Morgunblaðið - 07.07.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JULI 1988
13
Frá Hvammstangra. Morgunblaðid/Snorri Snorrason
Hvammstangahreppur 50 ára
Hvammstanga.
Sunnudaginn 10. júlí verður Hvammstangahreppur 50 ára. Af-
mælisins verður minnst með hátíðahöldum og gríni í bland og hefst
kl. 14 á föstudag með útimarkaði.
Hreppsnefnd Hvammstanga-
hrepps ákvað um sl. áramót að
minnast tímamótanna og skipaði 5
manna nefnd. Formaður hennar er
Sigríður Karlsdóttir. Síðar var val-
inn framkvæmdastjóri hátíðarinn-
ar, Örn Ingi, fjöllistamaður frá
Akureyri.
Dagskrá helgarinnar er í stórum
dráttum á þá leið að á föstudags-
kvöld verða opnaðar sýningar; á
myndvefnaði, sýning grunnskóla-
nema, myndlistarsýning og orku-
sýning Rafmagnsveitna ríkisins.
Laugardagurinn er með blandaða
dagskrá, aðallega í léttum dúr.
Vekjaraklukkan verður „dúndur-
skot“ kl. 8.00. Boðið er upp á sigl-
ingu á firðinum, morgunmat í sund-
lauginni, íþróttamót og knatt-
spymuleik. Síðdegis verður hljóm-
skálastemmning í garði kvenfélags-
ins og vígsla á göngubrú með til-
heyrandi atriðum. Þá verður af-
hjúpað listaverk sem fyrirtæki á
Hvammstanga gefa sveitarfélag-
inu. Verkið er unnið af Marinó
Bjömssyni, myndlistarmanni á
Laugarbakka, og hefur því verið
valinn staður á nýgerðu útivistar-
svæði við Hvammsá sunnan félags-
heimilisins.
Síðdegis á laugardag verður
matvælakynning fyrirtækja á
staðnum, hestamenn munu sýna
listir sínar og skák og bridskeppni
verður milli Hvammstanga og Þórs-
hafnar en milli þessara staða mun
stofnað formlega til vinabæja-
tengsla á hátíðinni. Eftir kvöldmat
verður sögusýning og mun þar sýnt
mannlíf frá fyrstu ámm staðarins,
einnig hljómleikar heimamanna og
gesta. Dansleikur verður um kvöld-
ið, ekkert aldurstakmark og ókeyp-
is inngangur en meðferð áfengis
óheimil.
Á sunnudag hefst hátíðin með
veglegri grillveislu kl. 11.00 í fög-
mm skógarreit. Guðsþjónusta verð-
ur kl. 13.30 í kirkjunni, en þar
munu fýrrverandi sóknarprestar
aðstoða við athöfnina ásamt sókn-
arpresti, séra Guðna Þór Ólafssyni.
Ólöf Pálsdóttir og Ragnar Bjöms-
son annast kórstjóm og aðra tón-
list. Að lokinni messu verður dag-
skrá á hátíðarsvæðinu, ræður, kór-
söngur, upplestur og revía sem er
leikin og sungin undir stjóm Amar
Inga.
Hátíðinni mun Ijúka með bama-
gríni, fallhlífarstökki, lúðrasveit og
fleim. Lúðrasveitin er skipuð nem-
endum Tónlistarskóla Vestur-
Húnavatnssýslu og er Hjálmar Sig-
urbjömsson stjómandi.Útvarp
verður starfrækt fyrir Hvamms-
tanga og nágrenni frá kl. 14.00 á
miðvikudag til sunnudagskvölds og
er tíðni útsendingar FM 101.5.
Verður þar flutt tónlist, auglýs-
ingar, viðtöl og ýmislegt eldra efni
sem til er á segulböndum frá staðn-
um.
Ljóst má vera að hátíðahöldin em
viðamikil fyrir 700 íbúa byggðarlag,
en mikið hefur gerst hér á sl. vik-
um. Húseigendur hafa málað hús
og snyrt lóðir, hreppsstarfsmenn
lagtfært opinber svæði, m.a. fjar-
lægt gamla kofa og girðingar svo
kílómetrum skiptir.
Markmið hreppsnefndar með fyr-
irhuguðum hátíðahöldum er að efla
vitund bæjarbúa fýrir umhverfi sínu
og skapa betri tengsl milli manna,
einnig burtfluttra staðarbúa. Af-
mælisnefndin væntir þess að sjá
sem flesta á staðnum nk. helgi og
ef veður helst óbreytt, verður af-
mæli Hvammstangahrepps ógleym-
anlegt. Karl
BÆTIÐ HEILSUNA MEÐ
INNHVERFRIÍHUGUN
Rannsókn sem birtist í hinu virta lækna-
tímariti „Psychosomatic Medicine“ sýndi
eftirfarandi:
55% færri krabbameinstilfelli
87% færri hjartasjúkdómatilfelli
30% færri smitsjúkdómatilfelli
87% færri taugasjúkdómatilfelli
hjá þeim sem iðkuðu íhugunartækni
Maharishi, Innhverfa íhugun.
Nýtt námskeiö hefst meö opnum kynningarfyrirlestri (aðgangur
ókeypis) í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30 i húsnæði félagsins f Garða-
stræti 17 (3. hæð).
íslenska íhugunarfélagid, sími 16662.
FLUGLEIDIR
Allar nánari
upplýsingar
gefa Flugleiðir
ísíma
25100
ogferðaskrifstofur.
TUYNNA
BROTTFÖR:
Flug og gisting í
tvær nætur á
Rosenvilla hóteiinu
fyrirkr. 15.990,-
Helmings afsláttur fyrir börn.
Möguleikar á fjölda skoðunar-
ferða, t.d. í
Arnarhreiðrið eða á slóðirTóna-
flóðs (The Sound of Music)
Verslaniropnarkl. 8-12 á
laugardögum.
Brottför frá Keflavík á föstu-
dögum8., 15., 22. og 29. júlí
kl. 17.30.
Brottförfrá Salzborg
á sunnudögum kl. 13.45. Komið
til Keflavíkur kl. 15.25. Sunnu-
daginn 17. júlí: Brottförkl.
12.45. Komið til Keflavíkur
14.25.
* Rosenvilla er 3ja stjörnu hótel.
Völ er á ódýrari og dýrari
gistingu.
FLUGLEIDIR