Morgunblaðið - 15.06.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988
29
Pressens Bild
Myndin var tekin í Sigtúnum á mánudag, á fyrsta degi ráðherrafund-
arins, en þá var Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs,
ekki mætt til leiks. Ystur til vinstri er Ingvar Carlsson, þá Harri
Holkeri, Poul SchlUter og Þorsteinn Pálsson.
Forsætisráðherrar Norðurlanda:
Umhverfismál efst
á baugi á fundinum
Harpsundi. Ritzau
Neytendasamtök í Afríku:
Mótmæla innflutningi
hættulegra úrgangsefna
Ibúar þorps í Nígeríu flýja heimili sín
„Þörungaplágan i Kattegat
og Norðursjó er alvarlegt teikn
um þá hættu, sem nú steðjar
að okkur í umhverfismálum, og
Norðurlönd komast ekki hjá því
að verja milljörðum króna til
mengunarvarna.“
Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, lét svo
ummælt í gær á fréttamannafundi
í Harpsundi, sumarsetri sænska
forsætisráðherrans, en norrænu
forsætisráðherramir eru þar nú
staddir á óformlegum fundi. Auk
Brundtlands eru þar þeir Ingvar
Carlsson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, Poul Schliiter, forsætis-
ráðherra Danmerkur, Harri Hol-
keri, forsætisráðherra Finnlands,
og Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra íslands.
Umhverfismálin hafa verið efst
á baugi á fundi ráðherranna og
sagði Brundtland, að mengunin
væri eins og tímasprengja, sem
gæti sprungið fyrr en nokkum
varði. Ingvar Carlsson lagði
áherslu á, að hvert ríkjanna biði
ekki eftir öðm, heldur léti hendur
Belgflug
bannað yfir
dýragarði
Stokkhólms
Stokkhólmí. Reuter.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að banna
belgflulg yfir dýragarðinum í
Stokkhólmi eftir að skelkaður
húnn hrapaði niður úr tré og
drapst er loftbelgur flaug yfir
garðinn.
„Það er augljóst að ofsahræðsla
greip dýrið er 'loftbelgurinn flaug
yfir garðinum. Af þeim sökum verð-
ur belgflug bannað þegar vindur
blæs úr ákveðinni átt og augljóst
að belgina beri yfir garðinn," sagði
Tommy Cederlund, talsmaður sam-
taka loftbeljaeigenda á Stokk-
hólmssvæðinu.
Hræðsla greip húninn þegar
belgfarar reyndu að koma loftfari
sínu upp á við með því að kveikja
á hitabúnaði belgsins. Atvikið átti
sér stað lágt yfír garðinum og beint
yfir trénu, sem björninn hafðist við
í. Datt bangsi niður úr trénu, valt
út í laug í búri hans og d.mkknaði.
standa fram úr ermum. Nefndi
hann sem dæmi, að takmarka yrði
úrgang frá iðnaði, hreinsa skolp
frá bæjum og borgum og taka
gegndarlausa áburðarnotkun í
landbúnaði föstum tökum.
Af öðrum málum má nefna sam-
skipti austurs og vestur og voru
ráðherramir sammála um, að mik-
ilvægasta framlag Norður-
landabúa til þeirra væri að gæta
stöðugleikans í sínum heimshluta.
Þá var enginn ágreiningur um, að
vegna norrænnar samvinnu gætu
þjóðirnar komið fram gagnvart
öðmm Evrópuþjóðum og á al-
þjóðavettvangi sem ein sterk heild
en ekki sem máttlítil kotríki.
Lagos, Nairóbí. Reuter og Der Spiegel.
KOMIÐ hefur á daginn að vest-
rænir kaupsýslumenn hafa í stór-
um stíl leigt land í nokkrum
Afríkuríkjum undir eitraðan iðn-
aðarúrgang. Skortur á alþjóðlegri
löggjöf, áhrifaríkir þrýstihópar á
Vesturlöndum og græðgi mann-
skepnunnar valda því sem samtök
neytenda í Afríku kalla „eitur-
efnahryðverk í Afríku“.
Umhyggja fyrir umhverfinu er
viðhorf sem fest hefur rætur á Vest-
urlöndum m.a. fyrir áróðúr græn-
ingjasamtaka. En illa gengur að
finna varanlegar lausnir á því hvað
gera skuli við eitraðan og geislavirk-
an iðnaðarúrgang. Fyrirtæki eiga
sífellt erfiðara með að koma honum
fyrir á heimaslóðum vegna þess hve
almenningur er upplýstur. Því hafa
óprúttnir menn gripið til þess að
leigja land undir úrganginn af fá-
tækum íbúum Þriðja heimsins.
Samtök neytenda frá 18 Afrík-
uríkjum komu saman í Nairobí í
Kauphöllin í París:
Dupont
segir af sér
París, Reuter.
XAVIER Dupont, sem skipulagði
breytingar á starfsemi kauphall-
arinnar í París, hefur sagt af sér
sem stjórnarformaður kauphall-
arinnar eftir að hún hafði tapað
tapað 500 milljónum franka, 3,8
milljörðum fslenskra króna, vegna
eftirlitslausra viðskipta.
Fulltrúi frönsku stjómarinnar í
stjóm kauphallarinnar þurfti einnig
að segja af sér vegna þessa máls.
„Trúverðugleiki markaðarins er í
veði vegna þessa stórslyss," sagði
varastjómarformaður kauphallarinn-
ar, Regis Rousselle. „Við verðum að
koma á reglu í kauphöllinni og rann-
saka hvað gerðist."
Kenýa í gær og fordæmdu slíkan
kaupskap sem einkum hefur þrifist
í Afríku. íbúar a.m.k. fimm Afríku-
ríkja hafa tekið við sorpinu gegn
greiðslu en einungis Nígería og Gu-
inea hafa staðfest að slík viðskipti
hafí átt sér stað.
Upp komst um tilvist 1.200 tonna
af úrgangi í Nígeríu þegar landeig-
andi í hafnarbænum Kókó varð var
við illan þef í garðinum hjá sér.
Hann hafði þegið fé sem svarar
20.000 þúsund ísl. krónum fyrir að
geyma efnið fyrir ítalskt fyrirtæki.
Hluti úrgangsins er geislavirkur og
DAGBLAÐ sovéska hersins,
Krasnaja Zvezda sakaði í gær
Bandaríkjamenn og Atlantshafs-
bandalagið um að hafa aukið
hernaðarumsvif sín á norður-
heimskautinu til að vega á móti
upprætingu eldflauga í Evrópu.
I dagblaðinu segir að í áætlunum
bandaríska varnarmálaráðuneytisins
um norðurheimskautið sé gert ráð
fyrir stýriflaugum sem skotið er af
hafí. „Ljóst er að sumir Vestur-
landabúar tengja áætlanir um að
vega á móti upprætingu bandarískra
eldflauga í Evrópu við norðurheim-
skautið og norðlæg svæði.“
Blaðið segir að samkvæmt áætl-
hafa íbúar bæjarins verið fluttir á
brott. Efnin eru ættuð frá ýmsum
stórum fyrirtækjum í efnaiðnaði í
V-Evrópu og er PCB, sem komst í
fréttirnar á Islandi fyrir skemmstu,
þar á meðal.
Stjómvöld í Guineu rekja skógar-
dauða í landinu til iðnaðarúrgangs
frá Bandaríkjunum sem geymdur er
á eyju út af höfuðborginni Conakry.
Stjóm Nígeríu heldur því fram
að þessi útflutningur iðnríkja á eitur-
efnum sé ólöglegur en sérfræðingar
hjá Sameinuðu þjóðunum segja að
svo sé ekki. Því sé brýnt að setja
slíkum flutningum strangar lagaleg-
ar skorður.
unum Atlantshafsbandalagsins verði
meðal annars Tomahawk-stýriflaug-
um með kjamaoddum komið fyrir í
kafbátum og herskipum sem sigla
um norðurheimskautið. Að sögn
blaðsins fara æfingar ! notkun eld-
flauganna fram í Kanadahluta norð-
urheimskautsins, og blaðið bætir við
að sex eldflaugum hafí þar verið
skotið í slíkum æfíngum frá janúar
til mars. „Þessi undirbúningur vekur
mikinn ugg nú þegar þjóðir heimsins
vænta þess að samið verði um frek-
ari afvopnun í kjölfar samningsins
um upprætingu meðal- og skamm-
drægra kjamorkueldflauga," segir í
blaðinu.
v
•V
t
nmm
Vicxúv,
RjíJ íair
t
nm:
*wCx»ktá.»**T
I
ERTU MEÐ HÁRLOS EÐA FLÖSU?
HELST PERMANENT STUTT í HÁRINU?
Nú er komin á markað hér á íslandi hin frábæra lína frá Manex
sem leysir þessi vandamál. Nýju Manex hársnyrtiefnin gera miklu
meira en að gefa hárinu stundargrið. Nærandi prótinblanda í Manex
hártónik er náttúruleg jurtaupplausn, sem inniheldur 22 amínósýr-
ur, en þær ganga í hárlegginn og endurlífga, styrkja og bæta ástand
skemmds eða líflauss hárs, auk þess að stoppa hárlos, eyða flösu
og í 73% tilfella kemur það óvirku hári til að vaxa á ný.
Manex hársnyrtiefnin fást á eftirtöldum útsölustöðum:
Rakarastofan Papilla, Nýbýlavegi 22, Kópavogi.
Rakarastofan Papilla, Laugavegi 24, Reykjavík.
Rakarastofa Ágústarog Garðars, Suðurlandsbr. 10, Reykjavík.
Rakarastofan Klapparstíg 29, Reykjavík.
Rakarastofan Fígaró, Laugarnesvegi 52, Reykjavik.
Rakarastofa Ragga rakara, Vestmannaeyjum.
Heildsölubirgðir: AmbrÓSÍa hf., sími 680630.
IflNSÆLUSTU TÖLIfUR í EVRÓPU í DAG
IBM-PC SAMHÆFÐAR ÁSAMT FJÖLDA FORRITA OG AUKAHLUTA
STÓRKOSTLEG ÚTSALA!
síðustu AMSTRAD tölvurnar
Á GAMLA VERÐINU og AUKAAFSLÆTTI
Næsta sending á nýju \/eröi
TAKMARKAÐUR FJÖLDI
PC 1512 2 drif 14“ litaskjár
Afsláttarverð
kr. 69.900,-
Næsta sending
kr. 89.900,-
PC1640 MD HARÐUR DISKUR 20 MB
14“ sv/hv hágæðaskjár
EGA, HERCULES OG CGA kort
Afsláttarverð
kr. 99.000,-
Næsta sending
kr. 121.800,-
PC 1640 ECD harður diskur 20 MB
14“ hágæða iitaskjár EGA,
HERCULES og CGA kort
Afsláttarverð Næsta sending
kr. 129.000,- kr. 156.000,-
AMSTRAD DMP PRENTARI
Breiður vals A3, PC staðall
hraði 200 stafir pr. sek. NLQ gæðaletur.
Afsláttarverð Næsta sending
kr. 27.900,- kr. 37.900,-
GreiAslukjör 12 mán. raögreiöslur VISA - EURO.
Öllum AMSTRAD PC tölvum fylgir: (slensk handbók, MÚS - íslenskuöu GEM
valmyndaforritin: Graphic, Desktopog Paint teikniforrit.
ABILITY forritin: Ritvinnsla, súlu- og kökurit, Reiknivangur, Gagnasafn og Samskiptaforrit.
4 leikir: Bruce Loe, Dambuster, Wrestling og PSI 5 T.C. - o.fl.
-O
TÖU/ULOND
LAUGAVEGI 116-118 V/HLEMM. S. 621122.
öll verö miöast við staögr.
VERSLUN V/ HLEMM.S. 621122
Sovétríkin:
Saka NATO-ríki um
aukin hemaðarumsvif
á norðurheimskautinu
Moakvu, Reuter.