Morgunblaðið - 31.08.1988, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
Finnland:
Reuter
Björgunarmenn grannskoða svæðið þar sem ítalska þotan stakkst ofan í áhorfendaskarann á flugsýning-
unni i Ramstein í Vestur-Þýzkalandi á sunnudag.
Flugslysið í Ramstein:
Þýzkir læknar gagn-
rýna björgunarstarf
Bonn. Reuter.
VESTUR-þýzkir læknar gagnrýndu í gær björgunaraðgerðir eftir
flugslysið í Ramstein-flugstöðinni og sökuðu aðstandendur sýningar-
innar um fyrirhyggjuleysi. ítalskar sýningarþotur rákust saman með
þeim afleiðingum að ein þeirra stakkst ofan í áhorfendaskarann. í
gær var tilkynnt að tala látinna væri komin í 49 og að 50 manns,
sem hlotið hefðu annars og þriðja stigs brunasár, væru milli heims
og helju. Meðal hinna látnu voru að minnsta kosti sex Bandaríkja-
menn.
„Það er auðvelt að vera vitur
eftir á, en maður verður að spytja
sig hvers vegna engar hjálparsveit-
ir voru á staðnum," sagði Wolfgang
Herbig, yfírlæknir á sjúkrahúsi í
Kaiserslautem, en þangað voru
margir hinna slösuðu fluttir. „Það
skortir ekki sjúkrabfla og hjálparlið
á kappaksturskeppnum eða knatt-
spymuleikjum. Hættan er þó ekki
minni á flugsýningum," sagði hann.
Embættismenn sögðu að hinum
mest slösuðu hefði verið komið í
sjúkra'hús á innan við einni,klukku-
stund. Vörubflar bandaríska hers-
ins, sem hefur bækistöðvar í Ram-
stein, hefðu verið notaðir til flutn-
inganna, einnig einkabflar, þyrlur
og sjúkrabílar. „Hraðinn er ekki
endilega það bezta,“ sagði Herbig.
„Þeir hrúguðu mönnum upp á
bflpalla og óku þeim á brott. Það
hefði kannski verið rétta leiðin í
stríði en við hefðu kosið að staðið
hefði verið að björguninni með öðr-
um hætti," sagði Peter Wresch,
læknir á slysadeildinni í Ludwigs-
hafen.
Bandarískir embættismenn
vísuðu gagnrýni á björgunarað-
gerðir á bug og báru lof á björgun-
armenn. „Það er ekki hægt að ætl-
ast til þess að menn geri ráð fyrir
að rúmlega 300 manns slasist. Ef
mönnum byði í gmn að slíkt mundi
gerast þá myndu menn aflýsa sýn-
ingu.
Fánar voru hafðir í hálfa stöng
á opinberum byggingum í Vestur-
Þýzkalandi í gær og samúðarkveðj-
ur vegna hinna látnu héldu áfram
að streyma víðs vegar að úr heimin-
um. Frá árinu 1982 hafa á annað
hundrað manns beðið bana í slysum
á flugsýningum í Vestur-Þýzkal-
andi.
Dönsk yfírvöld settu í gær bann
við þátttöku danskra hervéla í flug-
sýningum heima og erlendis. Itölsk
blöð gagnrýndu í gær Valerio Zan-
one, vamarmálaráðherra, fyrir að
hætta ekki við frekari sýningarferð-
ir listflugsveitar ítalska hersins.
Auðveldasta
sýningaratriðið
Yfirmaður listflugsveitarinnar
sagði í gærkvöldi að flugvélarnar
hefðu verið að framkvæma eitt
auðveldasta sýningaratriði sitt þeg-
ar þrjár þotanna rákust saman með
fyrrgreindum afleiðingum. „Líkur á
árekstri við útfærslu þessa atriðis
eru hverfandi," sagði Diego Rani-
eri, ofursti.
Ranieri fylgdist með sveitunum
af jörðunni. „Eg veit ekki hver or-
sökin var en flugmaðurinn, sem
flaug þvert á stefnu hinna, kom of
snemma inn yfír sýningarsvæðið
og var í sömu hæð og hinar flugvél-
amar.
Umbætur í skatta-
málum sýna styrk
ríkisstj órnarinnar
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttantara Morgunblaðsins.
RÍKISSTJÓRN Harris Holkeris hefur sýnt pólitískan styrk sinn
með því að knýja fram ákvarðanir um kjaramál, fjárlög og endur-
skipan skattheimtu á aðeins einni viku. Stjómmálaskýrendur í Finn-
landi benda á að samvinna jafnaðarmanna og hægrimanna í ríkis-
stjórn virðist ganga betur en hjá samsteypustjómum jafnaðarmanna
og miðflokksmanna en slíkar stjórair vom við lýði i hálfa öld.
Stjórnarflokkarnir náðu samkomulagi í lok siðustu viku um breyt-
ingar á skattheimtu er stefna að lækkun tekjuskatts og einföldun
á skattakerfinu. Breytingamar urðu að visu ekki eins róttækar og
hægri menn lögðu upphaflega til en hins vegar virðast allir ráð-
herrar sammála um breytingarnar.
Hægrimaðurinn Harri Holkeri,
sem er forsætisráðherra, og Erkki
Liikanen, fjármálaráðherra úr
flokki jafnaðarmanna, hafa báðir
sagt að samkomulagið um skatta-
lagabreytingamar sé sögulegur
viðburður. Liikanen orðaði þetta
þannig að samsvarandi breytingar
séu ekki gerðar nema á 20 - 25
ára fresti. Að sögn hans voru breyt-
ingamar nauðsynlegar þar sem
undanþágur í skattkerfinu voru
orðnar svo flóknar að erfítt var að
sjá til þess að réttlæti væri fram-
fylgt. Með nýja kerfínu er stefnt
að því að allar tekjur verði skatt-
skyldar og þannig á að verða hægt
að lækka almennan tekjuskatt.
Fjárlög ríkisins gera ráð fyrir því
að skattar fyrir árið 1988 verði
jafnháir og 1987 og þykir það mik-
il breyting þar sem venjan hefur
verið sú að þeir hækka.
Stjómmálaskýrendur telja að
breytingamar séu ekki eins róttæk-
ar og búast hefði mátt við. Gildi
þeirra felist í því að þær sýni vilja
jafnaðarmanna og hægrimanna til
að vera saman í stjóm. Paavo Vay-
rynen, formaður Miðflokksins og
leiðtogi stjómarandstöðunnar, seg-
ist telja líklegt að stjómin muni
sitja út kjörtímabilið og flokkamir
tveir reyni að mynda samsteypu-
stjóm aftur að loknum næstu þing-
kosningum 1991. Þetta yrði áfall
fyrir Váyrynen, sem áðyr hefur átt
stjómarsamstarf við jafnaðarmenn
og hugðist mynda stjóm með
hægrimönnum eftir síðustu kosn-
ingar.
Þótt efnahagsráðstöfunum sé
lokið í bili á stjóm Holkeris eftir
að kljást við önnur verkefni sem
reyna mikið á samstarfshæfni
flokkanna. Ríkisstjómin þarf að
fínna leiðir til að minnka viðskipta-
hallann og ákveða þarf meginlínur
í afstöðunni til samskipta Finna við
Evrópubandalagið (EB). Rolf Kull-
berg seðlabankastjóri . álítur að
helsta vandamál þjóðarbúsins sé
sívaxandi innflutningur á neyslu-
vömm og sá viðskiptahalli sem
hann veldur.
Stóriðjufyrirtæki þrýsta á og
vilja aukna samvinnu við EB. I
sumar hefur verið rædd sú hug-
mynd að færa klukkuna aftur Um
eina stund svo að fínnskur stað-
artími verði sá sami og í París og
Brussel. Mismunurinn núna, ein
klukkustund, er ekki svo mikill að
hann skipti sköpum en talsmenn
breytingarinnar ítreka gildi þess
að skrifstofutími verði sá sami í
landinu og Brussel.
Stjómin þarf fljótlega að glíma
við endurskoðun ákvæða stjómar-
skrárinnar um forsetakosningar.
Hægrimenn hafa oft lýst því yfir.
að þeir vilji leyfa þjóðinni að kjósa
sé forseta í beinum kosningum.
Jafnáðarmenn eru á hinn bóginn
ánægðir með þær breytingar sem
gerðar voru fyrir síðustu kosning-
ar. Þa var horfíð frá þeirri hefð
að forsetinn væri kosinn af sérstök-
um, þjóðkjömum kjörmönnum en
svo hafði verið frá stofnun lýðveld-
isins 1917. Síðast voru kosningam-
ar beinar en þar sem enginn fékk
hreinan meirihlutá voru kjörmenn
látnir ráða úrslitum. Jafnaðarmenn
hafa verið tregir til að samþykkja
meiri breytingar en núverandi for-
seti er jaftiaðarmaður þótt borgara-
legir flokkar hafi meirihluta á
þirgi.
0
Israel:
Palestmumenn hefja
allsherjarverkfall
JerusaJem. Reuter.
ÍSRAELSIR hermenn skutu að minnsta kosti á einn palestínskan
mótmælanda í gær þegar Palestínumenn hófu tveggja daga alls-
heijarverkfall á hernumdu svæðunum til að mótmæla brottvisun
palestínskra andófsmanna. ísraelsstjórn átaldi Perez de Cuellar,
aðalritara Sameinuðu þjóðanna, fyrir að hafa notað orðið Palestína
yfir hernumdu svæðin.
Starfsmenn sjúkrahússins al-Itti-
had í Nablus, stærstu borg Vestur-
bakkans, sögðu að tveir Palestínu-
menn hefðu komið á sjúkrahúsið
með skotsár. Þeir kváðust ekki vita
hvort hermenn hefðu skotið á
mennina. Talsmaður hersins sagði
að einn Palestínumaður hefði særst
af völdum byssukúlu, auk þess sem
skotið hefði verið gúmmíkúlum á
þijá til viðbótar.
Óeirðir brutust út í Nablus eftir
að herinn aflétti útgöngubanni í
borginni. Annarsstaðar á Vestur-
bakkanum þar sem útgöngubanni
var aflétt fór allshejjarverkfallið
friðsamlega fram. Utgöngubann
var enn í gildi á Gaza-svæðinu.
Binyamin Netanyahu, leiðtogi
Likud-flokksins, sagði að flokkur
hans myndi grípa til harðra aðgerða
kæmist hann til valda eftir kosning-
amar í nóvember. Hann sagði að
meðal annars þyrfti að tæma flótta-
mannabúðimar á Gaza-svæðinu og
flytja íbúana eitthvert annað. Enn-
fremur þyrfti að „taka um þúsund
leiðtoga Palestínumanna á hem-
umdu svæðunum úr umferð", en
hann vildi ekki segja hvaða aðferð
yrði' beitt.
ísraelskir fjölmiðlar hafa greint
frá því að Perez de Cuellar hafí
talað um „ástandið í Palestínu“ á
blaðamannafundi í Genf á mánu-
dag. „Við getum ekki 'sætt okkur
við notkun orðsins „Palestína" í
þessu sambandi," sagði talsmaður
ísraelska utanríkisráðuneytisins,
Alon Liel. Hann sagði að Israelar
myndu mótmæla þessu innan Sam-
einuðu þjóðanna.
Skriðið yfir húsþökin
Reuter
Fastagestir á brezkri bjórkrá að nafni Svanurinn nutu dýrra veiga í góðviðrinji í hádeginu í gær
en skyndilega rauf risastór sovézk herflutningaflugvél kyrrðina. Hún var af gerðinni AN-124 og
er þar um að ræða stærstu þotu heims. Skreið hún rétt ofan við húsþökin í aðfluginu að flugvellinum
í Famborough í Englandi þar sem mikil flugsýning fer fram um næstu helgi. A sýningunni verða
einnig tvær fullkomnustu orrastuþotur Sovétmanna, MIG-29, og er það í fyrsta sinn sem þær verða
til sýnis í NATO-ríki.