Morgunblaðið - 07.08.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1988
3
Unnið að söltun í lestinni í Gnúp GK á miðunum. Morgunblaðið/Kr. Ben.
Skuttogarinn Gnúpur GK:
Fylltur af saltfiski á sjö sólarhringnm
Gríndavík.
SKUTTOGARINN Gnúpur GK kom úr þriðju veiðiferð sinni á
föstudagsmorgun eftir að pækilsöltun hófst í tilraunaskyni á
miðunum. Samtals hefur togarinn þá landað tæpum 160 tonnum
af saltfiski eða 320 tonnum af fiski upp úr sjó og nemur brúttó-
aflaverðmæti um 25 milljónum króna fyrir utan ufsa og ýsu, sem
er ísað í kassa og selt á markaði.
íslensk getspá:
Lottó með
bónustölu
Þeir sem hafa
fjóra rétta geta
unnið á „bónus-
tölu“
GETRAUNALEIKNUM Lottó
5/32 verður breytt á næst-
unni þannig að þátttakendum
beri þá að velja 5 tölur af 38
á lottóseðlinum í stað 32 nú.
Þetta hefur í för með sér
minni vinningsmöguleika, en
í staðinn verður dregin út
sjötta talan í hveijum drætti,
nokkurs konar bónustala fyr-
ir þá sem hafa 4 rétta að
drætti 5 talna loknum. Fyrsti
dráttur með nýja fyrirkomu-
laginu er fyrirhugaður laug-
ardagskvöldið 11. september.
Forráðamenn íslenskrar get-
spár, fyrirtækisins sem rekur
Lottóið, munu halda til Banda-
ríkjanna nú um helgina til þess
að ganga frá nýrri tölvuútgáfu
af leiknum hjá tölvufyrirtækinu
Gitek. Að sögn Þórðar Þorkels-
sonar, stjómarformanns ís-
lenskrar getspár, er þessi breyt-
ing tilkomin vegna miklu meiri
fjölda þátttakenda en búist hafði
verið við. „Þessu er breytt vegna
þess að við vildum gera leikinn
meira spennandi og 5/32 hæfði
í raun ekki okkar markaði,“ sagði
Þórður. Hann sagði að breyting-
unni myndi ekki fylgja nein
hækkun á verði lottómiða.
Bónustalan svokallaða er dreg-
in út, er venjulegum 5 talna
drætti er lokið. Ef þeir, sem þá
eru með fjóra rétta, hafa heppn-
ina með sér og fimmta talan á
seðli þeirra er bónustalan, fá þeir
stærri vinning en ella. Fyrirhugað
er að 8% af vinningshlutfallinu
fari til greiðslu bónusvinninga.
í þriðju veiðiferðinni, sem tók
sjö sólarhringa á veiðum, voru
unnin 55 tonn af saltfiski og 15
tonn af ísfiski. Togarinn byrjaði
á Kögurgrunni í þokkalegu
fiskirii, sem færðist austur á
Strandagrunn austan við Gildr-
una. Þar fékkst 25 tonna hal og
var stanslaus söltun allan tímann
og unnið á frívöktum meira og
minna.
í lok veiðiferðarinnar færðust
veiðamar yfir á Halann en þar
var fiskur blandaður ýsu og ufsa
og fylltust öll ílát bæði fyrir salt-
físk og ísfísk fyrr en áætlað var.
Skipstjórinn Hilmar Helgason var
ánægður með útkomuna og hefur
af fenginni reynslu við vinnsluna
um borð gert ýmsar tillögur við
útgerðina um endurbætur á að-
stöðunni um borð svo að vinns-
lurásin geti verið lipur, sérstak-
lega þegar vel veiðist þapnig að
hægt sé að taka toppana líkt og
gerist á frystitogurunum en
nokkru sinnum þurfti að láta reka
meðan unnið var upp áður en
hægt var að halda áfram veiðum.
Að sögn Eiríks Tómassonar
framkvæmdastjóra, er mikill
áhugi meðal útgerðarmanna skut-
togara á þessari tilraun því öll
fjárfesting við að breyta togara
til saltfiskverkunar út á sjó er
brot af kostnaði við að breyta yfir
í frystitogara á sama tima og
brúttóverðmæti upp úr sjó er ívið
hagstæðara í söltun. „Ef aflinn
sem Akureyrin EA landaði í met-
túmum síðast, samtals 44 milljón-
ir, hefði verið saltaður hefði hann
náð allt að 47 milljónum í afla-
verðmætum. Víst er að þessi verk-
unaraðferð flyst út á sjó og verð-
ur jafn mikilvæg fyrir saltfískiðn-
aðinn og frystitogararnir eru fyrir
frystiiðnaðinn,“ sagði Eiríkur.
- Kr. Ben.
Flækingsfuglar
algengir í sumar
ÓVENJULEGA mikið hefur
verið um flækingsfugla á
landinu í sumar. Slíkir fuglar
eru oftar haustgestir en í ár
hafa þeir margir verið
snemma á ferðinni. Einnig
komu hingað þrjár tegundir
sem aldrei hafa sést hér áður.
Að sögn Ævars Petersen
fuglafræðings hjá Náttúrufræði-
stofnun íslands heimsækja svöl-
ur, þ.e. landsvala og bæjarsvala,
landið yfirleitt á vorin og dvelja
nokkuð fram eftir sumri. I sumar
hafa þær verið algengari en vant
er og sést um sunnanvert landið.
Þegar líða tekur á júní fara svöl-
urnar aftur nema þær verpi hér.
Ákveðin merki um varp þeirra
hafa fundist en ekki er öruggt
að landsvala hafi orpið hér. Þeir
sem hafa ef til vill orðið varir við
varp þeirra eru beðnir að láta
einhvern hjá stofnuninni vita af
því.
Flækingsfuglar eru oftar
haustgestir og koina þá í septem-
ber, október og nóvember. Ævar
sagði að hann myndi ekki eftir
jafnmörgum flækingsfuglum að
vorlagi og í ár. Vorið væri í þeim
skilningi eins og besta haust.
Af flækingsfuglum sem komið
hafa í vor má nefna græn- og
laufsöngvara sem eru litlir, gul-
grænir að lit. Þeir eru algengir
flækingsfuglar hér á landi en
koma yfirleitt á haustin. Hér hef-
ur einnig sést tijátittlingur sem
skyldur er þúfutittlingi. Tvær
finkutegundir hafa að sögn Æv-
ars einnig sést í vor, fjalla- og
bókfinka. Laufglói, sem er sjald-
gæf tegund spörfugla, sást hér í
byijun sumars. Einnig hafa §öl-
margir aðrir flækingsfuglar sést
hingað og þangað um landið.
í vor verpti hér í fyrsta sinn
mistilþröstur, sem kalla má stóra
bróður skógarþrastarins. Hingað
kom einn kvenfugl sem bjó til
hreiður og verpti eggjum en því
miður var um fúlegg að ræða.
Fjöruspói verpti hér í annað sinn
en fyrsta varp hans hér á landi
er talið að hafi verið í fyrra.
Nokkrar tegundir sem aldrei
hafa sést hérlendis áður komu í
vor. Má þar nefna tvær tegundir
anda; ein kambönd sást í Vest-
mannaeyjum og tveir karlfuglar
af mandarínandategund sáust í
Homafirði. Þessar endur eru
mjög skrautlegar og fallegar.
Einnig sást ein brandsvala á Sel-
fossi en hún er náskyld og mjög
lík landsvölu.
Fjallafinka er einn þeirra flökku-
fugla sem sést hafa í vor.
Brítísh Airways áætl-
ar flug til Islands
BRESKA flugfélagið British
Airways mun mjög líklega hefja
áætlunarflug á milli London og
Keflavíkur árið 1990. Flugfé-
lagið flaug til íslands um árabil
en hætti flugi hingað árið 1978
í kjölfar þorskastríðanna.
Michael Sorensen, sölustjóri
British Airways, sem er stærsta
flugfélag Bretlands, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að nú flygju
árlega um 12 þúsund íslendingar
með BA og því teldi fyrirtækið að
beint flug til íslands væri hag-
kvæmt. Vegna þess hve miklar
tafír hafa orðið á afhendingu Air-
bus flugvéla sem BA hefur fest
kaup á verður ekki hægt að hefja
flugið fyrr.
Til íslands verður líklega flogið
á Boeing 737-300 flugvélum sem
taka 122 farþega.
iKii luiti.Lu i.J
i)
Siglufjörður:
Álög’in á
Álfhóli
ÁLFHÓLL heitir hóll vestan
flugvallarins á Siglufirði. Sú
saga er til um þennan hól, að
þar sé heygður ásamt gull-
kistli sínum Álfur bóndi sem
búið hafi í Saurbæ og hvili þau
álög á hólnum að sé grafið í
hann, fari eitthvað úrskeiðis i
Siglufirði. 22. júlí var grafið
fyrir útsýnisskifu á hólnum og
siðan telja sumir að álögin hafi
hrinið, þar sem ýmsar fram-
kvæmdir hafi gengið illa i
bænum og fleira gengið á aft-
urfótunum.
Að sögn Matthíasar Jóhanns-
sonar, fréttaritara Morgunblaðs-
ins á Siglufirði, urðu gífurlegir
vatnavextir í Siglufirði einum eða
tveimur dögum eftir að útsýn-
isskífan var sett upp og hafí þau
valdið spjöllum. Þá hafí ekkert
veiðst, og gatnaframkvæmdir í
bænum gengið frámunalega illa.
Búið var að undirbúa fímm
götur í bænum undir malbik.
Aðeins tókst að malbika eina
vegna þess að malbikunarvélin
bilaði skyndilega. Að sögn starfs-
manna Loftorku, sem leggja mal-
bikið, virðist vélin hálfónýt.
„ Hér trúa margir því að álög
séu á Álfhóli og sagt er að fyrir
allmörgum árum hafi menn graf-
ið í hólinn, en séð bæinn þá standa
í ljósum logum," sagði Matthías.