Morgunblaðið - 07.07.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988
31
*
Aheitaganga Leifs Leópoldssonar:
Gekk yfir Fljótsdals-
heiði á strigaskóm
Göngugarpurinn Leifur
Leópoldsson, sem ætlar að ganga
þvert yfir landið til styrktar
Krýsuvíkursamtökunum, leggur
i dag af stað yfir Jökuldalsheiði.
Ferðin hefur gengið samkvæmt
áætlun, þrátt fyrir tæknilega
örðugleika.
Leifur var staddur á Brú, við
Jökulsá, sem er síðasta byggða
bólið áður en hann leggur af stað
yfir hálendið, þegar blaðamaður
náði tali af honum síðastliðinn
þriðjudag. Hann sagði að vel hefði
viðrað til göngu það sem af er,
skýjað og svalt fyrst, en síðustu tvo
daga hefði verið glampandi sól og
gott útsýni. Allt hefði gengið sam-
kvæmt áætlun, utan það að göngu-
skór sem hann var á reyndust gall-
aðir. „Sólinn losnaði undan öðrum
skónum og ég varð að ganga_ á
strigaskóm yfir Fljótsdalsheiði. Ég
varð því dálítið þreyttur í ökklunum
af því að bera 30 kg á bakinu yfir
mosa og þúfur. En nýjir skór eru
á leiðinni og eiga að berast hingað
austur í tæka tíð.“
Hundurinn Vaskur unir sér vel á
göngunni og sagðist Leifur hafa
þurft að hafa hann í taumi þegar
fé var í nánd, því hann vildi ólmur
fara að smala.
Tilgangurinn með göngu Leifs
er að safna áheitum til styrktar
Krýsuvíkursamtökunum, en mark-
mið þeirra er að koma Krýsuvíkur-
skólanum í nothæft ástand og koma
þar á fót meðferðarstofnun fyrir
unglinga í vímuefnavanda.
James Belushi og John Ritter í hlutverkum sínum.
Bíóhöllin sýn-
ir „Real Men“
BIOHÖLLIN hefur tekið til sýn-
inga kvikmyndina „Real Men“
með James Belushi og John Ritt-
er í aðalhlutverkum. Leikstjóri
er Dennis Feldman.
Myndin segir frá Bob Wilson,
sem er gæflyndur maður og vill
ekki standa í stórræðum. En honum
er þó falið það verkefni að hafa
samband við geimverur sem hafa
undir höndum byssu eina er tortímt
getur nánast hverju sem er.
Nína Gautadóttir, listakona.
Nína Gauta-
dóttir hlýt-
ur heiðurs-
verðlaun
Alþjóða menningarsamtök
kvenna veittu Nínu Gautadóttur,
myndlistarkonu í París, heiðurs-
verðlaun sín fyrir skömmu.
Sparifé þitt rýrnar
ekki ef þú fjárfestir
í spariskírteinum
ríkissjóðs
;■ ■ f .' •
’ '*V.
Slt ' ' ■'• ■’V,
Það eru margar ástæður fyrir því að spariskírteini
ríkissjóðs eru einn vænlegasti kostur sparifjáreig-
enda í dag. Spariskírteini ríkissjóðs eru einföld og
jafnframt ein öruggasta ávöxtunarleið, sem völ er á.
Spariskírteinin eru verðtryggð, sem kemur í veg
fyrir að sparifé þitt rýrni og bera auk þess allt að
8,5% vexti. Og ekki má gleyma að spariskírteinin
eru tekju- og eignaskattsfrjáls eins og sparifé í
bönkum. Spariskírteini ríkissjóðs eru því án efa
rétti kosturinn fyrir þig.
Verðtryggð spariskírteini til sölu núna:
FLOKKUR I.ÁNSTÍMI ÁVÖXTUN GJALDDAGI
l.fl. D 3 ár 8,5% 1. feb.’91
l.fl. A 6/10 ár 7,2% l.feb.’94-’98
Alþjóða menningarsamtök
kvenna hafa þrjátíu sinnum gengist
fyrir sýningum þar sem eingöngu
má sjá listaverk eftir konur. Síðasta
sýning samtakanna var haldin í
Aþenu og átti Nína Gautadóttir tvö
málverk þar. Fyrir þau fékk hún
heiðursverðlaun samtakanna. Þetta
er í annað sinn sem Nína tekur þátt
í sýningu á vegum Alþjóða menn-
ingarsamtaka kvenna.
SJDVÁ
Ávöxtun ríkisvíxla er nú
allt ai 40,3% á ári.
Nú eru forvextir á ríkisvíxlum 32,5% sem jafngildir
40,3% eftirá greiddum vöxtum miðað við 90 daga
lánstíma. Ríkisvíxlar eru örugg og arðbær leið til að
ávaxta skammtímafjármuni.
Spariskxrteini ríkissjóðs fást í Seðlabanka íslands og
hjá löggiltum verðbréfasölum, sem m.a. eru við-
skiptabankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús um Iand
allt og aðrir verðbréfamiðlarar. Ríkisvíxlar fást í
Seðlabanka íslands. Einnig er hægt að panta þá þar,
svo og spariskírteinin, í síma 91-699863, greiða
með C-gíróseðli og fá víxlana og spariskírteinin síð-
an send í ábyrgðarpósti.
RIKISSJOÐUR ISLANDS