Morgunblaðið - 31.08.1988, Síða 24

Morgunblaðið - 31.08.1988, Síða 24
24 MORGUNBLaÐIÐ, MIÐVIKIJDAGUR 31. ÁGÚST 1988 Skólagjöld í Bandaríkjunum: íslendingar og Anierík- anar, „ekki það sama“ eftirKristin Steinar Sigríðarson Sigurbjörn Magnússon, stjórnar- formaður Lánasjóðs íslenskra námsmanna, ritaði skemmtilega grein í Morgunblaðið þann tuttug- asta og annan ágúst síðastliðinn þar sem hann, að eigin mati eflaust, rífur til grunna grein mína sem birtist hér í blaðinu vikuna áður undir yfirskriftinni, „Höfum við efni á að senda fólk í ódýra skóla." Þetta kom mér svo sem ekkert á óvart því ég átti nú von á að Sigur- bjöm myndi einhvem veginn reyna að vetja stefnu sjóðsins. Formaður- inn segir í grein sinni að ég hafi dregið upp villandi mynd af aðstæð- um námsmanna í skólagjaldalönd- um, en ég vil í þessari stuttu grein minni reyna að leiðrétta staðhæf- ingar Sigurbjamar, sem eru ekki bara villandi heldur hreinlega út í hött. Tölur Sigurbjamar eru villandi Sigurbjöm segir að samkvæmt tölum frá College Board (samtök skóla) í Bandaríkjunum, séu skóla- gjöld fyrir fyrrihlutanám í 61,4% tilvika undir $5.000, sem er há- markslán sem LÍN veitir til þeirra hluta. Þessar tölur gætu verið hárréttar hjá Sigurbimi. Gallin er bara sá að þessar tölur eiga við um Banda- rílqamenn en ekki útlendinga. Þannig er mál með vexti að skóla- gjöld eru oft lægri fyrir Bandaríkja- menn en útlendinga og oft er það svo að ef fólk fer í skóla í sama fylki og það býr í þá eru skólagjöld nær engin. Þær tölur sem ég gaf upp í fyrri grein minni, þ.e. að meðal- skólagjöld í bandarískum ríkis- skólum væru $6.500 en í einka- skólum $9.100, eru komnar frá Fulbright-stofnuninni og eiga við um erlenda námsmenn i Banda- ríkjunum. Þær eru því réttari en tölur Sigurbjarnar. Mér finnst því forkastanlegt af stjóm lánasjóðsins að miða lán sín við marklausar tölur því ég efast ekki um að Sigurbimi er fullkunn- ugt um staðreyndir málsins. Að minnsta kosti fara starfsmenn sjóðsins ekki í launkofa með sína vitneskju. Sigurbjöm telur það einnig ámælisvert, að ég minnist ekki einu orði á þá staðreynd að LÍN lánar að fullu fyrir skólagjöldum í fram- haldsnám þ.e. mastemám. Það er allt gott og blessað, en í þessari umræddu grein minni fjallaði ég um fyrrihlutanám. Þannig að framhaldsnám var þar undanskilið. Sú staðreynd að LÍN iánar að fullu fyrir skólagjöldum í fram- haldsnám breytir því ekki að skóla- gjaldalán í fyrrihlutanám þurfa að hækka svo námsmenn geti haldið áfram námi. Sigurbimi ætti líka að vera full- kunnugt um að til að komast í fram- haldsnám þarf fyrst að ljúka fyrri- hluta og þar sem LIN lánar aðeins fyrir skólagjöldum í nám sem ekki er hægt að stunda á íslandi, er fyrrihlutanám jafn mikilvægt og framhaldsnám. Þess vegna þarf að hækka þessi lán án tafar. Hefur námsmönnum fjölgað? Sigurbjöm mótmælir einnig harðlega að verið sé fæla fólk frá námi í skólagjaldalöndum á þeim forsendum að námsmönnum sem fara til Bandaríkjanna hefur fjölgað um 248% síðan 1978. Það ætti ekki að koma nokkmm manni á óvart að þeim hafi fjölgaði svo mikið, því árið 1978 voru lán til skólagjalda svo til engin. Þau komu ekki til sögunnar fyrr en fjór- um árum seinna, eða með nýrri lög- gjöf sem Alþingi samþykkti árið 1982. Þegar þau lög voru samþykkt vom Iánin raunhæf en margt hefur breyst síðan þá. Skólagjöld í Banda- rílqunum hækka að meðaltali um 10% á ári en það gera lán sjóðsins ekki. Skólagjaldalán vom hinsvegar lækkuð úr $6.000 í $5.000 árið 1986. Þess vegna hefur bilið á milli lána lánasjóðsins og raunvemlegra skólagjalda stöðugt breikkað og með 30% hækkun dollarans síðustu mánuði hefur það orðið óbrúanlegt nema með aðstoð fjársterkra ætt- ingja og em þeir ekki í hverri fjöl- skyldu. Þess vegna væri gaman að sjá fjölgun námsmanna í Bandaríkjun- um á milli áranna 1985 og 1988. Ég efast ekki um að hún sé nei- kvæð. Það besta borgar sig Ég vil endurtaka það sem ég Kristinn Steinarr Sigríðarson sagði áður að það getur aðeins orð- ið landi og þjóð til hagsbóta að íslenskir námsmenn hljóti þá bestu menntun sem völ er á. Það er einn- ig nauðsynlegt að námsmenn flykk- ist ekki allir á einn stað því það myndi aðeins valda stöðnun í öllum deildum þjóðlífsins sem er hættu- legt fyrir jafn einangraða þjóð sem íslendingar em. Auðvitað kostar allt peninga en er ekki verið að byija á öfugum enda með því að byija spamaðinn hjá LÍN. Er ekki menntun ungs fólks undirstaðan í þeirri framtíð sem blasir við? Það ætti hveijum manni að vera ljóst að lán til skólagjalda verða að hækka ella munu námsmenn hrökklast heim í stómm stíl. Myndi það ekki borga sig fyrir þjóðfélagið að fólk lyki námi í stað þess að koma hem réttindalaust, vegna lágra skólagjaldalána, eftir að hafa eytt þó nokkmm fjárhæðum í nám sem engum nýtist? Það er ekki verið að biðja um stórkostlegar upphæðir, t.d. myndi nægja að hækka lánin í uppruna- legt horf þar sem $6.000 em há- márkslán og láta þau síðan fylgja meðalhækkun skólagjalda í hveiju landi. Það myndi samt vera fyrir neðan meðalskólagjöld i ríkisskól- um, en það myndi gefa námsmönn- um einhveija möguleika. Ég skora því aftur á stjóm lána sjóðisins að breyta þessu hið snar- asta. Það er hægt og til þess þarf aðeins viljann til að sjá málið í réttu ljósi, kannski þá geta námsmenn haldið utan með þá vissu að þeir geti klárað þetta námsár stóráfalla- laust. Höfundur er nemi í fatahönnun við Parson School of Design íNew York-borg. Komposition eftir Þorvald Skúla- son ’er mynd septembermánaðar í Listasafni íslands. Mynd september- mánaðar í Listasafni Islands í Listasafni íslands fer viku- lega fram kynning á mynd mán- aðarins. Mynd septembermánað- ar er oliumálverk Þorvaldar Skúlasonar, Komposition (Höfn- in), frá árinu 1938 og var mál- verkið keypt til safnsins sama ár. Þorvaldur Skúlason fæddist árið 1906 og nam við Statens Kunst- akademi í Osló og síðar við einka- skóla Marcel Gromaire í París. Þor- valdur var einn helsti brautryðjandi íslenskrar nútímalistar. Hann lést árið 1984. Leiðsögnin „Mynd mánaðarins" fer fram í fylgd sérfræðings alla fímmtudaga kl. 13.30 og er leið- sögnin ókeypis. Listasafn íslands er opið alla daga nema mánudaga kl. 11—17 og er veitingastofa hússins opin á sama tíma. (Fréttatílkynning) ISLAND ER VEL KYNNTI PERSAFLÓARÍKINU OMAN í VIKURITINU Times of Oman, sem gefið er út í Oman og dreift m.a. til Sameinuðu furstadæmanna, Kuwait og fleiri ríkja við Persaflóa, birtist þann 11. ágúst s.l., lofsam- leg grein um ísland. Þar er saga lands og þjóðar rakin í stuttu máli og lýst því sem helst ber fyrir augu ferða- manna. Undir greinina skrifar Sue Ormrod, og lætur hún afar vel af landinu, náttúrufegurð þess og gestrisni íslend- inga, I greininni, sem nefnist „Töfrar íslands", er rakin saga lands og þjóðar, sagt frá eldgosinu í Vest- mannaeyjum og landnáminu. Seg- ir höfundur að ekki sé að undra þó landnámsmenn hafi nefnt landið ísland, tilgangurinn hafí augljóslega verið að halda fjölda nýrra landnema í skefjum svo nóg landrými væri fyrir þá sem þegar höfðu sest að. Loftslaginu segir hún vera milt, en sumur svöl og veður og vindar óstöðug og síbreytileg. Hún lýsir gróðurfari landsins og segir tré vera munað sem aðeins sé að finna í Reykjavík og telur vafasamt að takast megi að græða landið upp á ný, sökum hins umhleypingas- ama veðurfars og sauðfjárbeitar. „ísland nútímans er gjörbreytt frá því sem var fyrir stíð og ljós- árum fjarri íslandi 19.aldar“ segir í greininni. En einnig er bent á hversu vel okkur hafi tekist að varðveita tungu og menningu. íslendingar státi af heimsins al- mennustu lestrarkunnáttu og ekki sé óalgengt að finna meðal þeirra „myndhöggvara í netagerð, The míigic of íceland bændur sem yrkja, sjómenn sem mála og syngjandi bakara." Greinarhöfundi þykir einkar athyglisvert hversu margar bóka- búðir og bókaforlög séu í Reykjavík og hversu mörg dag- blöð komi hér út. „Maður fær það á tilfinninguna að ekki sé nóg með að allir íslendingar lesi bæk- ur, heldur skrifi þeir þær líka all- ir“ segir hún. í grein sinni lýsir Sue Ormrod því sem ber fyrir augu ferða- mannsins, allt frá komunni til Keflavíkur, Reykjavíkurborg og ferð jrfir hálendið. Hún segir frá göngu á Mýrdalsjökul og gistingu í Landmannalaugum. Hallorms- staðarskóg segir hún vera vel þess virði að heimsækja, jafnvel þó maður búi hinu megin á hnett- inum. Höfuðstað Norðurlands er lýst sem menntasetri og miðstöð menningar og lista, landbúnaðar og iðnaðar. Sagt er frá fískveiðum og fuglaskoðun við Mývatn, þar sem gestir séu sérstklega vel- komnir og geti fengið gistingu á sveitaheimilum sem sé tilvalin leið til að kynnast landi og þjóð. Vikuritið Times of Omiui birti nýlega þessa grein um Island, þar sem greinarhöfundur fer fögrum orðum um land og þjóð. Vestfirðir og Vesturland fá einnig sína umfjöllun, þar sem segir m.a að „einmanalegt og mikilfenglegt þverhnípi Látra- bjargs geti lostið mann yfirþyrm- andi tilfinningu fyrir smæð mannsins." Að lokum er getið næturlífs Reykjavíkurborgar, sem sé skemmtilegt og Islendingar sagðir vinsamlegir, opnir og gestrisnir. „En samt sem áður,“ segir Sue, „hefur heimurinn enn ekki upp- götvað eða lært að meta ósnortna náttúru landsins, en líffræðingar, jarðfræðingar og ákveðinn þjóð- flokkur sérvitra heimshomaflakk- ara hafi haldið landinu, með fjöll- um, jöklum, hverum, og fossum, laxi og silungi, göngum og klifri, hreinasta loftinu og ómenguðustu borg heims út af fyrir sig.“ íslandskynningu Times of Oman lýkur sfðan með því að les- endur eru boðnir „Velkomin til Islandl", eins og þar stendur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.