Morgunblaðið - 07.07.1988, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ 1988
51
Þessir hringdu . .
Styttar hrollvekjur
14 ára hrollvekjuaðdáandi
hringdi:
„Mig langar til að kvarta yfir
því að Kvikmyndaeftirlitið klippir
út mest hrollvekjandi atriðin úr
hryllingsmyndböndum. Maður sér
e.t.v. mynd úr einhveiju atriði
aftan á myndbandahulstrum sem
svo kemur ekki í myndinni. Ágæt-
isdæmi um þetta er mynd sem
er aftan á hulstrinu utan um
myndbandið „Robocop“, það atriði
sem þessi mynd er úr er ekki í
myndinni. Þetta finnst okkur
hrollvekjuunnendum ótækt og
viljum við fá myndirnar óstyttar,
því oft eru klippt út atriði sem
skipta miklu máli fyrir söguþráð
myndarinnar.“
Emil í Kattholti
og lækjarstíflur
Kata hringdi:
„Mig langar til að spyija Leik-
félag Hafnarfjarðar hvort þeir
ætli að taka aftur til við sýningar
á leikritinu Emil í Kattholti. Nú
standa bæjaryfirvöld fyrir ein-
hveijum framkvæmdum í hús-
næði leikfélagsins og virðist allt
vera á huldu hvenær starfsemin
hefst á ný. Leikritið Emil í Katt-
holti naut feikilegra vinsælda allt
frá frumsýningu til síðustu sýn-
ingar, fólk kom víða að og upp-
selt var á allar sýningar.
Einnig langar mig til að fá
upplýsingar um hveijir eru ætíð
að stífla lækinn fyrir krökkunum
í Setberginu í Hafnarfirði. Krakk-
amir þar hafa ræktað þar litla
fiska í tvö ár en undanfarið hefur
einhver verið að stífla lækinn og
dauðir fiskar liggja eins og hrá-
viði í uppþornuðum lækjarfarveg-
inum.“
Ljósmyndavél
Elín Óskarsdóttir hringdi:
„Hjá mér og fjölskyldu minni
er í heimsókn 16 ára jórdönsk
stúlka sem býr í Bandaríkjunum.
Á sunnudaginn 3. júlí vorum við
á leið úr Þórsmörk og stönsuðum
til að taka myndir af skriðjöklin-
um við jökullónið. Þar varð
myndavél stúlkunnar eftir.
Vélin er svört, af Minolta-gerð
í svörtu hylki. Vélin og filman sem
geymir minningar úr ferðinni eru
stúlkunni afar dýrmætar og við
vonum að heiðarlegir vegfarendur
hafi fundið vélina og hringi í síma
33872, Elín, eða 685028, Þráinn.“
Kápuvíxl
Þann 17. júní var tekin kápa í
misgripum í veitingahúsinu A.
Hansen í Hafnarfirði. Kápan sem
tekin var er hvít með svörtum
doppum, en sú sem eftir varð er
gul, í öðru númeri og alls ólík í
sniðinu. Sá sem tók kápuna er
beðinn að hrista af sér drungann
og skila kápunni í A. Hansen og
fá sína kápu í staðinn eða hringja
í Jórunni í síma 54055.
Páfagauksungi
Hvítur páfagauksungi með
nokkrum bláum og gráum fjöð-
rum tapaðist úr húsi í Fossvogi
4. júlí. Þeir sem hafa séð til ferða
hans eða skotið skjólshúsi yfir
hann eru vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 83352.
S K Y R T U R
verð kr. 1.495
HU GLEIÐIN G AR Á MIÐJU SUMRI
Ágæti Velvakandi.
Nú um þessar mundir, þegar
kraftar móður náttúru eru í algleym-
ingi fá böm jarðar fyllilega notið
þess að vera til í starfi sem leik, vinna
með sjálfu lífinu, hvar sem það fyrirf-
innst með því að hlúa að gróðri jarð-
ar svo hann megi verða augnaþing
og blessun og auðna megi af hljót-
ast. Það gerir þau aftur betri en
áður og verða þau að lokum málsvar-
ar ljóss og fijómagns er margur
Týndur
köttur
Þrettán ára gömul læða tapaðist
frá Bergstaðastræti 28b mánudag-
inn 27. júní. Hún er hvít og grá-
bröndótt með dökka rönd á baki og
í rófu. Eins er hún bröndótt fyrir
ofan augu og niður fyrir vinstra
auga. Hægra eyra hennar vísar nið-
ur.
Hennar er sárt saknað. ef ein-
hver gæti gefið upplýsingar um
hana væri það vel þegið. Hún er
gjörn á að pota sér niður í kjallara
eða skúra. Það væri vel þegið ef
fólk í hverfinu vildi athuga í húsum
sínum. Hún er merkt og gegnir
nafninu Lóra, en er mjög stygg.
Símar hjá eigendum hennar eru
10539 og 32877. Fundarlaunum
heitið.
kann að meta og ef til vill léttir ein-
um og einum lífsgönguna - það er
eðli og sá eiginleiki sem sönnum
náttúrubörnum er gefinn á hveijum
tíma þegar raddir náttúrunnar eru í
hámarki frá hafi til heiða, er blá-
ferskur himinn hvelfist yfir í mikil-
leik víðáttu sinnar og sólbirtu allri,
nú á miðju sumri...
Niður þess og stolt gefur það fyrir-
heit er margur þráir svo mjög, en
það er sá boðskapur að ef sá hinn
sami - þessi hópur fólks - vilji lifa
lífinu lifandi, eru tækifærin til þess
ótalmörg, þar sem sú greind og vit
sé til staðar sem móðir náttúra hafi
gefið og hún bíði því í ofvæni að
sérhveijir þeir sömu geti notið þess,
notið ávaxtanna og geti því sagt af
öllu hjarta: „Berðu mig til blómanna
í birtu og yl“, en í framkvæmd sam-
einist það þeim hóp sem eru vinir
náttúrunnar - vinir sannleiks og frið-
ar.
Birtuþing niðar við ufsir - um-
hverfi allt, sem er mismunandi eins
Ágæti Velvakandi.
Nú þegar íslendingar fara þús-
undum saman til Evrópulanda og
margir í fyrsta sinn, datt mér í hug
að mæla með góðum hótelum sem
ég hef gist. 011 eru þau á besta stað
í miðborgum (central) og verð er í
meðallagi, sum tiltölulega ódýr mið-
að við önnur sem eru lítið betri.
Þau eru öll við mitt hæfi og þitt,
ef þú ert venjulegur launþegi.
í Osló: Stefan hótel, frábær morg-
unverður.
í Kaupmannahöfn: Þar mæli ég
með Hebron og Saga-hótel, ágætis
morgunverður.
í Miinchen: Ég mæli með Metropol,
Haberstuch, en ódýrast í miðborg-
inni er „Krónprins".
og gengur og gefur lífsheild og nátt-
úrufari öllu þá snjöllu heildarmynd
svo augnaþing er að, lykill þeirrar
auðnu er hver sá fær notið sem í
eðli sínu er bam náttúrunnar, m'al-
svari birtu og fijómagns alls, þeirrar
lífheildar sem um þessar mundir er
viðast hvar í hámarki.
í þann mund er lífssvölur fljúga
til heiða og nokkrir svanir hraða sér
um sólhiminn að áfangastað þar sem
hver sem vill getur fundið þann frið
og ró sem kosið er, grösin heyrast
spretta og ilmur jarðar ómótstæði-
legur - lítill fjallalækur leikur við
hleina og gefur röddum náttúrunnar
gildi og minnir á að fegurðarþættir
náttúrunnar eru margvíslegir og
óviðjafnanlegir.
Þegar allt virðist í blóma frá hafi
til heiða njóta vinir lífsins, böm
náttúrunnar, þess að vera til og beina
öðmm áleiðis til farsældar í allri gleði
sinni við sólfar, nær miðjum þeim
degi er sérhver fær notið með lífsleiki
heilbrigðis og gróðurs að leiðarljósi
nú um þessar mundir auðnustunda.
í Vínarborg: Admiral og Hótel
Fuch.
í V-Berlín: City Hotel og Pension
Austria (eða hótel)
í Köln: Eg mæli með Hotel Domg-
arten í Domstrasse 26, rétt við
kirkjuna.
Öll hótel í Þýskalandi og Aust-
urríki em með svipaðan morgun-
verð, allgóðan, nema „lúxus“hótelin
sem em með hlaðborð en þá kostar
gisting sitt.
Vonandi koma þessar upplýsing-
ar einhveijum að notum því óþarfi
er að láta útvega sér rándýr hótel.
Góða ferð.
Kær kveðja,
Kristinn Sigurðsson.
Góð hótel erlendis
VIÐLEGUBÚNAÐUR í ÚRVALI:
OG SÓLBAÐIÐ
Vandaðir svefnpokar, dýnur, vindsængur og bakpokar
iútileguna.
Sólbekkir.stólar og borð i sumarbústaðinn.tjaldió ogá svalirnar.
Fellitjöld og göngutjöld, m.a. Tjaldborgartjöldin vinsælu, sér-
hönnuð íyrir íslenskar aðstæður. Hagstætl verð.