Morgunblaðið - 14.07.1988, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 14.07.1988, Qupperneq 44
44 MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988 Kríst/án Guðmunds- son-Minning Fæddur 21. nóvember 1902 Dáinn 27. júnl 1988 Með línum þessum er minnst Kristjáns Guðmundssonar verka- manns. Lengst af stóð heimili hans á Vesturgötu 66 (Höfn) á Akra- nesi. Ættir sínar rakti Kristján hins vegar vestur í Dýraflörð. Hann var fæddur á Hrauni í Keldudal 21. nóvember 1902, son- ur Guðmundar Guðmundssonar og Kristínar Aðalsteinsdóttur, er þar bjuggu. Guðmundur drukknaði árið 1912. Þá tvístraðist Qölskyld- an. Kristján var tekinn til fósturs hjá hjónunum Jóni Guðmundssyni og Ástríði Eggertsdóttur í Höll í Haukadal. Þar ólst Kristján upp til fullorðinsára við hin hefðbundnu störf til lands og sjávar. Þann 18. júní 1933 kvæntist Kristján Margréti Bjamadóttur frá Kirkjubóli í sömu sveit, elstu dótt- ur hjónanna þar, Bjama M. Guð- mundssonar og Guðmundu M. Guðmundsdóttur. Á Kirlq'ubóli áttu þau Margrét og Kristján heimili sitt um sjö ára skeið. Hann stund- aði búskap á Kirkjubóli. Hugur þeirra beggja munu hafa staðið til staðfestu og frekari starfa í heima- sveit, en atvikin höguðu því svo að árið 1940 fluttu þau hjónin til Akraness, þar sem þau bjuggu æ síðan. Þar stundaði Kristján sjóinn fyrst í stað, en starfaði síðan sem verkamaður, lengst af við Se- mentsverksmiðrju ríkisins. Þar vann hann raunar allt til ársins 1979. Kristjáni og Margréti varð ekki bama auðið. Hins vegar fóstruðu þau upp bróðurson Margrétar, Bjama Vésteinsson. Bjami er byggingafræðingur, kvæntur Steinunni Sigurðardóttur hjúk- runarfræðingi og búa þau á Akra- nesi ásamt bömum sínum tveimur, Margréti og Sigurði. I uppvexti mínum voru Margrét og Kristján árlegir aufúsugestir á Kirkjubóli. Kannske er ekki rétt að tala um gesti, því í augum okk- ar voru þau miklu fremur heima- fólk, sem aðeins hafði brugðið sér í lengri ferð suður á land en al- mennt gerðist. Hvað Kristján snerti byggðist þetta viðhorf okkar á mörgu: Áhugi hans á öllu því sem á bænum gerðist var mikill og ein- lægur. Úr fjarska fylgdist hann vel með málum þar — hann gladd- ist ef vel gekk, og rétti fram hjálp- arhönd, þegar þyngra varð fyrir fæti. í sumarheimsóknum á Kirkju- bóli gekk hann til búverka með heimafólki, og setti ferskan blæ á önn daganna; hress, drífandi og oftar en ekki að velta því fyrir sér hvað betur mætti fara, hvemig vinna mætti verkin haganlega. Þá sem endranær var hann óragur við að setja fram hugmyndir og tillög- ur, og hann naut þess að rökræða þær og reyna. Á bak við leyndist einlægur áhugi á því að búskapur- inn á Kirkjubóli blómgaðist og að heimiiisfólkinu þar mætti líða sem best. í bamsminni er mér til dæm- is leitin að nothæfri neysluvatns- lind, þegar koma átti sjálfrennandi vatni inn í bæinn. Kirstjáni dugði ekki að sitja sem sumargestur inni í bæ og bollaleggja um málið. nei, skóflu fékk hann sér, og gróf djúp- ar holur, ófáar, í leit að góðu vatni. Sú ieit auðveldaði verkið og flýtti mjög fyrir því. Það var fjarri Kristjáni að gera sér mannamun. Hann átti erindi við alla. Þess nutum við krakkam- ir. Við okkur talaði hann sem full- orðið fólk, þótt líka gæti hann bmgðið duglega á leik, gjaman með græskulausri stríðni, sem fékk blóðið til að renna hratt í ungum æðum. Lítið atvik frá Kirkjubóli riljast upp, eitt af mörgum: Á síðkvöldi í ágúst dregur Kristján fram gamalt silunganet og stefnir okkur strákunum, systkinabömum Margrétar, með sér niður að Kirkjubólsá. Þar er netið lagt, og við það fær hver sitt hlutverk. Kristján sér til þess. Nóttin varð stutt, og morgunstundirnar ætluðu aldrei að líða. Loks er vitjað um; netstúfurinn reynist með fjórtán vænum silungum. Strákaliðið skelfur af spennu og ákafa. Kristj- án kennir hveijum og einum til verka — hvert orð og handbragð er tekið sem lögmál. Montnir héld- um við heim. Upp frá þessu töldum við okkur kunna að veiða silung. Almenn málefni æskubyggðar- innar við Dýrafjörð voru Kristjáni alla tíð hugstæð. Hann gerði sér far um að fylgjast með þeim allt til síðustu stundar. Því var það venja hans í sumarheimsóknum þar, að fá mág sinn, Knút á Kirkju- bóli, í ferðir með sér um sveitina og til Þingeyrar til þess að heilsa upp á gamla kunningja þar. Vegna þess, hve auðvelt hann átti með að kynnast fólki, bættust honum sífellt nýjir kunningar í hópinn. Þannig fylgdist hann með þróun byggðarlagsins, þótt fjarri byggi. Spjall við Kristján um þessi mál var því ekki gróið í „gamla daga“. Hann vissi líka vel um það sem nýrra var. Mátti maður sannarlega hafa sig allan við að láta Kristján ekki reka sig á stampinn, hvað t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR BÆRINGSSON, Bjarkagötu 8, Patreksfirði, lést á heimili sínu þann 12. júlí. Hraf nhildur Ágústsdóttir, Gfsli Ólafsson, Kristfn Gfsladóttir, Bœring Ólafsson, Guðbjörg Pétursdóttir, Ágúst Ólafsson, Nanna Leifsdóttir og barnabörn. t Eiginmaður minn og faöir okkar, RAGNAR KETILSSON, Vfk f Mýrdal, er lést þriðjudaginn 5. júlí, verður jarösunginn frá Víkurkirkju laug- ardaginn 16. júlí kl. 14.00. Guðrfður Unnur Salomonsdóttir, Kristfn Sigrún Ragnarsdóttir, Karl Friðrik Ragnarsson, Jón Þór Ragnarsson. t Systir mín, VALFRÍÐUR ÁGÚSTA ÞÓRÐARDÓTTIR, lést 21. júní á Dvalarheimilinu Fellsenda. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum góða aðhlynningu. Fyrir hönd aðstandenda, Hrefna Þórðardóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, ÞÓRARINN ÞORKELSSON, Dyngjuvegi 17, lést í Landspítalanum 12. júlí. Sigrfður Björnsdóttir, Erla Þórarinsdóttir, Sævar Karl Ólason, Frfða Björg Þórarinsdóttir, Óli Elvar Einarsson og barnabörn. t BJÖRN STEFÁNSSON fyrrum póstur og bóndi á Kálfafelli, verður jarðsetturfrá Kálfafellskirkju laugardaginn 16. júlíkl. 14.00. Eiginkona, börn og fjölskyldur þeirra. t Faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, BJÖRN SIGURBJÖRNSSON vólstjóri frá Siglufirði, Geitlandi 37, lést í Borgarspítalanum 7. júlí. Jarðsett verður frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. júlí kl. 10.30. I Sigrfður Björnsdóttir, Oddgeir Sigurðsson, Fjölnir Björnsson, Eva Gestsdóttir. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA SIGURJÓNSDÓTTIR húsfreyja, Byggðarhorni, Sandvfkurhreppi, Árnessýslu, sem lést 10. júlí sl., verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardag- inn 16. júlí kl. 13.30. Jarösett veröur að Laugardælum. Geir Gissurarson, Gissur Geirsson, Ásdfs L. Sveinbjörnsdóttir, Úlfhildur Geirsdóttir, Sigvaldi Haraldsson, Hjördfs Geirsdóttir, Þórhallur Geirsson, Gfsli Geirsson, Ingibjörg K. Ingadóttir, Brynhildur Geirsdóttir, Kristján Einarsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRHILDUR BÁRÐARDÓTTIR, Ásavegi 2, Vestmannaeyjum, sem lóst miðvikudaginn 6. júlí, verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 16. júlí kl. 14.00. Birgir Sfmonarson, Klara Bergsdóttir, Sigrún Sfmonardóttir, Eðvarð Jónsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Faðir minn, tengdafaðir og afi okkar, BRYNJÚLFUR JÓNSSON prentari, Brekkutúni 18, sem andaðist fimmtudaginn 7. júlí, verður jarðsunginn frá Kópa- vogskirkju föstudaginn 15. júlí kl. 10.30 f.h. Anna Kristfn Brynjúlfsdóttir, Elfas Snæland Jónsson, Jón Hersir Elfasson, Úlfar Harri Elfasson, Arnoddur Hrafn Elfasson. varðaði staðreyndir um tíðarfar, aflabrögð, heyskap og fénaðarhöld við Dýrafjörð, þegar fundum bar saman. Ekki naut Kristján langrar skólagöngu frekar en jafnaldrar. I daglegum samskiptum mátti þó ætla að svo hafí hins vegar verið. Hann hafði yfírgripsmikla þekk- ingu á málefnum samfélagsins, einkum atvinnu- og velferðarmál- um. Á þeim sviðum fylgdist hann með af einlægum áhuga, tók virk- an þátt í félasstarfí og sterk eðlis- greind hóf hann yfír innantómt skvaldur í allri umræðu. Hef ég fáa hitt ef nokkum sannari og heilli fulltrúa kjörorðanna frelsis, jafnréttis og bræðralags en Kristj- án Guðmundsson. Kristján hafði óvenju næmt auga fyrir umhverfí sínu. Minnið var traust allt til síðustu stundar. Hann bjó því yfír hafsjó af fróð- leik, sem hann átti afar auðvelt með að miðla af. Frásagnargáfa hans var mikil. Að hafa Kristján til dæmis sem leiðsögumann um Haukdal og Keldudal við Dýrafjörð varð mér aftur og aftur hrein upp- lifun: Þama risu atburðir upp og kynslóðimar stigu fram ljóslifandi — maður kynntist raunverulegri tímavél. Síðustu æviáranna naut Kristján í návist og skjóli fóstursonar og tengdadóttur. Ekki leyndi hann né þau hjónin aðdáun sinni og þakk- læti í garð ungu úölskyldunnar. Þeim leið þar vel. Hefð hinna ríku ættartengsla, sem þau fullorðnu mátu mikils, rýmaði hvergi. Eftir löng kynni leitar margt á hugann á kveðjustund. Fæst af því verður rifjað upp. Nær er að gera tilraun til að þakka liðna tíð; vin- áttu og umhyggju í garð foreldra minna og frændgarðs okkar, fyrir heimilið á Vesturgötunni, sem varð okkur systkinabömum Margrétar eins konar önnur föðurhús, fyrir samverustundimar mörgu, sumar með rökræðu sem stæltu hugann, aðrar í glaðværð og gáska svo undir tók í húsum. Omur þessara minninga og margra fleiri mun seint §ara út. Við færum Margréti, Bjama, Steinunni og bömum þeirra tveim- ur innilegar samúðarkveðjur. Miklu ævistarfí er lokið. Blessuð sé minning Krisljáns Guðmunds- sonar. Bjarni Guðmundsson Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.