Morgunblaðið - 07.07.1988, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Trésmiðir
- byggingamenn
Byggingadeild Hagvirkis hf. óskar að ráða
vana menn til eftirtalinna starfa:
1. Trésmiði í mótavinnu.
2. Trésmiði í innivinnu.
3. Kranamenn á byggingakrana.
4. Kranamann á bílkrana.
5. Verkamenn í byggingavinnu.
Mikil vinna framundan. Góður aðbúnaður á
vinnustöðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Pálsson
á skrifstofu Hagvirkis, Höfðabakka 9, sími
673855.
HAGVIRKI HF
SfMI 53999
Pípulagninga-
meistari óskast
Vaxandi fyrirtæki á góðum stað úti á landi,
með næg verkefni, vantar pípulagninga-
meistara, sem gæti orðið meðeigandi eftir
umsaminn reynslutíma.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
fyrir 12. júlí merktar: „Gott tækifæri".
Bifreiðastjórar
Viljum ráða nú þegar bifreiðastjóra til sumar-
afleysinga á strætisvögnum okkar. Vakta-
vinna.
Upplýsingar eru gefnar í símum 20720 og
13792, og á skrifstofu okkar, Skógarhlíð 10.
Landieiðir hf.
Laus staða
Umsóknarfrestur um stöðu sérkennara við
Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands er
framlengdur til 20. júlí nk.
Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið.
5.júlí 1988.
Isafjörður
Blaðbera vantar víðsvegar um bæinn til
' sumarafleysinga.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma
94-3884.
Starfsfólk
Óskum eftir að ráða tvo röska og hressa
starfskrafta í verslun okkar á Laugavegi 13.
Umsóknum sé skilað á auglýsingadeild Mbl.
merktar: „L - 4898“ fyrir 9. júlí nk.
Habitat,
Laugavegi 13,
101 Reykjavík, sími: 625870.
Járniðnaðarmenn
óskast
Óskum eftir vélvirkjum, rennismið eða mönn-
um vönum járniðnaði.
Upplýsingar í síma 51288.
VELSMÐJA
PÉTURS AUÐUNSSONAR
Óseyrarbraut 3,
Hafnarfiröi,
sími 51288.
Atvinna óskast
19 ára nema bráðvantar vel launaða vinnu.
Get byrjað strax!
Upplýsingar í síma 21032 frá kl. 9-12 og á
kvöldin.
Trésmiðir ath.
Óskum að ráða trésmiði vana uppslætti.
Góður aðbúnaður og rífandi uppmæling fyrir
fullfríska menn.
Nánari upplýsingar í síma 641488.
HAMRAR
Vesturvör 9 — 200 Kópavogi
Sími 91-641488
Tölvufræðingur
Tölvufræðingur óskar eftir góðri vinnu. Hef
starfsreynslu.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 15.
júlí merkt: „O - 2910“.
Sveinn bakari
óskar eftir bökurum, bakaranemum og að-
stoðarmönnum í bakarí.
Upplýsingar í síma 71667.
;$pEtnn*í$afeari
(iKI N'AnVIi !
'lMI
BAKARÍ — KONDITORI — KAFFI
Fiskeldi
Rannsóknamaður óskast til starfa á sviði fi-
skeldis.
Upplýsingar gefur Vigfús Jóhannsson á Veiði-
málastofnun í síma 621811 eða 666380.
Kennarar
Enn vantar kennara í Grunnskóla Patreks-
fjarðar. Kennslugreinar: Almenn kennsla,
íþróttir og smíði. Við útvegum íbúð og greið-
um flutning á búslóð.
Hafið samband sem fyrst í síma 94-7605 eða
94-1222.
Skólanefndin.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ A AKUREVRI
Staða reynds aðstoðarlæknis við geðdeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er laus
til umsóknar.
Nánari uppl. veitir yfirlæknir deildarinnar,
Sigmundur Sigfússon, í síma 96-22100.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins, Halldóri Jónssyni.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda:
Margir telja vinnslukvóta
verða að fylgja veiðikvóta
FÉLAG rækju- og hörpudiskframleiðenda segir í fréttatilkynningu,
sem Morgunhlaðinu hefur borizt, að þrátt fyrir ágreining innan
félagsins um hámarksvinnslukvóta á verksmiðjur telji margir reynd-
ir framleiðendur hann nauðsynlegan í kjölfar veiðikvóta á úthafs-
rækju. Fer fréttatilkynning félagsins hér á eftir:
„Að gefnu tilefni í fjölmiðlum
vill stjóm Félags rækju- og hörpu-
diskframleiðenda taka fram, að
þrátt fyrir ágreining innan félagsins
um svonefndan hámarksvinnslu-
kvóta telja margir reyndustu fram-
leiðendur í félaginu stýringu rækju-
vinnslunnar nauðsynlega í kjölfar
þess að veiðikvóti var settur á út-
hafsrækju — alls 36.000 tonn. í því
sambandi má minna á, að félagið
hefur oft gagnrýnt, að of mörgum
nýjum aðilum hafi verið veitt
vinnsluleyfi undanfarin ár.
Vegna misjafnrar umfjöllunar í
fjölmiðlum um setningu reglugerð-
ar sjávarútvegsráðuneytisins um
hámarksvinnslukvóta á rækjuverk-
smiðjur vill stjóm Félags rækju- og
hörpudiskframleiðenda minna á eft-
irfarandi staðreyndir um afskipti
félagsins af þessu máli:
1. Félagið var sammála um það á
sl. hausti að óska eftir því við
stjómvöld, að það fengi í sinn
hlut helming fyrirhugaðs veiði-
kvóta á úthafsrækju, eða 18.000
tonn.
2. Samkomulag var um það í stór-
um dráttum eftir hvaða reglum
slíkur kvóti skyldi skiptast milli
verksmiðja.
3. Þessi ósk félagsins náði ekki
fram að ganga. Stjórnvöld vom
henni mótfallin, þar sem megin-
reglan væri sú, að veiðikvóta
væri úthlutað til skipa.
4. Við umræður á Alþingi um frv.
til laga um stjóm fiskveiða lýsti
sjávarútvegsráðherra yfir því sl.
haust, að hann væri reiðubúinn
að setja reglur um stýringu
rækjuvinnslunnar með setningu
reglugerðar um hámarks-
vinnslukvóta gegn því að tillaga
um að framleiðendur fengju
helming veiðikvóta, sem ýmsir
þingmenn studdu, yrði dregin til
baka.
5. I kjölfar þessa kom upp veruleg-
ur ágreiningur í félaginu um
þessi áform um hámarks-
vinnslukvótann. A félagsfundi í
febrúar var samþykkt tillaga
með 18 atkvæðum gegn 14 að
fara þess á leit við ráðherra að
hann setti ekki slíka reglugerð.
6. Ráðherra tjáði forráðamönnum
félagsins að slíkar samþykktir
gætu ekki ómerkt fyrri ummæli
hans á Alþingi og myndi hann
í samræmi við þær setja slíkar
reglur. Hann ítrekaði þá enn
óskir sínar um samráð við félag-
ið í þessu efni.
7. Stjóm félagsins taldi rétt að
verða við þeim tilmælum ráð-
herra og kaus Gunnar Þórðar-
son, fyrrv. formann félagsins,
Óttar Yngvason, fyrrv. vara-
mann í stjóm, og Lárus Jónsson,
framkvæmdastjóra, til þess að
hafa á hendi viðræður eða sam-
ráð við ráðuneytið um þetta mál.
8. Drög að reglugerð voru lögð sem
trúnaðarmál fyrir fyrrverandi
stjórn í maí sl. um margnefnda
reglugerð og óskað eftir umsögn
hennar. Meirihluti stjórnarinnar
sendi ráðuneytinu efnislega um-
sögn um þau drög.
9. A aðalfundi félagsins 10. júní
sl. lagði svo ráðherra fram önnur
drög að reglugerðinni. Þessi
drög voru send öllum þeim sem
voru fullgildir félagar, en höfðu
ekki mætt á þessum aðalfundi,
þótt margir þeirra hefðu sent
umboð til viðstaddra til þess að
fara með atkvæði sitt. Ekki er
vitað til þess að efnislegar at-
hugasemdir hafi borist frá þess-
um aðilum.
Þetta eru meginatriði afskipta
Félags rækju- og hörpudisksfram-
leiðenda af setningu reglna um
hámarksvinnslukvóta verksmiðja,
sem vinna úthafsrækju.