Morgunblaðið - 07.08.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1988
37
Guðlaug Valdimars-
dóttir — Minning
Það gerir engum gesti rótt,
hitt gildir, hver þar býr.
Þetta gæti verið ort um þær
mæðgur, þar var gestum fagnað
og þangað komu margir.
Umhyggja hennar fyrir fjölskyld-
unni var einstök. Systkinabömin
og þeirra böm áttu góða frænku,
félaga og vin. Þau vom henni öll
kær og þar var enginn tekinn fram
yfir annan.
Hún Gógó kvaddi þennan heim
29. júlí um hásumar, það var henn-
ar árstíð. Sólskin og blóm tilheyrðu
henni.
Ég sendi Rósu, systkinum og
frændfólkinu samúðarkveðjur.
Guð blessi Guðlaugu Valdimars.
Bertha
Elskuleg mágkona, mín Karolína
Guðlaug Valdimarsdóttir, verður til
moldar borin á morgun, mánudag-
inn 8. ágúst.
Ég kynntist Gógó eins og hún
var ætíð kölluð fyrir um það bil 16
ámm þegar ég giftist bróður henn-
ar, Valdimar, og hef ég engri mann-
eskju kynnst brosmildari, glaðari
og hjálpsamari.
Foreldrar Gógóar vom Rósa
Kristbjörg Guðmundsdóttir frá Ósi
í Breiðdal og Valdimar Guðjónsson
frá Dísastöðum í Flóa, en hann fórst
með togaranum Max Pemberton í
janúar 1944, varð Rósa þá ekkja
með 3 ung böm og gekk hún með
það fjórða. Systkini Gógóar em
Hlíf Petra húsmóðir, f. 3. júlí 1932,
Guðmundur Þór sjómaður, f. 26.
mars 1937, og Valdimar Guðjón
stýrimaður, f. 12. ágúst 1944. Gógó
starfaði frá árinu 1952 og alla tíð
síðan hjá Landssíma íslands, lengst
af í 02.
Gógó giftist ekki, en bjó með
móður sinni, Rósu, sem er 86 ára
og verður nú að sjá af ástkærri
dóttur. Frá því ég eignaðist mitt
fyrsta bam hef ég aldrei verið í
vandræðum með bamapössun, því
Gógó og Rósa í sameiningu vom
alltaf tilbúnar að hlaupa undir
bagga hvort heldur var í lengri eða
skemmri tíma. Við hjónin eigum
nú 5 böm og alltaf hélst umhyggja
hennar jafn mikil fyrir hverju bami
um sig enda verður hún þeim
ógleymanleg.
Sem dæmi um elsku þeirra
mæðgna Gógóar og Rósu má nefna
að á hveiju sumri frá því elsta telp-
an mín var tveggja ára hafa þær
farið í sumarbústað símamanna við
Apavatn og tekið dætur mínar
Fósturmóðir okkar,
INGIBJÖRG HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR
fyrrverandi Ijósmóðir f Reykhólasveit,
lést í Landakotsspítala 5. ágúst.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingl B. Jónasson,
Krlstjón Jónasson.
t
Útför dóttur minnar, systur, mágkonu og fraanku,
GUÐLAUGAR VALDIMARSDÓTTUR,
talsfmavarðar,
Rauðalœk 36,
verður gerö fró Fossvogskirkju mónudaginn 8. ágúst kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfólagið.
Rósa Guðmundsdóttir,
Hlff Valdlmarsdóttir, Valgeir Helgason,
Guðmundur Valdlmarsson,
Valdimar Valdlmarsson, Guðbjörg Einarsdóttir
og systkinabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Fædd 19. ágúst 1935
Dáin 29. júlí 1988
„Vinur þinn er þér allt.
Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð
þinni er sáð og gleði þín uppskorin."
(Kahlil Gibran)
Vinkona mín, Gógó Valdimars,
er dáin. Við sem fylgdumst með
hetjulegri baráttu hennar sættum
okkur ekki við þann ósigur.
Gógó hélt fullri reisn þar til yfir
lauk, sýndi ótrúlegan sálarstyrk
sem hjálpaði okkur öllum sem kom-
um til hennar á Landakotsspítal-
ann.
Foreldrar Gógóar voru hjónin
Rósa Guðmundsdóttir og Valdimar
Guðjónsson en hann lést árið 1944.
Systkinin eru þrjú: Hlíf, Guðmund-
ur og Valdimar.
Ég ætla mér ekki að rekja ævi
Gógóar, þá sögu þekkja allir hennar
vinir og ættingjar, aðeins að minn-
ast góðrar og umfram allt tryggrar
vinkonu. Hún Gógó var alltaf til
taks þegar einhver af vinunum var
hjálparþurfi. Án alls vafsturs og
orðagjálfurs veitti hún hjálpina á
svo þægilegan hátt að það var létt
að vera þiggjandi.
Gógó og Rósa, móðir hennar,
héldu heimili saman. Þar var gott
að koma. Mér dettur í hug erindi
eftir Örn Amar.
Þótt salarkynnin séu há
og sængurklæðin dýr.
Blómmtofa
FriÖfinm
SuÖuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
tll kl. 22,- elnnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
með, fyrst eina og síðustu árin
þrjár, og hefði sú fjórða sem er
tveggja ára bæst í ferðina í sumar
ef Gógó hefði ekki verið orðin hel-
sjúk og nýkomin á sjúkrahús, hún
dreif sig austur í bústað með þær,
en fór svo beint á sjúkrahúsið aftur
og átti ekki afturkvæmt þaðan.
Þessi sjúkdómur, sem lagði hana
að velli svo unga, uppgötvaðist fyr-
ir tveimur árum og hefur Gógó
verið undir læknishendi síðan, en
aldrei missti hún móðinn þó óþæg-
indi og kvalirnar væru miklar, tal-
aði ég aldrei við hana öðruvísi en
bjartsýnin hefði yfírhöndina, öll
hennar óþægindi virtust tímabundin
í hennar augum og alveg fram á
síðasta dag var hún að spyija hvort
hún gæti gert eitthvað fyrir okkur.
Ég, Valdimar og bömin okkar
fímm þökkum Gógó fyrir allt sem
hún gerði fyrir okkur og veit ég
að minningin um. hana lifír með
okkur, megi hún hvíla í friði.
Ég vona að guð styrki okkur öll
í sorg okkar og þá sérstaklega
tengdamóður mína, Rósu, sem mest
missir.
Guðbjörg Einarsdóttir
Að kvöldi 29. júlí, mestu ferða-
mannahelgi íslensku þjóðarinnar,
er tugþúsundir Reykvíkinga lögðu
leið sína út úr höfuðborginni, ys og
þys borgarinnar hafði hljóðnað, þá
lagði Guðlaug Valdimarsdóttir upp
í sína hinstu för umvafín af kærleik
ástvina sinna, sem sátu við sjúkra-
beð hennar, þá var hún leyst frá
þeim þungu þjáningum, sem voru
samfara þeim sjúkdómi, sem leiddi
hana til dauða.
Það em svo margar minningar,
sem streyma fram í hugann, um
litlu stúlkuna, sem kom með for-
eldrum og systkinum í fyrstu heim-
sóknina austur að Ósi í Breiðdal.
Við, sem vorum böm þar, tengdust
þeim böndum, sem aldrei hafa rofn-
að síðan. Um unga heilsteypta
konu, sem aldrei brást, tengilið á
milli ættingja og vina. Stoð og
stytta móður sinnar, sem nú sér á
eftir elskulegri dóttur.
Með þessum línum vil ég þakka
Gógó minni fyrir þá tryggð sem hún
sýndi fjölskyldu minni, síðan við
fluttum til Svíþjóðar. Énginn veit
nema sá sem flutt hefur frá landinu
sínu, hvað það gleður mann að fá
kveðjur að heiman.
Nanna Sigurpálsdóttir
Gógó var hún kölluð, elskuleg
starfssystir okkar sem nú er látin.
Hetjulegri baráttu í nær tvö ár er
lokið.
Svo var hugrekki hennar og
lífsvilji mikill, að við hrifumst með,
annað var ekki sanngjamt. Aldrei
uppgjöf né beizkja, þó oft væri hún
sárþjáð. Hún vakti aðdáun okkar
allra.
Gógó hóf störf hjá Landssíma
íslands aðeins 17 ára gömul, fyrst
á símstöðinni í Keflavík. Ári seinna
flyst hún á langlínumiðstöðina í
Reykjavík. Þangað lá leið margra
ungp-a stúlkna á þeim árum. Margar
hættu fljótlega, en eftir varð kjami
kvenna, sem enn stendur þétt sam-
an, en byijað er að kvamast úr.
Oft var starfíð erfítt og krefy
andi, en Gógó var starfí sínu vaxin.
En það var ekki síður gaman, og
mikið var hlegið. Þá lá Gógó ekki
á liði sínu, svo glaðvær sem hún
var. Hún heldur áfram að vera hluti
af okkur í minningum okkar. Það
er ekki erfítt að kalla fram mynd
af Gógó ljómandi af einlægri
lífsgleði og hlýju, því þannig var
viðmót hennar.
Við kveðjum hana með söknuði
og þökkum samverustundimar.
Móður hennar og íjölskyldu sendum
við innilegar samúðarkveðjur.
Þóra Marinósdóttir
Þetta form er innan seilingar
SPURNING: Hva langan tfma tekur það að s|á árangur?
SVAR: Vanalega (ara sentimetramir að (alla af þér eftir
aðeins nokkra tíma. Eins og með allar tegundir likama-
raaktar, sést besti árangurinn með raglulegri notkun yfir
ákveðið timabil. Styrkur, sveigjanleiki og heilbrigði eykst
stigfrástigí.
SPURNiNG: Get ág notað taekln eftlr að hafa orðið
bamshafandl?
SVAR: Aö sjálfsögðu. Þessar œfingar geta stórlega lagað
og styrkt vöðva eftir faaðingu.
SPURNING: Minnka lafinganwr appaWnuhúð (ceHolite)?
SVAR: Appelsinuhúð er umdeikf. Ekki enj allir sammála
um ástæðuna fyrir henni, en margir sérfræðingar eru
þeirrar tniar að aukið blóðstreymi og aukin vöðvastyrking
á vandræðasvæðum minnki appelsínuhúð.
SPURNING: Hver er munurinn á þessarí tegund eeflnga
og aeroblk-leikfiml?
SVAR: Aerobik-leikfimi er framkvæmd á bilinu 12 til 15
minútum og eykur hjartslátt i 60% til 90% af hémarki.
Þotta eykur þol hjarta- og æðakerfisins. Flott form æfinga-
kerfið er ekki aerobik-leikfimi. Það eykur vöðvaþol og styrk-
ir auk þess sem það eykur sveigjanleika vöðvanna.
SPURNING: Hver er munurinn á þesau nflngakerfi og
öðrum láiamsrælctartaekjum?
SVAR: Almennt virka Wtamsræktartæki þannig. að það
spyma gegn likamshreyfingu. Flott fotm kerftð notar sömu
grundvallarhugmyndina, en með einni mikilvægri undan-
tekningu: Tækin okkar sjé um að hreyfa likamann á með-
an þu sérð um að spyma á móti.
SPURNING: Hvemig getlð þlð tryggt að fótk megrist?
SVAR: Þar sem þessar siendurteknu hreyfingar styrkja
vöðva án þoss að þeir stækki, á meðan þyngd þin helst
sú sama eða minnkar og þú fylgir leiöbeiningum okkar,
mun sentimef runum fækka, svo einfalt er það og þetta
ábyrgjumstviö.
SPURNING: Nýtur gamatt fólk góðs af þessum tækjum ?
SVAR: Já. Þessi þægilega leið við að hreyfa likamann
er kjörin fyrir eldra fólk, vegna þess að allir geta æft á
sínum hraöa. Aukin sveigjanleiki og aukið vöðvaþol, sem
kemur með þessum tækjum er kjörið, fyrir þá sem hafa
stífa vöðva eöa eru með liöagigt.
Söluumboð: Hroyflng sf.
Hríngið og pantið tíma.
Flott form -
Stúdíó Disu,
Smiðsbúð 9, Garöabæ,
sími 45399.
Flott form -
Líkamsrækt Óskars,
Hafnargötu 23, Keflavík,
simi 92-14922.
Flott form -
Hreyfing sf.,
Engjateigi 1, sími 680677,
(Dansstúdíó Sóleyjar)
Opnum í byrjun september.
Hreyfing sf.,
KMfarsoli 18, BraMMioltl,
síml 670370.
Við bjóðum einn frían kynningartíma
út ágústmánuð
7 bekkja æfíngakerfíð kemurþérí fíottform.