Morgunblaðið - 31.08.1988, Síða 22
22_________________MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988__
Um vanda refaræktarinnar
Svar til Egils Jónssonar
eftirLeifKr.
Jóhannesson
Egill Jónsson alþm. skrifar grein
í Morgunblaðið 23. ágúst sl. og birt-
ir m.a. fjölda mynda af ýmsum
mönnum og skrá yfír stjórnir og
ráð hinna ýmsu stofnana er tengj-
ast landbúnaðinum.
Ekki er ástæða til að hirða um
það að leiðrétta þær villur og rang-
færslur, sem þar koma fram, en
ekki verður komist hjá því að víkja
að og leiðrétta ýmislegt, sem kemur
fram í téðri grein um málefni refa-
bænda. Er það gert í trausti þess,
að menn vilji heldur hafa það, sem
sannara reynist.
Verður nú vikið að efni greinar-
innar.
Egill getur þess réttilega að mik-
ill vandi steðji núna að refarækt-
inni. Verðfall á refaskinnum hafi
orðið mikið á undanfömum 2—3
árum og verðið haldið áfram að
falla eftir því sem á leið. Þetta
hafí verið staðfest fyrir um átta
mánuðum.
Síðan segir greinarhöfundur:
„Á þessum sama tima hafa mál-
efni refabænda verið til umræðu,
nefndir og stjómir unnið að tiliögum
á ýmsum sviðum þessara mála —
en að mestu án nokkurs umtals-
verðs árangurs.
Að undanfömu hefur einkum
verið fjallað um skuldir refabænda
sem safnast hafa við þau erfiðu
rekstrarskilyrði sem að framan eru
greind og þá hvemig unnt sé að
breyta þeim í föst lán. En það er
forsenda þess að annan vanda í
loðdýrabúskap sé unnt að leysa.
Það sem sérstaklega vekur at-
hygli í þessari umræðu eru sífelldar
yfírlýsingar um að ekki sé hægt
að „bjarga öllum refabændum" og
hafa loðdýrabændur sjálfir ekki
verið eftirbátar annarra í þessum
eftium. Þessi málatilbúnaður hefur
verið Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins kærkomið tækifæri til að ná
fram í þjóðfélagsumræðunni nei-
kvæðu viðhorfi gagnvart þeim
vanda, sem hér er við að fást, en
þannig hefur deildinni tekist að
styrkja afstöðu sína gagnvart mál-
eftiinu.
Til að rökstyðja þetta nánar
minni ég á að áður en 40 refabænd-
um var tilkynnt að þeir væru orðn-
ir gjaldþrota var frétt um það kom-
ið á framfæri í Ríkisútvarpinu. Eft-
ir framkvæmdastjóra deildarinnar
héldu síðan samskonar fréttir áfram
að birtast í dagblöðum. Fyrir fáum
dögum birtist svo frétt í Ríkisút-
varpinu þar sem framkvæmdastjóri
Stofnlánadeildarinnar lýsir yfír að
skekkjur kunni að leynast í mati
deildarinnar á eignum refabænda
og sú almenna skýring gefin að
bændur landsins láti ekki meta fast-
eignir sínar til að komast hjá
greiðslu fasteignagjalda."
Svo mörg voru þau orð.
Það er með öllu óskiljanlegt að
slengja því fram, að Stofnlánadeild-
inni hafí verið það kærkomið tæki-
færi til að fá fram neikvæða um-
ræðu um málefni refabænda. Mér
er fullkunnugt um að stjómarmenn
Stofnlánadeildar hafa haft fullan
vilja til að reyna að leysa vanda
þessarar búgreinar og er þar enginn
undanskilinn. Verður vikið nánar
að því síðar hvað deildin hefur ver-
ið beðin um að gera og hvað hún
hefur gert.
Eftir §árhagslega úttekt á stöðu
refabænda, sem gerð var af deild-
inni, kom í ljós, sem engan átti að
undra, að staða þeirra var mjög
erfið, einkum þeirra sem búa ein-
göngu með ref. Við mat á eignum
þeirra, sem gert var af Bygginga-
stofnun landbúnaðarins á sama
hátt og gert var þegar lausaskuld-
um bænda var breytt í föst lán árið
1984 og 1985 og reyndar við eldri
skuldbreytingar þá kom í ljós að
veð voru fullnýtt hjá allmörgum
refabændum.
Að beiðni Sambands íslenskra
loðdýraræktenda til deildarinnar
var þessum bændum tilkynnt um
stöðu þeirra og ekki væri möguleiki
til skuldbreytinga. Stofnlánadeildin
myndi þó færa afborganir á lánum
hjá viðkomandi mönnum aftur fyrir
og ekki krefja um greiðslu fyndu
þeir einhveijar leiðir til úrlausnar
sínum málum.
Stofnlánadeildin hefur aldrei gef-
ið út yfírlýsingu um að umræddir
bændur væru gjaldþrota, heldur
aðeins að ekki væri til veð fyrir
skuldbreytingu. Það er annarra
túlkun, að um gjaldþrot sé að ræða.
Sem betur fer eru nokkrir þessara
bænda með litlar lausaskuldir og
hafa ekki verri rekstrarstöðu en
aðrir.
Leifur Kr. Jóhannesson
„Það er á sumum að
heyra, að skuldbreyting
fyrir refabændur sé
einhver allsherjar
lausn. Gott er ef satt
er. Því miður er hún
aðeins eins og deyfilyf
nema að hægt sé að
tryg-gja rekstargrund-
völl fyrir greinina.“
Það getur vel verið að greinar-
höfundur sé svo óskeikull að honum
yfirsjáist aldrei neitt. Svo hefur
verið á honum að skilja að engar
skekkjur gætu komið fram í mati
á eignum. Stofnlánadeildin hefur
til stuðnings mati sínu stuðst við
fasteignamatið. Því miður vantar í
það mat ýmsar eignir svo sem end-
urbyggingar og stækkanir, og hús,
einkum þau nýrri. Sumar þessar
eignir eru ekki á skrá hjá Bygginga-
stofnun landbúnaðarins. Að sjálf-
sögðu ber að leiðrétta slíkt þegar
það hefur komið í ljós og hefur
ævinlega verið gert. Um skattsvik
eða þess háttar í sambandi við þessi
mál, þá er það ekki hlutverk Stofn-
lánadeildar að fjalla um þau og
engar slíkar yfírlýsingar frá deild-
inni komnar um það. Ekki er ástæða
til að eyða frekari orðum á slíkar
aðdróttanir svo fráleitar sem þær
eru.
Greinarhöfundur víkur að í þrem-
ur liðum, matsreglum matsaðila og
heimildum til skuldbreytinga. Skal
nú vikið að því nánar.
1. Greinarhöfundur gagmýnir, að
Byggingastofnun landbúnaðar-
ins skuli falið að meta eignir
bænda á jörðum því hún sé ekki
óvilhöll stofnun þar sem hún sé
kostuð að mestum hluta af
Stofnlánadeildinni. Því er til að
svara, að eftir því sem best er
vitað þá leggur hver stofnun,
sem annast lánveitingar að sjálf-
sögðu mat á það veð sem lánað
er út á. Verður vart séð að það
sé eðlilegra á annan hátt.
Skammt er að minnast harðrar
umræðu í þjóðfélaginu um að
ákveðnir starfsmenn hefðu ekki
gætt þess að veð væru fyrir
áhvflandi lánum og ekki stóð á
því að sakfella ætti þá fyrir að-
gæsluleysi. Þess skulu menn
minnast. Rétt er að upplýsa það,
að þegar deildin veitir lán til
jarðakaupa þá er krafíst mats á
viðkomandi jörðum af þar til
dómkvöddum óvilhöllum mönn-
um. Við athugun á síðustu 25
mötum frá dómkvöddum mats-
mönnum kemur í ljós að mat
Byggingastofnunar landbúnað-
arins liggur um 20% yfír mati
hinna dómkvöddu manna, en það
er það mat, sem stofnunin not-
aði við mat á eignum refa-
bænda. Það er sem sagt stað-
reynd að mat B.L. er hærra, en
óvilhallra dómkvaddra manna.
Varla er því hægt að væna B.L.
um það, að hafa af lántakendum
í veðhæfni.
Þegar í ljós kom, að allmargir
refabændur höfðu ekki veð til
frekari skuldbreytinga ákvað
stjóm Stofnlánadeildar að
breyta fymingarreglum á úti-
húsum á jörðum þessara bænda
og fyma þau ekkert fyrstu 5
árin og meta þau á nývirði, en
fyma refabúrin um 15% á ári.
B.L. hefur nú framkvæmt þetta
mat og það eykur veðhæfni
verulega eða um 30% og gerir
það að verkum, að flestir refa-
bændur geta notið þess, að fá
skuldbreytingu. Þetta kann að
orka tvímælis og víst er að geng-
ið er út á ystu nöf, en þetta
sýnir þó að stjóm deildarinnar
skilur vel vanda refabænda og
vill í fullri alvöru taka þátt í að
leysa þeirra mál.
2. Heimildir til skuldbreytinga.
Stofnlánadeild landbúnaðarins
hafði ekkirétt til skuldbreytinga
á lausaskuldum bænda fyrr en
með breytingu á lögum deildar-
innar frá 18. apríl 1986. Með
þeirri lagabreytingu jrfírtekur
deildin lausaskuldalán bænda
við Veðdeild Búnaðarbanka ís-
lands, sem veitt voru samkvæmt
sérstökum lögum á áranum
1962,1969,1979 og 1984. Pjall-
ar lagabreytingin aðallega um
yfírtöku þessara lána, en auk
þess er deildinni heimilað að
breyta í föst lán lausaskuldum
bænda vegna búrekstrar. í
síðustu málsgrein laganna segir
svo: „Ákvæði laga nr. 45/1971,
um Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins, gilda um allar lánveitingar
og lánskjör á lánum vegna lausa-
skulda bænda". Hver era svo
ákvæði laga um Stofnlánadeild
landbúnaðarins nr. 45/1971.
Þau era þannig: „Upphæð lána
má að jafnaði vera allt að 60%
kostnaðarverðs, eins og meðal-
kostnaður sambærilegra fram-
kvæmda er talinn ár hvert.
Heimilt eró, ef sérstaklega
stendur á, að veita hærri lán eða
allt að 70%, ef ástæða þykir til
að örva ákveðna framleiðslu-
grein á einstökum landsvæðum
eða aðrar ástæður mæla sér-
staklega með auknum stuðningi
við viðkomandi framkvæmdir.
Njóti framkvæmdir framlags
samkvæmt j arðræktarlögum,
lækkar lánsupphæðin sem svar-
ar framlaginu. Um ákvörðun
lána skal stjóm deildarinnar
hafa hliðsjón af því, hve mikil
önnur veðlán hvíla á eigninni og
skal eigi veita lán, ef ástæða er
til að ætla, að búrekstur á jörð-
inni fái ekki staðið undir auknum
lánum...“
í þessum lagaákvæðum kem-
ur skýrt fram hveijar lagaheim-
ildir eru til lánveitinga. Stjóm
Stoftilánadeildar ákvað að nýta
heimild í lögum um 70% lán þar
sem ljóst var að lítið rými var
til skuldbreytinga, ef miðað væri
við 60%.
Það þarf engan að undra þó
þröngt geti verið um veð hjá
refabændum þar sem lánveiting-
ar til framkvæmda hafa verið
um 60% af kostnaði auk annarra
lána, sem tekin hafa verið og
greiðslum afborgana verið frest-
að. í þeim starfshópum, sem
fjölluðu um vanda refabænda á
Flugdagur á Patreksfirði
Patreksfirði.
FLUGDAGUR var haldinn á
vegum flugklúbbsins Byrs á
Patreksfjarðarflugvelli sunnu-
daginn 21. ágúst. Flugklúbbur-
inn samanstendur af félögum
frá Patreksfirði, Tálknafirði og
Bíldudal.
Þrátt fyrir að veður væri ekki
sem best heppnaðist dagskráin
mjög vel og var flugsýning frá
Vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli
þar stærsta atriðið.
Dagskráin byijaði með því að
Orion-kafbátaleitarflugvél flaug
lágflug inn fjörðinn og yfír flug-
völlinn tvær ferðir. Þá flugu fjórar
F-15 orrastuþotur yfír völlinn í
hópflugi og að því loknu kom
Herkúles-flugvél og þyrla og tók
þyrlan eldsneyti úr Herkúles-vél-
inni á flugi. Að því loknu var sýnd
björgun á þyrlunni þar sem maður
var hífður upp í þyrluna af vellin-
um.
Þegar þessari sýningu var lokið
var þyrlan til sýnis fyrir almenning
og var mikill fengur fyrir yngstu
kynslóðina að fá að fara upp í
svona verkfæri.
Veðrið var frekar leiðinlegt
þennan dag og kom það í veg fyr-
ir að sá fjöldi flugvéla sem búist
var við kæmi á staðinn. Aðeins
komu fjórar vélar að. Talsvert af
fólki fylgdist með sýningunni sem
mun vera ein stærsta sem herflug-
vélar frá Keflavík hafa haldið utan
Reykjavíkursvæðisins.
- Fréttaritari
Þyrluflugmaður býr sig undir að hífa mann upp í þyrluna af vellinum.
Lýður Sörlason á nýju rakarastofunni í Nóatúni.
Ný rakarastofa í Nóatúni
LÝÐUR Sörlason hefur opnað lagsins ásamt Páli Sigurðssyni.
nýja rakarastofu að Nóatúni Sú stofa hefur nú verið lögð nið-
17 í Reykjavík. ur.
Lýður rak um tíu ára skeið Á nýju stofunni verður veitt
rakarastofuna í húsi Eimskipafé- öll venjuleg hársnyrtiþjónusta.