í Jerevan, höfuðborg Armeníu, var aflýst í gær en þá hafði formaður komm- únistaflokksins í ríkinu lýst yfir, að Æðstaráðið armenska myndi taka undir kröfuna um endur- heimt héraðsins Nagorno-Kara- bakhs. Það tilheyrir nú nágrann- aríkinu Azerbajdzhan en Æðsta- ráðið er jafn ákveðið í að láta ekki undan kröfum Armena. Formenn kommúnistaflokkanna í báðum ríkjunum hafa varað fólk við að gefa tilfínningunum lausan tauminn í deilunni um Nagorno- Karabakh en héraðið var á sínum tíma fært undir Azerbajdzhan þótt Armenar byggðu það. Serun Arut- unyan, formaður armenska komm- únistaflokksins, sagði á mánudag á fundi, sem 100.000 manns sóttu, að Æðstaráðið armenska myndi taka undir kröfuna um endurheimt Nagomo-Karabaks og var þá alls- heijarverkfalli í Jerevan aflýst. Forsætisnefnd Æðstaráðsins í Azerbajdzhan sagði hins vegar í gær, að krafa Armena væri „óað- gengileg" og „andstæð hagsmunum íbúa ríkjanna beggja". Deilan um héraðið kom upp í febrúar en í mars sögðu stjómvöld í Moskvu, að engar breytingar væru fyrir- hugaðar á landamæmm ríkjanna. Æðstaráðið í Armeníu kemur saman í dag og verður sjónvarpað frá fyrsta fundinum. Jafnvel þótt þar verði samþykkt, að Nagomo- Alnæmi síst í rénum Skipst er á upplýsingnm í Stokkhólmi FJÓRÐA alþjóðlega ráðstefnan um alnæmi, sem haldin er á vegum Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar, WHO, stendur nú yfir í Stokkhólmi. Rðastefn- una sækja um 7000 fulltrúar frá 125 löndum. Þrír íslenskir læknar, þeir Har- aldur Briem, Sigurður Guðmunds- son og Sigurður B. Þorsteinsson sitja þessa ráðstefnu auk hjúkr- unarfræðinganna Hildar Helga- dóttur og Hmndar Sch. Thor- steinsson og Auðar Matthíasdótt- ur, félagsráðgjafa frá embætti Borgarlæknis. Jonathan Mann framkvæmda- stjóri WHO setti ráðstefnuna að viðstöddum Karli Gústafi, Svía- konungi og Ingvari Carlsson, for- sætisráðherra Svíþjóðar. í setning- arræðunni sagði Mann að fímm til tíu milljónir manna hefðu smitast af HIV vírusnum sem veldur al- næmi. Sé miðað við lægri töluna mætti búast við að alnæmissjúkl- ingum muni fjölga um eina milljón á næstu fímm ámm. Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin hefur fengið upplýsingar um 96.433 alnæmistil- felli en það er helmings aukning frá síðasta ári. Almennt er þó tal- ið að alnæmissjúklingar séu um tvö hundmð þúsund talsins. Jonathan Mann lýsti yfír áhyggjum af þróun mála í Asíu. Þar em þeir sem em í eiturlyfjum og vændi í mestri hættu að fá sjúk- dóminn. í höfuðborg Thailands, Bangkok, em 5% þeirra sem stunda vændi og 16% eiturlyfja- neytenda sem sprauta sig, með HIV vímsinn í blóði sínu, en ein- ungis 1% eiturlyfjaneytenda greindust með vímsinn á síðasta ári. William Haseltine, sem stundar rannsóknir við læknaskóla Har- vard, greindi frá því í gær að hjá sumum sjúklingum hefði HIV Conference on Aids William Haseltine sést hér ávarpa alnæmisráðstefnuna í Stokkhólmi. vímsinn hætt að ijölga sér um tíma, og ruglað þannig ónæmis- kerfí líkamans, en síðan hefði vímsinn blossað upp aftur. Svartir verr settir í Bandaríkjunum em skráð 61.580 alnæmistilfelli. Hlutfall svartra sjúklinga er mjög hátt eða 40% og lífslíkur þeirra em verri en hjá hvítum alnæmissjúklingum. Svört kona sem komin er með alnæmi lifir að jafnaði í 11 vikur og svart- ur maður í 19 vikur. Meðallífslíkur hvítra alnæmissjúklinga eru hins vegar um tvö ár. Kjör þeirra em slæm þar sem lyfín em dýr og margir sjúklinganna hafa misst vinnu sína. Þetta kom fram hjá fréttamanni bandarísku sjónvarps- stöðvarinnar CBS. Vonir bundnar við lyfið AZT Tilraunalyfið AZT hefur gefíð góða raun við meðferð á alnæmissjúkl- ingum. Rannsóknir hafa sýnt að hjá bömum, sem haldin eru alnæmi og var gefíð lyfið í hálft ár, batn- aði starfsemi heilans og þau fengu aukna matarlyst og þyngdust. Lyf- ið hefur einnig áhrif á sæði og gefur það von til þess að í framtíð- inni verði það til að hamla gegn útbreiðslu alnæmis. Einnig hafa komið fram upplýsingar um að böm upp að 20 ára aldri lifí lengur eftir smit, heldur en þeir sem fengju sjúkdóminn á ftillorðins- aldri. Robert Gallo, sem var einn af þeim fyrstu sem uppgötvuðu HIV vímsinn, taldi ástæðu til að ítreka að einu þekktu leiðimar til að smitast af HIV vímsnum væm við samfarir, blóðblöndun og frá vanfærri konu til fósturs. Hjúkrunarfólk undir álagi Ráðstefnugestir geta tekið þátt í starfí margra vinnuhópa. Einn þeirra íjallar um álagið sem hvílir á starfsfólki sem sér um með- höndlun og aðhlynningu alnæmis- sjúklinga. Starfsfólkið sém margt er ungt að ámm horfír upp á jafn- aldra sína deyja af völdum þessa sjúkdóms sem engin lækning fínnst við. Þessi nálægð dauðans veldur því að starfsfólkinu fínnst það ekki geta veitt neina hjálp og minnir það á eigin ódauðleika. Þekking á sjúkdómnum er sífellt að aukast svo heilbrigðisstéttin þarf ailtaf að fylgjast vel með þró- un mála. Næstu viku munu vísindamenn, hjúkmnarfólk og þeir sem vinna að forvamarstarfí skiptast á upp- lýsingum. Margir munu flytja er- indi og 3.600 rit verða gefín út meðan á ráðstefnunni stendur. Auk ráðstefnugestanna 7000 em um eitt þúsund blaðamenn í Stokk- hólmi að fylgjast með gangi mála. Karabakh gangi aftur undir Arm- eníu getur ekki af því orðið nema Azerbajdzhanar og Kremlarstjómin játi því einnig. í Nagomo-Karabakh búa 184.000 manns og hefur allt at- hafnalíf þar verið lamað vegna alls- heijarverkfalls um þriggja vikna skeið. Hafa yfírvöldin viðurkennt, að þau ráði ekki lengur við ástandið. Ráðherrafundur EFTA: Hvattir til að móta stefnu um samgöngn- og flutningamarkað Tampere, Reuter. Ráðgjafarnefnd Fríverslunarbandalags Evrópu, EFTA, hvatti í gær ráðherra bandalagsins til að móta sameiginlega stefnu um flutninga á vinnuafli og um samgöngu- og flutningamarkað Vestur-Evrópuríkja áður en viðræður við Evrópubandalagið hefjast. Ráðgjafamefndin, sem meðal amvinnu við Evrópubandalagið. annars er skipuð fulltrúum úr iðnaði og verkalýðsfélögum EFTA-ríkjanna sex, bar þessa áskorun fram á fundi ráðherra EFTA-ríkjanna í fínnska bænum Tampere. Fyrirhugað er að ráðherrarnir ræði við Willy de Clercq, sem annast samskipti EB við ríki utan bandalagsins, í dag. „Áður en viðræður EFTA og EB heijast verðum við að kanna í hveiju við erum sammála og koma á reglu innan Fríverslunarbandalagsins,“ sagði talsmaður EFTA við frétta- menn í gær. Talsmaðurinn sagði að slíkt væri nauðsynlegt áður en við- ræður hæfust um frekari efnahagss- Ráðherrarnir voru ennfremur hvattir til að reyna að koma á sam- eiginlegum samgöngu- og flutninga- markaði Vestur-Evrópuríkja sem kæmi í stað tvíhliða samninga milli einstakra EB- og EFTA-ríkja sem falla úr gildi þegar heimamarkaði Evrópubandalagsins hefur verið komið á fót árið 1992. Fyrirhugað er að ráðherramir ræði hugmyndir um fijálsa fiskversl- un á fundinum. íslendingar og Norð- menn hafa óskað eftir að verslun með físk verði gerð frjáls, en önnur EFTA-ríki, einkum Svíþjóð og Finn- land, hafa lagst gegn því. Alhaji Lukman, olíumálaráðherra Nígeríu og forseti OPEC-ráðstefn- unnar í Vín. OPEC-ríkin: Óbreytt fram- leiðsla út árið Vín. Reuter. Olíumálaraðherrar / OPEC- ríkjanna, samtaka olíuútflutn- ingsríkja, samþykktu í gær að láta núgildandi framleiðslukvóta gilda áfram og til áramóta. Er vonast til, að þetta verði til að hækka olíuverðið eitthvað en hér var um að ræða málamiðlun með þeim, sem vildu auka kvótana, og þeim, sem vildu minnka þá enn. Samkomulagið verður raunar ekki formlegt fyrr en á fundi OPEC-ríkjanna á laugardag en full- trúar þeirra sögðu samt, að ekki væri annað eftir en að skrifa undir. Á mánudag lækkaði olía heldur í verði á mörkuðum í Evrópu vegna þess, að ekki var búist við neinu samkomulagi en í gær hækkaði verðið verulega aftur. OPEC-ríkin eru 13 en heildar- kvótinn, 15,06 milljónir fata á dag, tekur ekki til íraka. Þeir neituðu að samþykkja hann vegna þess, að þeim var ekki áætlaður jafn stór kvóti og írönum. Með olíuvinnslu þeirra er framleiðsla OPEC-ríkj- anna 18,2 millj. fata á dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.