Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 37

Morgunblaðið - 15.06.1988, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988 37 Morgunblaðið/PJJ Frímann Frímannsson formaður Flugmódelafélagsins Þyts með nýja flugvöllinn í baksýn. Á innfelldu myndinni sést Matt- hías Á. Mathiesen stjórna ferðum flugmódels undir hand- leiðslu Einars Páls Einarssonar. Völlur flugmódelmanna tekinn í notkun í Hafnarfirði NÝR flugvöllur var nýlega tekinn í notkun sunnan við Hafnarfjörð þar sem áður voru öskuhaugar bæjarins. Hinn nýi flugvöllur Hafnarfjarðar er með tvær mal- bikaðar flugbrautir sem eru merktar í einu og öllu eftir gild- andi alþjóðareglum um merkingu flugbrauta, en stórar flugvélar mega samt vara sig á að lenda á vellinum því brautirnar eru að- eins 80 metra langar og 6 metra breiðar og eru þær eingöngu ætl- aðar flugmódelum. Þessi nýi flug- völlur er framtíðarsvæði Flugfmódelfélagsins Þyts, en í fé- laginu eru um 130 áhugamenn um flugmódelsmíði og módelflug. Vígsla flugvallarins fór fram við hátíðlega athöfn klukkan ellefu á laugardagsmorgun að viðstöddu fjöl- menni. Samgönguráðherra, Matt- hías Á. Mathiesen, flutti smá tölu áður en hann klippti á borða sem strengdur var þvert yfir brautarmót- um og að því loknu hóf fyrsta „flug- vélin“ sig til flugs, Laser 200 módel sem Þorsteinn Hraundal, Islands- meistari Flugmálafélags íslands í módellistflugi, stýrði. Jón Pétursson sýndi síðan spilstart með módelsvif- flugu og Gunnar Brynjólfsson lék listir sínar með þyrlumódel. Því næst flaug Einar Páll Einarsson skalamódel af Piper J-3 Cub í fylgd með Piper Cub í fullri stærð, TF- KAO sem Otto Tynes og Hörður Eiríksson flugu. Þótti mönnum þetta samflug takast mjög vel og frá jörðu séð var erfitt stundum að greina hvort flugtækið væri hvað. Þar á eftir sýndu tveir af okkar ágætu flugstjórum listflug yfir nýja flug- vellinum, Björn Thoroddsen á Pitts Special TF-BTH og Magnús Norðdahl á Zlin Trenermaster TF- ABC Að lokinni listflugsýningu var þremur heiðursgestum hátíðarinnar, Matthíasi samgönguráðherra, Guð- mundi Árna Stefánssyni bæjarstjóra og Pétri Einarssyni fugmálastjóra, boðið að kynnast því af eigin raun að stjórna flugmódeli með fjarstýr- ingu. Fylgdust nærstaddir vel með tilburðum þeirra þremenninga og voru menn sammála um að þeim hefði tekist ágætlega til. Með tilkomu nýju aðstöðunnar sunnan við Hafnarfjörð er væntan- lega búið að leysa flugvallarvanda- mál flugmódelmanna á höfuðborgar- svæðinu um fyrirsjáanlega framtíð. Það var haustið 1987 sem félagar í Flugmódelfélaginu Þyt fóru að huga að framtíðarflugsvæði. Geirsnefið við Elliðaárnar hefur verið helsta flugsvæði módelmanna síðustu árin en fer senn að verða óbrúklegt sök- um nálægðar ýmiskonar atvinnu- starfsemi þar sem notuð eru fjar- skiptatæki sem senda út á tíðnum sem geta haft truflandi áhrif á §ar- stýringarbúnað módelmanna með þeim afleiðingum að módelin láta ekki af stjóm og geta valdið slysum á fólki eða skemmdum á eignum. Sem betur fer hefur slíkt ekki gerst enn sem komið er en betra er að byrgja brunninn áður en barnið dett- ur ofan í hann. Fljótlega beindust augu Þytsfé- laga að svæði sunnan við Hafnar- fjörð. Fulltrúar félagsins fóru á fund bæjarstjómar Hafnarfjarðar sem tók vel í málaleitun þeirra og úthlutaði félaginu þetta svæði undir starfsemi flugmódelíþróttarinnar. Byggingar- framkvæmdir vora íjármagnaðar með því að 40 félagar úr Þyt lögðu fram krónur tuttuguþúsund hver en auk þess lögðu fjölmargir á sig gey- simikla sjálfboðavinnu. Ennfremur var leitað til velviljaðra manna um lán á tækjabúnaði og annað sem þyrfti við flugvallargerðina þannig að kostnaði var haldið í lágmarki. Sem fyrr segir hafa verið gerðar tvær malbikaðar flugbrautir en til hliðar hafa verið gerðar samliggj- andi grasbrautir. Eftir er að ljúka ýmsum framkvæmdum á svæðinu, s.s. gerð hreinlætisaðstöðu, sem von- andi tekst áður en langt um líður. Formaður Flugmódelfélagsins Þyts er Frímann Frímannsson en for- maður flugvallarnefndar er Ólafur Sverrisson. - PJJ Stærsti stál- stigi lands- ins í fjar- skiptamastrinu á Gufuskálum í gTein um Blönduvirkjun í Morg- unblaðinu á laugardag var því haldið fram að stálstigi í virkjun- inni væri sá lengsti á landinu. Það er ekki alls kostar rétt því stálstigi í fjarskfptamastrinu á Gufuskálum er 440 metra lang- ur. Mastrið á Gufuskálum var reist af bandarísku strandgæslunni árið 1960 og var í mörg ár hæsta mann- virki í Evrópu, að sögn Haralds Sigurðssonar verkfræðings hjá Póst og Síma. Það var ekki fyrr en sjón- varpsturnar fóra að rísa í Evrópu á sjötta áratugnum að fjarskipt- amastrið á Gufuskálum varð að láta undan síga. Til skamms tíma vora Indíánar fengnir til að mála ma- strið því þeir eru þeirri náttúru gæddir að finna ekki til lofthræðslu en það varð of kostnaðarsamt til lengdar. Síðan hafa íslendingar séð um að halda mastrinu snyrtilegu, sagði Haraldur Sigurðsson. -m Er " •$> happatalan §| þín? | BCCAD í WAr Gæöi á lágmarks verði QHiiT □M wc FVisch! Hreinlætisvörur fyrir baðherbergið: Salernishreinsilögur, sótthreinsandi steinar og lyktareyðir. "'iíúi Einkaumboð Islensk ///// Ameríska AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ Blaðið kemur ekki út næstkomandi laugardag vegna þjöðhátíðarföstudaginn 17. júní. Auglýsingar í sunnudasblað, 19. júní, þurfa að hafa borist auglýsingadeild fyrir kl. 16. fimmtudaginn 16. júní. BOÐSMÓT TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR1988 hefst á Grensásvegi 46, mánudaginn 20. júní kl. 20. Tefldarverða sjö umferðireftir Monrad-kerfi þannig: 1. umferð mánudag, 20. júní kl. 20.00 2. umferð miðvikudag, 22. júní kl. 20.00 3. umferð föstudag, 24. júní kl. 20.00 4. umferð mánudag, 27. júní kl. 20.00 5. umferð miðvikudag, 29. júní kl. 20.00 6. umferð föstudag, 1. júlí kl. 20.00 7. umferð mánudag, 4. júlí kl. 20.00 Öllum er heimil þátttaka í boðsmótinu. Umhugsunartími er 11/2 klst. á fyrstu 36 leikina, en síðan V2 klst. til viðbótar til að Ijúka skákinni. Engar biðskákir. Skráning þátttakenda fer fram í síma Taflfélagsins á kvöldin kl. 20-22. Lokaskráning verður sunnudag- inn 19. júní kl. 19-22. Taflfélag Reykjavíkur, Grensásvegi 44-46, Reykjavík, símar: 8-35-40 og 68-16-90. Svínakótelettur jÆÐI xjlli - GÆÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.