Morgunblaðið - 31.08.1988, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
að að ræða en að rjúfa stjórnarsam-
starfíð.
Vandinn er að mestu
heimatilbúinn
Sá vandi sem við er að etja í
efnahagsmálum er að mestu leyti
heimatilbúinn þótt nokkurt verðfall
hafí orðið á erlendum mörkuðum
að undanfömu og þróun gengis
hafi verið fremur óhagstæð. Nefna
má að þrátt fyrir að búist hafí ver-
ið við minni hagvexti iðnríkja á
þessu ári virðist hann hins vegar
ætla að reynast svipaður á þessu
ári og í fyrra og aðeins nokkru
minni á næsta ári.
Þá var einnig almennt gert ráð
fyrir aukinni verðbólgu á meðal
helstu iðnríkja, þ.e. að verðbólgan
verði 3,5% á þessu ári og 3,75% á
því næsta, í samanburði við 3%
verðbólgu á síðast ári. Flest bendir
til þess að vaxtahækkun Banda-
ríkjamanna til að slá á þenslu þar
í landi muni ná að halda verðbólgu
í skeijum.
Olíuverð virðist ætla að haldast
svipað og það hefur verið.
Verðmæti útflutningsframleiðslu
sjávarafurða var rúmlega 40 millj-
arðar króna á síðastliðnu ári og
hefur farið stöðugt vaxandi frá ár-
inu 1983. Á þessu ári stöndum við
hvorki frammi fyrir verðhmni á
erlendum mörkuðum né skyndileg-
um hækkunum erlendra aðfanga
atvinnuveganna. Eftir langvarandi
hallarekstur fyrri ára var hagnaður
í sjávarútvegi árin 1986 og 1987.
Því miður hefur ekki tekist að nýta
þessa stöðu til varanlegra hagsbóta
fyrir sjávarútveginn.
Ljóst er að hlutfall launatekna
af þjóðartekjum er nú með hæsta
móti og augljós merki eru þess að
rekstrarafgangur fyrirtækja sé
minni en oft áður. Eigi að síður
hafa fyrirtæki farið út í erfiðar fjár-
festingar og lántökur sem þau eru
að sligast undan og það þótt þeim
mætti vera ljós að verðtrygging
lána skapaði allt aðrar aðstæður á
lánamarkaði en tíðkaðist fyrir
nokkrum árum þegar fyrirtæki gátu
vænst þess að lánin brynnu upp í
verðbólgunni.
Lítill árangur af
fyrri aðgerðum
Meðan tekjur útflutningsfyrir-
tækja hafa staðið í stað hafa inn-
lendir kostnaðarliðir hækkað veru-
lega eins og að framan greinir og
veikt mjög rekstar- og greiðslu-
stöðu þeirra.
Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin
hefur gripið til með jöfnu millibili
til að laga stöðu þessara fyrirtækja
hafa ekki skilað tilætluðum árangri
og nú er svo komið að verulegur
halli er í helstu greinum útflutnings
og hætta á stöðvun margra fyrir-
tækja með tilheyrandi atvinnuleysi.
Gegn slíku duga aðeins mjög rót-
tækar aðgerðir.
Enn skortir á framkvæmd
fyrri ákvarðana
Það er á hinn bóginn ekki til að
auka bjartsýni manna á árangur
væntanlegra aðgerða ríkisstjórnar-
innar að fyrri aðgerðir hafa ekki
náð árangri og í sumum tilvikum
hafa ekki enn verið framkvæmd
úrræði sem lofað hefur verið til að
bæta stöðu atvinnulífsins. Má þar
nefna að í október á síðastliðnu ári
samþykkti ríkisstjórnin m.a. að ein-
staklingum og fyrirtækjum yrði
heimilað að eignast erlend verð-
bréf, að heimildir til að fjárfesta í
atvinnufyrirtækjum erlendis yrðu
týmkaðar og að ríkisábyrgðir á
skuldbindingum fjárfestingarlána-
sjóða yrðu afnumdar. Allt hefði
þetta stuðlað að auknu jafnbvægi
í efnahagslífinu. Ekkert af þessu
hefur verið framkvæmt. Þá er og
ljóst að aðgerðir til að stemma stigu
við erlendri skuldasöfnun hafa ekki
skilað tilætluðum árangri.
Úrslitatilraun um
framtíð stjórnarinnar
Af framansögðu er ljóst að nú
verður að gera úrslitatilraun um
hvort ríkisstjómin nær samstöðu
um raunhæfar aðgerðir. Framtíð
stjórnarsamstarfsins ræðst af því
hvemig til tekst.
Tillögur SUS um aðgerðir
Hér fara á eftir tillögur ungra
sjálfstæðismanna um aðgerðir sem
tryggt geta aukinn stöðugleika og
jafnvægi í þjóðarbúskapnum:
• Niðurskurður verði fram-
kvæmdur á ríkisútgjöldum upp á 4
milljarða króna. Þetta verði gert
með verulegri fækkun ríkisstarfs-
manna, endurskipulagningu og
hagræðingu í heilbrigðis-, trygg-
inga- og menntamálum; uppskurði
í landbúnaðarkerfinu og með því
að auka sjálfstæði og ábyrgð ríkis-
stofnana vegna rekstrar og fram-
kvæmda. Ungir sjálfstæðismenn
vísa í tillögur sínar um ráðdeild í
ríkisrekstri sem lagðar hafa verið
fram við fjárlagagerð áranna 1986
og 1988 en þar er að finna ítarlega
lýsingu á því með hvaða hætti unnt
væri að ná fram mjög verulegum
samdrætti í útgjöldum ríkissjóðs.
• Þegar ríkið hefur gengið á und-
an með svo góðu fordæmi er
nauðsynlegt að sveitarfélög
endurmeti framkvæmdir sínar
með það fyrir augum að draga
úr þenslu.
• Brýnt er að draga mjög veru-
Iega úr erlendri skuldasöfnun.
Afnema verður ríkisábyrgð á
Samband ungra sjálfstæðismanna:
Aðhald og sparnaður
er eina rétta leiðin
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi ályktun:
Ungir sjálfstæðismenn hafa um
árabil hvátt til aðhalds og sparnað-
ar í opinberum útgjöldum og þá
ekki hvað síst í undangengnu góð-
æri þegar öll rök mæltu með því
að auknar tekjur þjóðarinnar yrðu
nýttar til þess að greiða niður er-
lendar skuldir. Öndvert við þessa
stefnu hafa ríkisútgjöld verið aukin
og sjóðum eytt. Þetta er alvarleg-
asta meinsemd í efnahagslífi Islend-
inga og þungur áfellisdómur yfir
stjómarstefnu síðustu ára.
Nú er enn svo komið að beita
verður mjög róttækum efnahags-
legum aðgerðum til að ráða niður-
lögum verðbólgunnar. Ungir sjálf-
stæðismenn fallast á að aðstæður
séu með þeim hætti að nauðsynlegt
sé að kanna til hlítar hvort niður-
færsluleiðin sé framkvæmanleg
þótt lögbinding launa, verðlags og
vaxta sé í andstöðu við hugsjónir
sjálfstæðismanna. Ef slík stefna
festist í sessi felur hún í sér aftur-
hvarf til hafta- og skömmtunar-
stjómar og meðalið reyndst þá
verra en meinsemdin. Ungir sjálf-
stæðismenn leggja áherslu á að
niðurfærslan verður að ná til allra
þátta efnahagslífsins og tryggja
verður að hún leiði ekki til launa-
misréttis. Af þessum sökum var
mikilbægt að sú stefna forsætisráð-
herra varð ofan á í ríkisstjóminni
að freista þess að ná samstöðu við
Blaðbemr
samtök launþega um efnahagsað-
gerðir.
Niðurfærslan er skammtíma-
lausn sem hvílir á því að samhliða
henni verði gerðar ráðstafanir til
að tryggja jafnvægi og stöðugleika
í efnahagslífínu til frambúðar.
Fmmskilyrði árangurs í baráttunni
við verðbólguna er að dregið verði
mjög vemlega úr ríkisútgjöldum.
Útlit er fyrir að fjárlagahallinn verði
um tveir milljarðar króna á þessu
ári og jafnvel enn meiri á næsta
ári. Úr þeirri stöðu er aðeins ein
leið fær: Niðurskurður ríkisútgjalda
sem nemur fjómm milljörðum
króna. Slíkur niðurskurður getur
einn tryggt að greiðsluafgangur
verði á fjárlögum og stuðlar þannig
að minni þenslu í efnahagslífinu.
Niðurskurður ríkisútgjalda er einn-
ig forsenda þess að kjör launafólks
verði ekki enn skert með aukinni
skattheimtu.
Þetta er fordæmið sem beðið er
eftir og án þess verður ekki unnt
að gera kröfur um samdrátt og
sparnað hjá sveitarfélögum, fyrir-
tækjum og einstaklingum.
Þjóðarhag ofar
flokkadráttum
Vandi ríkisstjómarinnar er í eðli
sínu tvíþættur: í fyrsta lagi er um
að ræða stjónrmálalegan vanda og
í öðm lagi erfiðleika í efnahags-
og atvinnumálum. Hinn stjóm-
málalegi vandi felst í ósamkomulagi
ríkisstjórnarflokkanna um úrræði
og útfærslu þeirra en það er for-
senda árangurs að víðtæk samstaða
og einhugur náist í ríkisstjórn og
meðal þjóðarinnar allrar um nauð-
synlegar aðgerðir.
Stjóm Sambands ungra sjálf-
stæðismanna telur brýna nauðsyn
bera til að sjálfstæðismenn fylki liði
til stuðnings fomstu Sjálfstæðis-
flokksins í núverandi ríkisstjórn.
Þriggja flokka stjórn hvílir á svo
veikum samstarfsgmnni að án ótví-
ræðs stuðnings þeirra flokka sem
að henni standa leysir hún engan
vanda. Ungir sjálfstæðismenn
hvetja því alla aðila ríkisstjórnar-
innar til að setja niður ágreining
sinn og freista þess að ná samstöðu
um raunhæfar aðgerðir í efnahags-
og atvinnumálum. Náist ekki fuli-
komin samstaða er um ekkert ann-
Látbragðsleikur frá Finn-
landi í Norræna húsinu
LEIKSÝNING verður í Norræna
húsinu á miðvikudag og fimmtu-
dag, sem nefnist PIC & NIC, og
kemur hún hingað á vegum
finnska ferðaleikhússins TOT-
EM.
Þarna koma fram þau Margret
von Marthens og Timo Sokuras, en
þeim til aðstoðar er bamabókahöf-
undurinn góðkunni, Christina And-
ersson, sem einnig ætlar að skrifa
um leikförina í finnsk blöð. Hópur-
inn heimsækir einnig Grænland og
veitti finnska menntamálaráðu-
neytið þeim styrk til fararinnar.
Þau Margret og Timo bregða sér
þarna í gervi tveggja persóna,
þeirra Pic og Nic. Pic er þögull og
smámunasamur reglumaður, sem
tekur hlutina hátíðlega, en Nic er
hirðulaus og skrafhreifin ruglu-
kolla, sem lætur vaða á súðum.
Þegar þessi ólíku hjú hittast, fer
ekki hjá því að ýmislegt skrítið taki
að gerast.
Það er óþarfi fyrir fólk að ótt-
ast, að það skilji ekki það sem fram
fer, því að leikararnir tjá sig ein-
göngu með látbragði og hefur sýn-
Timo Sokuras og Margret von Marthens í hlutverkum Pic og Nic
en verkið um þau verður sýnt í Norræna húsinu á miðvikudag og
fimmtudag.
ingin hlotið einróma lof fyrir að
vera í senn mannleg, hlý og fyndin.
Sem fyrr segir verður sýnt í
Norræna húsinu kl. 14.00 miðviku-
daginn 31. ágúst og er sú sýning
ætluð fyrir börn, og fimmtudaginn
1. september kl. 20.30.
(Fréttatilkynning)
Sínmr 35408 og 83033
VESTURBÆR
Fálkagata
KOPAVOGUR
Víðsvegarum bæinn
SELTJNES
Fornaströnd
Barðaströnd