Morgunblaðið - 15.06.1988, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1988
61
■ VICTOR Esparrago, frá Úr-
úgvæ hefur verið ráðinn þjálfari
Valencia í 1. deild knattspymunnar
á Spáni. Hann lék lengi með lands-
liði Úrúgvæ, en þjálfaði lið Cadiz
í fyrra. Valencia hafnaði í 13. sæti
í deildinni í fyrra, en Esparrago
sagði að stefnan yrði sett á að vinna
sér sæti í UEFA-bikamum næsta
vetur.
■ ÁGÓÐALEIK, sem átti að
fara fram í Zimbabve, hefur verið
frestað. Úrvalslið Péle átti að
mæta Harare Dynamo og ágóðinn
átti að renna til rannsókna til vam-
ar alnæmis. FIFA hefur hinsvegar
bannað þennan leik. „Það eru svo
margir ágóðaleikir að við verðum
að fara að setja okkur einhver tak-
mörk,“ sagði Guido Tognoni, tals-
maður FIFA.
■ AÐALFUNDUR Breiðabliks
verður haldinn í félagsheimili
Kópavogs í kvöld, 15. júní, en ekki
15. febrúar eins og sagt var í blað-
inu í gær.
■ TENNISKLÚBBUR Vikings
var stofnaður fyrir skömmu. Til-
gangurinn er að efla og stuðla að
framgangi tennisíþróttarinnar með
því að efla unglingastarf og tennis-
kennslu. Starfsemi klúbbsins fer
fram á félagssævði Víkings í Foss-
vogi. Fyrsta verkefnið verður tenn-
isnámskeið dagana 20.-25. júní fyr-
ir alla aldurshópa. Þátttaka tilkynn-
ist eigi síðar en laugardaginn 18.
júní í síma 83245 á fimmtudag og
föstudag og í síma 33137 daglega
eftir kl. 19.
■ ÁLAFOSSHLAUP Frjáls
íþróttasambands íslands, sem átti
að fara fram 17. júní, fellur niður.
■ RACING Club, frá Arg-
entínu sigTaði Cruzeiro frá Bras-
ilSu í fyrri úrslitaleik liðanna í Suð-
ur-Ameríku bikarnum, 2:1 í gær.
Walter Fernandez og Miguel
Colombatti skoruðu mörk Racing,
en Robson skoraði mark Cruzeiro.
■ MARINA Kiehl, frá Vestur-
Þýskalandi, Ólympíumeistari í
bruni, hefur ákveðið að leggja
skíðin á hilluna. Hún er aðeins
23 ára og kom mjög á óvart er
hún sigraði i bruni á Ólympíu-
leikunum í Calgary í vetur, en það
hefur ekki verið talið besta grein
hennar. Hun vann sjö heimsbikar-
mót í svigi og stórsvigi, en ætlar
nú að snúa sér alfarið að námi í
iðnhönnun. Hún ætlar þó að byrja
á að fara í fjögurra vikna frí, en
það hefur hún ekki getað leyft sér
þau níu ár sem hún hefur keppt á
skíðum.
■ GOLFKLÚBBURINN Keilir
heldur opið öldungamót 17. júní.
Leiknar verða 18 holur með og án
forgjafar og skráning er að staðn-
um.
Marina Klehl hefur ákveðið að
leggja skíðin á hilluna.
■ HEIMSMEISTARINN í borð
tennis, Jiang Jialiang, frá Kína,
tapaði fyrir Svíanum Jörgen Pet-
ersson í undanúrslitum á opna
kínverska meistaramótinu í borð-
tennis, 17:21, 21:12, 16:21 og
17:21.
I í frásögn okkar af leik Vals
og Þórs í 1. deild karla í blaðinu
í gær var sagt að Þór hafi leikið
fyrst í 1. deild 1978, en hið rétta
er að Þór lék fyrst í 1. deild 1977.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
■ BRANN vann 3. deildar liðið
Varegg 9:1 í 1. umferð norsku bik-
arkeppninnar í knattspyrnu. Gunn-
ar Gíslason og félagar í Moss unnu
Örn, sem leikur í 3. deild, 1:0 eftir
framlengdan leik. Eitt lið í 1. deild
var slegið út ? 1. umferð — Sognd-
al, sem tapaði 3:2 fyrir Geilo, sem
er í 4. deild.
■ AÐALFUNDUR íþróttafé-
lags fatlaðra verður haldinn í kvöld,
15. júní, í Hátúni 12, Reykjavík.
■ ALBERTO MANCINI frá
Argentínu sigraði um helgina á
Grand Prix tennismóti í Bologna
á Italíu. Mancini, sem er aðeins
nítján ára, sigraði Emilio Sanchez
frá Spáni í úrslitum.
■ RAUÐA STJARNAN frá
Belgrad varð um helgina júgóslav-
neskur meistari í knattspymu eftir
fjögurra ára bið. Liðið varð tveimur
stigum á undan Partizan, sem varð
í öðru sæti.
■ GLASGOW Rangers tekur
ekki þátt í æfingamóti í Hollandi
í haust eins og fyrirhugað var. Forr-
áðamenn félagsins hafa ákveðið að
boða forföll þar sem þeir óttast að
ólæti áhangenda liðsins geti dregið
dilk á eftir; jafnvel stefnt þátttöku
þeirra í UEFA-keppninni næsta
vetur í hættu, en sem kunnugt er
fá ensk félög ekki að taka þátt í
Evrópumótunum þremur.
FOLK
DOMARAMAL / GUÐMUNDUR HARALDSSON
Aukaspymur
að kemur oft fyrir við fram-
kvæmd á aukaspyrnu, að
boltinn er ekki kyrr þegar auka-
spyma er framkvæmd, og þegar
dómarinn lætur endurtaka spyrn-
una heyrist oft hvein í leikmönn-
um og jafnvel áhorfendum og
finnst þeim dómarinn vera
fullsmámunasamur, en hvað ger-
ist ef dómarinn sleppur þessu, og
svo kemur enn annað atvik aiveg
eins, þá stendur dómarinn frammi
fyrir vandamáli, á hann líka að
sleppa seinna skiptinu? Nei, dóm-
arinn verður alltaf að láta endur-
taka spymuna ef boltinn er ekki
kyrr í aukaspymu. Leikmenn eru
fljótir að finna ef dómarinn er
ekki ákveðinn og ganga því á iag-
ið, og þá stendur dómarinn uppi
með vandamál, oft nýta iið sér
er þau fá dæmda aukaspymu, að
flýta framkvænidinni á auka-
spymunni og taka hana strax, þá
er mikið atriði að boltinn sé kyrr
er aukaspyman er framkvæmd.
Annað atriði verða leikmenn llka
að hafa í huga við hraðfram-
kvæmd á aukaspymum, það er
ef andstæðingarnir eru ekki
komnir í 9,15 m fjarlægð frá
knettinum og utan vítateigs, þar
til knetti hefur verið spyrnt út af
teignum. Knötturinn er í leik,
þegar hann hefur farið ummál
sitt og er kominn útaf teignum.
í þeim tilgangi að greina á milli
beinnar og óbeinnar aukaspymu,
skal dómarinn, þegar hann dæmir
óbeina aukaspyrnu, gefa það til
kynna með því að rétta handlegg
upp fyrir höfuðið. Hann skal halda
honum í þeirri stöðu, þar til spym-
an hefur verið tekin og þar til
knetti hefur verið leikið eða hann
snertur af öðmm leikmanni eða
þar til hann fer út af leikvelli.
Leikmenn, sem ekki koma sér I
rétta fjarlægð þegar aukaspyma
er tekin, verður að áminna og við
alla endurtekningu verður að vísa
þeim af leikvelli. Þess er sérstak-
lega krafist af dómuram, að til-
raunir í þá átt að tefja fram-
kvæmd aukaspymu með því að
fara nær knettinum en heimilað
er, skuli meðhöndlaðar sem mjög
alvarlegt leikbrot. Hafi einhver
leikmanna í frammi látæði, sem
ætla má að gert sé til að trufla
mótheija þegar aukaspyma er
framkvæmd, skal það meðhöndiað
sem óprúðmannleg framkoma og
hinum brotlega(u) veitt áminning.
Ef leikmaður spymir knetti ra-
kleitt í eigið mark úr beinni eða
óbeinni aukaspymu, skal dæmd
homspyma hafi knöttur komist í
leik. Ef um er að ræða auka-
spymu á eigin vítateig, þá skal
spyman endurtekin, þar sem
knötturinn fór aldrei í leik.
Ef leikmaður spymir knetti ra-
kleitt í mark mótherjanna úr
óbeinni aukaspymu skal dæmd
markspyma. Telji dómari af því
hagnað fyrir liðið, að aukaspyrna
sé tekin áður en mótherjar era
komnir í löglega fjarlægð frá
knettinum, skal það leyft, þó
knöttur snerti viljandi eða óvilj-
andi einhvern af mótherjunum.
Það er með ólíkindum hvað leik-
menn t.d. eins og I 1. deild era
fáfróðir um aukaspyrnuregluna.
Ég minnist þess sérstaklega er
Feyenoord, með Pétur Pétursson
I broddi fylkingar, kom hingað til
lands, og spilaði sinn fyrsta leik
á Laugardalsvellinum á móti
Akranesi. Það var nokkuð seint í
leiknum, dæmt var brot á Feyeno-
ord utarlega á kantinum. Bak-
vörður Akranesliðsins ætlaði að
senda boltann til baka á mark-
vörðinn, en það tókst ekki betur
en það að boltinn fór framþjá
markverðinum og síðan rétt fram-
hjá markinu þannig að Feyenoord
fékk homspymu. Eg dæmdi þenn-
an umrædda leik og ég gleymi
ekki viðbrögðum áhorfenda og því
síður viðbrögðum leikmanna
Akranesliðsins, þeir létu leik-
manninn sem aukaspymuna tók
óspart heyra það að hann hefði
næstum því verið búinn að skora
sjálfsmark. Ég fékk svo mikla
samúð með þessum ágæta leik-
manni, að þegar meðspilararnir
vora hættir að skamma hann, fór
ég til hans, og sagði honum, að
þótt boltinn hefði farið í markið,
hefði aðeins verið dæmd hom-
spyma. Við þessi tíðindi tók við
mikið bros, og hann var ekki lengi
að segja meðspilurum þetta, eins
og hann hefði alltaf vitað þetta.
En meiningin með þessari reglu
er sú, að hinn brotlegi hagnist
ekki á broti sínu, þess vegna skal
dæma homspymu, hvort sem
boltinn fer í markið eða aftur fyr-
ir endalínu.
Með dómarakveðju,
Guðmundur Haraldsson
Landsllölð I skfðagöngu hóf æfíngar í Fljótum í síðustu viku. Þeir eru
frá vinstri: Mats Westerlund, landsliðsþjálfari, Rögnvaldur D. Ingþórsson,
Sigurgeir Svavarsson, Baldur Hermannsson og Haukur Eiríksson.
Skíðagöngumenn
æfa í Fljótum
Landslið íslands í skíðagöngu
var á sinni fyrstu samæfingu
á þessu æfingatímabili undir
stjóm sænska þjálfarans, Mats
Westerlund, nú á dögunum.
Landsliðið skipa nú eftirtaldir:
Baldur Hermannsson, Siglufírði,
Haukur Eiríksson, Akureyri,
Rögnvaldur D. Ingþórsson,
ísafírði og Sigurgeir Svavarsson,
Ólafsfirði.
Æfíngamar stóðu yfír í sjö daga
og var æft tvisvar á dag og fór
önnur æfíngin á skíðum fram á
Lágheiði, en þar er enn gott skíða-
færi. Það er Skíðafélag Fljóta-
manna sem annaðist framkvæmd
æfinganna.
Ætla aö setja nýtt heimsmet
í hjólaskfðagöngu
í sumar og haust er áætlað að
skíðalandsliðið dvelji samtals í tvo
mánuði í æfingabúðum auk dag-
legra æfínga heima. í sumar ætla
landsliðsmenn að reyna við nýtt
heimsmet í hjólaskíðagöngu, en
núgildandi met er 1000 km. Til
þess að styrkja piltana fjárhags-
lega, mun Skíðasambandið beita
sér fyrir söfnun áheita bæði fyrir
og á meðan á göngunni stendur,
en ætlað er að hún fari fram í
Reykjavík í júlí.
A-stigs námskeid
í frjálsíþróttum
verður haldið dagana 18.-19. júní í ráðstefnusal ÍSÍ,
íþróttamiðstöðinni, Laugardal.
Leiðbeinandi verður Gunnar Páll Jóakimsson.
Skráning og upplýsingar á skrifstofu FRÍ, s. 685525.
Frœðslunefnd FRÍ.
ESSO meistaramótið
í frjálsíþróttum
fer fram dagana 25. - 27. júní.
Keppnin hefst kl. 14.00 laugard. og sunnud.,
en kl. 18.00 á mánud.
Keppt verður samkvæmt reglugerð FRÍ um
Meistaramót íslands ífrjálsiþróttum.
Þátttökutilkynningum skal skilað á keppniskortum og
póstleggja í síðasta lagi 16. júní eða skila 18. júní
til frjálsíþróttadeildar ÍR, c/oJóhann Björgvinsson,
pósthólf301,121 Reykjavík.
Frjálsíþróttadeiid ÍR.