Morgunblaðið - 31.08.1988, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
Kjöthneyksli í Vestur-Þýskalandi:
Ólöglegnm lyfjum
dælt í alikálfana
ZOrích, frá Ónnu Bjarnadóttur, fréttarítara Morgfunblaðains.
NEYTENDUR ætlast til að kálfakjöt, sem kostar sitt, sé ljóst og
meyrt. Kálfaræktendur vilja að dýrin stækki á sem skemmstum tíma
til að auka veltuna. Lyf og efnarík mjólkurfæða uppfylla kröfur
beggja hópanna. En ræktendum hættir til að ganga of langt. Vestur-
þýskum neytendum varð ekki um sel þegar forsíðufréttir birtust
um efnamagnið og lyfjategundirnar sem sumir bændur dæla í ali-
kálfa til að þyngja þá og gera sem safaríkasta. í upphafi var flett
ofan af tveimur stórbokkum sem stunduðu ólöglegar lyfjagjafir í
norðvesturhluta Sambandslýðveldisins en síðan hafa samskonar
starfshættir út um allt Vestur-Þýskaland komið í ljós. Ríkisstjórnin
hefur nú lagt til að stærð alibúa verði takmörkuð og Rita SUssm-
uth, heilbrigðisráðherra, segir að það verði að auka eftirlit og sam-
hæfa reglur Evrópubandalagsþjóðanna varðandi kjötmeti.
Reuter
Tunglmyrkvi í Japan
Deildarmyrkvi sást í Japan aðfararnótt sunnudags. Myndin er
samsett úr mörgum sem teknar voru með vissu millibili alla nótt-
ina við Osaka kastala.
Pravda lýsir spill-
ingu Tsjúrbanovs
Yfirvöld í Nordrhein-Westfalen
gerðu 14.000 kálfa úr kálfabúi Fel-
ix Hyings upptæka í bytjun ágúst.
Stórum hluta kálfanna var slátrað
og kjötið selt í hundamat en eigand-
inn var handtekinn. Alikálfar ná-
granna hans, Bemhards Waggers,
Svíar elta
enn óboð-
inn kafbát
Stokkhólmi. Reuter.
SKIP sænska flotans vörpuðu
djúpsprengjum í Stigfirði á vest-
urströndinni í gær eftir að mæl-
ingar gáfu til kynna að óboðinn
kafbátur leyndist þar.
Að sgn talsmanns flotans báru
sprengingamar engan árangur og
var leit að kafbátnum haldið áfram.
Stigfjörður er norður af Gautaborg.
„Kafbátsferða hefur orðið vart á
þessum slóðum, bæði af hálfu hers-
ins og almennra borgara, síðustu
daga," sagði Per Brissman, majór
í sænska flotanum.
Svíar tóku þá stefnu í sumar að
reyna fremur að sökkva kafbátum,
sem gerðust óboðnir í lögsögu
þeirra, í stað þess að knýja þá upp
á yfírborðið.
í júnímánuði gerði flotinn árang-
urslausar tilraunir til þess að
klekkja á meintum óboðnum kaf-
bátum í sænskri lögsögu.
vom einnig rannsakaðir. Ólögleg
efni fundust líka í þeim.
Efnin gætu skaðað kjötætur
Mennimir em báðir forríkir stór-
kálfaræktendur sem hafa áður legið
undir gmn um að dæla of miklum
lyfjum í alikálfa. Wagger var fyrst
nefndur í þessu sambandi árið 1981
og kæra gegn honum hefur setið
föst í kerfinu síðan 1985 en Hying
slapp við dóm árið 1986 vegna
skorts á sönnunargögnum.
Báðir sprautuðu hormónaefnum,
eins og östradiolbenzoat, testoster-
on-cypionat og testosteron-propion-
at, í dýrin. Þetta em náttúruleg
efni sem dýr og menn framleiða
sjálf og em þess vegna torfundin
við eftirlit. Þau auka vöxt dýranna.
Vísindamenn em ekki á eitt sáttir
um hættuna sem kjötætum stafar
af þeim en þau gætu hugsanlega
valdið krabbameini. Þeir em hins
vegar sannfærðir um að efnið clen-
buterol, sem fannst í kálfum Wagg-
ers og kallað er „tískuefni fjóss-
ins“, sé skaðlegt mönnum. Það er
tilbúið efni sem er notað gegn
astma og gefíð bömum og dýmm
sem fæðast fyrir tímann. Það hrað-
' ar vexti kálfa, sérstaklega læranna,
en stórir skammtar geta skaðað
hjarta neytenda kálfakjöts.
Farlama á 150 dögum
Kálfaeldi á sér nú til dags næst-
um eingöngu stað á stómm búum,
eins konar kálfaverksmiðjum, þar
sem vaxtarhraðinn er settur ofar
öllu. Fjósin taka um 300 og allt upp
í 10.000 kálfa. Þeir alast upp í
hörðum, dimmum, 60x160 sm stór-
um básum og komast aldrei í snert-
ingu við aðra kálfa eða náttúmna
yfirleitt. Þeim er eingöngu gefin
mjólkurfæða, svo að kjötið haldist
Ijóst, og fá aldrei tækifæri til að
jórtra, eins og kúm er lagið. Þeir
fá fúkkalyf og róandi lyf í ríkum
mæli strax frá fæðingu til að koma
í veg fyrir sjúkdóma og stressr Þrátt
fyrir það em þeir sagðir svo tauga-
veiklaðir að það má alls ekki koma
þeim á óvart. Annars má búast við
að þeir farist úr hjartaslagi. Þeim
er slátrað 120 til 150 daga gömlum.
Þá em þeir orðnir 150 til 200 kíló
og alveg farlama. Þeir em næstum
blindir, geta ekki gengið — þeir fá
aldrei tækifæri til að læra það —
og em togaðir á eyrunum í bílinn
sem ekur þeim til slátrarans. Talið
er að meðalkálfí séu gefnir 50 rúm-
sentimetrar af efnum, í föstu formi
eða með sprautu, á sinni skömmu
ævi.
Ótal reglur og fyrirmæli gilda
um lyfjagjafír við dýraeldi. Það er
heimilt að dæla í þau ýmsum efnum
en það á að gera það í hófí og
hætta því nokkm áður en skepnun-
um er slátrað og kjötið selt til mann-
eldis. Kjötræktarmönnum hættir
við að bijóta þessar reglur. Það er
erfítt að sanna nokkuð á þá nema
efnin fínnist í dýmnum eða spraut-
usár sjáist, það er eins og að leita
að nál í heystakki, að reyna að fínna
þau. Sumir alibændur em svo vark-
árir að þeir sprauta skepnumar við
halann eða augnatóftina svo að
farið sjáist ömgglega ekki.
Dýralæknar, fóðursalar, slátrar-
ar og kjötiðnaðarmenn em í vitorði
með kálfaframleiðendum sem hafa
orðið uppvísir að ólöglegum lyija-
gjöfum. Athæfí „kjötmafíunnar"
kom illa við vestur-þýska neytend-
ur. Þeir hafa á undanfömum ámm
mátt kyngja frostlegi í borðvíni,
geislavirku grænmeti og ormum í
físki. Nú bætast óþverraefni í kálfa-
kjöti við. Spum eftir kjötinu dróst
verulega saman eftir að fréttir þess-
ar spurðust og kálfaeldi var spáð
erfiðleikum næstu árin.
Heimild: Der Spiegel.
Moskvu. Reuter.
JÚRÍ Tsjúrbanov, tengdasonur
Brezhnevs, fyrrum Sovétleið-
toga, kemur fyrir rétt í Moskvu
á mánudag ásamt átta háttsett-
um embættismönnum lögregl-
unnar i Úzbekístan. í grein í
Prövdu, málgagni kommúnista-
flokksins, er fjallað um þetta
mesta spillingarmál sem komið
hefur fyrir sovéska dómstóla
síðan Míkhail Gorbatsjov, leið-
togi Sovétrílg'anna, komst til
valda.
Fyrirsögn greinarinnar er
„Tengdasonur og guðfeðúr hans -
saga um „glæsilegan feril““ og hún
gefur ljóta mynd af spillingu og
valdamakki i sovéska valdakerfinu.
Tsjúrbanov er lýst sem metnaðar-
gjömum og valdaþyrstum manni
sem orðið hafí leiksoppur valdamik-
illar Úzbek-mafíu eftir að hafa
kvænst einkadóttur Brezhnevs,
Galínu, árið 1971. „Hann er meðal-
maður með meðalhæfileika, sem
ávann sér aðeins frama vegna
þeirra miklu tækifæra sem honum
buðust," segir um Tsjúrbanov, sem
naut vemdar Brezhnevs og var
gerður að hershöfðingja.
í greininni beinast spjótin að
mörgu leyti frekar að misnotkun
valdsins almennt á Brezhnev-
tímunum en Tsjúrbanov sjálfum.
Talið er að þetta séu fyrstu réttar-
höldin yfír nánum vandamanni
Brezhnevs.
Saksóknari ríkisins, Alexander
Sbojev, sagði nýlega að Tsjúrbanov
hefði játað sekt sína og tekið yrði
tillit til þess hversu samvinnuþýður
hann hefði verið við rannsóknina.
Sovéskir embættismenn sem hafa
verið dæmdir fyrir spillingu hafa
hlotið dauðadóma, en yfirvöld sögðu
nýlega að dauðarefsingin yrði af-
numin nema vegna morða af ásettu
ráði og álíka glæpa, en ekki er vit-
að hvort Tsjúrbanov eigi dauðadóm
yfír höfði sér.
Heimspekingaþing í Bretlandi:
Hafa allir kettir þriár rófur?
St. Andrews, frá Guðmundi Heiðari Frímannsyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁTJÁNDA heimsþing heimspekinga var haldið í borginni Brigh-
ton í síðustu viku og lauk síðastliðinn laugardag. Viðfangsefni
þingsins var heimspekilegur skilningur á manninum. Þingið sátu
um þúsund heimspekingar, víðs vegar að úr veröldinni.
Á þinginu voru flutt 200 erindi spekinga til að varpa ljósi á rök
á 100 málstofum. Stærstu sendi-
nefndimar voru frá Bandaríkjun-
um, 180, frá Bretlandi, 100, og
frá Sovétríkjunum, 70. Sir Karl
Popper andmælti nauðhyggju í
erindi sínu og Sir Alfred Ayer
rökstuddi raunhyggju en þeir eru
tvímælalaust í hópi þekktustu
heimspekinga nú á dögum.
Halsbury lávarður, forseti Kon-
unglega heimspekifélagsins, sagði
í setningarræðu, að heimspeking-
ar yrðu að beita dæmum í kennslu
sinni og röksemdum sem hæfðu
bömum nútímans, t.d. mætti Iáta
Mikka mús halda fram sjónarmið-
um Aristótelesar og Andrés önd
skoðunum Ludwigs Wittgen-
steins. Af þessum athugasemdum
spunnust nokkrar rökræður á
þinginu um fræg heimspekileg
dæmi. Það er fom aðferð heim-
sín, að beita dæmum. Fom-gríski
heimspekingurinn Herakleitos
sagðist ekki geta stigið í sömu
ána tvisvar. Fræg spuming úr
miðaldaheimspeki er: „Hvað geta
margir englar komist fyrir á títu-
pijónshaus?" írski heimspeking-
urinn Berkeley kældi aðra hönd-
ina á sér en hitaði hina og stakk
þeim síðan báðum í volgt vatn.
Óll þessi dæmi em til þess að
varpa ljósi á heimspekilegar nið-
urstöður. Berkeley vildí leiða I Ijós
eðli skynjanlegra eiginleika,
Herakleitos hvemig hlutir héldust
samir og óbreyttir í síbreytilegri
veröld og miðaldaheimspeking-
amir vom að leiða í ljós einkenni
óefnislegra vera. Dæmi og dæmi-
sögur em líka notuð í skáldskap
til að draga ályktanir. Argentín-
ska skáldið Borges segir sögu af
manni sem skrifar sögu, sem í em
öll sömu orðin og í sögunni af
Don Kíkóta, höfundur Lísu í
Undralandi, Lewis Carroll, beitir
dæmisögum mjög hugvitsamlega.
Dæmin sýna líka að heimspekileg-
ar ráðgátur em sprottnar úr eðli-
legum, óbrotnum skilningi á
tungumálinu og heiminum. Hvað
er t.d. rangt við þessa rökfærslu:
„Allir kettir hafa fleiri rófur en
enginn köttur. Enginn köttur hef-
ur tvær rófur. Þess vegna hafa
allir kettir þijár rófur.“?
Ákveðið var að halda næsta
þing heimspekinga í Moskvu að
fimm ámm liðnum. Kenýa-búar
sóttust einnig eftir að halda þing-
ið en lutu í lægra haldi. Sama dag
og ákveðið var að næsta þing
yrði í Moskvu hélt Sir Karl Pop-
per erindi sitt. Hann andmælti
þeirri heimsmynd að framtíðin
réðist af fortíðinni eins og í sögu-
legri efnishyggju Karls Marx og
vélhyggju René Descartes. Sov-
éska sendinefndin missti hins veg-
ar af erindi Poppers, því að hún
ákvað að bregða sér frá þennan
eftirmiðdag.
Dr. Julius Tomin, heimspeking-
ur og andófsmaður frá Tékkósló-
vakíu, lagðist eindregið gegn því
að næsta þing yrði haldið í
Moskvu. Hann neyddist til að
hjóla frá Oxford til Brighton þar
sem hann átti ekki fyrir lestarfar-
inu. Hann varð síðan að mæta í
síðustu viku hjá fulltrúum félags-
málaráðuneytisins, sem greiða
honum atvinnuleysisbætur, sem
svarar rúmlega fímm þúsund
krónur á viku. Þeir hafa svipt
hann bótunum vegna þess að hann
gerir óeðlilegar kröfur til þeirra
starfa, sem hann er reiðubúinn
að sætta sig við. Þeir féllust ekki
á þau rök hans að besta leiðin
fyrir hann til að útvega sér vinnu
væri að sitja á bókasafni Oxford-
háskóla.
Frestað var að kveða upp úr-
skurð í málinu í tvær vikur. Upp
á Tomin mætti snúa fleygum orð-
um Descartes: „Ég hugsa, þess
vegna er ég til“, og segja: Ég
hugsa, þess vegna er ég blankur.