Morgunblaðið - 07.08.1988, Qupperneq 56
-56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hárgreiðslumeistari
eðasveinn
óskast sem fyrst á hárgreiðslustofu á Akur-
eyri.
Upplýsingar í síma 96-22069.
Afleysmga- og rádnmgaþjónusta
Lidsauki hf. W
Skólavörðustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355
Stórt
þjónustufyrirtæki
í Reykjavík óskar eftir að ráða: '
Skrifstofumann til að sinna almennum skrif-
stofustörfum.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með
haldgóða menntun af verslunar- eða við-
skiptasviði. Kostur er ef reynsla af tölvunotk-
un er fyrir hendi. Æskilegur aldur er frá 25
ára. Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skólastjóri
- kennarar
Við Hólmavíkurskóla eru eftirtaldar stöður
lausar til umsóknar:
1. Skólastjórastaða.
2. Tvær kennarastöður. Æskilegar kennslu-
greinar m.a. íslenska, danska og stærð-
fræði í 7.-9. bekk.
Ástæða er til að vekja athygli á góðri að-
stöðu og búnaði til kennslu að ógleymdum
launahlunnindum.
Nánari upplýsingar gefa Jón E. Alfreðsson,
formaður skólanefndar, í símum 95-3155 og
95-3130 og Þorkell Jóhannsson, skólastjóri,
í síma 91-46987.
Skólanefnd Hólmavíkurskóla
Verslunarstörf
Starfsfólk óskast til framtíðarstarfa á eftir-
töldum stöðum:
Skeifan 15
1. Afgreiðslustörf á kassa.
2. Afgreiðsla og uppfylling í matvöru- og
sérvörudeildum.
3. Störf við verðmerkingar á sérvörulager.
Kringlan.
1. Afgreiðslustörf á kassa.
2. Afgreiðsla og uppfylling í sérvöru- og
matvöruversiun.
Kjörgarður, Laugavegi 59
Afgreiðslustörf í matvörudeild.
Eiðistorg, Seltjarnarnesi
1. Afgreiðslustörf á kassa.
2. Afgreiðsla og uppfylling í matvöruverslun.
Lager í Hafnarfirði
Lagermenn í heilsdagsstörf.
í flestum tilvikum koma hlutastörf til greina,
einkum eftir hádegi.
Nánari upplýsingar hjá starfsmannahaldi
(ekki í síma) alla virka daga frá kl. 13-17.30.
Umsóknareyðublöð á skrifstofu.
HAGKAUP
Starfskraftur með
bifreið
Opinber aðili í austurborginni vill ráða mann-
eskju með eigin bifreið til útréttinga og
annarra starfa. Vinnutími 8-16.
Umsóknir merktar: „Útréttingar - 4337“
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir hádegi
miðvikudag.
Forstöðumaður
varahlutadeildar
Stórt innflutningsfyrirtæki í borginni (bílar
og vélar) vill ráða starfsmann til að veita
forstöðu varahlutadeild. Starfið er laust sam-
kvæmt samkomulagi.
Viðkomandi er ábyrgur fyrir öllum daglegum
rekstri deildarinnar. Þar vinna 10-15 manns.
Viðskipta- eða tæknimenntun æskileg ásamt
reynslu í stjórnun. Enskukunnátta og tölvu-
þekking er nauðsynleg. Farið verður með
allar umsóknir í fullum trúnaði.
Launakjör samningsatriði.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu, sendist skrifstofu okkar fyrir
13. ágúst nk.
Gudni íónsson
RÁDCJÖF&RÁÐN1NCARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5. 101 RHYKJAVlK - PÓSTHÓLF 693 StUl 621322
Strax eða eftir
samkomulagi
Hafnarfjarðarbær óskar eftir fóstrum eða
öðru uppeldismenntuðu fólki til eftirtalinna
starfa á dagheimilum og leikskólum bæjar-
ins:
- Starf forstöðumanns við leikskóla.
- Almenn fóstrustörf (fullt starf eða hluta-
starf).
- Stuðningsstörf (við deild eða einstakling).
Einnig vantar kraftmikið starfsfólk í heils-
dagsstörf, hlutastörf og til afleysinga.
Nánari upplýsingar gefur dagvistarfulltrúi í
síma 53444 aila virka daga.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
Dagvistarheimilið
Kópasteinn
v/Hábraut
Lausar stöður:
Matráðskona: Staða matráðskonu er laus
til umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi
geti hafið störf sem fyrst.
Fóstra eða starfsmaður óskast til uppeldis-
starfa.
Hafið samband við forstöðumann í síma
41565 og kynnið ykkur starfsemina.
Einnig gefur umsjónarfóstra upplýsingar í
síma 45700.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi hjá Félagsmála-
stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun-Kópavogs.
Húsasmiðir
Okkur vantar 3 smiði strax í skemmtilegt
verk, úti- og innivinna, uppmæling.
Upplýsingar í síma 23117 og 51855.
Trésmiðir
Vantar nú þegar nokkra trésmiði. Mikil vinna.
Upplýsingar í símum 84542 og 685583 frá
kl. 9-17 virka daga.
Félagsráðgjafi
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar framlengir
umsóknarfrest um starf félagsráðgjafa til 17.
ágúst nk. í starfinu felst ma.:
- Almenn ráðgjöf
- Vinna í forsjár- og ættleiðingamálum
- Vinna í framfærslumálum.
Nánari upplýsingar veitirfélagsmálastjóri alla
virka daga milli kl. 11 og 12.
Félagsmálastjórinn íHafnarfirði.
Starfsmaður
/leikvellir
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir lausa
stöðu starfsmanns á leikvöllum bæjarins.
Um er að ræða hlutastarf.
Upplýsingar gefur umsjónarfóstra í síma
45700.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi hjá Félagsmála-
stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Framtíðarstörf
á skrifstof u
Rótgróið innflutningsfyrirtæki í Austurborg-
inni vill ráða í eftirtalin störf.
Ráðningartími er samningsatriði.
Símavarsla
móttaka gesta, aðstoð við gjaldkera og tengd
störf.
Skrifstofustörf
aðstoð í töluvbókhaldi, frágangur reikninga
ásamt almennum skrifstofustörfum.
Stúdentspróf á verslunarsviði eða samsvar-
andi menntun ásamt góðri framkomu, snyrti-
mennsku og reglusemi er algjört skilyrði.
Hér er um að ræða góð framtíðarstörf hjá
traustu fyrirtæki, sem er þekkt fyrir góða
þjónustu.
Góð laun eru í boði fyrir rétta aðila.
Allar nánari upplýsingar og umsóknir veittar
á. skrifstofu okkar.
Gudni Tqnssön
RÁÐCJÖF &-RÁDN1 NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKIAVtK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322