Morgunblaðið - 31.08.1988, Qupperneq 51
formúlur, sem nota þyrfti í hvers
kyns bankastarfsemi, enda varð
hann frægur meðal þeirra, sem
skynbragð báru á, fyrir að forrita
flóknar formúlur í færri RPG-skip-
unum en aðrir fundu ráð til.
Þegar Reiknistofa bankanna var
stofnuð 1973, varð hann að sjálf-
sögðu fulltrúi Utvegsbankans í
samstarfsnefnd bankanna um
reiknistofuna. Hann var formaður
þeirrar nefndar um árabil, þar til
hann lét af störfum í bankanum
fyrir aldurs sakir, en þá gerðist
hann lausráðinn starfsmaður RB í
hálfu starfi.
Til þess lágu þær orsakir, að þá
voru enn notuð — og eru reyndar
sum enn í dag — í reiknistofunni
tölvukerfi, sem hann hafði skipulagt
og forritað til afnota fyrir bankana.
Við gátum einfaldlega ekki án hans
verið, þessi kerfí þurftu sitt viðhald
og þar sem þau höfðu verið unnin
til bráðabirgðanota, var handbóka-
gerð skorin við nögl.
Það var reyndar sérkennileg
þversögn í fari Gunnlaugs, því að
hann sjálfur tileinkaði sér allar nýj-
ungar með lestri handbóka, sótti
aldrei námskeið, taldi leiðbeinendur
oft fara rangt með en handbækum-
ar sjaldan. I þeim handbókum, sem
hann samdi, klikkti hann út með
því að benda bankamönnum á að
hafa samband við höfundinn, ef
þeir fyndu eitthvað í kerfinu, sem
þeir ekki skildu.
Gunnlaugur var alla tíð félags-
lyndur maður, réðst gjarnan til for-
ystu, enda til forystu fallinn. Hann
var um áraraðir í stjórn Starfs-
mannafélags Útvegsbanka íslands,
var eitt ár formaður Sambands
íslenskra bankamanna, og hann var
einn af stofnendum Skýrslutækni-
félags Islands, 'endurskoðandi þess
frá byrjun og meðan kraftar entust
og var gerður heiðursfélagi þess á
20 ára afmæli félagsins á þessu ári.
Eg gat þess hér að framan, að
Gunnlaugur hefði unnað eigin for-
feðratali. Honum þótti vænt um það
að hann var af góðu bergi brotinn.
Faðir hans, Guðmundur Bjöms-
son landlæknir, prófessor og al-
þingismaður og skáldið Gestur, var
einn af fyrirferðarmestu mönnum í
íslensku þjóðlífí á fyrsta fjórðungi
þessarar aldar, eldheitur baráttu-
maður íslensks þjóðemis og tungu,
og hvers kyns framfaramála.
Hann var elstur 15 barna Bjöms
Leví Guðmundssonar bónda á
Marðarnúpi í Vatnsdal og konu
hans Þorbjargar ljósmóður Helga-
dóttur í Gröf í Víðidal, Vigfússonar
á Syðri-Löngumýri í Svínadal,
Bjömssonar þar Jónssonar.
Bjöm Leví, sem talinn var fram-
úrskarandi snyrtimenni i búskap,
var sonur Guðmundar verðlaunaðs
smiðs á Síðu í Víðidal og Ytri-
Völlum á Vatnsnesi Guðmundsson-
ar á Húki í Miðfirði Bjömssonar á
Skarfshjóli í Miðfírði Guðmunds-
sonar. Með Bimi á Skarfshóli þrýt-
ur vitneskju um beinan karllegg
Gunnlaugs. Er lítið um Bjöm vitað,
en Páll Kolka getur þess í Föðurtún-
um til marks um mannfellinn í Mið-
fírði í Móðuharðindum, að í hallær-
inu dó Bjöm og böm hans öll, nema
Guðmundur, sem sennlega var þá
farinn að heiman.
Hólmfríður kona Bjöms Guð-
mundssonar á Skarfshóli í Miðfirði
var dóttir Jóns Dalabónda á
Fremri-Fitjum Jónssonar á Úti-
bleiksstöðum 1703, Snorrasonar og
konu hans Elínar á Fremri-Fitjum,
sem var Halldórsdóttir og Agnesar
Bjamadóttur bónda á Svertings-
stöðum í Miðfirði 1703, sem
drukknaði 1709 í Miðfjarðará og
var smiður góður. Bjami faðir Ag-
nesar var sonur Vilhjálms Stranda-
sýslumanns (Galdra-Vilka) á Þór-
oddsstöðum í Hrútafírði, d. 1675,
Amfínnssonar prests á Stað í
Hrútafirði, Sigurðssonar á Staðar-
felli Arnfínnssonar, Guðmundsson-
ar, en fyrri kona Sigurðar á Staðar-
felli og móðir sr. Arnfinns var
Helga, systir Hrólfs sterka á Álf-
geirsvöllum Bjamasonar. Móðir
Agnesar var Elín Eiríksdóttir á
Núpi í Miðfírði Jónssonar á Núpi
Eiríkssonar, Egilssonar frá Geita-
skarði Jónssonar.
Margrét, móðir Gunnlaugs, var
iöi T3ÚDÁ it. HUOAUUMvani .aioAjaMuaaoií
MÖRGÚNBLAÐIÐ, MIÐVIKÚDÁGÚR^3Í7XGUST 1988
05
51
seinni kona Guðmundar landlæknis.
Hún var dóttir Magnúsar lands-
höfðingja Stephensen Magnússon-
ar, sýslumanns Stephensen, Stef-
ánssonar amtmanns Stephensen
Olafssonar stiftamtmanns í Viðey
Stefánssonar prests á Höskulds-
stöðum Ólafssonar prófasts á
Hrafnagili Guðmundssonar bónda á
Siglunesi Jónssonar prinna prests á
Siglunesi Jónssonar.
Móðir Margrétar var Elín Steph-
ensen, f. Thorstensen, landshöfð-
ingjafrú í Reykjavík Jónasdóttir
sýslumanns á Eskifírði Thorsten-
sen,-Jónssonar landlæknis Thorst-
ensen, Þorsteinssonar á Holti á
Ásum Steindórssonar, Þorlákssonar
á Stóruborg Guðmundssonar á
Stóruborg Þorlákssonar Þórðarson-
ar á Marðamúpi Þorlákssonar
prests á Mel Hallgrímssonar á Eg-
ilsstöðum í Vopnafirði Þorsteins-
sonar Sveinbjarnarsonar prests í
Múla (Bama-Sveinbjarnar) Þórðar-
sonar.
Móðir Elínar var Þórdís á Eski-
fírði Thorstensen, f. Melsted, Páls-
dóttir amtmanns Melsted, Þórðar-
sonar prests á Völlum í Svarfaðar-
dal Jónssonar prests á Völlum Hall-
dórssonar lögréttumanns á Seylu
Þorbergssonar sýslumanns á Seylu
Hrólfssonar sterka lögréttumanns
á Álfgeirsvöllum Bjamasonar lög-
réttumanns í Skagafirði Skúlasonar
sýslumanns í Húnavatnsþingi Guð-
mundssonar prests Skúlasonar
Loftssonar ríka hirðstjóra á Möðru-
völlum, Guttormssonar í Þykkva-
skógi Ormssonar lögmanns á Skarði
Snorrasonar lögmanns á Skarði
Narfasonar prests á Kolbeinsstöð-
um Snorrasonar prests á Skarði
(Skarðs-Snorra) Narfasonar prests
á Skarði Snorrasonar prests og lög-
sögumanns á Skarði d. 1170, Hún-
bogasonar á Skarði Þorgilssonar.
Móðir Þórdísar var Anna Sigríður
Melsted í Reykjavík Stefánsdóttir
amtmanns, lögmanns og konferenz-
ráðs á Möðruvöllum Þórarinssonar
sýslumanns á Grund í Eyjafírði
Jónssonar sýslumanns í Grenivík
Jónssonar Fljótaráðsmanns í Tungu
í Fljótum Sveinssonar prests á Barði
Jónssonar á Siglunesi Guðmunds-
sonar á Siglunesi Jónssonar prests
prinna.
Móðir Önnu Sigríðar var Ragn-
heiður á Möðruvöllum Vigfúsdóttir
Schevings sýslumanns á Víðivöllum
Hanssonar Schevings klausturhald-
ara á Möðruvöllum Lárussonar
Schevings sýslumanns á Möðruvöll-
um Hanssonar Schevings sóren-
skrifara í Bergen Lárussonar Sche-
vings prófasts í Skevinge á Sjálandi
Hanssonar.
Móðir Ragnheiðar var Anna á
Víðivöllum Stefánsdóttir alsystir
Ólafs stiftamtmanns í Viðey, sjá
hér að framan.
Móðir Önnu var Ragnheiður
maddama á Höskuldsstöðum Magn-
úsdóttir á Espihóli Bjömssonar
sýslumanns á Espihóli Pálssonar
sýslumanns á Þingeyrum Guð-
brandssonar biskups á Hólum Þor-
lákssonar prests á Mel Hallgríms-
sonar, sjá hér að framan.
Móðir Ragnheiðar var Sigríður á
Espihóli Jónsdóttir biskups á Hólum
(Bauka-Jóns) Vigfússonar sýslu-
manns á Stórólfshvoli Gíslasonar
lögmanns í Bræðratungu Hákonar-
sonar sýslumanns í Klofa Ámason-
ar sýslumanns á Hlíðarenda Gísla-
sonar lögréttumanns á Hafgríms-
stöðum í Tunguseit Hákonarsonar
lögréttumanns á Höskuldsstöðum í
Reykjadal Hallssonar á Vindheim-
um á Þelamörk Finnbogasonar
gamla í Ási í Kelduhverfi Jórissonar
langs, sem féll í Grundarbardaga
1361.
Móðir Sigríðar var Guðríður bisk-
upsfrú á Hólum Þórðardóttir prests
í Hítardal Jónssonar prófasts í
Hítardal og skólameistara í Skál-
holti, . Guðmundssonar lögréttu-
manns á Hvoli í Saurbæ d. 1595
Jónssonar á Hvoli í Saurbæ Þórðar-
sonar.
Móðir Guðríðar var Helga madd-
ama í Hítardal Árnadóttir lögmanns
á Leirá Oddssonar biskups í Skál-
holti Einarssonar prests og skálds
í Heydölum Sigurðssonar prests í
Grímsey Þorsteinssonar prests á
Völlum eða bónda á Hallgilsstöðum
í Fnjóskadal Nikulássonar príors á
Möðruvöllum, sem síðast getur
1522, Þormóðssonar.
Móðir Helgu var Þórdís á Leirá
Jónsdóttir þingskrifara á Sjávar-
borg Jónssonar á Ökrum Grímsson-
ar lögmanns á Ökrum Jónssonar
ráms sýslumanns Þorgeirssonar.
. Móðir Þórdísar var Sigríður á
Sjávarborg Þorgrímsdóttir í Lög-
mannshlíð Þorleifssonar á Núpum
í Aðaldal Þorgrímssonar á Núpum
Þórðarsonar.
Móðir Sigríðar var Þórdís í Lög-
mannshlíð Jónsdóttir lögréttu-
manns á Svalbarði á Svalbarðs-
strönd Magnússonar lögréttumanns
í Rauðskriðu í Reykjadal Þorkels-
sonar offícialis í Laufási Guðbjarts-
sonar flóka prests í Laufási Ás-
grímssonar prests á Bægisá Guð-
bjartssonar.
Móðir Þórdísar var Ragnheiður á
rauðum sokkum Pétursdóttir lög-
réttumanns í Djúpadal Loftssonar
Islendings á Staðarhóli Ormssonar
hirðstjóra á Staðarhóli og Víðidals-
tungu Loftssonar ríka Guttorms-
sonar sjá hér að framan.
Móðir Ragnheiðar á rauðum
sokkum var Sigríður í Djúpadal
Þorsteinsdóttir á Reyni í Mýrdal
Helgasonar lögmanns á Ökrum í
Blönduhlíð Guðnasonar.
Móðir Sigríðar var Ragnheiður á
Reyni í Mýrdal, Krossi í Landeyjum
og Stóradal undir Eyjafjöllum
(þrígift) Eiríksdóttir á Skarði á
Landi, sem var á lífí 1438, Kráks-
sonar gamla í Skarði Jónssonar, en
hér þrýtur beinan kvenlegg, því að
ekki er vitað um konu Eiríks í
Skarði Krákssonar.
Guðlaugur G. Bjömsson var
hamingjumaður í einkalífi sínu.
Hann kvæntist 7. febrúar 1950
Margréti, dóttur Jóns Leví Guð-
mundssonar gullsmiðs og konu
hans Júlíu Kristjánsdóttur. Áttu
þau tvær dætur, Margréti og Júlíu.
Ekki kynntist ég Margréti konu
Gunnlaugs, en það fann ég, hve
djúpur harmur var að honum kveð-
inn við missi hennar, en hún lést á
afmælisdegi hans, 7. mars 1975,
aðeins 55 ára gömul, og oft kom
þar tali hans, að maður fyndi ást
þá og virðingu, sem hann bar til
konu sinnar.
Sama er að segja um ást hans á
dætmm sínum og barnabörnum,
sem vom honum yndi.
Ég flyt þeim systmm og fjöl-
skyldum þeirra samúðarkveðjur
mínar og bið þess, að almættið sefí
trega þeirra.
Eftir standa minningar, og ég
finn, hvað ég er miklu ríkari að
eiga þessar minningar um þann
mæta mann, Gunnlaug G. Bjömson,
heldur en ég væri, ef ég hefði ekki
átt hann að vini og samstarfsmanni.
Þórður Sigurðsson
UuKmS NYIUNCIMATARGERÐ
^T>mSTEIKARASTEINAR í
'' NOKKRUM STÆRÐUM
HÖNNUN • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
KRISTJAN
SIGGEIRSSON HF.
AFSLATTUR
i GJAFAVÖRUDEILD
Laugavegi 13 — 101 Reykjavík - S. 91 -625870
GJAFAVÖRUDEILD
EUROCARD - KORTHAFAR !
Teppabúðin hf. býður ykkur sérstakan auka - afslátt fyrstu 15 daga mánaðarjj:
10% AFSLÁTTUR
sé kaupverðið greitt í einu lagi með EUROCARD
5% AFSLÁTTUR
ef greitt er með 2 mánaðarlegum afborgunum eða fleiri og á það að sjálfsögðu"
um hina rómuðu EUROKREDIT samninga með jöfnum greiðsium í allt að 11 mánuði.
Teppabúðin hf. er gólfefnamarkaður.
TEPPI MOTTUR STÖKTEPPI TEPPAFLÍSAR GÓLFDÚKAR PARKET FLÍSAR
TEPPABÚÐIN
GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRaUT 26, 108 REYKJAVÍK, S. 91-681950 OG 91-84850