Morgunblaðið - 14.07.1988, Page 46

Morgunblaðið - 14.07.1988, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚLÍ 1988 fclk í fréttum KAUPMANNAHÖFN Dýrkeypt ást fyrir heilt bæjarfélag Kaupmannahöfn. Frá Grimi R Friðgeirssyni fréttaritara Morgunblaðsins. Janni Spies, ekkja ferðabarónsins Simons Spies, er nú orðin yfir sig ástfangin. Sá heppni heitir Christian Kjaer og er forríkur danskur lögfræðingur. Hann rekur stórfyrirtæki sem veltir milljörðum svo að ekki er hægt að saka hann um að vera á höttunum eftir eignum Janni. Janni hefur reyndar verið trúlof- uð Gunnari Hellström um nokkurt skeið en það slitnaði upp úr því sambandi þegar Janni kynntist Christian. Janni Spies býr í Hörsholm, sem er útborg Kaupmannahafnar. Bæj- arfélagið er fjárhagslega vel stætt en stjómendur þess óttast hins veg- ar að þurfa að hækka skatta fast- eignaeigenda í bæjarfélaginu í kjöl- far Jónsmessuástarævintýris hinn- ar ofsaríku Janni og milljónamær- ingsins Christians Kjaer. Janni og Christian eru nefnilega nýtrúlofuð og hafa tilkynnt að þau ætli að gifta sig þann 20. ágúst í sumar. Christian býr í Birkeröd sem er í næsta nágrenni við Hörsholm og mörgum þykir líklegt að Janni flytji til hans með allar milljónirnar sínar. I Hörsholm er nú verið að byggja óhemjudýra menningarmiðstöð auk þess að fyrir stuttu var ákveðið að leggja nýjar hellur á göngugötuna þar í borg. Þegar þessar áætlanir voru gerðar var ekki gert ráð fyrir því að auðugasti íbúi bæjarfélagsins myndi flytja burt af svæðinu. í Birkeröd er íjárhagsástandið hinsvegar verra og það væri mikil búbót fyrir bæjarfélagið að fá flugríkan innflytjenda eins og Janni. Nýlega var ráðist í umfangs- miklar byggingarframkvæmdir á vegum bæjarfélagsins og þar býr fjöldi flóttamanna sem þurfa tals- verða aðstoð.. Borgarstjórinn býður nú í ofvæni eftir að Janni flytji til Birkeröd með milljónimar sínar. Janni Spies sýnir trúlofunar- hringinn sinn. Christian Kjaer á sand af seðl- um og þarf því ekki að eiga yfir höfði sér ásakanir um að hann sé aðeins á höttunum eftir eign- um Janni. STAKKASKIPTI Breytingar á Kirkjumunum Verslunin og galleríið Kirkju- munir hefur tekið miklum stakkaskiptum að undanfömu og em breytingarnar verk sænsku listakonunnar Irisar Sigglin. Hún dvaldist hér á landi í 2 vikur og leiðbeindi um meðferð á textíllit- um auk lagfæringanna á Kirkju- munum. Eigandi Kirkjumuna er Sigrún Jónsdóttir. Hún sagði að kominn hefði verið timi til að hressa upp á innréttingar verslunarinnar en neðri hæðina kallar Sigrún kram- búðina og selur þar nýja og not- aða skrautmuni. Á efri hæðinni er galleríið þar sem haldnar eru sýningar á textílmunum. Sigrún er búsett í Svíþjóð en er nú stödd hér ásamt Iris. Hún hefur rekið vefnaðar- og listiðnað- arskóla í yfir 20 ár og ferðast um landið og kennt. Sigrún er textfl- listamaður og hefur hún sérhæft sig í kirkjulegri list. Auk þessa málar Sigrún og skreytir gler. Morgunblaðið/KGA Iris Sigglin og Sigrún Jónsdóttir í húsnæði Kirkjumuna sem Iris hefur breytt og bætt. Stephanie og Mario þegar allt lék í lyndi. MÓNAKÓ Nýr þjóðhátíðardagur Stephanie einbeitir sér nú að eigin frama í söngheiminum og lætur Mario fara lönd og leið. Stephanie prins- essa af Mónakó hefur nú sagt skilið við Mario Oliver Jut- ard kærastann sinn sem hún hefur verið með í rúm tvö ár. Stephanie og Mario hittust 12. apríl 1986 og hafa verið óað- skiljanleg þangað til Stephanie yfirgaf Mario um síðustu mánaðamót. Margir hafa orðið fegnir að heyra þess- ar nýju fréttir en sjálfsagt er enginn eins ánægður og Rainer fursti, faðir Stephanie. Mario Oliver var aldrei viðurkenndur af furstafjölskyld- unni í Mónakó og Rainer fursti var vægast sagt óánægð- ur með kærasta dótt- ur sinnar. Mario var þekktur fyrir að vera mikill gleðimaður og ekki bætti úr skák að hann hafði fengið dóm fyrir nauðgun áður en hann kynnt- ist Stephanie. Stephariie hefur verið önnum kafín við hljómplötuupptökur og hefur lítið getað hitt Mario. Þegar Stephanie fór að vinna svona mikið leiddist Mario og hann fór að lifa hinu ljúfa lífi af meiri krafti en áður. Prins- essan áttaði sig loks- ins á því hvaða mann hann hafði að geyma og ákvað að losa sig við hann. Mario er bæði svekktur og sár en segist samt sem áður hafa gert sér grein fyrir því að hann væri ekki rétti mað- urinn fyrir Stephanie. Hann vissi að Rainer fursti myndi aldrei samþykkja sig sem tengdason og vinir Stephanie voru mót- fallnir honum. Steph- anie og hann voru mjög ólík og rifust sífellt meir vegna ólíkra lífsviðhorfa. Mario hefur látið hafa eftir sér, að dag- urinn sem hann og Stephanie skildu að skiptum verði sjálf- sagt þjóðhátíðardag- ur Mónakóbúa í framtíðinni. Sumartilboð Svínakótelettur 799. ukr. Kryddlegnar svínakótelettur899.m kr. Kryddlegnar kambsteikur989.-kr. Gott á grillið - Allt kjöt afnýslátruðu - Gott á grillið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.