Morgunblaðið - 07.07.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988
25
Oryggisráð SÞ:
Arásinrædd
í næstu viku
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
ÖRYGGISRAÐ Sameinuðu þjóðanna mun koma saman á þriðjudag
í næstu viku að kröfu sljórnvalda í íran til að ræða árás bandaríska
beitiskipsins Vincennes á íranska farþegaþotu yfir Persaflóa á sunnu-
dag. Allir sem um borð voru, 290 manns, týndu lífi í árásinni. Sendi-
herra írana hjá Sameinuðu þjóðunum, Mohammad Ja’afar Mahlatti,
sagði í gær að tilgangur fundar Öryggisráðsins væri sá að tryggja
að slíkur atburður gerðist ekki aftur.
Mohammad Jaáfar Mahlatti hef- sig andvíga umræðum um árásina
ur krafist þess að stjórnvöld í
Bandaríkjunum sendi írönum form-
lega afsökunarbeiðni vegna árásar-
innar og að Bandaríkjamenn kalli
þegar í stað heim herafla sinn á
Persaflóa. íranir fullyrða að árásin
hafi verið gerð af yfirlögðu ráði en
bandarískir embættismenn segja
áhöfn skipsins hafa talið farþega-
þotuna íranska orustuþotu.
Bandaríkjamenn hafa ekki lýst
í Öryggisráðinu en áskilja sér allan
rétt til að beita neitunarvaldi verði
bornar upp ályktunartillögur. ír-
anski sendiherrann sagði á þriðju-
dag að hann útilokaði ekki að neit-
unarvaldi yrði beitt en stjórnvöld á
Bretlandi, sem jafnframt hafa neit-
unarvald í ráðinu, hafa fallist á
skýringar Bandaríkjamanna á til-
drögum árásarinnar.
Reuter
Lík tæplega 200 þeirra 290 sem týndu lífi í árás beitiskipsins Vincennes á írönsku farþegaþotuna hafa
fundist, að sögn stjórnvalda í íran. Erfitt hefur reynst að bera kennsl á þau og sýnt þykir að jarðnesk-
ar leifar sumra fórnarlambanna muni aldrei finnast.
r Reuter
Sendiherra írana hjá Sameinuðu
þjóðunum ræðir við blaðamenn á
þriðjudag. Hann fullyrti að
Bandaríkjamenn hefðu grandað
írönsku farþegaþotunni af yfir-
lögðu ráði.
Bandaríkin:
Hugað að
eftírmanni
Meese
Washington, Reuter.
EDWIN Meese, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hitti Ronald
Reagan, Bandarikjaforseta að
máli í gær. Rætt var um fyrir-
hugaða afsögn Meese og hugsan-
legan eftirmann hans.
Stjómmálaskýrendur segja að
reynst geti erfitt fyrir Reagan að
finna nýjan dómsmálaráðherra áður
en hann lætur af embætti eftir hálft
ár en ekki er talið ólíklegt að Harold
Christensen, varadómsmálaráðherra,
taki við í lok mánaðarins.
Meese hefur verið umdeildur allt
frá því hann var skipaður dómsmála-
ráðherra árið 1985 og upp á síðkas-
tið voru samstarfsmenn hans famir
að yfirgefa ráðuneytið í hrönnum til
að mótmæla því að hann sæti sem
fastast. Meese hefur verið sakaður
um óeðlileg afskipti af íjölmörgum
hneykslismálum, allt frá íran-
Kontra-málinu til vopnaframleiðslu-
hneykslisins í Pentagon.
í fyrrakvöld lét Meese svo loks
undan þrýstingi og sagði af sér. Af-
sögnin kemur Georges Bush, tilvon-
andi forsetaefni repúblikana, líklega
til góða í kosningabaráttunni í haust.
Árásin á írönsku farþegaþotuna:
Hugsanlegt að flugmaðurinn
hafi ekki heyrt viðvaranimar
Flugsljórinn gerði engin mistök, segir íranskur flugkennari
Teheran. Reuter.
ÍRANSKUR flugstjóri og kenn-
ari, er þekkti vel flugmann far-
þegaþotunnar sem Bandaríkja-
menn grönduðu yfir Persaflóa á
sunnudag, kvaðst í gær telja
óhugsandi að rekja mætti orsakir
harmleikisins til mistaka flug-
stjórans. Hann kvað á hinn bóg-
inn hugsanlegt að flugmaðurinn
hefði ekki heyrt aðvaranir
áhafnar beitiskipsins Vincennes,
sem grandaði Airbus-þotunni,
þar eð hann hefði að öllum likind-
um verið í stöðugu sambandi við
fjóra flugturna í þær átta mínút-
ur sem þotan var á lofti áður en
flugskeyti Vincennes hæfðu
hana. Aðvaranir skipsins hefðu
verið sendar út á alþjóðlegri
neyðarbylgju og hugsanlegt væri
að talsstöðvarnar tvær um borð
i þotunni hefðu ekki verið stilltar
inn á þá bylgjulengd.
Ali Mahdaviani, sem kennir verð-
andi flugstjórum að stjóma þotum
af gerðinni Airbus og flýgur sjálfur
þotum af Boeing-gerð, sagði í sam-
tali við fréttamenn í gær um borð
í farþegaþotu á leið frá Frankfurt
til Teheran, að hann teldi skýringar
bandarískra embættismanna á til-
drögum árásarinnar ósannfærandi.
Hann kvað hugsanlegt að flugmað-
urinn hefði ekki heyrt aðvaranir
áhafnar Vincennes en taldi útilokað
að þotan hefði verið komin af réttir
leið og að hún hefði lækkað flugið
er hún nálgaðist skipið. Hann sagð-
ist þvert á móti telja öruggt að flug-
vélin hefði enn verið að hækka flug-
ið er flugskeytin hæfðu hana. „Eg
tel að taugaspenna hafi einkennt
þá ákvörðun að granda þotunni,"
sagði Mahdaviani. „Þegar litið er
til þess að flugvélin var ekki í mik-
illi hæð og hversu stór skrokkur
hennar var, hefði hún átt að sjást
með berum augum frá skipinu,"
bætti hann við.
Hæfur flugmaður
Flugmaður þotunnar, sem hét
Mohsen Rezaian, var áður aðstoðar-
flugmaður Mahdavianis. „Hann var
hæfur flugmaður og hafði flogið frá
Bandar Abbas til Dubai að minnsta
kosti 25 sinnum,“ sagði Mahda-
viani. Rezaian hlaut þjálfun sína á
flugskóla í Orlando í Bandaríkjun-
um og hafði flogið þotum af Air-
bus-gerð i tvö ár. Áður hafði hann
stjórnað Boeing-þotum. Mahdaviani
sagði útilokað að Rezaian hefði á
nokkurn hátt ógnað öryggi farþega
sinna með gáleysislegu flugi. Þá
hefði hann og aldrei sýnt nokkrar
tilhneigingar í þá veru að líta á sjálf-
an sig sem píslarvott. „Píslardauði
og styijaldir fara saman en það er
með öllu ótengt farþegaflugi," sagði
Mahdaviani.
FUAVÖRN
SEM TRYGGIR
TÍU SINNUM
LENGRI ENDINGU
1. Viðurinn er settur í stálltólk sem síðan er
lofttœmdur til að fúavarnarefnið gangi bet-
ur inn í viðinn. Þá er fúavarnarefninu dœlt
i viðinn með yfirþrýstingi.
Húsasmiðjan hefur í þjónustu sinni sérstaka fúavarnarstöð, sem fylgir
ströngustu kröfum Norræna timburverndarráðsins, NTR. Fúavarnar-
stöðin þrýstifúaver viðinn alveg inn að kjarna þannig að hver fruma
viðarins er varin.
Við þrýstiviðarvörn aukast nýtingarmöguleikar viðarins og endingin
verður 5 til 10 sinnum lengri. Fúavörn í Fúavarnarstöð Húsasmiðjunn-
ar fylgir stöðlum NTR, sem skipta þrýstifúavörðum við í þrjá flokka.
Flokkar þessir, A, B, og M, gilda um stauravið, unninn við og óunn-
inn.
2. Geymirinn er tœmdur
með undirþrýstingi ogfúa-
varnarefnið situr eftir í
viðnum.
eins ysta borð viðarins.
Þegar þurrksprungur mynd-
ast, eða aðrir áverkar, seg-
ir sig sjálft hversu árang-
ursrík slík vörn er.
HUSA
SMIÐJAN
SÚÐARVOGI 3-5 SÍMI 687700