Morgunblaðið - 31.08.1988, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
61
jafn mikið á sig og atvinnumenn
af því þeir fá ekki borgað. Áhuga-
menn eru sjálfboðaliðar og ef þú
býður þig fram til að gera eitthvað
þá verður þú að gera það vel.“
Hef áhyggjur af landsllAinu
Hvernig líst þér á íslenska
landsliðið?
„Ég neita því ekki að ég hef
áhyggjur af liðinu. Nú vantar ennþá
um 40% af þeim leikmönnum sem
boðið var á æfingar. Ég hika ekki
við að sparka þeim út sem ætla
ekki að leggja sig alla fram. Það
verður að ákveða hvenær sumar-
fríið er tekið og hvenær alvaran
tekur við. Ég læt ekki bjóða mér
að einn sé í fríi, annar í útlöndum,
þriðji að veiða og sá fjórði í fjall-
göngu. Ef það gerist þá verðum við
áfram bara ferðamenn á alþjóðleg-
an mælikvarða.
Ég mun skrifa þessum landsliðs-
mönnum bréf og ef þeir mæta ekki
næst þá verða þeir ekki með. Það
er ekki hægt að fela sig á bak við
það að vera „bara áhugamaður."
Ég vil að menn leggi á sig mikla
vinnu ef þeir ætla á annað borð að
vera með.
Næstu markmið eru sigur í und-
ankeppninni í Möltu og þriðja sæti
í Pólar-bikamum. Það verður erfitt,
en við munum stefna að því.“
Nú hefur KR misst nokkra
góða leikmenn. Hvernig líst þér
á Uðið?
„Ekki segja mér hve marga leik-
menn KR hefur misst. Ég vil ekki
heyra um það. Ég veit einnig lftið
um möguleika liðsins. Ég hef ekki
séð hin liðin og þau hafa ekki séð
mig. En það er ekki hægt að byija
á því að barma sér yfír öllum þeim
leikmönnum sem við höfum misst.
Það er alltaf hægt að tapa og ef
menn bytja strax að tala um tap
er það sama og uppgjöf. Ég set
alltaf stefnuna á 1. sætið.
íslenskir leikmenn hafa góða
boltatækni, hræðilegar sendingar,
undirstöðuatriðin misjöfn, sum þarf
að laga en önnur eru góð.
Ahuginn er hinsvegar mjög mik-
ill og hefur mikið að segja fyrir
mig. Þegar ég kom heim af æfingu
með KR sagðist konan mín ekki
hafa séð mig jafn ánægðan í mörg
ár. Ég var gífurlega ánægður með
að geta bara útskýrt hlutina einu
sinni, leiðrétt mistökin og í lok
æfingarinnar gerðu allir þetta rétt.
Ég hef verið víða, en aldrei verið
hjá krökkum sem eru svo fljótir að
læra. Það er dásamlegt að kenna
skynsömu fólki og þess vegna kom
ég hingað."
Hver er munurinn á islenskum
liðum og ungverskum?
„Önnur lið í Evrópu hafa það
fram yfír íslendinga að geta leikið
gegn fleiri þjóðum. Það þarf ekki
annað en að hoppa upp í rútu og
keyra nokkur hundruð kílómetra.
Við höfum hugmyndir um að
reyna að fá lið sem eru á leið til
Evrópu frá Bandaríkjunum til að
stoppa hér og spila gegn okkur.
Ég er jafnvel tilbúinn til að nota
persónuleg tengsl mín til að fá lið
hingað þvf ef við leikum ekki gegn
öðrum liðum þá tökum við ekki
framförum."
Verðum aðfá Pétur
Hveijir eru möguleikar
íslenska landsliðsins á alþjóðleg-
um vettvangi?
„Við eigum möguleika á að kom-
ast framar á köi-fuknattleikssviðinu
ef FIBA samþykkir lög sem heimila
NBA-leikmönnum að leika með
landsliði sínu. Þá fáum við Pétur
Guðmundsson. Ég hef talað við
hann og Pétur segist vera tilbúinn.
Það er hinsvegar erfitt að segja
hvort þetta verður samþykkt. Aust-
ur-Evrópu þjóðir, Asía og Banda-
ríkin eru á móti. En ef þetta verður
samþykkt þá gjörbreytist íslenska
liðið. Þá myndum við ekki tapa oft-
ar fýrir Dönum.
En með eða án Péture er tak-
markið það sama. Ná íslandi af
botninum og ég held að mér takist
það því eg held að íslendingar eigi
ekki heima á botninum.“
Dr. Laszlo Nemeth
Fullt nafn: Lásló Németh.
Fæðingardagur: 25. október 1951, í Búdapest.
Starf: Þjálfari KR og íslenska landsliðsins í körfuknattleik.
Menntun: Dr. í þjálfunarfræði frá Háskólanum í Búdapest.
Ferill sem leikmaður: Lék með Honved Búdapest og liði Háskól-
ans í Búdapest. Lék 12 landsleiki með ungverska landsliðinu.
Ferill sem þjálfari: Þjálfaði Csepel i 1. deild á Ungveijalandi
1977-1984. Þjálfaði Qadsia í Kúvæt 1985-1988. Þjálfaði landslið
Kúvæt 1987-88.
Titlar: Bikarmeistari með Csepel 1984. Tvöfaldur meistari með
Qadsia 1985, 1986 og 1987.
b
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / LANDSKEPPN!
Eggert og Pétur ekki
með til Luxemborgar
Þrír nýliðar úr HSK í íslenska landsliðshópnum
LANDSKEPPNI íslendinga og
Luxemburgara ífrjálsum
íþróttum fer fram um næstu
helgi í Luxemburg. í fyrra
mættust þessar þjóðir í keppni
hór heima og fóru íslendingar
þá með sigur af hólmi; hlutu
109 stig gegn 92 stigum gest-
anna. Luxemburgarar báru því
þá við, að þeir væru ekki með
sitt sterkasta lið, en nú snýst
dæmið sennilega við, því
fslenska liðið verður án tveggja
ólympíufara; þeirra Eggerts
Bogasonar og Póturs Guð-
mundssonar.
rír nýliðar vefða í íslenska
fijálsíþróttalandsliðinu, sem
fer til Luxemburgar og eru þeir
allir úr HSK. Nýliðamir eru Andrés
Guðmundsson, sem keppir í kúlu-
varpi í stað Péture, Friðrik Lareen,
sem keppir í 4x400 metra boð-
hlaupi, og Unnar Garðarsson, sem
keppir í krínglukasti í stað Eggerts.
Að sögn Ágústs Ásgeiresonar,
formanns FRÍ, báðust þeir Eggert
og Pétur undan þátttöku í lands-
keppninni, vegna þess, hvemig þeir
hafa hagað æfingum sínum fyrir
Ólympíuleikana í Seoul.
„Eggert segist ekki vera tilbúinn,
til að keppa strax, því undirbúning-
ur hans hefur allur miðast við þátt-
tökuna í Seoul," sagði Ágúst.
„Hann telur sig ekki vera kominn
í nógu góða æfingu, til þess að
geta tekið neina áhættu um þessar
mundir. Hann mun þó að líkindum
keppa á æfingamóti í Reykjavík í
næstu viku.
Pétur telur sig hins vegar ekki
mega við því að missa fjóra daga
úr undirbúningi sínum fyrir leikana,
og þess vegna baðst hann undan
þátttöku að þessu sinni," sagði
Ágúst Ásgeireson að lokum.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / SPJÓTKAST
íris náði þriðja lengsta
kasti sínu frá upphafi
ÍRIS Grönfeld, spjótkastari og
ólympfufari úr UMSB, virðist
vera aö ná sór aö fullu eftir
að hafa hlotið slæm meiðsl f
öxl snemma í sumar. A frjáls-
íþróttamóti í Borgarnesi á
laugardag kastaði hún 59,40
metra, sem er þriðja lengst
kast hennar í ár.
E g reikna með að það séu
svona tvær vikur þar til ég
hef náð fullum styrk,“ sagði íris
eftir kastið í Borgamesi. Það þýð-
ir að hún ætti að vera komin í
sína fyrri æfíngu þegar á hólminn
verður komið í Seoul.
íris setti tvisvar ísl.andsmet á
mótum í Noregi i maí, kastaði
fyret 61,04 og viku seinna 62,04
sem mun vera um þrítugasta
bezta spjótkastsafrekið í heimin-
um í ár. Nokkru seinna meiddist
hún síðan í öxl, sem er afdrifaríkt
fyrir spjótkastara. Hún hefur tek-
ið miklum framförum frá í fyrra,
þegar hún kastaði lengst 56,54.
Islandsmetið hennar stóð í vor í
59,12 metrum. Árangur hennar í
Borgamesi sl. laugardag er því
jafnframt þriðja bezta kast henn-
ar frá upphafi.
■ ÞRÍR handknattleiksmenn úr
Stjörnunni, þeir Einar Einarsson,
Hafsteinn Bragason og Gylfi
Birgisson, eru nú staddir hjá stór-
veldinu Gummersbach í Vestur
Þýskalandi, þar sem þeir æfa með
liðinu í eina viku. Með þeim er þjálf-
arí Stjörnunnar, Gunnar Einars-
son, sem mun fylgjast með þjálfun
og kynna sér aðstæður hjá félaginu.
■ FJÓRIR- íslenzkir golfmenn
tóku þátt í belgísku unglingamóti
í síðustu viku. Karen Sævarsdótt-
ir, GS, lék hringina tvo á 164 högg-
um samtals en Ragnhildur Sigurð-
ardóttir, GR á 167 höggum. Þær
urðu í 8. sæti af 10 í keppni milli
þjóða í kvennaflokki. í einstaklings-
keppninni komust þær báðar í 32
manna úrelit en voru slegnar út
þar. Siguijón Arnarsson, GR, lék
á 157 höggum samtals og Eiríkur
Guðmundsson, GR, lék á 166
höggum. Þeir urðu í 10. sæti af 16
í keppni þjóða í karlaflokki. Sigur-
jón sigraði í dragkeppni, sem allir
keppendur tóku þátt í og haldin var
samhliða mótinu. íslendingar hafa
undanfarin ár tekið þátt í þessu
móti en árangurinn nú var betri en
áður.
■ LAJOS Detari, næstdýrasti
knattspymumaður heims, fer í
skurðaðgerð á vinstra hné í Svíþjóð
í vikunni. Ekki er ljóst hvenær hann
verður búinn að ná sér eftir aðgerð-
ina en lið hans Olympiakos á fyreta
leik í grísku deildinni 11. september.
■ ÞRÓTTUR og ÍBK gerðu í
fyrrakvöld 1:1 jafntefli eftir fram-
lengdan leik á Valbjamarvelli í úr-
slitum íslandsmótsins í eldri flokki
í knattspymu. Því þarf að fara fram
nýr ieikur og verður hann í Sand-
gerði á sunnudaginn klukkan 14.
■ TERRY Venables stjóri Tott-
enham í Englandi hefur leitað log-
Gunnar Elnarsson.
andi ljósi að góðum vamarmanni
upp á síðkastið. Venables hefur
víða spuret fyrir en alls staðar feng-
ið sama svarið; viðkomandi leik-
menn eru ekki til sölu. Talið er
líklegt að hann bjóði næst í Peter
Shirtiiffe hjá Charlton. Sá er
metinn á 500.000 pund og er talið
að Charlton sé reiðubúið að láta
hann fara.
fl COLIN Clarke, markaskorar-
inn mikli hjá Southampton, vill
fara frá félaginu. „Ég vil leika fyr-
ir sterkara félag. Southampton
verður aldrei það sterkt að það
geti unnið meistaratitilinn,“ sagði
Clarke. Hann er metinn á 750.000
pund. Talið er West Ham geri til-
boð í hann, en Clarke skoraði ein-
mitt gegn West Ham á laugardag-
inn er Southampton sigraði Lund-
únaliðið 4:0 í deildinni.
fl DEAN Saunders skoraði sig-
urmark Oxford í leiknum gegn
Hull, 1:0, í ensku 2. deildinni í
fyrrakvöld. Þetta var fyrsti sigur
liðsins síðan Mark Lawrenson tók
við stjóminni fyrir sex mánuðum.
Útsendarar frá þremur félögum,
QPR, Luton og Chelsea vom á
leiknum til að fylgjast með Saund-
ers, sem er framheiji. En Law-
renson sagði eftir leikinn að hann
færi hvergi. „Saunders er ekki til
sölu,“ sagði stjórinn.
SKOTFIMI
Birglr
setti
heims-
met
Bætti 15 ára
gamalt met í ná-
kvæmisskotfimi
BIRGIR Sæmundsson, úr Skot-
félagi Reykjavikur, setti nýtt
glæsilegt heimsmet í nákvæm-
isskotfimi á heimsmeistara-
mótinu í skotfimi sem nú
stendur yfir í Ohio í Banda-
ríkjunum. Birgir sýndi mikið
öryggi og munaði aðeins 0,691
cm á milli þeirra skota sem
fjærst voru.
m
Inákvæmisskotfimi er mæld
fjarlægð á milli þeirra kúlna sem
fjæretar eru. Birgir skaut 10 sinn-
um af rúmlega 200 metra færi og
aðeins munaði 0,691 cm. Gamla
heimsmetið, sem var sett 1963 og
er því orðið 15 ára gamalt, var
0,774 cm. Þess má geta að sá sem
hafnaði í öðru sæti á mótinu var
með 0,975 og munurinn því tölu-
verður.
Birgir sagði að skilyrði til keppni
hefðu ekki verið góð; nokkur vindur
og það hefði truflað keppendun
Þess má geta að Birgir smíðar sínar
byssur sjálfur og sér um nánast
allt sem við kemur keppni. Hann
keppir einnig í nákvæmisskotfimi
með veiðibyssum, en keppni í þeirri
grein hefst á fostudaginn.