Morgunblaðið - 31.08.1988, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
Samstaðaum
vaxtalækkun
hjá bönkum
- segir Jóhannes
Nordal bankastjóri
JÓHANNES Nordal seðla-
bankastjóri segir að nokkuð góð
samstaða sé meðal Seðlabank-
ans og viðskiptabanka og spari-
sjóða um lækkun nafnvaxta um
þau 10-12% sem ríkisstjórnin
hefur lagt til að yrði. Fundir
um málið milli fulltrúa fyrr-
greindra aðiia eru hafnir og
sagðist Jóhannes bjartsýnn á að
samkomulag næðist í dag.
„Það var gott hljóðið í mönnum
á fyrsta fundi okkar og þar kom
fram að þeir telji þessa 10-12%
lækkun nafnvaxta raunhæfa,"
segir Jóhannes Nordal. „Það sem
við erum að ræða um er nánari
útfærsla á lækkun einstakra
vaxta. Markmiðið er að ljúka þess-
ari vinnu fyrir 1. september."
í máli Jóhannesar kemur fram
að menn geri sér ljósa þá stað-
reynd að nafnvextir hafa hækkað
í kjölfar hækkandi verðbólgu. Þeg-
ar hún næst niður skapast skilyrði
til þess að lækka vextina eins og
nú er verið að gera.
Morgunblaðið/RAX
Myndin var tekin eftir undir-
skrift samningsins sem háð er
fyrirvara um samþykki borgar-
yfirvalda. F.v. Ami Vilhjálmsson,
Bragi Hannesson, Benedikt
Sveinsson og Davíð Oddsson.
Borgarráð:
Afgreiðslu
Grandamáls-
ins frestað
SAMNINGUR um sölu hluta-
bréfa borgarsjóðs í Granda hf.
sem undirritaður var á mánu-
dag með fyrirvara um samþykki
borgarráðs var lagður fram á
fundi ráðsins i gærdag.
Fulltrúar allra flokka lögðu
fram bókanir en engar umræður
urðu um málið. Samkomulag náð-
ist um að fresta afgreiðslu þess
til næsta fundar. Gert er ráð fyrir
að samningurinn verði tekinn til
umræðu 15. september á fyrsta
fundi borgarstjómar eftir sum-
arfrí.
Sjá bókanir borgarráðsmanna á
bls. 37
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Mjöltankar fluttir til Grindavíkur
Grindavík.
FLUTNIGASKIPIÐ Tec Vent-
ure kom með þennan óvenju-
lega farm til Grindavíkur í
gærkvöldi þegar skipið kom
með tvo 1200 tonna mjöltanka
til Fiskimjöl og Lýsi hf. frá
Noregi. Þeir ásamt vélum og
tækjum sem einnig eru í farm-
iniun er afgangurinn af fiski-
mjölsverksmiðjunni sem keypt
var frá Vigholmen í norður
Noregi í fyrra.
Tankamir verða reistir ofan
við Svíragarðinn í Grindavíkur-
höfn til hliðar við fiskimjöls-
verksmiðjuna en með tilkomu
þeirra verður öll útskipun á
mjöli einfaldari þar sem mjöl-
inu verður dælt í flutningaskip-
in.
Kr.Ben.
Reglugerð um afslátt
af skattskuldum:
Gert ráð fyr-
ir breytingnm
BJARNI Sigtryggsson blaða-
fulltrúi fjármálaráðuneytisins
segir að ætið hafi verið gert ráð
fyrir því að reglugerð um af-
slátt af skattskuldum, myndi
kalla á lagabreytingu, og rikis-
stjórnin hefði þegar veitt heim-
ild fyrir slíku.
Ríkisendurskoðun hefur komist
að því að samkvæmt gildandi lög-
um sé ekki heimild fyrir reglugerð
um afslátt af gömlum skattskuld-
um. Bjami Sigtryggsson sagði að
ijármálaráðherra hefði kynnt drög
að þessari reglugerð á ríkisstjóm-
arfundi fyrir tveimur vikum og
hefði þar fengið heimild til að
vinna áfram að málinu, með laga-
breytingum ef með þyrfti.
Til greina kom að setja bráða-
birgðalög sl. föstudag um gildi-
stöku reglugerðarinnar en af því
varð ekki. Bjarni sagði ekki útilok-
að að óskað yrði eftir setningu
bráðabirgðalaga um gildistökuna
en líklegast væri að stjómarfmm-
varp yrði iagt fram í upphafí næsta
þings.
Verðstöðvunin:
Margir leita úrskurð-
ar Verðlagsstofnunar
Sölufélag garðyrkjumanna frestar grænmetisuppboðum
„SÍMINN var rauðglóandi f allan dag. Talsvert var um að neytendur
hringdu til okkar með ábendingar og kvartanir. Kaupmenn og heildsal-
ar hringdu einnig mikið og voru mest að spyija hvemig þeir ættu að
hegða sér í hinum ýmsu tilvikum," sagði Guðmundur A. Sigurðsson,
viðskiptafræðingur Verðlagsstofnunar, í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „Það eru mörg jaðartilvik og ýmsar uppákomur í tengslum
við verðstöðvunina og leitað var eftir þvi að fá úrskurði hjá okkur.
Menn taka því verðstöðvunina nyög alvarlega og bókstaflega eins og
við gerum."
„Við höfum svarað mönnum þann-
ig að um algera verðstöðvun sé að
ræða. Það hafa hringt hingað inn-
flytjendur vegna vörutegunda, sem
hafa ekki verið til í svo og svo lang-
an tíma en eru nú komnar aftur á
miklu hærra innkaupsverði. Og þeir
spyija hvemig þeir eigi að haga sér
í þeim tilvikum. Við svörum þeim
þannig, að þeir verði skilyrðislaust
að selja þær á sama verði og þær
voru áður. Þeir verði að skerða sína
álagningu, en að öðrum kosti ekki
selja vöruna," sagði Guðmundur.
Hann sagði að ekki hefði verið
hægt að fylgja eftir ábendingum
fólks nægjanlega vel fram að þessu,
en það verði gert fullum fetum.
Meirihluti verðgæslumanna á vegum
Verðlagsstofnunar hafí unnið að
verðkönnunum og þeir fari í þetta
verkefni um leið og tími gefíst í vik-
unni. Að sögn Guðmundar má búast
við að stofnunin geti birt verðkann-
anir í lok þessarar viku.
Leyfí fékkst frá fjármálaráðuneyt-
inu fyrir allt að átta stöðugildum í
viðbót á meðan verðstöðvunin stend-
ur yfír, en að sögn Guðmundar hefur
gengið erfiðlega að manna þær stöð-
ur. „Það hefur verið leitað úti um
allar trissur að fólki og ég á von á
því að þetta fari að skýrast," sagði
Guðmundur.
„Við höfum ákveðið að fresta upp-
boðum á grænmeti þar til verðstöðv-
un lýkur," sagði Hrafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Sölufélags garð-
yrkjumanna, í samtali við Morgun-
blaðið. „Verðlagsstofnun hefur sagt
að vegna verðstöðvunarinnar megum
við ekki telja niður frá hærra verði
en boðið var á föstudaginn. Það er
því í rauninni tilgangslaust að bjóða
upp þegar þak er komið á verðið,"
sag$i Hrafn.
„Verðstöðvunin kemur sér mjög
illa fyrir garðyrkjubændur, sérstak-
lega ylræktarbændur sem framleiða
grænmeti, þar sem verð á fram-
leiðslu þeirra hefði að öllu óbreyttu
hækkað með minnkandi framboði í
september," sagði Hrafn.
„Tekjutap garðyrkjubænda vegna
verðstöðvunarinnar yrði því meira
en annarra, auk þess sem uppboðs-
markaðurinn er óstarfhæfur vegna
hennar. Við höfum því óskað eftir
að verðmyndun á grænmeti á öllum
sölustigum verði veitt undanþága frá
ákvæðum bráðabirgðalaganna.
Verðstöðvunin veldur því einnig að
við verðum af þeirri veigamiklu
reynslu að sjá verðþróunina á upp-
boðsmarkaðinum í september þegar
innflutt grænmeti fer að keppa við
innlent," sagði Hrafn.
„Við viljum að þeir byiji að telja
niður verðið frá því sem það var á
síðasta uppboði. En þeir virðast hafa
sett gólf á verðið. Það erum við ekki
sáttir við,“ sagði Guðmundur. Verð-
lagsstofnun mun ræða þessi mál við
Sölufélagið.
Að sögn Guðmundar mun Verð-
lagsstofnun ekki skipta sér af físk-
mörkuðunum, þar sem þar væri
mest um vinnsluvöru og útflutnings-
vöru að ræða.
Drög að hallalausu
fjárlagafrumvarpi
Strandaglóparnir 1 Héðinsfirði:
Hópurinn gerði vart við sig
HÓPURINN sem er einangrað-
ur í Héðinsfirði hafði samband
við lögregluna á Siglufirði I
gærkvöldi í gegnum farsíma
og liður ölium vel að sögn lög-
regiunnar. Ákveðið var að fólk-
ið hefði samband við lögregl-
una aftur í dag, og i framhaldi
af því yrði ákveðið hvað gert
verður.
AÐ sögn lögreglunnar verður
athugaður sá möguleiki að sækja
fólkið sjóleiðis, en það hefur ekki
verið unnt, þar sem mikið brim f
Héðinsfírði hefur komið í veg fyr-
ir lendingu í fjörunni þar. Ef það
takist ekki á næstu dögum sé sá
möguleiki fyrir hendi, að björgun-
arsveitarmenn gangi yfir Hests-
skarðið milli Siglufjarðar og Héð-
insfjarðar og fylgi hópnum sömu
leið til baka. Það er þó háð því
að stytti upp vegna hættu á
skriðuföllum. Sennilegast er því
að hópurinn, fjórir fullorðnir og
§ögur böm, þurfí að bíða uns sjó-
leiðin verður fær.
Hópurinn fór til Héðinsfjarðar
á föstudaginn til þess að veiða í
Héðinsfjarðarvatni. Hefur lög-
reglan eftir fólkinu að það hafí
þó orðið lítið úr þeirri fyrirætlan,
eftir úrhellið og vindinn. Það geti
því ekki stytt sér biðina eftir því
að komast til byggða með því að
renna fyrir silung.
DRÖG að hallalausu fjárlaga-
frumvarpi liggja nú fyrir í fjár-
málaráðuneytinu og ræddu odd-
vitar stjómarflokkanna saman
um drögin í gær. Efnahags-
nefnd ríkisstjórnarinnar fundar
um fjárlagadrögin í dag og þau
verða síðan lögð fyrir ríkis-
stjómarfund á fimmtudag.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins era niðurstöðutölur
þessara fjárlagafmmvarps-
draga í kringum 70 milljarðar,
en niðurstöðutölur núgildandi
fjárlaga vora 63 miiljarðar.
Fyrstu áætlanir í sumar bentu
til þess að fjárlagafrumvarp næsta
árs yrði með allt að þriggja millj-
arða halla. Eftir að ráðuneyti
lögðu fram óskalista um fjárveit-
ingar jókst hallinn talsvert en und-
anfama daga hefur verið unnið
að fjárlögum í samræmi við þá
stefnu ríkisstjómarinnar að þau
verði hallalaus og verulega sé
dregið úr útgjöldum.
Starfshópar einstakra ráðu-
neyta og Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnunar hafa meðal annars skil-
að tillögum um hagræðingu í
rekstri fjárfrekra málaflokka og
stofnana innan ríkiskerfísins.
Kostakaup
gjaldþrota
EIGENDUR verslunarinnar
Kostakaupa í Hafnarfirði hafa
óskað eftir gjalþrotaskiptum.
Þessi ákvörðun var tekin á hlut-
hafafundi í fyrirtækinu. Versluninni
var þegar lokað og misstu um 25
starfsmenn fyrirvaralaust vinnu
sína.
Að sögn Hákons Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra Kostakaupa, er
ástæðan fyrir því að óskað var eft-
ir gjaldþrotaskiptum gífurlega hár
fjármagnskostnaður og hörð sam-
keppni í matvöruversluninni.