Morgunblaðið - 14.07.1988, Síða 45

Morgunblaðið - 14.07.1988, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988 45a Minning-: * Pétur Arnason framkvæmdastjóri Fæddur 6. maí 1927 Dáinn 5. júlí 1988 í dagsins önn og erli hugsa fæstir mikið um dauðann og er það að vonum, svo kaldur og hlífðar- laus, sem hann virðist. Samt er hann stöðugt nálægur og eftir því sem árum manns fjölgar slær hann sífellt tíðar til þeirra, sem maður hefur verið samferða lengri eða skemmri tíma. Engu að síður kem- ur andlátsfregn góðs vinar okkar flestum yfirleitt alltaf jafn mikið að óvart. Svo var líka með fráfall Péturs Arnasonar, framkvæmda- stjóra, Byggðarenda 23 í Reykjavík. Mitt í dagsins önn fékk hann heilablóðfall laugardaginn 2. júlí síðastliðinn. Tæpum þremur sólarhringum síðar var hann allur. Pétur Ámason var fæddur í Reykjavík 6. maí 1927 og því ný- orðinn 61 árs er hann lést. Foreldr- ar hans voru hjónin Ámi Yngvars- son, steinsmiður í Reykjavík og Jakobina Jónsdóttir, sem fædd var í Tumakoti á Vatnsleysuströnd. Önnur börn þeirra hjóna vom Jón Yngvar, sem látinn er fyrir all- mörgum árum, Kristjana Stella, húsmóðir í Reykjavík, Svavar, sem lést á síðastliðnu ári og Garðar, búsettur í Danmörku. Faðir Péturs er dáinn, en móðir hans, Jakobína, lifir í hárri elli. Pétur ól allan sinn aldur í Reykjavík, að undanteknum fáein- um árum, sem hann var við nám og störf erlendis. Hann ólst upp við Skólavörðustíginn í húsinu nr. 17 og síðar við Brávallagötuna. Árið 1946 hélt hann til Banda- ríkjanna og lauk þar námi í flug- virkjun frá Spartan School í borg- inni Tulsa í Oklahoma-ríki. Eftir það starfaði hann í nokkur ár sem flugvirki. í kringum 1950 stofnaði hann fyrirtæki til að annast pökk- un og flutninga fyrir starfsfólk hinna ýmsu sendiráða og vamarlið- ið á Keflavíkurflugvelli. Pétur Ámason var mikill vinnu- maður eins og svo margir íslend- ingar af hans kynslóð. Vinnudagur hans var ætíð langur. Hann vann fyrir kröfuharða viðskiptavini, sem vildu fá búslóð sína heila til síns heima í fjarlægum löndum. Sam- viskusemi hans og vandvirkni við þau störf var við brugðið. Munu margir sendiráðsmenn, jafnt íslenskir sem annarra þjóða, oft Kópal Dýrótex er útimálning sem dugar vel má/n/ngh/f hafa minnst Péturs með þakklæti, þegar búslóðin var tekin upp á leið- arenda og í ljós kom hversu vel hann hafði gengið frá öllum hlut- um. Þá var vinna hans fyrir starfs- menn varnarliðsins ekki síður um- fangsmikil. Árlega annaðist hann pökkun og sendingu á hundruðum búslóða til margra ríkja í Banda- ríkjunum fyrir varnarliðsmenn og fjölskyldur þeirra. Komu þar vel í ljós skipulagshæfíleikar hans ásamt þekkingu á flutningum, enda spannaði orðið reynsla hans á þessu sviði nær fjóra áratugi. Árið 1955 kvæntist Pétur eftir- lifandi eiginkonu sinni, Ragnheiði Erlu Sveinbjörnsdóttur. Foreldrar hennar voru hjónin Sveinbjörn Sig- hvatsson úr Reykjavík og Jarð- þrúður Jónasdóttir frá Hellissandi, en þau bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík og eru bæði látin fyrir allmörgum árum. Böm þeirra Pét- urs og Erlu eru fjögur, synimir Sveinbjörn, Jakob og Viðar, sem allir em kvæntir og búsettir í Reykjavík, og dóttirin Lilja, sem enn dvelur í foreldrahúsum. Barna- börnin em orðin fimm. Kynni mín af Pétri Árnasyni vom ekki löng. Þau hófust fyrir um það bil fjórum ámm er Lovísa dóttir mín og sonur hans, Viðar, hófu sambúð og gengu síðan í hjónaband. Okkur Pétri varð þegar gott til vina og ég fann skjótt í honum þann trausta og heilsteypta persónuleika, sem hann bjó yfir. Hann var skapmikill og ákveðinn í allri framgöngu, þoldi enga hálf- velgju, um leið örlátur og hjarta- hlýr. Hjá honum sat tvennt í fyrirr- úmi; ijölskyldan og skyldurækni í starfi. Hann var mikill fjölskyldu- faðir og lét sér mjög varða hagi sinna nánustu. Honum var ekki gjarnt að flíka tilfinningum sínum, en fáum hef ég kynnst, sem í reynd létu sér jafn annt um börn sín og fjölskyldur þeirra. Á heimili hans og Erlu var gott að koma. Þar var ég, ásamt fleirum, síðast staddur þann 17. júní. Pétur var að vanda HIGH POWER BATTERY RAFHLAÐA SEM ENDIST OG ENDIST Kodak hress og glaður og engan gmnaði þá, hve skammt var í kveðjustund- ina. Við mennimir áformum, en guð einn ræður og vegir hans em órannsakanlegir. Við Sigríður og fjölskylda okkar sendum Erlu og fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Péturs Árnasonar. Árni Grétar Finnsson Og því varð allt hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gigjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson) Hafi elsku afi þökk fyrir allt og allt. Bjössi, Ragnheiður, Sigríður Erla og Pétur. Leiðrétting- í minningargrein um Ingunni H. Rasmussen í blaðinu á þriðjudag misritaðist fæðingardagur hennar. Þar stendur hún hafi verið fædd hinn 6. nóvember 1906. Hún var fædd 29. nóvember og leiðréttist það hér með. EKKI Bláta steinkast ■eyðileggja I lakkið j- ^iunð- Einfalt! Sjálflímandi PVC borði er settur á fyrir ferðalagið og tekinn af þegar heim er komið. Útsölustaðir: ESSO stöðvamar Þig langar alltaf í meira þegar þú grillar marineruð rif frá SS Meyrt og bragðgott SS kjöt er sælgæti á grillið tínrtoom -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.