Morgunblaðið - 31.08.1988, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
jn*Ygi Útgefandi tnftftifrft Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aðstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúarritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83Ó33.
Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Biðraðir
húsnæðiskerfisins
Ifrétt í Morgunblaðinu síðast-
liðinn sunnudag er sagt: frá
því að Stig Malm, formaður
sænska alþýðusambandsins, sé
talinn hafa beitt áhrifum sínum
til þess að fá úthlutaðri íbúð til
dóttur sinnar. Með því var henni
hleypt fram fyrir eitt hundrað
þúsund ungmenni sem eru á bið-
lista og þurfa að bíða í fjögur
til fímm ár eftir íbúð í Stokk-
hólmi.
Skömmtunarkerfi, hvort sem
er í húsnæðismálum eða á öðrum
sviðum, býður upp á að sumu
fólki sé hyglað á kostnað ann-
arra, vegna tengsla sinna við t.d.
stjómmálamenn, háttsetta emb-
ættismenn eða aðra áhrifamenn.
Slíkt kerfí bitnar fyrst og fremst
á þeim sem ekki hafa aðstöðu
til að ota sínum tota og verða
að bíða þangað til röðin kemur
að þeim í kerfínu.
Það hlýtur því að vera ærið
umhugsunarefni þegar ljóst er,
eins og fram kom í fréttaskýr-
ingu í Morgunblaðinu í gær, að
nú bíða átta þúsund manns eftir
afgreiðslu á húsnæðislánum hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins. Stofti-
unin annar engan veginn hinni
miklu eftirspum eftir húsnæðis-
lánum og má búast við því að
biðraðimar haldi áfram að vaxa
á næstunni. Biðtími eftir lánum
er alltaf að lengjast og er nú að
verða 3-4 ár.
Lögin um Húsnæðisstofnun
ríkisins frá árinu 1986 em með
miklum vanköntum. Lögunum
hefur tvisvar verið breytt frá því
þau vom fyrst sett en ástandið
er samt það sem raun ber vitni.
í mars 1987 var staðan þannig
hjá Húsnæðisstofnun að loka
þurfti húsnæðiskerfínu fram að
ársbyijun 1988 þar sem fjár-
magn stofnunarinnar var á þrot-
um. Sú staðreynd að ástandið
var engu betra, jafnvel verra,
áður en nýju lögin tóku gildi,
breytir engu um þá staðreynd,
að núverandi húsnæðiskerfí er
verulega gallað ef ekki ónýtt.
Biðröðin langa ætti að vera besta
vitni þess.
Það er á hinn bóginn jákvætt
að nú er starfrækt ráðgjafarstöð
á vegum Húsnæðisstofnunar.
Þeir em allt of margir sem hafa
reist sér hurðarás um öxl og lent
í fjárhagslegum vandræðum
vegna þess að geyst var farið út
í fbúðarbyggingu eða íbúðar-
kaup. Skynsamleg ráðgjöf ætti
að geta komið í veg fyrir mistök
af því tagi. Við fjárfestingu í
húsnæði sem endranær skiptir
miklu að menn sníði sér stakk
eftir vexti. Sé stuðlað að því með
ráðgjafarstofnun Húsnæðis-
stofnunar kemur starfsemi henn-
ar sér vafalaust vel fyrir marga.
Nefnd á vegum félagsmála-
ráðherra vinnur nú að gerð fmm-
varps um nýtt húsnæðislánakerfi
sem ætlunin er að leggja fram á
Alþingi í haust. Er stefnt að því
að nýja kerfíð verði komið í fram-
kvæmd á næsta ári. Margar leið-
ir hafa verið reyndar í þessu efni
til að þjóna því markmiði, að af
hálfu hins opinbera sé fólki auð-
veldað að eignast eigið þak yfír
höfuðið. Biðraðimar sýna að
núverandi skömmtunarkerfí leið-
ir til óæskilegs ástands. Á hinn
bóginn veitir það þeim sem em
að ráðast í húsbyggingar öryggi
sem er mikils virði. Ef unnt er
að sníða af vankantana án þess
að skapa óvissu yrði af því mikil
bót.
Aurskriður
á Ólafsfirði
Asunnudag var lýst yfír
hættuástandi á Ólafsfírði
eftir að tvær stórar aurskriður
féllu á bæinn. Auk þess féllu
margar minni skriður beggja
vegna fjarðarins. „Aldrei áður
hefur neitt gerst í líkingu við
þessi ósköp. Engan gmnaði að
þetta gæti gerst," sagði Sigurður
Bjömsson, formaður Almanna-
vamanefndar, í fréttasamtali við
Morgunblaðið. Atburðir af þessu
tagi minna okkur enn einu sinni
á þær hættur sem fylgja því að
búa í návígi við íslenska náttúm.
Við getum alltaf búist við nátt-
úmhamfömm á borð við þessar.
Sem betur fer urðu engin slys
á mönnum á Ólafsfirði en eigna-
tjón var vemlegt. Er talið að það
geti numið allt að tugum milljóna
króna. Viðlagasjóði var komið á
fót til að bæta tjón sem þetta.
Samkvæmt lögum á sjóðurinn
að bæta það tjón sem skriðuföll
valda á fasteignum, bmna-
tryggðu lausafé, ræktuðu landi
og lóðum, samgöngumannvirkj-
um, hitaveitum o.fl. Endurreisn-
arstarfíð mun vonandi hefjast
fljótlega og bæjarlífíð á Ólafs-
fírði verða samt við sig á ný.
Bæjarbúar og yfírvöld á Ólafs-
fírði hafa bmgðist með ábyrgðar-
kennd og áræðni við afleiðingum
ofsarigninganna um helgina.
Þarf enginn að efa að Ólafsfírð-
ingar muni af festu og fyrir-
hyggju vinna að endurreisn og
uppbyggingu þegar veðri slotar.
Lenging skóla-
dags - af hverj u?
eftir Ingu Jónu
Þórðardóttur
Fyrir nokkm sendi samstarfs-
nefnd ráðuneyta um fjölskyldumál
frá sér áfangaskýrslu um skóla-
og dagvistunarmál. Nefnd þessi var
skipuð af forsætisráðherra til að
gera úttekt og tillögur, sem miðuðu
að því að styrkja stöðu fjölskyld-
unnar og auka velferð bama.
Skyldi nefndin beina athygli sinni
að fimm málaflokkum: Skólamál-
um, dagvistarmálum, lífeyris- og
tryggingamálum, skattamálum og
sveigjanlegum vinnutíma.
Breyttar aðstæður
Á síðustu tuttugu til þrjátíu ámm
hefur orðið gjörbreyting á aðstæð-
um fjölskyldunnar hér á landi. Þar
veldur mestu um að flestar konur
vinna nú utan heimilis að meira eða
minna leyti. Þegar bomar em sam-
an tölur frá. 1960 og 1984 kemur
í ljós að 1960 em einungis 30%
allra kvenna úti á vinnumarkaðin-
um, en 1984 er sú tala komin upp
i 70% (sjá mynd). Auk þess má
benda á að 1960 hverfa konur af
vinnumarkaði á því aldursskeiði
þegar bameignir em tíðastar. Þess-
ara áhrifa gætir mun minna árið
1984. Konur í dag virðast því ekki
hætta að vinna úti meðan börnin
em lítil. Hins vegar ber að gæta
þess að tölur þessar em einungis
miðaðar við fjölda þeirra kvenna,
sem vinna utan heimilis, óháð lengd
vinnutíma. Því kemur ekki fram
hversu margar em í hlutastörfum
á þeim tíma sem um ræðir.
Ennfremur er vert að vekja at-
hygli á, að hver kona fæðir nú mun
færri böm en var árið 1960, en þá
fæddi hver kona að meðaltali 4
böm. Árið 1984 fæddi hver kona
að meðaltali einungis 2 böm og
reikna má með að þessi tala haldi
enn áfram að lækka.
Á þessu tímabili hefur fíölskyld-
um einstæðra foreldra jafnframt
fjölgað töluvert. Árið 1964 vom þær
3.600 talsins, en rúmum tuttugu
ámm síðar em þær orðnar 7.500.
Þessar staðreyndir er rétt að hafa
í huga þegar fjallað er um aðstæð-
ur fíölskyldna.
Sex klukkustunda
skóladagur
Ein þýðingarmesta tillaga nefnd-
arinnar í skólamálum er lenging
skóladags. Tillagan miðar að því
að skóladagur gmnnskólabarna
verði lengdur í áföngum, mest fyrir
yngstu bömin. Nefndin telur það
æskilegt markmið að allir njóti
skóladvalar a.m.k. 6 klukkustundir
á dag, þar með er talið kennslu-
stundir, stundahlé og matarhlé. En
lítum nánar á hvers vegna þessi
tillaga er gerð og hver er tilgangur
hennar.
Skóladagur gmnnskólanema er
misjafnlega langur eða frá 22
kennslustundum á viku fyrir 7 og
8 ára böm upp í 35 kennslustundir
á viku fyrir 13—15 ára. Yngstu
bömin dvelja því að jafnaði 3—4
klst. á dag í skólanum. Skóladagur
sex ára bama er enn styttri, þar
sem kennsla er heimil allt að einni
vikustund á hvem nemenda. Víðast
hvar er raunin sú að sex ára nem-
endur em 2—3 klukkustundir á dag
í skóla.
Stuttur skóladagur yngstu
bekkja gmnnskóla og forskóla hef-
ur því víða leitt til erfiðleika fyrir
útivinnandi foreldra. Litlir mögu-
leikar em á gæslu fyrir böm eftir
að skólatíma lýkur. Margir skólar
hafa þó bmgðist við þessu með
sérstökum viðvemtíma utan
kennslu - skólaathvarfi. Ennfremur
hafa ýmis sveitarfélög nýtt tóm-
stundaheimili til að mæta betur
þörfum fjölskyldunnar í þessu sam-
bandi. Hópur bama fær auk þess
inni á skóladagheimilum utan
kennslu. í Reykjavík hafa 5,6%
bama á aldrinum 6—10 ára aðgang
að skóladagheimilum og mun það
vera hæsta hlutfall á landinu.
Atvinnuþátttaka foreldra, fjöldi
einstæðra foreldra, stuttur skóla-
dagur bama og öryggisleysi sem
honum fylgir em staðreyndir sem
horfast verður í augu við og bregð-
ast við.
90
15-19 20-24 25-29 30-34 35-39 40^4 45-49 50-54 55-59 60-64 65-69 70-74 >75
ALDUR
19 1960 E3 1984
Atvinnuþátttaka kvenna 1960 og 1984 eftir aldursflokkum.
Selfoss:
Gæðavörur úr dönsku dam
aski sýndar í fyrsta sinn
Dúldögð borð voru á sýningunni
með þar sem áyndir voru dúkar
í mismunandi litum og með þeim
mynstrum sem fáanleg eru.
Selfossi.
FYRSTA opinbera sýningin sem
haldin er hér á landi á vörum frá
Georg Jensen Damask í Dan-
mörku var á Selfossi 28. og 29.
ágúst. Fyrirtækið hefur ofið
damask í 500 ár og vörur frá því
eru þekktar fyrir gæði. Algengt
er að dúkar, sængurverasett og
handklæði verði erfðagripir á
einkaheimilum.
Á sýningunni á Selfossi vom
dúkar, sængurverasett, handklæði
og fleiri vömr. Bómullin í damask-
inu er frá Egyptalandi og það er
ofíð þannig að jafn mikið er í ívaf-
inu og uppistöðunni, en fyrirtækið
er þekkt fyrir sérlega góðan vefnað.
Við framleiðslu damasksins er
mikið lagt upp úr hönnun og lita-
samsetningu og umboðsmaður Ge-
org Jensen Damask á íslandi, Ragn-
heiður Thorarensen, sagði að lista-
menn teldu það mikla upphefð að
fá verkefni hjá fyrirtækinu. Hún
sagði vömmar frá fyrirtækinu ekki
seldar í verslunum heldur beint til
kaupenda frá fyrirtækinu eftir
pöntun hjá umboðsmönnum. Dúk-
amir em fáanlegir í 14—16 munstr-
um og 3—4 litum.
Georg Jensen Damask er lítið
fyrirtæki í bænum 'Kolding í Dan-
mörku og á sér 500 ára sögu. Sér-
stök áhersla er lögð á gæði vömnn-
ar, notagildi hennar og listræna
verðleika.
— Sig. Jóns.