Morgunblaðið - 31.08.1988, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGtjST 1988
59
Þessir hringdu . .
íslendingar þurfa tveggja
flokka kerfi
Kjósandi á Suðurlandi
hringdi:
„Eins og ástandið er í f|ármál-
um þjóðarinnar í dag, hljóta menn
að sjá að svona samsteypustjóm
eins og situr núna getur aldrei
komið sér saman um alvöru að-
gerðir. Þess vegna tel ég, að við
kjósendur þyrftum að hafa skýr-
ari valkosti þegar við göngum að
kjörborðinu. Ég held að tveggja
flokka kerfi myndi leysa mikinn
vanda í því sambandi. Ef flokk-
arnir væru bara tveir, þá gætu
stjómmálamennirnir ekki alltaf
kennt samstarfsflokkunum um
mistökin heldur yrðu sjálfir að
axla ábyrgðina. Aðeins annar
flokkurinn væri við völd í einu,
svo kjósendur gætu í kosningum
dæmt hann af verkum hans .“
komum hafði borðið verið skreytt
sérstaklega af þeim sökum. Einn-
ig var okkur boðið upp á Irish
coffee eftir matinn. Svona þjón-
ustu er maður ekki vanur hér á
landi.“
Myndavél fannst á
Jökuldal
Myndavél fannst við þjóðveginn
á Jökuldal þann 7. ágúst. Upplýs-
ingar í síma 97-13826.
Klámfenginn texti
3252-8090 hringdi:
„Ég var að hlusta á „Óskalög
sjómanna" og heyrði þar lag eftir
Gylfa Ægisson. Eg er hrædd um
að einhvem tímann hefði verið
lokað fyrir svona lag í ríkisútvarp-
inu, því textinn er á mjög lágu
plani og í raun argasta klám. Mér
fínnst leiðinlegt að þetta lag skuli
leikið í þættinum, ekki síst sjó-
mannanna vegna.“
Afburða þjónusta í
Naustinu
Guðrún hringdi:
„Ég vil þakka starfsfólki
Naustsins fyrir afburða góða
þjónustu. Við hjónin förum ekki
oft út að borða, en fómm þó þang-
að laugardaginn 27. ágúst af sér-
stöku tilefni. Ég minntist á það
þegar ég pantaði og þegar við
Eru framsóknarmenn
hissa á efnahags
ástandinu?
Austurbæingur hringdi:
„Það er alveg dæmalaust hvað
framsóknarmenn eru alltaf hissa
á því ófremdarástandi sem ríkir í
efnahagslífí okkar íslendinga.
Það er einkum undarlegt í ljósi
þess, að þeir bera meiri ábyrgð á
því hvemig komið er en nokkur
annar flokkur. Framsóknarflokk-
urinn hefur átt aðild að ríkisstjóm
nær óslitið síðan 1971 og eins og
kunnugt er fór verðbólgan fyrst
úr böndunum um það leyti. Það
er því þýðingarlaust fyrir foiystu-
menn flokksins að telja fólki trú
um að ástandið komi þeim á
óvart.“
Pípa fannst í Elliðaárdal
Reykjarpípa fannst í Elliðaár-
dal nálægt Hólahverfí síðasta
laugardag. Upplýsingar í síma
75005.
Bleikur bangsi týndist
Bleikur bangsi týndist á Njáls-
götu fyrir rúmri viku. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 651828.
Of hátt aldustakmark á tónleika Maxi Priest
Virðulegi Velvakandi
Eins og margir vita, þá kom
Maxi Priest hingað til lands, til tón-
leikahalds í Broadway. En viti
menn. Aðdáendum hans var mis-
munað, því eins og flestum er kunn-
ugt er 20 ára aldurstakmark á þann
skemmtistað.
erum gráti næst og getum ekki
annað en lýst óánægju okkar með
þetta.
Við vitum að í öllum vínveitinga-
húsum er aldurstakmark, en hefði
ekki verið hægt að lækka aldurstak-
markið á þessa tónleika? Við erum
mjög óánægðar og þessir yfírmáta
„hressu“ skemmtanastjórar ættu
að hugsa málið betur, næst þegar
þeir fá jafn góðan söngvara til að
koma fram í Broadway. Þetta var
ekki nógu sniðugt.
Tveir aðdáendur.
Lokun endurhæfingardeildar
Því spyijum við: Hvers eiga yngri
aldurshópamir að gjalda? Fólk get-
ur nú langað til að sjá manninn og
hlýða á tónlist hans þó það hafi
ekki náð tvítugsaldri. Hvers vegna
var ekki hægt að hafa aldurstak-
markið 16 ár, að minnsta kosti
annað kvöldið?
Við urðum himinlifandi er við
fréttum af komu þessa stórkostlega
söngvara, en duttum fljótlega niður
úr skýjunum er við uppgötvuðum
að við værum ekki velkomnar á
tónleikana vegna aldurs okkar. Við
Frábærar
viðtökur á
Mðhúsum
Kæri Velvakandi!
Ég er hér stúlka úr Reykjavík
og langar til að þakka fólkinu á
Miðhúsum í Hvolhreppi fyrir frá-
bærar viðtökur og góða umsjá.
Þau leigðu mér hest í 3 daga og
fóru með mér í útreiðartúra og
sýndu mér mjög fallegt landslag,
sem ég hreifst mikið af. Það er
mjög gaman að ferðast þarna og
því mæli ég með að fara þarna og
skoða hvort sem farið er á bíl eða
á hesti. Ég vil þakka þeim öllum
fyrir skemmtilega helgi, en sérstak-
lega vil ég þakka leiðsögumönnun-
um Lárusi Ág. Bragasyni og Þor-
valdi G. Ágústssyni fyrir góðar
samverustundir og gangi ykkur allt
í haginn.
Þökk fyrir birtinguna,
Steinunn Ketilsdóttir.
Nokkuð hefur verið rætt um lok-
un deildar 11 á Kleppsspítala í blöð-
um undanfarið. Við starfsfólk deild-
arinnar viljum því gera grein fyrir
okkar sjónarmiðum.
Deildinni hefur verið vel stjómað
og það er ljóst að samvinna innan
hverrar stofnunar er mikils virði,
ekki síst með tilliti til spamaðar.
Snemma í vor var okkur tilkynnt,
að deild 33-C yrði lokuð í 6 vikur
vegna viðgerðar og sinnti deild 11
þeirri starfsemi á meðan, sem er
móttaka og umönnun bráðveikra
sjúklinga.
Var þá hafínn undirbúningur að
útskrift þeirra skjólstæðinga okkar
sem hægt var. En að hluta til starf-
aði endurhæfíngardeildin áfram,
með vistmenn sem komu daglega
til vinnu í útihóp. Þar er meðal
annars unnið við bílaþvott, hellu-
steypu, kartöflurækt, ýmis smærri
verkefni og þjónustu fyrir spítalann
undir leiðsögn starfsmanna. Laun
fyrir þessa vinnu miðast við hæfni
hvers og eins að mati verkstjóra.
Endurhæfíng er einnig í gangi
innan deildar, þar sem vistmenn sjá
um ræstingu og fleira, meðal ann-
ars sitt persónulega hreinlæti, svo
sem herbergi og þvotta. Starfsfólk
og vistmenn hafa svo unnið ýmis-
legt til fjáröflunar, og ágóðinn hef-
ur síðan verið notaður í ferðalög
og fleira fyrir vistmenn.
í blaðaviðtali við Tómas Helga-
son yfírlækni segir, að deild 11
hafi lokað í byijun júní. Þetta er
rangt að okkar mati, því eins og
fyrr segir var 33-C rekin með
starfsfólki deildar 11 til 20. júlí.
Einnig segir Tómas þetta vera eina
af 5 endurhæfingardeildum Klepps-
spítalans. Að sjálfsögðu fær hver
einstaklingur stuðning til sjálfs-
bjargar á öllum deildum, en við vit-
um ekki um neina, sem starfar á
sama hátt og deild 11.
Starfsfóik deiidar 11,
Kleppsspítala.
Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim, serrC
glöddu mig á 85 ára afmœli mínu 14. ágúst si,
meÖ heimsóknum, heillaskeytum og gjöfiim.
Guö blessi ykkur öll.
Þorgeröur Vilhjálmsdóttir,
Múla, Vestmannaeyjum.
Tilleigu
á Suðurlandsbraut 14, vesturenda, erverslunar-
húsnæðiá götuhæð, stærð ca 82 fm. Húsnæðið er
laust nú þegar. Til greina kemur að ieigja með lager-
húsnæði ibakhúsi, stærð ca 56 fm.
Upplýsingar gefurJón V. Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri, ísíma 68 12 00 á skrifstofutíma.
Sfcrmerkjum
ölglös
Sérmerkjum ölglös
með skemmtilegum
teikningum eða eftir
ykkartillögum!
Höfðabakki 9
Reykjavík s. 685411